Morgunblaðið - 25.10.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1968
5
Fjöldi ungmenna hefur hafið
sjálfboðastarf í þágu geðvernd-
armála, og er það einkum fóig-
ið í félagslegu samneyti við
sjúblinga. TENGLAR nefnist
þessi félagsskapur ungs fólks,
sem vinnur að slíku hjálpar-
starfi, og fýsir sjálfsagt marga
að fá vitneskju um hreyfinguna.
Af því tilefni fengum við til
birtingar greinargerð eftir Svein
R. Hauksson, stud. med, ta'ls-
mann Tengla, þar sem gerð er
grein fyrir henni.
Veturinn 1965-66 sameinuðust
nokkrir nemendur Menntaskól-
ans í Reykjavík um það áhuga-
mál sitt að hefja hjálparstarf
innan íslenzks samfélags. Hug-
myndir um, hvað gera skyldi,
voru óljósar, en tilgangurinn
var skýr: að öirva þjóðfélagsá-
byrgð einstakhnga með því að
Við Klcppsspítalann starfa Tenglar mikið, og er myndin af lionum.
TENGLAR - Félagslegt samneyti
stuðla að og skipuleggja sjálf-
boðastarf, sem beindist að þeim,
sem orðið hafa viðskila í þjóð-
félaginu.
Geðverndarmál urðu fyrst fyr
ir valinu, einkum vegna þess hve
ástandið í þeim er hörmulegt.
En tilgangur starfseminnar að
geðvernd skyldi vera:
1. að koma sjúklingum á ný í
tengsl við heilbrigt fólk og þann
heim, sem það hrærist í.
2. að kynna geðverndarmál
þannig, að meiri skilningur yrði
meðal almennings á geðsjúkdóm
um, eðii þeirra og lækningu.
Eðlilegt var að snúa sér að
Kleppsspítalanum, en um hann
hafði alíbaf leikið dularful'lur
blær, og jafnvel svo, að almenn-
UERK
m
umnn
Byggjum
gcðdeildir.
Menntum
starfsfólk.
ingi stafaði ótti af staðnum. Nú
skyldi múr einangrunar rofinn
og með því unnið bæði gegn
hleypidómum og lækningu sjúkra.
Ákveðið var að velja 10-12
manna hóp til reynslu ti'l þessa
hjálparsfarfs. Sálfræðingur
hafði umsjón með vali og starfi
sjáMboðaliðanna, en allt fór að
sjálfsögðu fram í samráði við
lækna og hjúkrunarkonur
Kleppsspítalans.
Starfið var ýmist unnið af
hópum eða einstaklingum innan
hans. T.d. fór fimm manna hópur
í heimsóbn á hverja dei'ld
Kleppsspítalans og blandaði geði
við sjúklingana. Af þessu
leiddi svo einstaklingsstarf sem
eðlilegur kunningsskapur, en þó
undir eftiríiti.
Lögð er áherzia á, að sjálf-
boðaliðar komi ekki sem skemmti
kraftar, heldur til þess að kynn
ast sjúklingum á eðlilegan hátt,
þótt þeir séu að vísu reiðubún-
ir til að aðstoða sjúklinga við
að undirbúa kvöldvökur þeir'ra.
Starfsemin hefuir ekki einung-
is verið innan veggja sjúkra-
hússins. Farnar hafa verið ferð-
ir niður í bæ, farið í kvik-
myndahús, kirkju eða annað, eft
ir því sem áhugi býður hverju
sinni. Þá hafa verið haldin
skemmtistörf utan sjúkirahúss-
ins, þar sem veitingar hafa ver-
ið á boðstólum, vinsælir skemmti
kraftar hafa komið fram og að
fokum stiginn dans við undir-
leik hljómsveitar.
Sú reynsla, sem fékkst af starf
inu fyrsta misserið, var svo góð
að áliti ábyrgra aðila, að vet-
urinn 1966-67 var starfið aukið
að mun og hópar sjálfboðaliða
skipúlagðir fyrir hverja deild
sjúknahússins.
Það eru einkum stúdentar og
mennta- og kennaraskólanem-
endur, sem nú taka þátt í starfi
TENGLA vð Kleppsspítalann
og Arnarholt. Hreyfing þessi hef
ur engan félagsfegan ramma. Það
sení sameinar, eru einungis þær
hugsjónir. þau málefni og það
starf, sem unnið er að. Hreyf-
ingin óx mjög í kringum dag
geðverndar, 5. nóv. 1967, en þá
tóku yfir 200 sjálfboðaliðar þátt
í kynningu og fjáröflun í þágu
geðvetrndarmála.
Komið hefur í ljós, að þetta
starf sjálfboðaliðanna er miki'ls
virði, e.t.v. ekki sízt vegna hinna
mörgu, sem dvelja á geðsjúkra-
húsum fyrir þá helztu ástæðu,
að þeir eiga ekki í annað hús
að venda, skortir vini og tengsl
við umheiminn. Féíagslegt starf,
sem sjálfboðaliðar geta unnið, er
því mikilvægur þáttur í lækn-
ingu hinna sjúku.
En margs þarf að gæta .Enn-
eru þær hugmyndir við lýði. að
hlutverk geðsjúkrahúss sé að
vernda sjúklinga sína fyrir um-
heiminum á svipaðan hátt og
hlutverk fangelsa sé að vernda
umheiminn fyrir föngunum. Ein
angrunarstefnan hefur enn sín
ítök í þjóðfélagi okkar. Þess
vegna getur sjálfboðaliði ekki
búizt við hlýjum móttökum hvar
vetna, hvorki frá sjúkfingum né
starfsfólki. Starfið þarfnast
Framhald á bls. 24
Réttarhöld í St.
Romanus-málinu
ísafirði, 21. okt., 1968.
Herrá ritstjóri!
í heiðruðu blaði yðar 16.
okt. S'l., er frásögn af rannsókn,
sem þá hefur staðið yfir í Hull á
hvarfi togarans St. RomanUs í
janúar sl. Ekki er getið heim-
ilda að þessari frásögn, en vegna
þeirra ummæla sem höfð eru eft
ir Þórði Oddssyni, sem var stýri-
maður á v.s. Víkingi III er um-
ræddir atburðir urðu, finn ég
mig knúinn til að gera nokkrar
athugasemdir.
í frásögn b'laðsins er greint
frá því, að Þórður hafi komið
fram sem vitni og greint frá því,
að hann hafi heyrt neyðarkafl
frá St. Romanus. Síðan segir
orðrétt í blaðinu: „Þórður sagð-
ist hafa skýrt skipstjóranum frá
þessu, en vissi ekki hvað hann
gerði í málinu“.
Síðar í frásögninni er þess get
ið, að Þórður hafi verið inntur
eftir því, hvers vegna hann hefði
ekki sjálfur tilkynnt um kallið, og'
er svar hans orðrétt þannig:
„Staðarákvörðunin var 100 míl-
ur frá okkur. Skipstjórinn sagði
að hann myndi annast þetta, en
gerði það ekki.“
Ég undirritaður var skipstjóri
á v.s. Víkingi III er þetta gerð-
ist, og_ ummæli þessi beinast að
mér. Ég hefi ekki haft aðgang
að málsskjölum frá umræddri
rannsókn í Hull, og verð að svo
komnu máli að ætla, að ummæli
Þórðar séu rétt eftir höfð í Mbí.
16. okt. sl.
Hins vegar hefi ég undir hönd
um endurrit úr Sjó- og verzlun
ardómi ísafjarðar, sem fjallaði
um þetta mál 7. febr. sl. og er
þar að finna framburð minn og
skýrslu um þennan atburð og er
hún svohljóðandi:
,,Við fórum í sjóferð frá ísaf.
um kl. 9 um kvöldið 10. jan. sl.
og héldum á fiskimið um 30 sm.
NNV frá Déild. Á leið á miðin
voru skipstjóri og 2. vélstjóri á
verði, en á heimleið voru stýri-
maður og 1. vélstjóri á verði.
„Ég var vakinn þegar komið
var inn að Hnífsdal um kl. 6
eh. 11. jan. Þá sagði 1. vélstjóri
mér frá því að stýrimaðurinn og
hann hefðu heyrt neyðarkall frá
brezkum togara. Sögðust þeir
hafa heyrt nafn togarans og stað
arákvörðun. Þegar ég kom upp í
brú sagði stýrimaður mér nánar
frá þessu og þar á meðal að
nafn togarans hafi verið Roman-
us og að staðarákvörðun hafi
verið 64 gr. N br. og 0 gr. 4V 1.
„Ég spurði stýrimann hvort
neyðarkallinu hefði verið svar-
að og svaraði hann til að ensk-
ur togari hafi kallað hann upp
stuttu síðar. (Innskot mitt: Hér
er átt við að kallað hafi verið í
St. Romanus.)
„Ég ti'lkynnti ekki þetta neyð
arkall sökum þess að ég taldi að
brezki togarinn hafi komizt i
samband við hinn togarann og
vegna f jarlægðar.
,,Ég færði þetta ekki inn í dag
bók.
„Ég vil taka fram að mér er
Ijóst að það er siðferðileg
skylda að tilkynna neyðarkall og
mundi hafa gert það ef ég hefði
talið að það kæmi að gagni. Einn
ig vil ég geta þess að ég taldi að
hundruð hlustunarstöðva, sem
voru miklu nær, hlytu að hafa
heyrt þetta neyðarkali.“
Þórður Oddsson stýrimaður
kom einnig fyrir dóminn og gaf
hann svofellda skýrslu:
„Á landsiglingunni heyrði ég
um kl. 4.30-5 síðdegis 11. jan. í
viðtæki bátsins, sem var opið á
neyðarbylgju 2182 KC-S, eins
og venjulega tíðkast, neyðarkal'l
frá brezkum togara. Það var al-
þjóða neyðarkallið may-day þris
var sinnum í röð og svo var nafn
skipsins gefið upp einu sinni í
mæltu máli, en 2 sinnum staf-
að og síðan var staður skipsins
gefinn upp einu sinni og skrif-
aði ég það niður. Nafn skipsins
var St. Romanus og staðará-
kvörðun var annað hvort 63? 5,5
eða 64°, 5 N br. og 0°,4 V.l.
„Ég heyrði tvisvar sinnum
þetta kall, sem tók um 10 mín-
útur og rétt á eftir kall frá
brezkum togara til þessa togara,
sem kallaði út neyðarkallið. Síð
an heyrði ég ekki meira frá þess-
um skipum vegna trufiana. Ég
gat ekki greint nafn togarans,
sem reyndi að kalla upp St. Ro-
manus. Um hálftima síðar var
skipstjóra sagt frá þessu.
„Ég yil geta þess að ég taldi
skipið vera um 100 milur V frá
Noregi og gerði ráð fyrir að
hundruð hlustunarstöðva, sem
nær voru, myndu heyra neyðar-
kallið. Það ber við að við heyr-
um neyðarkall frá Norðursjó.
„Mér eru ljósar þær skýldur,
sem alþjóða siglingareglur
leggja á skipstjórnarmenn um
tilkynningar á neyðarkölíum,
sem þeir heyra."
Eins og fram kemur af fram-
burði okkar Þórðar fyrir sjó-
rétti á Isafirði, mun St. Roman-
us hafa verið sem næst 1000 sjm.
frá okkur. Hundruð hlustunar-
stöðva eru þar miklu nær, bæði
í landi og á sjó. Fyrir sjórétti á
ísafirði segir stýrimaður að skip
stjóra hafi verið sagt frá þessu
„um hálftíma síðar“, og eins
kemur fram í framburði hans, að
annar brezkur togari hafi liaft
samband við St. Romanus.
Af þessu má vera ljóst, að
stýrimanni var í lófa lagið að
tilkynna sjó'lfur um þetta neyðar
ka'll, þar sem hann var á verði,
eða þá vekja mig strax, en tvö
meginatriði málsins eru þau, að
vegna fjarlægðar og vegna þess
að brezkur togari hefði haft sam
band við St. Romanus, taldi ég
ekki ástæðu til að tilkynna þetta
og trúlega hefur þetta einnig
verið ástæðan fyrir því, að stýri
maður aðhafðist ekki annað í mál
inu, en það, sem fram kemur að
ofan.
Þegar sjóréttur á ísafirði
hafði fjallað um þetta mál og
tekið skýrslu af mér og stýri-
manni, var ekkert frekara að-
hafzt í málinu, og verður því að
álykta, að is'ienzk stjórnar-
völd hafi litið svo á, að hér
væri ekki um neitt misferli að
ræða.
Þórði Oddssyni stýrimanni
var boðið til Hull af brezkum
stjórnarvöldum tií þess að
greina frá þessum atburði. Til
mín hefur ekki verið leitað á einn
eða annan hátt um þetta mál af
brezkri hálfu, og koma mér frá-
sagnir af umræddri rannsókn í
Hull fremur spánskt fyrir sjón-
ir, svo að ekki sé meira sagt.
Ég vil einnig taka fram, að
þeir aði'lar, sem brezka stjórnin
sendi hingað til ísafjarðar til þess
að rannsaka þetta mál, höfðu ekk
ert samband við mig og leituðu
engra upplýsinga frá mér.
(Alíar leturbreytingar eru
mínar.)
Með þökk fyrir birtingu
Virðingarfyllst.
Ásgeir Sölvason, skipstjóri.
Sl
ALLT MEÐ
I
EIMSKIP
JÓLA- OG NÝÁRSFERÐ
M.S. GULLFOSS
23/12 1968 — 8/1 1969.
Viðkomuhafnir: Amster-
dam, Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Thors-
havn.
Á næstunni fe.rma skip voi
til íslands, sem hér segir
ANTWERPEN
Reykjafoss 28. okt.
Skógafoss 4. nóvember *
Reykjafoss 15. nóv.
Skógafoss 25. nóv.
ROTTERDAM
Reýkjafoss 29. okt.
Selfoss 31. okt.
Skógafoss 6. nóv. *
Reykjafoss 18. nóv.
Skógafoss 27. nóv.
HAMBORG
Reykjafoss 26. okt.
Skógafoss 1. nóv. *
Reykjafoss 12. nóv.
Skógafoss 23. nóv.
LONDON
Askja 28. okt.
Mánafoss 7. nóv. *
Askja 15. nóv.
HULL
Askja 25. okt.
Máhafoss 11. nóv. *
Askja 18. nóv.
LEITH
Askja 31. okt.
Mánafoss 13. nóv. *
Askja 20. nóv.
NORFOLK
Brúarfoss 2. nóv.
Lagarfoss 22. nóv. *
Selfoss 29. nóv.
NEW YORK
Brúarfoss 8. nóv.
Lagarfoss 27. nóv. *
Selfoss 5. desember.
GAUTABORG
Tungufoss 4. nóv.
Tungufoss 21. nóv. *
Bakkafoss 30. nóiv.
KAUPMANNAHÖFN
Gullfoss 2. nóvember.
Tungufoss 6. nóv.
Gullfoss 16. nóv.
Tungufoss 23. nóv. *
Gullfoss 30. nóv.
Bakkafoss 2. des.
KRISTIANSAND
Bakkafoss 5. nóv. **
Tungufoss 25. nóv. *
Gullfoss 1. des.
GDYNIA
Bakkafoss 2. nóv.
Skip um 17. nóv.
KOTKA
Skip um 15. nóv. *
* Skipið losar í Reykja
vík, ísafirði, Akureyri |
og Húsavík.
Skip, sem ekki eru merkl
með stjöi-nu, losa aðeins í j
Rvík.
MM3jj
EIMSKIP
I