Morgunblaðið - 25.10.1968, Page 1
32 SÍÐtjR
236. tbl. 55. árg. FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, í fjárlagarœðu sinni í gœr:
Stdrfelldustu efnahagsöröugleikar í áratugi
Hvatt til baráttu
gegn Moskvusinnum
— Óvinsœlar ráðstafanir óhjákvœmilegar, ella blasir atvinnu-
leysi við — Rikissjóður hefur aðstoðað síldarútgerð, frystihús
og togara með nýjum fjárframlögum á árinu — Creiðsluhalli
1967 og versnandi staða ríkissjóðs í ár
FJÁRLAGARÆÐA Magnús-
ar Jónssonar, fjármálaráð-
herra, sem útvarpað var frá
Alþingi í gærkvöldi, leiddi
glögglega í ljós hversu þung-
lega horfir í efnahagsmálum
íslendinga um þessar mund-
ir. Þar kom fram, að á árinu
1967 nam greiðsluhalii ríkis-
sjóðs um 73 milljónum króna
miðað við nýja uppgjörsað-
ferð en sé miðað við eldri
aðferðir hefði greiðsluhallinn
numið nær 200 milljónum
króna. Jafnframt versnaði
staða ríkissjóðs gagnvart
Seðlabankanum mjög veru-
lega á árinu 1967.
Á þessu ári hefur ástandið
farið síversnandi. Sagði fjár-
málaráðherra, að áður en
innflutningsgjaldið kom til
sögunnar hafi verið fyrirsjá-
anlegt, að tekjur ríkissjóðs
yrðu 160 milljónum króna
lægri á þessu ári en áætlað
var og fyrirsjáanlegt að
rekstrarhalli ríkissjóðs yrði
a.m.k. 300 milljónir króna.
Magnús Jónsson benti á, að
ríkissjóður hefði orðið að
taka á sig margvíslegar skuld
bindingar á þessu ári til þess
að halda atvinnuvegunum
gangandi. í vor tók ríkissjóð-
ur að sér að greiða nokkra
hækkun síldarverðs, sem get-
ur numið 25 milljónum kr.
Óumflýjanlegt reyndist að
veita frystihúsunum aukna
aðstoð, sem getur numið 30
milljónum króna. Saltfisk-
framleiðendur hafa farið
fram á aðstoð, sem getur
numið 20—25 milljónum kr.
Á sl. ári fékk togaraflotinn
greiddan fyrirfram allan
rekstrarstyrk þessa árs og í
ár hefur reynzt óumflýjan-
legt að greiða togurunum 40
milljónir króna til að koma í
veg fyrir stöðvun þeirra og
atvinnuleysi af þeim sökum.
Loks reyndist nauðsynlegt að
gefa síldarverksmiðjunum
vilyrði um aðstoð ef útkom-
an á síldveiðunum reyndist
bágborin eins og nú virðist
komið á daginn.
í lok ræðu sinnar sagði
fjármálaráðherra: „Hið háa
Alþingi og þjóðin öll hlýtur
nú að, verða að horfast í
augu við þá staðreynd, að við
eigum nú við stórfelldari efna
hagsörðugleika að s tríða en
um áratugabil, örðugleika,
sem eru hlutfallslega stærri
en nokkur önnur þjóð, á sam-
bærilegu þróunarstigi, á nú
við að stríða.... Verði und-
irstöðuatvinnuvegum þjóðar-
innar, og þá fyrst og fremst
útflutningsframleiðslunni,
ekki komið á eðlilegan rekst-
ursgrundvöll, þá blasir það
við, sem er voðalegra en allt
annað, atvinnuleysið...... Á
þessum miklu erfiðleikatim-
um krefst þjóðarheill þess, að
pólitískar ýfingar verði lagð-
ar til hliðar og löngunin eft-
ir pólitískum ábata af and-
stöðu við óhjákvæmilegar,
óvinsælar og harðneskjuleg-
ar ráðstafanir, og allir sam-
eini kraftana um að ryðja
torfærunum úr vegi.“
Hér fer á eftir á bls. 13—
15 og 18—19, fyrri hluti fjár-
lagaræðu Magnúsar Jónsson-
ar, fjármálaráðherra, en síð-
ari hluti ræðunnar verður
birtur í Mbl. á morgun:
Framhald á bls. 13
Fundum andstœðinga Dubceks mótmœlt:
Sovézkum hermönnum fagnað sem hetjum
við heimkomuna frá Tékkóslóvakíu
Vín og Moskvu, 24. okt. AP-NTB
# HINN frjálslyndi armur
tékkóslóvakíska kommúnista-
flokksins herti í dag herferð
sína gegn réttlínukommúnistum.
Siðasti liðurinn í þessari her-
ferð er krafa slóvakískra komm-
únista um, að Moskvuhollir
klofningsmenn verði reknir úr
flokknum.
• Jafnframt staðfesti málgagn
sovézka hersins í dag, að brott-
flutningur sovézkra hersveita
frá Tékkóslóvakiu væri hafinn
og sagði, að hermönnunum væri
fagnað á landamærunum með
blómvöndum.
Leiðtogi tékkóslóvakískra
kommúnista, Alexander Dubcek,
átti í dag fund með sendimanni
sovétstjórnarinnar, Vasili Kuzn-
Framhald á bls. 31
Hafinn er brottflutningur herliðs Varsjárbandalagsríkjanna frá Tékkóslóvakíu þótt samið hafi
verið um áframhaldandi dvöl sovézkra hersveita. Þessi mynd var tekin af brottflutningi
Ungverja einhvers staðar í Tékkóslóvakíu.
Lítil breyting á Vietnamviðræðum,
segir Johnson —
Varkár ummceli forsetans við blaðamenn
væri að mannfall Bandaríkja-
manna væri minna en áður.
Hann tók fram, að hann teldi,
að ekki ætti að auglýsa opinber-
lega erfiðar samningaviðræður
Framhald á bls. 13
London, 24. okt. (AP)
BLAÐAEIGANDINN frú Helen
Vlacos, sem hætti útgáfu blaða
sinna í Grikklandi til að þurfa
ekki að lúta ritskoðun herfor-
ingjastjórnarinnar þar, var í gær
kvöldi sæmd gullorðu brezku
blaðamannasamtakanna (The
Institude of Journalists) fyrir
„frækna baráttu fyrir ritfrelsi".
«
Ungt fólh
í A-Þýzknlnndi
fyrir rétti
Berlín, 24. október — NTB
FJÖLDI ungra Austur-Þjóðverja,
aðallega flokksmeðlimir, verða
leiddir fyrir rétt, gefið að sök
að hafa opinberlega mótmælt
innrásinni í Tékkóslóvakíu.
Tæplega 100 unglingar voru,
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum, handteknir í mótmæla-
aðgerðum í Austur-Berlin og
fleiri austur-þýzkum borgum eft
Framhald á bls. 24
Washington, 24. okt. NTB-AP
JOHNSON forseti sagði á
blaðamannafundi, sem hann
boðaði til í dag með stuttum
fyrirvara, að hingað til hefðu
engar verulegar breytingar
átt sér stað í Vietnam-mál-
inu og tilraununum til að
draga úr styrjöldinni. Þar
með virtist forsetinn vilja
draga úr bollaleggingum um,
að fljótlega muni rofa til í
viðræðum Bandaríkjanan og
Norður-Vietnam um frið í
Vietnam.
Forsetinn minnti á, að bla'ða-
fulltrúi hans, George Christian,
hefði sagt þegar þessi orðróm-
ur fékk fyrst byr undir báða
vængi, að engin veruleg breyt-
ing hefði átt sér stað og sagði,
að þessi orð væru enn í fullu
gildi. Aðspurður hvers vegna
hann hefði þagað, ef horfur
hefðu verið á því a'ð rofa mundi
til í friðarviðræðunum, sagði
hann: „Við viljum ekki búa til
fréttir, meðan engar fréttir ger-
ast.“
Forsetinn var mjög varkár er
hann var spurður að því, hvort
minnkandi mannfall Bandaríkja-
manna í Víetnam bæri vott um
að dregið hefði verið úr stríðs-
aðger'ðum og sagðist sizt af öllu
vilja veita mönnum falska ör-
yggiskennd, þótt ánægjulegt
Sjálfsmorðin í Bonn
pólitískt hneyksli?
Stjórnin krafin skýringa
BONN 24. október. — NTB.
Fulltrúar á sambandsþinginu i
Bonn kröfðu í dag stjórnina
skýringa á dauða Hermann
Lúdke aðmíráls, sem gegndi
mikilvægum störfum hjá NATO
og var grunaður um njósnir.
Fulltrúar dómsyfirvalda og ör-
yggislögreglunnar hafa verið sak
aðir um embættisafglöp í blöð-
um, og varnarmálaráðherrann,
innanríkisráðherrann og dóms-
málaráðherrann svara þessum
ásökunum á þingi á morgun.
Talsmenn heraflans staðfestu
Framhald á bls. 31
«