Morgunblaðið - 25.10.1968, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1968
farðu ekki að segja mér, að þú
sért orðin skotin í honum Dvíð.
Eða ertu það kannski? Út með
það!
— Við erum ekkert annað en
góðir vinir, svaraði Jill — Af-
sakaðu, ef þér finnst það ótrú-
legt, en það er bara satt. Ég
býst við að þú komir að horfa
á kappreiðarnar í rnæstu viku,
eða er það ekki? Móses er nú
orðinn góður aftur, en hann tek-
ur ekki þátt í þeim. Ég ætla að
fara á honum til kappreiðanna
og sjá um, að hann verði ekki
snertur.
— Ég verð nú líklega heima
að skrifa bréf og þessháttar,
sagði Sandra. — því að ég þarf
að segja f jölskyldunni fréttirnar
af væntanlegu brúðkaupi, þó
ekki væri annað. Og þarna verð
ur líka svo mikið ryk, þegar ú'lf
aldarnir fara að róta upp sand-
inum. Mig furðar mest á því,
heilan frídag, þegar uppgröft-
urinn stendur sem allra hæst.
— Þeim er meinilla við það,
sagði Jill. — En þau ráða ekk-
ert við þetta, af því að þá er
hátíð Ben-el-Kharin og strák-
arnir mundu þá ekkert vinna,
hvort sem væri. Abdul Hassain
ætlar að flytja bæn og lesa upp
úr kóraninum og ganga þannig í
prests stað. Við verðum að út-
vega þeim einhverja glás af
ávaxtadrykkjum, af því að þeir
snerta ekki við áfengi. En mér
finnst þú ættir að horfa á þetta,
Sandra.
— Kannski þegar fer að líða
á daginn. Það er að minnsta
kosti tilbreyting. . . Ég þykist
viss um, að hann Oliver fari með
mér, en við verðum að fara ríð-
andi á hestum, því að ég ætla
sannarlega ekki að fara að koma
nærri þessum andstyggilegu úlf
öldum ykkar.
Jill hló. — Já sumir þeirra
gömlu eru dálítið geðvondir, en
harin Móses er það ekki. Hann
er ágætur.
Þessir dagar, sem efttir voru
ti'l hátíðarinnar voru erfiðir hjá
Jiil. Þau Sulman bjuggu til
ósköpin öll af mat af þessu til-
efni, en slíkt var talið sjálfsagt,
og allskonar sætindi og sælgæti
varð að búa til. Flutningabíl-
arnir komu hiaðnir matvælum á
hverjum degi. Einn daginn kom
lítil fiugvél, lenti á sandinum og
hafði að færa stóra sendingu af
kryddi, sósum og glösum, sem
Abdul Hapsain hafði pantað, til
þess að máltíðin yrði ósvikin.
Graham horfði á þetta allt,
skuggálegur á svipinn. — í guðs
bænum Jiill, búðu heldur handa
okkur almennilega ketkássu í
kvöld, bað hann. Húm hló við
og lofaði að kássuna skyldu þeir
fá og einfalda ávaxtaköku á eft-
ir.
Hátíðisdagurinn rann upp með
venju'egu glampandi sólskini.
Það var nú farið stöðugt að
hitna í veðri, svo að hátíðinni
varð að vera lokið fyrir há-
degi. Svo áttu gestirnir að éta dg
sofa á eftir í skugganum, en taka
svo til við dansinn þegar færi
að skyggja. Adbul Hassain blés
í horn og kallaði hina rétttrú-
uðu til bænahalds. Þá fylltist all
ur tjaldstaðurinn af hávaða og
gauragangi, meðan lagt var á úlf
aidana og hestana og búizt til að
fara til kappreiðanna, en þær
skyldu fara fr-am í mílu fjarlægð
þar sem sandurinn var nægi-
lega harður til þess að hægt
væri að ríða hart.
Sandra kom inn í þvottatjald-
ið meðan Jill var að þvo sér í
framan. — Hvernig á maður að
vera klæddur á svona hátíðis-
dögum?
— Það veit ég svei- mér ekki.
Ætli það séu ekki buxur eins og
aðra daga. Því að við förum ríð-
andi.
— Hún Enid okkar er komin
í einhverjar hvítar, útsaumaðar
reiðbuxur. En hún er nú
líka með í kappreiðunum. Frú
Högberg-^etmöfertngía
VESTUR-ÍSLENZKT VIKUBLAÐ
Gerizt áskrifendur að Lögberg—Heimskringlu, mál-
gagni Vestur-íslendinga. Áskriftargjaid kr. 450.— á ári.
Eígum nokkur síðustu blöðin til sölu á afgreiðslunni.
Afgreiðslan á Laugavegi 31 er opin alla daga eftir
kl. 2. Sími 17779.
Vinsamlegast geymið þessa auglýsingu.
UMBOÐ
UM ALLT LAND
ALAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2
REYKJAViK SiM113404
ALAFOSS
GOLFTEPPl
Fallowman er í kjól, svo að það
er ekki hægt að þekkja hana
frá Araba. Ég vildi nú gjarna
vera í kjól til tilbreytingar. Það
er heil eilífð síðan maður hefur
komið í pils.
— O, það er nú ekki nema
rúmur mánuður. En það gæti nú
samt verið gaman. Þá gæti ég
setið söðulvega á honum Móses,
aldrei þessu vant. Ég reyndi það
um daginn og það var ekki sem
verst ef nógu hægt er farið.
Gott og vel, Sandra. Við skulum
bara vera kvenlegar í dag.
Jill lagði á borð handa öllum í
matartjaldinu og hafði allt tilbú-
ið áður en hún lagði af stað til
kappreiðanna. Svo fór hún í eina
kjólinn sem hún hafði með sér,
það var gamall grár bómullar-
kjóll, en þó sæmilegur enn.
Henni fannst hann ofljós, en þeg
ar Davíð hitti hana um leið og
hún kom út sagði hann í aðdáun
artón: — Þú ert eitthvað svo af-
skaplega ljós yfirliturri, Jill. Rétt
eins og rjómi.
— Ekki veit ég nú það, en
þakka þér samt fyrir orðið. Ætl-
-ar þú ekki að horfa á skemmtun-
ina?
— Jú, sannarlega, ef ég má
hafa þá ánægju að fylgjast með
þér. Ég veit, að þú verður á hbn-
um Móses, svo að ég hef pantað
hana Fatímu gömlu. Hún er
mamma hans, svo a'ð þeim ætti
að koma vel saman.
— Bíddu augnablik, Davíð. Ég
ætla að gá að, hvort hún Sandra
er lögð af stað. Hún gekk síð-
an inn í skrifstofutjaldið, en þar
var enginn maður. — Oliver hlýt
ur að vera farinn með hana.
— Það held ég ekki, sagði Da-
víð. Hann lagði af stað á honum
Salómon gamla fyrir klukku-
stundu og tók Christie lækni með
sér sem farþega. Kannski Gra-
ham hafi farið með hana. Hann
mundi þiggja það, býst ég við.
Ji'll hrökk við. — Hversvegna
mundi hann það? spurði hún for
vitin.
— Hefurðu aldtei séð löngun-
araugnaráðið, sem hann sendir
henni?
— Nei, það hef ég ekki, svar
aði Jill, og henni varð illt við.
— Og ég'' er alveg viss um, að
þar skjátlast þér, Davíð. Sandra
er bálskotin í honum Oliver. Það
er ég alveg viss um, því að ég er
nú farin að þekkja hana. Hún er
afskaplega hamingjusöm síðan
hún trúlofaðist.
— Gott og vél. Trúðu því, sem
þér finnst trúlegast, sagði Da-
víð og brosti. — Jæja, komdu
nú, við skulum ekki missa af
gamninu. Og ég skál veðja uppá,
að Enid hin fagra sigrar í kapp
reiðunum. Það gerir hún alltaf.
— Áttu við, að það sé fyrir-
fram umsamið?
— Nei, nei, heldur er það hitt,
að Enid hefur allt sitt fram með
frekjunni og þolir aldrei að lúta
í lægra haldi, og svo vinnur hún í
allri keppni á eintómum vilja-
krafti. Þú sk-alt sjá til, hvort ég
segi ekki satt.
Hann rétti henni hönd til að
sveifla henni í rauða og gula söð
ulinn. Móses stóð á fætur og þau
brokkuðu af stað. Það var ekki
Leikfangaland
Leikfangakjörbúð. — Daglega eitthvað nýtt.
IÆIKFANGALAND
Veltusundi 1 — Sími 18722.
Jólakiólamir kooinir
Gott verð. Stærðir 1—6 ára.
Drengjabuxur með belti nr. 2, 4 og 6.
Bleyjur og allt á ungbarnið.
Hvítt flúnel í jakka, skyrtur og lök.
Hvítt poplín í vöggusett.
%
Einnig ungbarnastólarnir vinsælu.
Sendi gegn póstkröfu.
BARNAFATAVERZLUNIN
Hverfisgötu 41, sími 11322.