Morgunblaðið - 25.10.1968, Blaðsíða 13
MORG-UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR X IKTÓBER 1968
13
_ HVERT ER ALIT...?
Framhald af bls. 10
Forvitni.
Ólafur Jónsson, verzlunar-
maður:
Að minni hyggju er for-
vitni ástæðan fyrir þessum
siglingum rússnesku herskip-
anina við ísland, en ég er ekki
Ólafur Jónseon
svo vel að mér að vita, hvern-
ig við getum brugðizt við
þeim á einhvern máta.“
- JOHNSON
Framhald af bls. 1
og kvaðst sannfærður um, að
hann hefði gert rétt þegar hann
ákvað að takmarka loftárásirn-
ar á Norður-Vietnam 31. marz
sL —
Áður en Johnson hélt blaða-
mannafund sinn var þrálátur
orðrómur á kreiki um, að fljót-
lega mundi rofa til í tilraunum
hans til þess að koma á friði í
Vietnam, þrátt fyxir það að
Hvíta húsið gerði allt sem í þess
valdi staeði til að eyða þessum
orðrómi. Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum átti Johnson í
gærkvöld fund með helztu ráðu-
nautum sínum um Vietnammál-
fð, aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að talsmaður
Norður-Vietnama í París lýsti
yfir því við blaðamenn, að miða
mundi í samkomulagsátt, ef
Bandaríkjamenn hættu öllum
loftárásum.
FÖNGUM SLEPPT
í Saigon tilkynnti suður-
vietnámska stjórnin í dag, að
140 stríðsfangar yrðu látnir laus-
ir við hátíðlega athöf n eftir
nokkra daga, og um leið var á
kreiki þrálátur orðrómur um, að
öllum loftárásum á Norður-Viet-
nam yrði hætt. Talsmaður
stjórnarinnar vildi ekkert um
það segja, hvort stríðsfangar
þeir, sem látnir verða lausir,
eru fyrrverandi hermenn Viet
Cong eða hvort norður-viet-
namskir hermenn eru í hópi
þeirra, en áreiðanlegar heimild-
ir herma, að þeir séu Viet Cong
menn. Talsmaðurinn sagði, að
föngunum yrði sleppt í mannú'ð-
arskyni og neitaði því að þessi
ákvörðun stæði í nokkru sam-
bandi við hugsanlega stöðvun
loftárása.
Aðeins 100 bandariskir her-
menn héllu í síðustu viku, og
hefur aldrei orðið eins lítið
mannfall í liði Bandaríkjamanna
í 14 mánuði. Mannfall í liði Su'ð-
ur-Vietnama var líka minna en
venjulega: 132 fallnir. Tiltölu-
lega kyrrt hefur verið á vígstöðv
unum, en í dag sóttu bandarisk-
ir og suður-Vietnamskir her-
menn skyndilega inn í syðri
hluta hlutlausa beltisins á mörk
um Suður- og Norður-Vietnam.
112 Norður-Vietnamar féllu í
átökunum.
FJARLAGARÆÐAN
Framhald af bls. 1
Atkoma
Ríkissjóðs 1967
Áður en ég geri grein fyrir
fjárlagafrumvarpinu fyrir árið
1969, mun ég í stórum dráttum
skýra afkomu ríkissjóðs á árinu
1967 og horfur í fjármálum rik-
isins á yfirstandandi ári.
Vegna breytinga á uppgjöri
ríkisreiknings fyrir árið 1967,
sem ég mun síðar gera nánari
grein fyrir var 'lokun reiknings-
ins það síðbúin, að ég hafði ekki
aðstöðu til að gera Alþingi grein
fyrir afkomu ríkissjóðs það ár,
áður en þingi lauk síðastliðið
vor. Hlýt ég því að fara nokkru
fleiri orðum um reikninginn en
ella hefði verið, en mun þó tak-
marka mig við meginatriði og
vísa um einstaka liði til rikis-
reikningsins, sem lagður hefur
verið á borð háttvirtra þing-
manna.
Um síðustu áramót gengu að
fullu í gildi lög frá 1966, um rík
isbókhald, gerð ríkisreiknings og
fjárlaga. í samræmi við þau lög
voru fjárlögin fyrir árið 1968
gerbreytt frá fyrri efnisskipan
fjárlaga. Ríkisreikningurinn fyr
ir árið 1967 er í sama formi og
hann hefur verið um langt ára-
bll, en það er í síðasta sinn,
sem ríkisreikningur verður gerð
ur upp á þennan hátt, því að
ríkisreikningurinn fyrir árið
1968 verður mjög breyttur til
samræmis við ákvæði hinna nýju
íaga. I>ótt reikningur ársins 1967
sé þannig hið ytra eins og hann
hefur verið, ber að minnast þess,
þegar hann er skoðaður, að ýms-
ar þær meginreglur, sem leiddar
voru í lög með áðurnefndri laga
setningu um ríkisbókhald, eru
notaðar við uppgjör reiknings-
ins fyrir árið 1967. Er afleið-
ingin sú, að niðurstöður reikn-
ingsins eru að ýmsu leyti aðrar.
En þar er um bókhaldslegar að-
gerðir að ræða, sem óumflýjan-
legt var að gera í eitt skipti til
þess að reikningurinn fyrir ár-
ið 1968 geti í einu og öllu ver-
ið gerður samkvæmt nýju lög-
unum. Til þess að geta skoðað
ríkisreikninginn fyrir árið 1967 í
réttu Ijósi og fengið eðlilegan
samanburð við eldri ríkis
reikninga, verða menn að vita
helztu atriði hinnar breyttu
reikningsfærsln, en þau eru
þessi:
1. Tekju- og eignaskattar eru
færðir til tekna eims og þeir eru
á liagðir á árinu, í stað þess að
vera færðir jafnótt og þeir voru
innheimtir, svo sem var. Óinn-
heimtir skattar á áramótum eru
þannig taldir með útistandandi
skuldum, og innheimtar eft-
irstöðvar þessarra gjalda frá
fyrri árum, eru ekki færðar sem
rekstrartekjur. Gjöld af innlend
um tollvörum og söluskattur eru
færð með sama hætti.
2. Sú aðferð, sem nokkuð hef-
ur verið tíðkuð um árabil, að
greiða fyrirfram af fjárveiting-
um næsta árs, hefur verið lögð
niður, þar eð hún samrýmist
ekki hinum nýju lögum um rík-
isbókhaíd, og þær f járhæðir, sem
þannig voru greiddar 1967 og
áttu að greiðast fyrirfram vegna
ársins 1968, hafa allar verið
færðar til gjalda ársins 1967.
Veldur þessi aðferð umfram-
greiðslu á ýmsum liðum, þótt
ekki sé rauraveruiega um neinn
útgjaldaauka að ræða, því að á-
ætlaðar fjárveitingar í fjárlög-
um 1968, verða lækkaðar sem
þessu nemur.
3. í ýmsum tilfellum er reikn-
ingurinn fyllri en áður var,
þannig að tölur færast brúttó í
reikninginn, þar sem í eldri
reikningum var aðeins færður
mismunur fjárhæða. Getur þetta
haft nokkur áhrif milli ára, t.d.
í sambandi við vaxtatekjur og
vaxtagjöld, sem ekki færast allt
fram innan sama reikningsára.
Tekjur á rekstrarreikningi
urðu árið 1967 samtals 5.135.3
millj. kr. eða 430 millj. kr. hærri
en fjárlög gerðu ráð fyrir. Rúm-
1BIRGIR ÍSL.GUNNARSS0N1
HÆSTARETTARLÖGMAÐUR
LÆKJARGÓTU 6B SÍIlll 22120
9
Til sölu
og sýnis
Saab árg. ’67, ekinn aðeins
12 þús. km.
Fíat 134 árg. ’67, ekinn
0500 km. Skipti á ódýr-
ari bíl koma til greina.
Willy’s jeppi árg. ’66 með
blæju, ýmisleg skipti
koma til greina.
Rússajeppi með góðu húsi
árg. ’59.
Chevrolet vörubifreið árg.
’61, sérstaklega vel með
farin og í góðu standi.
Höfuim kaupendur að ný-
legum Volkswagen bif-
reiðum, Consul Cortina
bifreiðum og 5—6 manna
nýleguim bifreiðuan.
Úrvalið er hjá okkur.
Bílasala Matthíasar
Sími 24540. Höfðatúni 2.
Bifreiðoeigendur
Höfum ávallt tynrliggjandi flestar stœrðir af
snjóhjólbörðum.
jP'fiWWwWWwwW Munið að
sameinar gott snjómynstur og mikla endingu
Vökull h/f. (bílabúð), Hringbraut 121, R.
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Gislasonar, Laugavegi 171, R.
Hjólbarðaverkstæðið Hraunholt v/Miklatorg, R.
Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar v/Nesveg, R.
Hjólbarðaviðgerðin, Hafnarfirði.
Aðalistöðin h/f., Keflavík.
Vökull h/f., Glerárgötu 26, Akureyri.
Bifreiðaþjónustan, Borgamesi.
Hermann Sigfússon, ísafirði.
Vélsmiðjan Sindri, Patreksfirði.
lega 50 millj. kr. þessarar fjáir-
hæðar stafar af ósambærilegri
aðferð við færslu vaxtatekna í
fjárlögum og reikningi. Tekj
ur af sköttum og tollum, eru sam
kvæmt reikningnum 295 millj. kr
hærri en fjárlög gerðu ráð fyr-
ir, og tekjur af rekstri ríkis-
stofnana urðu 85 millj. kr. um-
fram áætlun. Af sköttum og toíll
um varð tekju- og eignaskattur
84 milíj. kr. umfram fjárlög, sem
ástæða er til að halda að stafi
að nokkru leyti af betri fnam-
tölum, en að öðru leyti af raun-
verulega hærri tekjum manna en
hafði verið reiknað með í fjár-
lagaáætlun. Aðflutningsgjöld
urðu rúmum 168 millj. kr. hærri
en fjárlagaáætlun, að mestu
leyti vegna meiri innfhitnings á
árinu en gert hafði verið ráð
fyrir, en að nokkru leyti vegna
gengi-sbreytingarinnar. Álagt
tollvörugjald varð rúmlega 8
millj. kr. hærra en fjárlagaáætl-
un. Að öðru leyti voru tekjulið-
ir mjög í samræmi við áætlun
fjárlaga. Munaði þannig aðeins
10 millj. kr. á áætlun og raun-
tölu söluskatts, sem varð sam-
tals 1232 millj.
Við mat á þessum tölum, sam-
anborið við fyrri ríkisreikrainga,
ber að hafa í huga, að álagð-
ur tekju- og eignaskattur og
gjald af innlendum toTlvörum, er
hér allt fært til tekna án hHðsjón
ar af því að hve miklu leyti
þessar tekjur hafa innheimzt á
árinu, en eftirstöðvar þessarra
gjalda frá fyrri árum eru hins
vegar ekki látnar hafa nein áhrif
á afkomu ársins.
Með auknu eftirliti og ítrek-
uðum áminniragum til innheimtu-
manna, hefur síðustu árin verið
lögð rík áherzla á að bæta
innheimtu opinberra gjalda. Hef
ir því miður innheimturani verið
fylgt mjög misjafnlega eftir af
hinum einstöku innheimtumönnu
og það valdið misræmi og raun-
ar misrétti, einkum varðandi
söluskatt og tolla. Þótt sums stað
ar vanti enn töluvert á, að inn-
heimta þessarra gjalda sé kom-
inn í viðunandi horf, hefur þó
ótvírætt færzt í betri átt. Hafa
fíestir innheimtumenn verið heim
sóttir nú í sumar af hálfu ráðu-
neytisins til þess að fylgja eftir
fyrirmælum þess, og nýlega hef-
ur ráðuneytið ákveðið að beita
heimild tollheimtulaga til að
kæra til sakadómsmeðferðar, ef
afgreiddar eru, teknar út eða
teknar eigin hendi ótoUlafgreidd
ar vörur. Þá hafa einnig verið
settar nýjar reglur um toillvöru-
gjald, sem eiga að tryggja traust
ara eftirlit með skilum þess.
Sums staðar hefur gengið erfið-
l'ga með iranheimtu eldri vanskila
á söluskatti, einkum þar sem svo
standa sakir, að aðeins er ein
verz'lun í byggðarlagi og sýslu-
maður því veigrar sér við að
loka henni. En ráðuneytið telur
ekki auðið að láta menn skáka í
því skjólinu, þegar um vanskil
á innheimtufé er að ræða. Vegna
minnkandi tekna og aitmennra
efnahagserfiðleika, hefir hins
vegar innheimta tekju- og eigna-
skatta torveldast verulega á ár-
inu 1967 og verður þess vart, að
gjaldendur láta útsvör til sveit-
Framhald 4 hls. 14
BfLAHLÐTUl
(2!^
Rafmagnshlutir i flestar
gerðir bíla.
KRISTINN GUÐNASON h.f.
Klapparstíg 27. Laugav. 168
Súni 12314 og 21965