Morgunblaðið - 12.06.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1968
13
Vínlandssafn reist
í Nýfundnalandi
- við rústirnar í Lance aux Meadows
KANADAMENN hyggjast koma
npp safni í Lance-aux-Meadows
á Nýfundnalandi, á þeim stað
sem Helge ogr Anna Stina Ingstad
grófu upp fyrstu minjaa- um
komu Vínlandsfaranna til Amer-
íku og á safnið að vera minja-
safn um það. Frá þessu skýrir
forstjóri safnsins í. Nýfundna-
landi, David Webber, í viðtali í
norsku blaði, en hann er kominn
til Nwegs, tíl að kynna sér vík-
ingaminjar vegna fyrirhugaðs
Vínlandssafns.
Hann segir, að stöðugt vaxi
straumur ferðaimanna til að sjá
rústirnar af fyrstu byggð í Am-
eríku, sem enu uppgrafniar í
Lance-aux-Meadows. Því hafi
Nýfundnalandsmenin áformað að
reisa þarna Vínlandssafn, og
bæta ferðamannastöðu með hó-
telum og vegakerfi á staðinn. —
Þarna er um að ræða merkasta
sögustað í Norður-Ameríku, seg-
ir Webber. Meðain fornleifafræð-
ingar eru ekki búnir með upp-
gröft sinn og rannsóknir, þorum
við ekki að stinga niður skóflu
þarna, segir hann ennfremur. En
strax og þeir hafa lokið sínum
störfum, reisum við safnið og
gerum vegi, svo ferðamenn kom-
ist þangað auðveldlega.
Safnið verður til húsa í ein-
um sýniingarskálanum, sem Ný-
fundnaland keypti af heimssýn-
ingunni í Montreal. (Þarna mun
vera átt við Tékkneska sýnimgar-
skálann). og Webber segir, að
safnið verði ekki mjög umfangs-
mikið, því aðeins sé hægt að hafa
það opið fjóra mánuði að sumr-
inu. Ætlunin sé að það eigi að
skýra það sem lá að baki Vín-
landsferðanna og komu Vínlands
fara til Nýfundnalands. Ekki
hafi margir áþreifanlegir munir
fundizt þar, en þar við verði
bætt munum, sem fengnir verði
að láni í einhvern tíma frá öðr-
Starfsmanna-
félag IJtvegs-
bankans 35 ára
STARFSMANNAFÉLAG Útvegs
bankans átti 35 ára afmæli 1.
júní síðastliðinn. í því tilefni var
afmælishátíð haldin að Hótel
Borg, laugardagimn 8. júní. Fjöl-
menni var samankomið af eldri
og yngri sbarfsmönönum banks-
ans.
Ávörp flutbu forseti íslands
herra Ásgeir Ásgeirsson, Adolf
Björnsson, formaður starfsmanna
félagsins og Jóhannes Elíasson
bankastjóxi.
Leikþáttur var fluttur af Brynj
ólfi Jóhannessyni, Ing-u Þórðar-
dóttur og Solveigu Hauksdóttur
um lífið í bankanum í gær og
dag. Þáttiirinn var saminn af
starfsmanni bankans. Tvisööng
sungu Guðroundur Jónsson og
Magnús Jónsson við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar. í lok-
in sungu gamlir félagar úr Karla
kór Reykjavíkur ásamt Guð-
mundi Jónssyni. Þótti öllum
koma þeirra gesta í hófið hressi-
leg og til mikillar ánægju.
um söfnum. Þess vegna verði
safnbyggingin að vera sérlega
vel útbúin og úr eldtraustum
efnum. Safnbyggingin verði að
hafa norrænt yfirbragð. Og það
er einmitt til að átta sig á slíku,
sem forstjórinn er kominn til
Noregs. Auk þess sem hann þarf
að ráðfæna sig mikið við Ing-
stad-hjónin.
Forstjóri safnsins í Nýfundna-
landi tekur það fram, að einm af
sýningarmunum í hinu nýja
safni verði eftirlíking af Gauks-
staðaskipinu norska, en starfslið
hans sé mjög vel þjálfað í að
gera slíkar eftirlíkingar. Verður
skipið i af eðlilegri stærð.
Kostnaður er áætlaður allt að
10 milljónir dollara, þar af er
reiknað með að hálf milljón eða
allt að 750 þús-und dollarar fari
til safnsins sjálfs. Það sé dýrt að
koma öllu efni og munum á stað
inn, þar sem næsta höfn er St.
Antony og nokkuð langur akstur
þaðan. Telur Webber að nauð-
synlegt fé sé fengið. Að hluta
muni Nýfundnaland leggja fram
fé og einnig Kanadastjórn. Sér-
stök stofnun hefur unnið að þró-
unarmálum í Nýfundnalandi, og
hún leitar eftir öllu, sem getur
dregið fólk að þessum lands-
hluta. Hvað það snertir kemur
uppgröfturinn í Lance-aux-Mead
ows í góðar þarfir og öruggt að
fólk sæki þangað í stór'hópum.
Gott skrifstofuherbergi
til leigu í nýju húsi í Austurstræti. Æskilegur ledgj-
andi væri bréfritari eða skjalaþýðandi, er gæti tekið
að sér óverulegar bréfritanir. Tilboð sendist Morg-
unblaðinu merkt: „Skrifstofuherbergi — 8186“.
Jónsmessuferð
Félag Snæfellinga og Hnappadæla í Reykjavíkur
fer skemmtiferð dagana 21. — 23. júní austur í
Vestur-Skaftafellssýslu.
Þátttaka tilkynnist fyrir miðvikudagskvöld 19. júní
til Björgólfs Sigurðssonar Borgartúni 1 sími 18085
og 19615 sem veitir allar nánari upplýsingar um
ferðina.
SKEMMTINEFNDIN.
50 KW. DIESELRAFSTÖÐ
TIL SÖLU
Stöðin, sem er international harvestel er
sáralítið notuð og í fullkomnu ástandi.
Nánari upplýsingar gefur Sverrir Jóns-
son í síma 11390.
H.f. Ölgerðin Egill Skallagrímsson.
VANTAR SKIPSRÚM
Alvanur matsveinn óskar eftir starfi á skipi nú
þegar. Svar óskast sent afgr. Mbl. fyrir 16. júní
n.k. merkt: „Matsveinn — 8985“.
Sálíræðingur
óskast til starfa hálfan daginn við Geðdeild Borgar-
spítalans. Nánari upplýsingar gefur Karl Strand
yfirlæknir í síma 81200.
Umsóknir sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur,
Borgarspítalanum fyrir 24. þ.m
Reykjavík, lö. 7. 1968.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
EYKUR
HEILDSÖLUBIRGÐIR
j) MnHm E gMM M
SÉRRÉTTIR auglýsa
HUSMÆÐUR
Vegna fjölda áskorana höfum við ákveðið að hefja sýnikennslu á matartil-
búningi. Kennt verður við mjög góðar aðstæður.
Ib VVessman yfirmatsveinn Nausts mun annast kennslu og val rétta, sem verða
munu mjög fjölbreyttir. Allar uppl. gefur Óskar Lárusson eftir kl. 7, sími 10909.