Morgunblaðið - 25.10.1968, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
JMffgtiiiMfifrife
Úígeíandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Rits tj ómarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgrei'ósla
Auglýsingar
Askriftargjald kr. 130.00
t lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjiarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsison.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 8. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 8.00 eintakið.
FUNDIR BORG-
ARSTJÓRA
F'yrir tveim árum hélt Geir
Hallgrímsson, borgar-
stjóri, almenna fundi með
Reykvíkingum, þar sem hann
gerði grein fyrir helztu þátt-
um í starfsemi borgarinnar
og svaraði fyrirspurnum fund
armanna. Fundir þessir tók-
ust mjög vel og mikill fjöldi
manna sótti þá. Nú hefur
borgarstjóri ákveðið að boða
á ný til funda með svipuðu
sniði og hann gerði 1966.
Með fundum þessum fær
almenningur beztu aðstöðu,
sem hugsazt getur, til að
kynnast borgarmálum og
koma áhugamálum sínum og
athugasemdum á framfæri.
En Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri hefur gert fléira til að
auka tengslin á milli borgar-
innar og borgaranna. Hann
heldur fasta fundi með blaða
mönnum, þar sem þeir geta
komið spurningum á fram-
færi og hafa þar af leiðandi
betri aðstöðu til að flytja al-
menningi fréttir af málefnum
borgarinnar en ella væri.
Menn virðast ekki gera sér
nægilega glögga grein fyrir
þeirri geysimiklu . breytingu,
sem orðið hefur á opinberum
umræðum á síðari árum, en
nokkuð af þessu skal hér
nefnt:
Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, hefur eins og
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, oft og tíðum kvatt
fréttamenn á sinn fund og
gefið þeim færi á að spyrja
um mikilvæg málefni. Slíkir
fundir æðstu stjórnmála-
manna með fréttamönnum
þekktuzt alls ekki áður fyrr.
f útvarpi og sjónvarpi hafa
á seinni árum verið margir
viðtals- og spurningaþættir,
þar sem margvísleg þjóðmál
hafa verið rædd fyrir opnum
tjöldum. Einnig þetta var
nánast óþekkt fyrir tiltölu-
lega fáum árum.
Morgunblaðið hefur mark-
visst rekið þá stefnu að opna
blaðið meir og meir fyrir
frjálsum umræðum og skoð-
anaskiptum og deilum, svo að
mönnum hefur jafnvel fund-
izt nóg um frjálslyndi blaðs-
ins. Hin blöðin hafa reynt að
feta í fótsporin, en auðvitað
hefur það háð flokksblöðun-
um, að þau eru undir stjóm
pólitískra flokka og gefin út
til að styrkja þá, en ekki til
að annast almenna frétta-
þjónustu og frjálsa blaða-
mennsku.
Þá tóku ungir Sjálfstæðis-
menn upp þann sið fyrir
nokkrum árum að fá pólitíska
andstæðinga á fundi sína og
ræða þar frjálslega hin marg-
víslegu málefni og önnur
stjórnmálafélög hafa reynt
að feta í fótspor þeirra.
Athyglisvert er að almenn-
ingi líkar þessi þróun svo vel,
að kröfur eru nú háværari en
áður um að stjómmálastarf-
semi þurfi að vera fyrir opn-
um tjöldum. Menn virðast
ekki hafa gert sér það ljóst
fyrir fáum árum, að starfsemi
stjórnmálaflokkanna væri
jafn lokuð og þá gerðist, en
nú mitt í þróuninni í átt til
frjálsari umræðna um stjórn-
mál sjá menn allt í einu, hve
sjálfsagðar þær eru og áfell-
ast jafnvel þá, sem forustu
hafa haft um að opna stjórn-
málaumræðurnar.
í afmælisblaði Morgun-
blaðsins fyrir tæpum 5 árum
var um það rætt, að mark-
visst ætti að stefna að því að
opna blaðið fyrir frjálsum um
ræðum, en einnig varað við
öllum stökkbreytingum. Og
sjálfsagt er happadrýgst, að
þróunin haldi áfram í þá átt,
sem hún hefur verið, og þá
munu pólitískar umræður
smám saman færast á heil-
brigðara svið.
STARFSEMI
LOFTLEIÐA
EMns og greint hefur verið
frá hér í blaðinu eru
Loftleiðamenn nú að athuga,
hvort unnt reyndist að flytja
allar viðgerðir flugvéla fé-
lagsins hingað til lands í stað
þess að láta gera við flugvéla
kostinn erlendis. Mundi þetta
veita á annað hundrað manns
atvinnu og þess vegna hafa
verulega þýðingu, einkum nú
þegar þrengra er um á vinnu-
markaðnum en undanfarin
ár.
Loftleiðamenn benda rétti-
lega á, að ekki er þýðingar-
minna að efla starfsemi þeirra
félaga, sem nú eru í rekstri,
en að hleypa nýjum atvinnu-
greinum af stokkunum.
Loftleiðir eru öflugasta ís-
lenzka atvinnufyrirtækið og
raunar hið eina, sem veruleg-
um hagnaði hefur skilað á
undangengnum árum. Aukin
umsvif þessa ágæta fyrirtæk-
is eru öllum gleðiefni, og
vissulega ber að vænta þess
að Loftleiðamenn telji sér
unnt að flytja til landsins þá
starfrækslu, sem hér um
ræðir.
Alþjóðadómstóllinn fjallar um
rétt til landgrunns í Norðursjó
Á MIÐVIKUDAGINN hóíst
fyrsti dómfundur í hinu þýð-
ingarmikla máli um eignar-
rétti'nn á landgrumni Norður-
sjávarins. Það er Alþjóðadóm
stóllimn í Haag, sem fjallar
um málið.
Bæði danska og þýzka utan
ríkisráðuneytið leggja miikið
kapp á að málið gangi sér í
vil. Árum saman hetur gagna-
söfnun staðið yfir og undir-
búningsvinna hefur verið
iinnt af hendi af einstakri ná-
kvæmmi. Snjöllustu lögfræð-
ingar og sérfræðingar í Dan-
mörku og Þýzkalandi hafa
haft undirbúning með hönd-
um og í gegnum siendiráð
þeirra í fjölda landa hefur
skjölum og gögnum verið safn
að, sem talin eru koma að
gagni við flutnimg málsins
fyrir Alþjóðadómstólnum.
Danmörk hefur sjaldan
skotið málum til Alþjóðadóm-
stólins. Síðast gerðist það
1933, þegar deilur vo.ru með
Dönum og Norðmönnum um
rétt til Austur Grænlands. Að
þessu sinni segja Danir ,að
nú sé jafmvel enn rneira í
húfi. Sérfræðimgar hafa bent
á að svo mikið magn af olíu
og graei kunni að vera í land-
grunninu að vimmslumögu-
Lei'kar séu nær ótæmandi. Það
gefur því auga leið, að slí'kt
getur baft úrslitaáhrif á lífs-
afkomu manna í því landi,
sem fær rétt yfir meginhluta
1 an dg runnsins.
Fyrirspurnin sem dómstóln-
um var send hljóðar á þá
leið: „Hvaða þjóðarréttarregl-
ur skulu notaðar við mörkun
á þeim svæðum landegrunns-
ins í Norðursjó, sem tilheyra
viðkomandi aðilum?"
í því felst, að dómstóllinn
igetur ekki ákveðið mörkin
algerlega eftir eigin mati og
skilningi. Taka verður til
greina hvaða reglur eru gild-
amdi í þjóðaréttarlögum.
Spumimgin er hins vegar sú,
hvort viðhlí'tandi á'kvæði séu
til og hvort þeim verður
komið við í tilfelli sem þessu.
Málsaðila skilur á um það
atriði.
Úrskurður Alþjóðadómstóls
ins er kveðinn upp með hlið-
sjón af ákvæðum þjóðairrétt-
ar, á sama hátt og danskir
dómstólar kveða upp dóma
með hliðsjón af dönskum lög-
um. En þjóðarrétturinm er
ekki eins þróaður og laga-
kerfi einstaks lands.
Leit að olíu og gasi á hafs-
botninum hefur verið fram-
kvæmt með svokölluðum
Texas turnum, og í vissum
tilfellium var farið inn yfir
ur dómstólsins verður þeim
í hag, muni Þjóðverjar án
efa bera fyrir sig ákvæðið um
sérstafcar aðstæður. Þeir muni
sennilega halda því fram að
vegna legu þýaku strand-
lengjunnar verði að líta á
málið frá öðrum sjónarhóli og
draiga ályktanir í samræmi
Danskur borturn í Norðursjó.
iandheigismörk ríkja. Sú
hefð komst smám samán á,
og 'hana virða öll rífci, að
hvert land hefur rétt til að
nýta landgrunn sitt. Sú hefð
fékkst staðfes't á sjóréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sem var haildin í Genf
árið 1958, og jafnframt var
þá samin reglugerð um rök
landgrunna landa sem liggja
saman að sjó. Genigið var frá
því, að mörk landgrunna
ættu að ná jafnlangt út frá
nálægustu punktum á strönd-
um laindanma tveggja. Það
felur í sér, að hver staður á
hafsbotninum skuli tilheyra
því riki sem er næst. Eftir
þessari regLu skyldi farið,
nema sérstakar aðstæður
væru fyrir hendi, er gætu
gert strik í reiknimginn.
Danir segja, að ef úrsfcurð-
við það, þar eð að öðrum
kosti murni Þýzkaland fá í
sinn hlu't óeðlilegan lítinm
hluta landgrunnsinis. Því væri
þá svo til að svara af hálfu
Dana, að raunar sé það rétt,
að aðeins lítill hluti Land-
gruninsins fal'li þeim í skaut,
en við því sé ekkert að segja,
þar sem landið sé lokað inni
af Dánmörku og Hollandi.
Aftur á móti loki Holland og
Noregur Danmörku inni.
í löndumum, sem hér eiga
hlut að máli, Danmörku og
Þýzkalandi verður fylgzt af
miklum áhuga með fram-
vindu máLsins, þar sem báðir
aðilar krefjast réttar síns og
telja sig eiga mikilla hags-
mun.a að gæta. Álitið er að
dómstóllinn muni kveða upp
úrskurð sinn einhveim tima
skömmu fyrir jól.
Vlnur Jacqueline vildi
ei stöðva ráðahaginn
Cushing kardináli ver frú Onassis
Boston, 23. október NTB-AP
CUSHING kardináli, sem er
gamall vinur Jasqueline Onassis,
sagði í dag, að hann hefði neit-
að að verða við tilmælum
margra meðlima Kennedy-fjöl-
skyldunnar og fyrrverandi sam-
starfsmanna Kennedys heitins
forseta um, að koma í veg fyrir
ráðahag forsetaekkjunnar og
Aristótelesar Onassis.
í ræðu sem kardínálinn hélt
á fundi í Carítas, 'hj álpafstofnun
káþólsku kirkjunnar, varpaði
hann fram þeirri spurningu,
hversvegna försetaekkjan mætti
ekki gifta3t hverjum sem væri.
Hún hefði sína galla eina og
hver annár, en hvers vegna ætti
að fordæma hana? Það sem
mestu máli skipti væri, að allir
einibeittu sér að því að sýna
kærleika, gagnkvæma virðingu
og miskunnsemi. Annars yrði
bandáríska þjóðih aldrei ein-
huga.
Kardinálinn kvaðst hafa vitað
í marga mánuði um hinn fyrir-
hugaða ráðahag, en hann hefði
ekki getað orðið við bón þeirra
mörgu, sem stöðva vildu ráða-
ihaginn, um að telja um fyrir
Jacqueline. Gagnrýni sú, sem
hún hafi sætt, sé svo fjarri lagi,
að enginn mundi trúa honum ef
hann segði sannleikann. „Varir
mínar eru lokaðar......Ég get
ékki sagt frá samtali sem ég átti
við 'hana undir fjögur augu.
Það var sama hvað ég sagSi
henni: hún hafði þegar skuld-
bundið sig til þess að ganga í
þetta hjónaband fyrir mörgutn
mánuðum ,og ég vissi það.... “
Cushing kardináli sagði, að
staðhæfingar um að frú Onassis
lifði í synd væru fjarstæða. Fár-
ánlegt sé að halda því fram, að
giftingin jafngildi útskúfum úr
kaþólsku kirkjunni.