Morgunblaðið - 12.06.1968, Síða 18
18
. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1968
SÁLARSVEFN
ÉG BR upprisan og lífið, sá sem
trúir á mig, mun lifa þótt hann
degi. Jóh. 11.25.
Fyrir stuttu barst mér í hend-
ur rit frá Aðventistum, eftir Júl-
íus Guðmundsson. Rit þetta fjall-
ar um sálarsvefn, að sálin sofi
eftir dauðann til efsta dags,
þvert á móti kenningu orðsins:
„í dag skaltu vera með mér í
Paradís". Og „Sá sem trúir á
mig, mun lifa þótt hann deyi“.
Einnig segir Páll postuli: „Ég
hefi löngun til að fara héðan og
vera með Kristi, því það er svo
miklu betra, því lífið er mér
Kristur og dauðinn ávinningur,
oss langar öllu fremur, að hverfa
burt úr líkamanum og vera
heima hjá Drottni". Þessvegna
segir Prédikarinn: „Betri er
dauðadagur en fæðingardagur".
„Og eins og það liggur fyrir
mönnunum eitt sinn að deyja,
en eftir það er dómurinn'*. Hvað
yfir sofandi sálum?
Mér skilst að Júlíus vilja reyna
að sanna, að Jesú hafi ekki kom-
ið í Paradís á föstudaginn langa.
Hann segir að Jesú hafi sagt á
upprisudaginn, að hann væri
„ekki enn farinn upp í himin-
inn“.
En Jesús segir á upprisudag-
inn við Maríu: „Snertu mig ekki,
því að ennþá er ég ekki upp-
stiginn til föður míns, en far þú
til bræðra minna og seg þeim:
Ég stíg upp til föður míns og föð-
ur yðar, til Guðs míns og Guðs
yðar“.
Hér talar Jesús um himnaför
sína eftir holdinu, en ekki um
það er skeði á föstudaginn langa.
Það var í andanum ,sem Jesús
birtist eftir dauða sinn í hópi og
hólpinna sálna í ljóssins og sæl-
unnar himnesku Paradís. En
Hann birtist einnig í heimkynni
fyrirdæmdra til að prédika fyrir
öndunum, sem voru í varðhaldi,
þeim sem óhlýðnast höfðu fyrr-
um, en langlyndi Guðs beið eftir
betrun þeirra á dögum Nóa, er
örkin var í smíðum, sem fáeinar
— það er átta sálir — frelsuðust
í og áttu það vatninu að þakka,
sem er fyrirmynd skírnarinnar,
sem nú einnig, frelsar alla, sem
því trúa, „svo sem orð Guðs og
fyrirheit hljóða“.
Hvorki munu trúaðir né van-
trúaðir sofa eftir dauðann.
hinn ríki maður og fátæki. Lúk.
16, 19-31. í sálmi Davíðs 115 seg-
ir svo: Eigi lofa andaðir menn
Drottin, né heldur neinn sá,
sem hníginn er í dauða þögn. En
vér viljum lofa Drottin héðan í
frá og að eilífu. Hallelúja.
Þér óskynsömu Aðventistar,
hví skiljið þér ekki ritningarnar?
Ef sálin (lífið) í manninum
svæfi eftir dauðann, mundi eng-
inn lofa Drottin. En Guði sé lof
að sálin lifir þótt líkaminn deyi
og verði að moldu. Orð Jesús:
Ég lifi og þér munuð lifa.
Ef sálin skilur hér við í trúnni
á Jesúm, er hún heima hjá
Drottni og hvílist þar í sælum
friði íklædd sælunnar ljóma, í
dýrlegri mynd, unz hún samein-
ast aftur líkama sínum í uppris-
unni frá dauðum á efsta degi og
verður þá líkur dýrðarlíkama
Jesús Krists, fyrir Hans órann-
sakanlegan mátt og visdóm.
„Vér vitum, að þegar Hann
birtist, þá munum vér verða
Honum líkir, og sjá Hann eins
Hann er“. Þegar Kristur
Hótel Búðir
Opnum 14. júní, föstudag. Sími um Staðarstað.
HÓTEL BÚÐIR,
Snæfellsnesi.
Próf í bílaniálun
verður haldið laugardaginn 22. júní að Skeifan 11,
ef nSeg þátttaka fæst.
Upplýsingar í sima 35035.
PRÓFNEFNDIN.
Til leigu
er húsnæði til sælgætis- og benzínsölu á vörubíla-
stöð Akraness.
Upplýsingar veitir Halldór Sigurðsson, sími 1394
Akranesi.
vort líf, opinberast, þá munuð og
þér ásamt Honum opinberast í
dýrð“.
Þetta er hin sæla von Guðs
barna (þeirra sem í sannleika
trúa á Krist Jesúm) sem upp-
fyllist við dýrðaropinberun hins
mikla Guðs og frelsara vors,
Jesú Krists, sem dauðann afmáði
og leiddi í ljós lífið og ófor-
gengileikann með sinni dýrlegu
upprisu frá dauðum og himnaför.
Honum sé dýrð um aldir alda.
Amen.
Kristján Á. Stefánsson.
- ORMASJÚKD.
Framlh. af bls. 19
bólusetningaratriði, l£kt og bnáða
pestin. Það er þvi kominn tími
til fyrir Alþingi og ríkisstjórn
að stokka upp spilin og annað-
hvort að leggja nefndina niður
eða að £á henni önnur meirihátt
ar verkefni, eins og það t.d. að
hefja baráttu gegn ormaveiikinni,
sem veldur mestum fjárhagsleg-
um skaða af öllum sjúkdómum í
landinu, þótt hægt farL En þeg-
ar betur er að gáð sýnist óþarfi
að burðast öllu lengur með nefnd
ina, sem slíka, og skrifstofu
hennar, því að þótt rannsókna-
deildin fái aukin, almenn rann-
sóknarefni, verður ekki leng
ur um rándýrar ráðstafanir að
ræða, eins og uppbætur til
bænda fyrir dauða gripi eða
girðingar frá sjó til fjalla. Rann
sóknadeildin yrði þá lögð und-
ir deild háskólans á Keldum til
aðstoðar rannsóknadýralæknin-
um þar og með hann sem deild-
arstjóra. Um leið yrði og að
skapa deildinni trauatan fjár-
hagsgrundvöll.
Ásgeir Einarsson
- FRÆÐSLUKERFIÐ
Framih. af bls. 21
skólamenn hafa ástæðu til að
þakka menntaskólum fyrir
margt vel unnið verk, þótt ým-
islegt vanti reyndar inn í þekk-
ingu stúdenta. Málakennslan er
enginn hégómi, enda verða stú-
dentum sízt kennd of mörg fög-
ur orð og gagnleg hugtök. Veika
hliðin er hins vegar þroskinn,
bæði í menntaskólum og öðrum
skólum íslenzkum.
Latínunni tel ég ekki skynsam
legt að sleppa, því að frá henni
og grískunni er komið vísinda-
mál Vesturlanda, sem menn læra
líkt og páfagaukar, ef þeir
þekkja ekki þessi mál. En lesa
mætti léttari texta, því óþarfi er
að læra hernaðarmál Róm-
verja, en nauðsynlegt að læra
mál vísinda og hugsjónasögu.
Tilraunir og páfagauka-
lærdómur.
Tilraun var gerð á megin-
landinu, fólgin í því að láita
börn sækja skóla annan hvorn
dag. Síðan voru börnin prófuð
— strangvísindalega — með
sömu verkefnum sem þau, er dag
lega sóttu skóla. Enginn mun-
ur varð á hópunum sem gengu i
skóla daglega og hinum.
Tíðindi þessi bárust til Vestur
heims, og vel kunnum skóla-
manni þar vestra varð að orði:
„Eins og ég hef áður sagt, ekki
Hér vantar reyndar upplýsing-
ar um kennara og foreldra og
kennsluaðferðir. Bækur ognáms
efni var eins. Umhverfi var ó-
líkt. En tilraunin sýnir að langt
er enn að því marki að menn
viti hvaða námstilhögun sé hin
bezta.
Þá hafa tíðindi borizt frá til-
raunamenntaskóla, þar sem nem
endum var ætlað að ráða miklu
um tilhögun. Framan af varð
reyndin sú, að lítið varð úr
námi, en mikið úr skemmtunum,
fáeinir nemendur tóku upplyfja
át og sinntu lítt öðru. Tilraun-
in virtist ætla að verða til lít-
illar frægðar og enigrar fyrir-
myndar. En tekið var í taum-
ana og málum virðist að miklu
leyti hafa verið bjargað. Þó er
enn mikil óvissa og ágreiningur,
nema hvað kostnað snert-
ir Hann er þegar tvöfaldur á
hvern nemanda miðað við venju
lega menntaskóla. Fulltrúar
skattgreiðenda voru ekki hrifn-
ir af því, en lítið er hægt að
gera af tilraunum í skólum,
nema almenningur borgi, of
fljótt er enn að fullyrða um nið
urstöður, enda er tilrauninni
ekki lokið enn. Hvort hér er
farið inn á braut framfara eða
afturfarar er ekki vitað, enda
engin trygging fyrir því að eitt
hvað nýtt sé um leið gott.
Lærdómur páfagauka ein-
kennist af tileinkun einstakra
orða og setninga úr mannamáli
sem páfagaukarnir hagnýta
einatt á ótímabæran og álappa-
legan hátt. Óspart þarf að nota
fyrri hluta páfagaukalærdóms í
málanámi, læra orð og setningar
af manneskjum. Þegar menn
læra „Guten Tag“, „Ich liebe
dich“, „Danke Schöhn" og „Bitte
sehr“ eftir að hafa lært til-
svarandi á ensku og dönsku, þá
er hér auðvitað páfagaukalær-
dómur, og menn eru ekki að
auka neinu við þroska sinn eða
lærdóm, heldur leikni. En hún
er líka nauðsynleg, og það er
ómögulegt að komast inn í fram
andi tungumál án nokkurs páfa
gaukalærdóms. Þetta ber ávöxt
ef áfram er haldið og málið lært,
en ekki að öðrum kosti. í mála-
námi verður aldrei auðið að kom
ast fram hjá þessu með öllu, og
í því felst engin sérstök hætta.
Hún felst aftur á móti í því að
staðna á menntunarstigi páfa-
gaukanna.
Framtíðardraumar ráðandi
manna.
Mikil aðsókn að skólum sann-
ar ekki lengur að um sé að ræða
ást á skólunum £ anda Jóns Sig-
urðssonar, eða mannvináttu í
anda þeirra presta, sem mest
börðust fyrir kennaramenntun
og skólum, bæði hér og erlend-
is. Menntun er á vorum tímum
fjárfesting fyrst og fremst.
„Hvar er kvinnan?“ er orðatil-
tæki I Frakklandi, en „hvar eru
peningarnir?" á nú við um heim
allan.
Um veröld alla fjölgar nú tal-
(B| örugg
wmtfP umferð
í öruggum bil
Við viljum vekja
afhygli á þakbifum SAAB bílsins, sem sérstöku
öryggis afriði. Einnig viljum við benda á ótrú-
lega endingu allra slitflata f undirvagni bílsins.
Bíllinn er lika hór fró vegi eins og sjá má.
Spyrjið þann næsfa sem hefur KYNNST SAAB.
SAAB er fjölskyldubíllinn
SVEINN BJÍRNSSONxCO.
SKEIFAN11 SiMI 11531
andi vélum og reiknandi vélum.
Þá mætti spyrja hvort nauðsyn-
legt sé að verja mikilli orku í
að kenna mönnum að tala og
reikna. Mætti ekki smíða vélar í
stað þess að byggja skóla og
mennta kennara?
Svarið er í stuttu máli að enn
er ekki svo langt komið að vél-
in geri kennarana óþarfa, þótt
hana megi vel nota til að létta
störf nemenda og kennara. Þýð-
ingarmest þeirra — og allt of
lítið notuð hér á landi, er prent-
vélin. 1 nágrannalöndum hafa
fjölmiðlunartækin allmikið verið
notuð í þágu kennslustarfs jafn-
hliða prentuðu máli, sem undir-
búið var fyrirfram, og hefir
þetta gefið góða raun, einkum
til upprifjunar á fræðsluefnL
Þannig hafa orðið til heil söfn,
þar sem tvö eða fleiri fjölmiðl-
unartæki hafa verið látin vinna
saman að fræðslu almennings.
Stefnan hérlendis virðist þó
fremur vera að láta hvort sigla
sinn sjó, skólann og fjölmiðlun-
artækin, og virðist ekki vel
ganga að samhæfa hið gamla og
nýja, svo sem sjónvarp og út-
varp annars vegar og prentlist-
ina hins vegar.
Það er yfirlýst stefna flestra
ráðandi manna að þeir vilji
veita þjóðum sínum góða mennt-
un, enda væri gagnstæð stefna
vart frambærileg. En góð mennt
un telst nú ekki sú, sem eflir
siðferðilegan þroska og mann-
gildi. Væri sú raunin á, þá væri
margt á aðra lund en nú er. Góð
menntun í nútímanum telst sú,
sem eykur velmegun og fram-
leiðni, án nokkurs konar hvíta-
galdurs allsnægtanna. Hún srtefn-
ir hægt og sígandi að því marki
að manneskjan lifi af einu sam-
an brauði.
Jóhann Hannesson.
- HAMPIÐJAN
Framh. af bls. 5
— Til framleiðslu Hamp-
iðjunnar eru aðeins notuð
beztu gæðaflokkar af hráefni
og hafa sjómenn tekið hinni
nýju framleiðslu vel. Til-
raunir með fiskilínur úr gervi
efnum hafa staðið yfir sl. tvö
ár og hefur Hampiðjan notið
leiðsagnar athugulla skip-
stjóra, sem þaulvanir eru línu-
veiðum. Árangurinn er nú að
koma fram í „Trevira FP“
fiskilínunum, sem útlit er fyr-
ir að flestir skipstjórar taki
upp notkun á í náinni fram-
tíð.
— Nú hafið þið sjálfir smíð-
að öngultaumavél.
— Já, við tókum í notkun
í janúar sl. sjálfvirka öngul-
taumavél, smíðaða af Bergi
Jónssyni, en hann er yíirmað-
ur vélaeftirlits Hampiðjunn-
ar.
— Er vitað um samsvar-
andi vélar?
— Nei, það er ekki vitað að
slík vél sé tH.
— Hver eru afköst vélar-
nnar?
— Afköstin eru um 2000
taumar á klukkustund og alls
hefur vélin unnið um 1 milljón
tauma í vetur.
— Eru nýjar vélar á döf-
inni í verksmiðjunni?
— Það eru ókomnar vélar
til að samræma fulla nýtingu
vélakerfanna og ein vél er ný-
komin, sem hnýtir tvöfalt
botnvörpugarn úr sveru garnL
— Framleiðið þið eingöngu
fyrir innlendan markað?
— Já, við framleiðum ein-
göngu fyrir innlendan markað
og það má t.d. benda á, að 1
botnvörpugerð er erlendur
kostnaður 20% og innlendur
80%. Við framleiðslu veiðar-
færa er meirihluti kostnaðar
innlend vinna, orka og lögboð
in gjöld og þar af leiðandi
mikill gjaldeyrissparnaður af
starfsemi Hampiðjunnar.