Morgunblaðið - 25.10.1968, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25 KTÓBER 1968
19
keraur til á þessu ári. Eru því
hðrfur á stórfelldri fjárvöntun
sjóðsins á næsta ári nema hægt
sé að leysa svo fjárhagsörðug-
leika útgerðar og fiskvinnslu, að
þessar atvinnugreinar geti staðið
að fulfu í skilum með skuld-
bindingar sinar gagnvart Fisk-
veiðasjóði og hækkun verði aft-
ur á tekjum sjóðsins af útflutn-
ingsgjaldi. Er þess að vænta, að
f járhagshorfur Fiskvéiðasjóðs
verði ljósari, áður en fjárlaga-
afgreiðslu lýkur og þá metið
hvort óumflýjanlegt reynist að
taka upp einhverja fjárveitingu
til sjóðsins að nýju. í fjárlaga-
frumvarpinu er gert ráð fyrir,
að framlagið til Aflatrygginga-
sjóðs verði skert með sama hætti
og gert var með sparnaðarlög-
unum á þessu ári. Ógerlegt hefur
i*eynzt að fá greiðsluáætlun
fyrir sjóðinn og verður að
kanna það betur, áður en
fjárlög verða afgreidd, hvort að
sjóðurinn geti ekki, þrátt fyrir
þessa skerðingu, staðið undir
skuldbindingum sínum. Með hin
um nýju lögum um fiskmat rík-
isins, þar sem hinar ýmsu mats-
greinar eru sameinaðar undir
einni yfirstjórn, var að því stefnt
að matið gæti í senn orðið virk-
ara og ódýrara. Var í sparn-
aðariögunum ráðgert að lækka
fjárveitingu til fiskmats samtals
3 millj. kr. Lögin komu það
seint til framkvæmda, að þessi
sparnaður verði ekki að veru-
leika á þessu ári, en á það hefur
verið lögð rík áherzlla við yfir-
stjórn fiskmatsins, að hinn fyrir
hugaði sparnaður yrði að verða
raunhæfur á næsta ári og eru
f járveitingar við það miðaðar.
Kostnaður vegna breytingar í
hægri umferð, sem áætlaður var
34.6 millj. kr. í fjárfögum, fellur
nú niður. Raunverulega var þó
ekki um bein útgjöld ríkissjóðs
á þessum lið að ræða í ár, vegna
þess að svo miklu leyti sem kostn
aðurinn ekki greiddist af skatt-
gjaldi á bifreiðar, var hann
greiddur með sérstakri lántöku
í samræmi við sparnaðarlögin.
Heildarkostnaður við breytingu
í hægri umferð er talinn hafa
orðið 68.5 millj. kr. Hið sérstaka
gjald á bifreiðar, sem á var lagt
tit að mæta þessum kostnaði og
átti að greiðast á 4 árum, munu
væntanlega ekki nægja til þess
að standa undir þessum kostn-
aði, en ég tel þá óumflýjarílegt
að gjaldið verði innheimt lengur,
svo að auðið verði að greiða
kostnaðinn eins og til stóð. I
sparnaðarlögum var ákveðið að
stefna að því að lækka heildar-
kostnað við löggæzlu um 5 prs.
Skýrði ég í umræðum um frum-
varpið frá því, að lítlar líkur
væri til, að sá sparnaður gæti
orðið raunhæfur á þessu ári,
heldur bæri fremur að taka þesaa
tillögu sem stefnumörkun. Sér-
stök nefnd hefur unnið að at-
hugun málsins i sumar og hefur
hún þegar skilað bráðabirgða-
tillögum til dómsmálaráðuneytis
ins, sem eru þar í athugun. Er
þess að vænta að auðið verði
að framkvæma hinn fyrirhugaða
sparnað, þótt gera megi ráð fyr-
ir að flestar ráðatafanir i þá átt
mæti meiri eða minni andbyr, en
reiknað er með þessari lækkun
1 fjárlagafrumvarpinu nú.
Ætla verður nú fyrir sérstöku
framlagi til landhelgissjóðs 5.4
millj. króna til greiðslu vaxta og
afborgana af lántöku í sambandi
við smíði nýja varðskipsins Æg-
is. Engu að síður verður um að
ræða allverulegan sparnað hjá
Landhelgisgæzlunni, sem starfar
af því, að með tilkomu nýja varð
skipsins er ætlunin að leggja hin
um minni skipum, sem hafa verið
mjög dýr í rekstri og óhagkvæm
og samuleiðis er nú aftur ákveð
ið ráð fyrir þvi gert að Land-
helgisgæzlan yfirtaki vitaskipið
og er í því sambandi felld al-
gjörlega niður f járveiting til rekst
urs þess á vegum vitamálanna
Raunverulega var tekin um þetta
ákvörðun við afgreiðslu síðustu
fjárlaga, en eitthvert óskiljan-
legt tregðulögmál hefur valdið
því, að ekki hefur tekizt, þrátt
fyrir ítrekaðar kröfur, að fá
þessa breytingu framkvæmda og
vil ég ekki ásaka einn né neinn
í þessu efni, en hér er aðeins
gott dæmi um það, hversu oft
er erfibt að koma við skipulags-
breytingum. Með því að taka
fjárveitinguna nú alveg af vita-
málaskrifistofunni, verður ekki
lengur auðið að spyrna gegn þess
ari skipulagsbreytingu, sem tví-
mælalaust virðist geta leitt til
mjög verulegs sparnaðar, enda
þótt ekki sé reiknað með að
skerða í neinu nauðsynlega þjón
ustu við vitana.
Áætlað er að rekstrarhalli
ríkisspítalanna muni hækka um
rúmar 20 millj. kr. á næsta ári
og er þá miðað við óbreytt dag-
gjöld. Enda þótt erfitt sé að
meta starfsmannaþörf sjúkrahúsa
hefur ekki verið fallizt á beiðni
um viðbótarstarfslið, nema þar
sem sýnilegt var, vegna nýrra
starfsemi að þörf var á viðbót-
arstarfsliði. Nýlega hefur verið
fengið til Landspítalans tæki til
meðferðar vissra nýrnasjúkdóma
sem hingað til hefur orðið að
framkvæma á sjúkrahúsum er-
lendis og jafnframt hefur verið
fengin aðstaða til greiningar á
hjartasjúkdómum, sem ekki hef-
ur verið heldur fyrir hendi hér á
landi. Var talið sjálfsagt að veita
fé til þessarar auknu heilsu-
gæzlu. Annars er það hið brýn-
asta nauðsynjamál að kanna, varð
andi sjúkrahús, eigi síður en
skóla, hvernig þessari lífsnauð-
synlegu þjónustu við borgarana
verði sem hagkvæmast fyrir kom
ið því að hér er um þungan og
sívaxandi bagga að ræða. Virð
ast ýmsar leiðir koma til greina,
sem ég hef ekki aðstöðu til að
gera hér að umtalsefni, en leitað
hefur verið sérfræðiaðstoðar til
þess að athuga skipan sjúkrahús
mála hér, sem til þessa hefur
því miður þó ekki skilað þeim
árangri, sem vonast var til, en
nauðsynlegt er að kanna öll til
tæk úrræði til þess að geta
veitt sem bezta heilbrigðisþjón-
istu á sem hagkvæmastan hátt.
\ síðasta þingi var gerð veiga-
mikil breyting varðandi ákvörð-
un daggjalda á sjúkrahúsum,
með það fyrst og fremst fyrir
augum að dreifa réttlátar en áð-
ur kostnaði við rekstur sjúkra-
húsanna. Ýmis vandamál koma í
ljós, ef framkvæma á þessi nýju
lög, og hefur ekki endanleg á-
kvörðun verið tekin um það,
hversu bregðast skal við þeim
vanda, sem fyrst og fremst
er fólginn í kostnaðarskipting-
unni og því, að daggjöld þurfa
að vera mjög mismunandi há á
hinum ýmsu sjúkrahúsum. End-
anleg niðurstaða varðandi dag-
gjöldin verður auðvitað að liggja
fyrir, áður en fjárlög eru af-
greidd, en vafalaust reynzt ó-
umflýjanlegt, vegna hagsmuna
sjúkrahúsa sveitafélaganna, að
hækka eitthvað daggjöldin, sem
munu valda ríkissjóði hreinum
útgjaldaauka, þótt rekstrarhall-
inn á ríkisspítölunum lækki.
Heildarframlög vegna lífeyris,
sjúkra og slysatrygginga, að með
töldum iðgjöldum atvinnurekend
og hinna tryggðu, eru áætlaðar
1,490 millj. á næsta ári, sem er
196 millj. kr. hækkun frá fjár-
lögum 1968. Raunveruleg hækk-
un er þó ekki svona mikil, og
verður að hafa það í huga við
mat á þessum tölum, því að sú
skipulagsbreyting kemur til fraim
kvæmda á þessu ári, að Trygg-
ingastofnunin yfirtekur ríkisfram
færsluna, en sá kostnaður nemur
rúimum 121 millj. kr. í fjárlög-
um yfirstandandi árs. Aukning
á beinu framlagi ríkissjóðs í
kerfið er rúmar 35 millj. kr. sem
skiptast þannig, að til sjúkra-
trygginga, að meðtalinni ríkis-
framfærslu, er hækkunin 40,3
milljónir, til atvinnuleysistrygg-
inga 4 millj., en framlag til líf-
þyristrygginga lækkar um 9,2
millj. kr. vegna þess að ríkis-
sjóður hafði greitt óeðlilega hátt
framlag til þeirra á síðast liðnu
ári. Framlög til sjúkratrygging-
anna eru áætluð í frumvarpinu,
eftir hinum eldri lögum, en komi
til hækkunar daggjalda, verður
sú fjárhæð að hækka.
Hafin er almenn athugun á
hinum mörkuðu tekjustofnum,
og mun ég ekki nú gera þá að
umtalsefini, en tel þó að rétt sé
að minnast á einn þeirra, þar
sem hækkunin er langmest, en
það er Vegasjóðurinn. Samkv.
bráðabirgðaáætlun er gert ráð
fyrir, að tekjur hans hækki um
165,9 millj. kr. vegna nýrrar
tekjuöflunar til sjóðsins, sem
samþykkt var á síðasta þingi.
í A-hluta fjárlagafrumvarpsins
er gert lausleg áætlun um ráð-
stöfun á fé til vegagerðar á
næsta ári, en til þess að koma
í veg fyrir misskilning, skal tek
ið fram, að hér er um algerar
áætlunartölur að ræða, sem sam
göngumálaráðuneytið er ekki á-
byrgt fyrir, því að svo sem hátt-
virtum þingmönnum er kunnugt
á samkvæmt vegalögum að sam-
þykkja á þessu þingi nýja vega
áætlun, þar sem að sjálfsögðu
verður ákveðið endanlega, hvem
ig fé Vegasjóðs verði ráðstafað,
og má því ekki skilja áætlun-
artölur fjárlagafrumvarpsins sem
neina ákvörðun eða ákveðna til-
lögu um ráðstöfun á fé Vega-
sjóðs. Lagning vegarins milli
Reynihlíðar og Húsavíkur,
vegna Kísiliðjunnar, verður lokið
á þessu ári og fellur því niður
15 millj. kr. fjárveiting til þess
vegar, en í þess stað þarf að
taka upp sérstaka fjárveitingu
til greiðslu lána vegna vegar-
ins, 8 millj. kr.
Tekin er upp ný fjárveiting
vegna Skipaútgerðar ríkisins
25 millj. kr. vegna byggingar-
kostnaðar nýju strandferðaskip-
anna. Hafa verið gerðir samn-
ingar við Seðlabankann um láns
Cjáröflun til þessara framkv.
en samningsverð beggja skip-
anna er um 110 millj. kr. Átti
Skipaútgerðin sjálf aðeins um
12,6 millj. kr. til að standa
straum af byggingarkostnaði skip
anna og mun því ríkissjóður á
næstu árum að leggja fram veru
legt fé til greiðslu. Verður
að sjálfsögðu á þessu stigi engu
um það spáð, hversu há endan-
leg framlög ríkissjóðs þurfa að
verða, en þótt gert sé ráð fyrir
að hin nýju skip geri kleift að
lækka verulega reksturshalla
Skipaútgerðarinnar, er það vænt
anlega of mikil bjartsýni að gera
ráð fyrir því, að útgerðin geti
staðið undir nema mjög takmörk
uðum hluta byggingarkostnaðar
skipanna, og gæti þó orðið um
beinan hagnað að ræða fyrir
ríkissjóð, þegar höfð eru í huga
hin háu framlög til greiðslu
(rekstrarhalla Skipaútgerðarinn-
ar nú. Þar til hin nýju skip
verða tiltæk, mun þurfa að gera
ýrnsar bráðabirgðaráðstafanir til
þess að halda uppi nauðsynlegri
þjónustu Skipaútgerðarinnar við
landsbyggðina, því að í síðasta
lagi næsta vor verður að taka
Esju úr umferð, en hún hefur
reynzt mjög dýr og óhagkvæm
í rekstri, og virðist ótvírætt
hagkvæmara að leysa flutninga-
vandamálið tímabundið með leig
uskipum. Flóabátamálin hljóta
einnig að koma til rækilegrar
endurskoðunar, Vegna mjögbætt
ra samninga hefur t.d. starfis-
grundvelli, að verulegu leyti,
verið kippt undan Norðurlands-
bát og óviðunandi er með öllu
að þurfa að greiða stórfé til
styrktar á rekstri farþegaskips
milli Reykjavíkur og Akraness,
eingöngu vegna þess, hversu nú
verandi skip er óhagkvæmt í
rekstri.
Áætlað er að á næsta ári verði
fylgt sömu reglum um niður-
greiðslur á vöruverði og hækk-
ar því fjárveiting aðeins um 1
millj. kr.
Fjárveiting vegna kostnaðar við
toll og skattheimtu er hækkuð
um 2 millj. kr. Er þó mjögvafa-
samt, að sú áætlun geti staðizt,
miðað við raunverulegan kostn
að á þessu ári og umframgreiðsl
ur á árinu 1966. En svo sem ég
áður hefi vikið að, verður að leita
allra úrræða til þess að draga
úr kostnaði við toll- og skatt-
heim'tu, án þess þó að draga úr
nauðsynlegu öryggi varðandi eft
irlit með toll- og skattskilum.
'Framlög til lífeyrissjóða hafa
verið ofáætluð í fjárlögum yfir
etandandi árs, og lækka þau
framlög því um rúmar 6 millj. kr.
Fjárveitingar til annarra mála,
á vegum fjármálaráðuneytisins,
hækka samtals um 19,3 millj. kr.
10 millj. af þeirri hækkun stafa
af stórhækkuðum vaxtaútgjöld-
fum vegna hinnaj- slæmu stöðu
ríkissjóðs gagnvart Seðlabank-
anum, 1 millj. kr. er áætluð til
greiðslu ýmissa málskostnaðar
og greiðslu dómkrgfa, sem kunna
að falla á ríkissjóð. Er alltaf
um verulegan árlegan kostnað
að ræða vegna ýmissa málsókna
á hendur ríkissjóði og hefur
ekki sérstaklega verið áætlað fyr
ir þeim útgjöldum áður. Loks er
framlag til Ríkisábyrgðasjóðsins
hækkað um 9 millj. kr. og verð-
ur þá 85 millj. kr. Er það þó
mun lægri fjárhæð en fram-
kvæmdastjórn Ríkisábyrgðasjóðs
áætlar að þurfi til að standa
straum af skuldbindingum sjóðs
ins á næsta ári. Frá því að lög-
in um Ríkisábyrgðasjóð voru sett
bötnuðu skil ríkisábyrgðalána
stöðugt ár frá ári, þar til á
árinu 1967, að þáttaskil urðu í
þeim efnum vegna stórvaxandi
erfiðleika atvinnuveganna. Varð
útkoman á því ári sú, að í stað
þess, að framlag til Ríkisábyrgða
sjóðs var lækkað um 15 millj.
kr. í sambandi við fjárlögin til
aðstoðar við útgerðina á því ári,
reyndist óhjákvæmilegt að greiða
til sjóðsins 15 millj. kr. umfram
fjárveitingu á árinu og varð því
heildarfjárveiting til sjóðsins á
því ári 65 millj. kr. Var orsök-
in fyrst og fremst sú, að á þessu
ári féllu á Ríkisábyrgðasjóð mjög
háar ábyrgðagreiðslur vegna 2ja
aðila. Heildargreiðslur Ríkisá-
byrgðasjóðs á árinu 1967, vegna
ábyrgðaskuldbindinga, urðu 251
millj. kr., en á árinu innheimt-
ust ekki nema 176 millj. kr.
Vissar stórar ábyrgðaskuldbind-
ingar, sem féllu á sjóðinn á sl.
ári hafa síðan verið teknar til
rækilegrar rannsóknar, og von-
ast ég fastlega til, að ekki verði
um svipuð áföll að ræða á þessu
ári, en engu að síður er mjög
mikil hætta á því, vegna al
mennra greiðsluerfiðleika, að Rík
isábyrgðasjóður verði fyrir veru
legum áföllum á þessu ári, og
verði því ekki raunhæf sú 10
millj. kr. lækkun á framlagi til
sjóðsins, sem sparnaðarlögin gera
ráð fyrir. Hefur afkoma atvinnu-
veganna að sjálfsögðu grundvall
arþýðingu fyrir stöðu Ríkisá-
byrgðasjóðs.
f sambandi við stöðu ríkisá-
byrgðasjóðs, er rétt að víkja að
einni 'tegund ríkisábyrgða, sem
veitt hefur verið hömlulaust sem
sjálfskuldarábyrgð, þrátt fyrir
hin nýju lög um ríkisábyrgðir,
þar til nú á þessu ári, að þær
ábyrgðir eru veittar með sama
hætti og aðrar ríkisábyrgðir. Á
ég hér við ábyrgðir á lántökum
vegna hafnargerða, sem breytt-
ust með lögfestingu ‘laga um
hafnargerðir á sl. ári. Margar
hafnargerðir standa í óbættum
sökum við Ríkisábyrgðasjóð, en
lögum samkvæmt er ekki leyfi-
legt að veita ríkisábyrgð þeim
aðilum, sem eru í vanskilum við
sjóðinn. Hefur þetta valdið mikl
um erfiðleikum í ár
stöðum. Þennan vanda tel ég
verða að leysa með þeim hætti
að gera verður sér grein fyrir
óhjákvæmilegum hafnarbótum á
viðkomandi stöðum og kostnaði
við þær á næstu árum. Athuga
greiðslugetu viðkomandi hafnar
sjóða og sveitarsjóða og undir
hversu háum afborgunar- og
vaxtagreiðslum þessir sjóðir fái
risið. Samið verði síðan við Rík-
isábyrgðasjóð um greiðriu van-
skilanna til nokkurs tíma, en
hafnarbótasjóður taki síðan að
sér að greiða þann hluta afborg
ana og vaxta, sem sjáanlegt er,
að ekki verði undir risið heima-
fyrir, og verði gengið út frá því,
að slik aðstoð verði endurgreidd
hafnarbótasjóði, þegar viðkom-
andi hafnargerð verður þess
megnug. Sjálfsagt er, að þær
hafnargerðir, sem slíkrar sér-
stakrar aðstoðar njóta, verði
undir sterku fjárhagseftirliibi
hafnamálastjórnar eða sam-
göngumálaráðuneytis. Svipuð
hugsun mun hafa tegið að baki
tillögu nefndar þeirrar, sem und
irbjó nýju hafnarlögin, er hún
gerði ráð fyrir nýrri tekjuöfl-
un ti'l hafnarbótasjóðs. Því mið-
ur neitaði Alþingi að fallast á
hina nýju tekjuöflun, en breytti
hins vegar ekki fyrirhuguðum
skuldbindingum sjóðsins. Ég geri
mér ljósa grein fyrir því, að
með 8 millj. kr. árlegu ríkis-
framlagi, eru titlar líkur til þess
að hafnarbótasjóður fái staðið
undir þeim skuldbindingum, er
'leiða myndu af þessum vinnu-
brögðum, en ég tel miklum mun
æskilegra að auka fjárveitingu
til hafnarbótasjóðs heldur en að
halda áfram að leysa fjárhags-
mál hafnanna með því að greiða
óreiðuskuldir þeirra úr Ríkisá-
byrgðasjóði. Mundi sú lausn held
ur ekki verða hugsanleg, eftir
að farið er að veita aðeins ein-
fatdar ábyrgðir á lánum vegna
hafnargerða. Varðandi skiptingu
fjárveitinga til einstakra hafna,
vona ég að um það geti tekizt
samkomulag, eins og við af-
greiðslu fjárlaga yfirstandandi
árs, að fjárveitingar til ein-
stakra hafnargerða verði við
það miðaðar að greiða að fullu
ríkishlutann, sem á mundi falla á
næsta ári.
Meginstefna fjárlagafrum-
varpsins, varðanidi fjárveitingar
til opinberra framkvæmda, er sú
að þær ' fjárveitingar eru hinar
sömu og í fjáriögum yfirstand-
andi árs, að frádregnum þeim
fjárveitingum, sem í sparnaðar
lögunum voru fetldar niður í
ár ti'l bygginga, sem fyrirhugað-
ar eru, en ekki hefur verið byrj-
að á. Hins vegar eru teknar í
fjárlagafrumvarpið þær 62,6
millj. kr. til byggingar mennta-
skóla og ríkissjúkrahúsa, sem
feMdar voru úr fjárlögum með
sparnaðarlögunum og fjármagn-
aðar í ár með lántökum, þar eð
samskonar lántökur á næsta
ári til þeirra framkvæmda eru
óhugsandi. Hafa því fjárveiting-
ar ríkissjóðs til verktegra fram-
kvæmda raunverulega verið
hækkaðar sem þessu nemur í
fjárfagafrumvarpinu. Líklegt er
þó, að fjárveitingar til opin-
berra framkvæmda þurfi enn að
hækkað um 50-60 millj. kr. og
mun ég nánar ræða þann vanda,
er ég kem að framkvæmdaáætl-
a ýmsum un i-ijjjgjng fyrjr næsta ár.
Tonnlæknai
Stúlka óskar eftir að komas
að sem nema við tannsmíði
eða til aðstoðar á tannlæknis-
stofu.
Tilb. til Mbl. fyrir hádegi á
mánudag 28. þ. m. merkt:
„6774“
Mattúrgangur (hrosti)
gott og ddýrt gripafoður
fœst hjá Ölgerðinni
Egill Skallagrímsson hf.