Morgunblaðið - 25.10.1968, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1968
23
naenjar upphafs síns, sem er veg
nesti hans á lífsins braut. Dýr
og jurtir vaxa og þróast eftir
sömu erfðalögmálum lífrænnar
efnafræði og maðurinn, en á
milli skilur hugur mannsins og
minni, sem sumir hafa kallað sál,
og hefur nafnlaust en eilíft líf
með eftirkomendum.
Börn eru hrifnæm. Þess vegna
er h'lutur móður, ömmu og ann-
arra velunnara ungmenna mikil
vægastur í mótun sálarlífsins,
enda hafa frægir andans menn
verið staðnir að því að koma
einkum í hug aldurhnigin amma
sín er þeir skyldu rekja þróun-
arferil snilli sinnar fyrir kon-
ungum og öðru stórmenni. Á því
sézt, að hvað sem líður fræðum
og vísindum, verður maðurinn
þó aldrei anmað en konu barn,
og það honum mestur sannleik-
ur sem þaðan kemur. (Á síðari
tímum vilja ömmur að vísu ein-
angrast á elliheimflum, en bams
sálir vera mótaðar í stofnunum
hins opinbera, en það er önnur
saga.) En þótt skunnin harðni
meC aldrinum, sakar aldrei að
hitta gott og merkilegt fólk, sem
raunar er oftast hið sama eins
og Beethovem sagði: „Ég þekki
ekkert annað merki yfirburða
en gott hjartalag". — Þegar ég
kynntist Kristjönu var hún um
áttrætt, en ég mjög af æsku-
skeiði. Ég bjó hjá henni og Ól-
afi í tvo mánuði eitt sumar, er
ég var að nudda við rannsókn-
ir kringum Snæfellsjökul. Er
heim kom, mátti ég fullvissa
Kristjömu um að ég æki ævin-
lega með gætni og færi varlega í
fjöllunum. Síðan át ég fisk, fékk
í nefið hjá Ólafi, og lifði yfir-
leitt því háa andlega lífí. sem
verður í bárujárnsklæddum timb
urhúsum með lágum dyrum. Ekki
minntist ég þess, að neitt sér-
lega „gáfulegt" væri sagt, enida
er sönn menning ekki í því fólg-
in, heldur miklu fremur í kúltí-
veraðri umgengni við umhverfi
sitt, lifandi og dautt. Ég sá vin-
sældir Kristjönu í því, að henni
lagðist allt til líbt og fuglum
himinsins, en sá var auðvitað
munur á, að fuglarnir sá hvorki
né uppskera, en memnirnir upp-
skera eins og þeir sá, svo vitn-
að sé í frelsarann. Það duld-
ist engum, að Kristjana var á-
kaflega óvenjuleg og merk
kona. Reynzíla langrar ævi,
skörp athygli og góðar gáfur
hennar komu fram í djúpu mann
viti elliáranna, gæzku, sem fólg-
in var í kurteisi, trygglyndi og
hjálpsemi við bágstadda fremur
en í taugaveikluðu tilfinninga-
flóði og í óbrigðulli hreinskilni.
En nú er hún horfin til upp-
hafs síns, þessi ágæta kona. Ég
get beðið þess eins, að þeir sem
þekktu hana hafi orðið betri af,
og muni láta aðra njóta.
Sigurður Steinþórsson.
Kveðja frá Helgu Sæmundsdótt
ur og börnum
Nú ertu horfin okkur, vina mín,
a'ldrei framar mjúka höndin þín,
strýkur tár af klökkri
barnakinn,
né kveður rödd þín ljóð við
rúmstokkinn.
Þitt líf var fórn til alls, sem
átti bágt
allt þú skildir, bæði stórt og
smátt.
Þú veittir hjálp þeim veröld
reyndist hál
og vonarbirtu glæddir þeim í
sáL
Sem sólargeisli okkar æfibraut
þú yljaðir, svo barstu hverja
þraut,
sem hetja sönin og oft þótt syrti
í ál,
var ávallt nóg af birtu í þinni
sáL
í hvert sinn þú okkar gistir
rann
svo ástúðleg og hlý við sérhvern
mann,
við óskuðum þess öll af hjarta
þá
þú ávallt mættir dveljast okkur
hjá.
Nú ertu liðin og við
horfum klökk
á eftir þér í h'ljóðlátri bæn og
þökk.
Allt hið góða á lífsins liðnu tíð
þér launi drottiins máttarhöndin
blíð.
R.G.
Tóm dropaglös
Kaupum glös undan bökumardropum. Greiðum kr.
1,00 pr. stk.
Móttaka í Nýborg við Skúliagötu alla virka daga nema
laugardaga frá kl. 9 — 17.
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
Sendisveinn óskost
á ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins.
Vinnutími kl. 1 — 6 e.h.
Upplýsingar á skrifstofu blaðsins.
Framholdsaðalfundur
Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík verður hald-
inn í Lindarbæ, mánudag'inn 28 .október 1968, kl. 8,30
eítir hádegi.
D a g s k r á :
1. Reikningar félagsins.
2. Önnur mál.
Reikningar félagsins liggja frammi í skrifstofu félags-
ins frá 24. þ.m.
Reykjavík 25. okt. 1968.
STJÓRNIN.
Hrafn Haraldsson,
löggiltur endurskoðandi.
Smáragata 6 - Sími 19930.
Ms. Herðubreið
fer austur um land í hring-
ferð 2. nóv. 1968. Vörumóttaka
daglega til Hornafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð
ar, Reyðarfjarðar, Eskifj'arð-
ar, Norðfjarðar, Mjóafjarðar,
Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Húsavíkur, Akur-
eyrar, ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar.
Ms. Arvakur
fer vestur uim land í hring-
ferð 30. þ. m. Vörumóttaka
daglega til Vestfjarðarhafna,
Húnaflóa- og Skagafjarðar-
haifna.
••••••••••••••••••••••
unniö
hér á
landi
Laugavegl 164
Mjólkur
Sfml 11125
Símnefnl: Mjólk- ■ WiC* JL
Reykjavíkur
IHIIHIIIHIIIIIII
BÍLARBÍa
Bifreiiakaupendur:
Enn getum við boðið not-
aða Raimbler Classic bíla —
án útborgunar — gegn fast
eignaveði — ef saimið er
strax.
Glæsilegir bílar nýkomnir
á söluskrá:
Rambler American árg.
1966, gulur.
Willy’s jeppi árg. 1968.
Chevy II. árg. 1965, rauður.
Dodge Dart árg. ’66, rauður
Rambler Classic árg. 1965,
blár.
Rambler Classic árg. 1965,
hvítur.
Lítið inn í sýningarsali
okkar, Hringbraut 121.
Verzlið þar sem úrvalið er
mest og kjörin bezt.'
Rambler-
umboðið
JON
LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — 10600
lllllllllllllllllll
PRENTARAR
Prentsmiðja í örum vexti til sölu. Góðir möguleikar
fyrir unga og framsýna menn. Góðir greiðsluskilmálar.
Þeir er hafa áhuga leggi nöfn og símanúmer inn á
afgr. blaðsins merkt: „Framtíð 1968 — 6712“ fyrir
1. nóvember.
BASAR
Systrafélagsins Alfa í Reykjavík verður í Ingólfs-
stræti 19, sunnudaginn 27. október kl. 13.30.
Margt er þar góðra og ódýrra muna.
Allir velkomnir.
TIL LEIGU
lítið atvinnuhúsnæði hentugt fyrir úrsmið.
Tilboð merkt: „Góður staður — 2102“ sendist
afgr. Mbl. fyrir 1. nóvember.
SIKA
* 0 * . * * e Vrl <s*
* ( Með aðstoð Sika efna
getið þér haldið áfram
^ jj steypuvinnu þó hsgtta
sé á frostum. Verja
o] \'J re llti 1 steypuna niður í -h 10 C.
J. Þorl. & Norðmann.
NÝKOMIÐ
plastskúffur og
virgrindur i skápa
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Lögmannafélag íslands.
FUNDUR
verður haldinn í Tjarnarbúð, föstudaginn 25. okt.
1968, kl. 17.30 síðdegis.
Fundarefni:
7. Ragnar Ólafsson, hrl. flytur erindi um
bókhaldslöggjöfina.
2. Önnur mál.
Borðhald eftir fund.
STJÓRNIN.
Gólfdúkur — plast- vinyl og línólium.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7VSÍX15, 11x11 og 15x15.
Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — elðhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slipp-
fél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinuin, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.