Morgunblaðið - 25.10.1968, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21-. DKTÓBER 1968
31
Æskulýðsvika KFUM. og K. í húsi féiaganna við Amtmanns-
stíg stendur yfir þessa viku, og eru almennar samkomur á
hverju kvöldi kl. 8.30. Æskulýðsvikunni Iýkur n.k. sunnu-
dagskvöld. Ungt fólk talar á samkomum og mikið er sungið
með gítarundirspili og fleiri hljóðfærum. Myndin er tekin af
hluta æskulýðskórsins í samkomu í fyrrakvöld, sem var fjöl-
sótt af ungu fólki. Grein um æskulýðsvikuna og starf unga
fólksins í KFUM. og K. verður í blaðinu á morgun. Ljós-
mynd Mbl. Á.J.
— Útvarpsumiæður
Framliald af bls. 2
Ræðumaður sagði að á þessu
stigi málsins væri ekki unnt að
segja tál um hvernig við þessum
•vanda ætti að bregöast en lagði
áherzlu á að víðtæk samstaða
■væri nauðsynleg til þess að ekki
færi illa. Birgir Finnsison benti
á að vegna viðræðna stjórnmála-
flökkanna um efnahagsástandið
og þeirra upplýsinga, sem þar
hefðu komið fram, stæðu allir
stjórnmálaflokkarnir nú jafnvel
að vígi til Þess að meta ástandið.
Hann undirstrikaði jafnframt að
þetssi mikli vandi yrði ekki leyst-
ur nema með því að sjávarút-
■veginum yrðu tryggð viðunandi
starfsskilyrði.
Geir Gunnarsson (K) sagði að
fjárlagafrumvörp núverandi
ríkisstjórnar hefðu jafnan mót-
azt af þenslu og verðbólgu-
stefnu hennar. Hins vegar hefði
minna verið hugsað um atvinnu-
vagina og jafnan látið reka á
reiðann, í trausti þess að afli
héldi áfram að vaxa og markaðs-
verð erlendis ykist stöðugt. Þeg-
ar þessu væri ekki fyrir að fara
lengur, væri séð fram á hrun
sjávarútvegsins og stórkostlegt
atvinnuleysi væri á næsta ieyti.
Ekki væri samt hægt að merkja
á neinu í þessu bráðabirgða-
frumvarpi a'ð taka ætti hlutina
fastari tökum. Þvert á móti væri
enn gert ráð fyrir útþenslu rík-
isbáknsins og auknum álögum
á almenning í landinu, sem þeg-
ar hefði orðið að taka á sig
mikla kjaraskerðingu, þar sem
væri minkuð atvinna og hækkað
vöruverð.
i Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra, svaraði í lok fjárlagaum-
ræðunnar athugasemdum þeim,
sem fram komu í ræðum stjórn-
arandstæðinga. Um þá gaghrýni
að ekkert væri á fjárlagafrv. að
byggja sagði fjármálaráðherra,
að frv. gæfi fullgilt yfirlit um
reksturskostnað ríkisins eins og
málin' lægju fyrir nú og það
væri tiltölulega auðvelt og ein-
falt að gera á því þær breyting-
ar, sem nauðsynlegar væru
vegna nýrra efnahagsráðstafana,
þannig að Alþingi gæti afgreitt
frv. fyrir áramót svo sem vera
Iber. >á vék hann að undrun
Heimdellingar
MUNIÐ að gera skil á happ-
drættismiðunum hið fyrsta, því
að dregið verður í Landshapp-
drættinu hinn 5. næsta mánað-
ar, og tíminn því naumur.
stjórnarandstæðinga yfir því að
tillögur um lausn efnahagsvand-
ans fylgdu ekki með fjárlagafrv.
og sagði að þeir, sem þannig töl-
uðu vissu betur. Öllum væri ljóst
að útilokað hefði verið að átta
sig á stöðu atvinnúveganna á
miðju sumri. Fjármálaráðherra
sagði um viðræður stjórnmála-
flokkanna og þær fullyrðingar
stjórnarandstæðinga, að nægar
upplýsingar hefðu ekki legið
fyrir, að aldrei fyrr hefðu jafn
ítarlegar upplýsingar verið fyrir
hendi um ástand og horfur og
einmitt nú og það hefði tekið
furðulega stuttan tíma að afla
þeirra upplýsinga, sem óskað
hefði verið eftir í viðræðunefnd-
inni.
Magnús Jónsson sagði að
stjórnarandstæðingar héldu því
fram að ríkisstjórnin væri stöð-
ugt að framkvæma skyndiráð-
stafanir og benti á að vandinn
hefði stöðugt verið að vaxa,
hvert óhappið hefði rekið annað
og ríkisstjórnin hefði jafnan
leyst hvert vandamál eftir því
sem það hefði komið upp. Hann
sagði að meginstefna ríkisstjórn-
arinnar hefði verið að berjast
gegn verðbólgunni en mörg öfl
í þjóðfélaginu hefðu lagzt á aðra
sveif með stuðningi stjórnarand-
stæðinga. Þeir spyrðu nú hvers
vegna ekki hefði verið safnað í
sjóði á velmegunarárunum og
sagði ráðherrann ástæðuna þá,
að kröfugerðin á hendur at-
vinnuvegunum hefði verið svo
mdkil að það hefði e'kki reynzt
mÖgulegt.
Stefna ríkisstjórnarinnar hefur
verið ljós sagði Magnús Jónsson.
Hún hefur reýnt að komast hjá
kjaraskerðingu í lengstu lög en
nú verður ekkj lengur hjá því
komizt að rétta myndarlega við
hag atvinnufyrirtækjanna og er
vonandi að öll þjóðholl öfl standi
saman um það.
flítur í síldorleit
„ÁRNI FRIÐRIKSSON" mun
halda aftur á miðin fyrir austan
land nú um helgina, en skipið
hefur verið í slipp í Reykjavík
að undanförnu, þar sem fram
hefur farið vélarhreinsun og
annað viðhald.
Mun hafa verið komið nokkuð
fram yfir eðlilegan vélarhreins-
unartíma, vegna anna hjá skip-
inu. Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur mun fara með Árna á mið-
in fyrir austan, en þar hefur
síldarleitarskipið Hafþór verið
að undanförnu.
Varðurfélugur
VARÐARFÉLAGAR, sem hafa
fengið senda miða í Landshapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins, eru
minntir á að gera skil, sem
fyrst, þar sem nú eru aðeins um
tíu dagar þar til dregið verður
í happdrættinu.
Akranesi, 24. okt.
LÍNUBÁTAR hér eru byrjaðir
veiðar. Tveir hafa hafið róðra.
Annar kom inn í gærkvöldi með
Boston, hefur haldið uppi vðrn-
um fyrir hana, og hefur kardi-
nálinn sjálfur sætt gagnrýni fyr
ir. John Heenan kardináli, yfir-
maður kaþólsku kirkjunnar í Eng
landi og Wales, var í dag spurð
ur álits á framkomu Cushings
kardinála, og svaraði hann því
til að enginn kardináli, enginn
prestur, og enginn sannur kaþól-
skur gæti haldið því fram að
kona, sem væri sjálf kaþólskrar
trúar eins og frú Jacqueline
! Kennedy, gæti gifzt fráskildum
manni eins og Aristoteles Onassis.
En, sagði hann, „ef þið þekktuð
Cushing kardinála eins vel og
ég, vissuð þið að hann býr yfir
miklu umburðarlyndi og kær-
leika“. Brezka blaðið Daily Mail
skýrir frá viðbrögðum Cushings
kardinála í dag án þess að ræða
þau frekar, en bendir þó á að
þúsundir brezkra kaþólskra hafi
reynt án árangurs að fá kirkj-
una þar til að leggja blessun
sína á samskonar hjónabönd og
Cushing kardináli er að afsaka.
Frá Buenos Aires bárust í dag
fregnir um tilraun ríkissaksókn-
arans, Juan E. Zapioda, til að
svipta Onassis borgararétti. Seg-
ir Zapioda að Onassis hafi fyrir-
gert rétti sínum með of langri
fjarveru frá Argentínu. Onassis
kom til Argentínu árið 1923, og
var þá aleiga hans um 10 doll-
arar, að sögn. Hóf hann þar út
gerð sína með því að ferja verka
menn yfir Chuelo-ána á litlum
árabáti, en áin rennur um út-
hverfi Buenos Aires. Þegar On-
assis fékk borgararéttindi í Arg-
entíun, lagði hann fram skjöl,
sem á stóð að hann væri fæddur
í Saloniki 21. september árið
1900, og ætti því að vera 68 ára.
Nú er hinsvegar almennt talið
að Onassis sé 62 ára.
Talsmenn bandarísku herstjórn
arinnar í Washington skýrðu frá
því aðspurðir í dag að frú Jacqe
line ætti ekki lengur rétt á því
að láta grafa sig við hlið fyrri
eiginmanns, Kennedys fyrrum
forseta, í Arlington kirkjugarð-
inum, úr því að hún hefði gifzt
á ný. Er þetta samkvæmt nýj-
um lögum, er samþykkt voru í
febrúar í fyrra.
- SJÁLFSMORÐ
Framhald af bls. 1
í dag að uppvíst hefði orðið 24.
september að aðmírállinn hefði
tekið ljósmyndir af leynilegum
NATO-skjölum, en hann var ekki
yfirheyrður fyrr en 27. sept-
ember þegar honum hafði verið
vikið frá störfum. Lögreglan
lagði málið ekki fyrir saksóknara
ríkisins fyrr en 30. september.
Þingmaður úr flokki jafnaðar-
manna, Hugo Collett, hefur beð-
ið stjórnina að svara því hvort
það sé rétt sem sum blöð halda
fram að öryggisþjónusta hersins
hafi brugðið of seint við. Schröd-
er varnarmálaráðherra sagði í
dag að ekki hefði náðst í Liidke
aðmírál þegar upp um hann
komst þar sem hann hefði verið
veiðiferð. Blöðin halda því
fram, að Ludke aðmíráll hafi
verið gefinn kostur á að svipta
sig lífi. Hann fannst skotinn til
bana nálægt landamærum Belg-
íu, þar sem hann var í veiðiferð,
og virðist hafa framið sjálfsmorð.
Oollett þingmaður vill einnig
fá að vita hvort nokkuð sam-
band er á milli Lúdke-málsins
og fjögurra annarra sjálfsmorða
ríkisstarfsmanna. Síðasta sjálfs-
morðið framdi kona sem starfaði
í blaðadeild stjórnarráðsins. Á
mánudaginn hvarf starfsmaður í
varnarmálaráðuneytinu, Gerhard
Böhm, sem sagði í bréfi til fjöl-
skyldu sinnar að hann ætlaði að
fyrirfara sér.
Fyrsta sjálfsmorðið framdi
Hort Wendland hershöfðingi,
annar æðsti maður leyniþjónust-
unnar 8. október. Síðan dó
Lúdke aðmiráll og á föstu-
daginn framdi starfsmaður í
varnarmálaráðuneytinu, Johann-
es Grimm ofursti sjálfsmorð. Á
það er lögð áherzla af opinberri
hálfu að ekkert hafi komið fram
er bendi til þess að samband sé
á milll sjálfsmorðanna. Stjórnin
verðUr á inorgun spurð að því
hvort borgarar njóti nægilegrar
verndar og hvort raunverulega
j 4% lest. — hjþ.
- HEILDARAFLINN
Framhald af bls. 2
og hafa verið gerðar á því leið-
réttingar.
Heildaraflinin er nú 73.729
lestir og hagnýttur þannig:
Lestir:
í salt — 66.484 sjós. tn
52.072 upps. tn.
118.556 tunnur 16.046
í frystingu 16.046
f bræðslu 405
I.andað erlendis 9.475
Á sama tíma í fyrra var afl-
:nn þessi:
Lestir:
í salt — 117.959 upps. tn. 17.222
í frystingu 741
f bræðslu .. 206.236
Til innanlandsneyzlu . . . 15
Landað erlendis 6.734
Alls: 290.938
Hæstu löndunarstaðir sumars-
ins eru þessir:
Lestir:
Reykjavík 12.915
Siglufjörður 24.158
Húsavík 1.099
Raufarhöfn 4.569
Vopnafjörður 1.346
Seyðisfjörður 8.995
Neskaupstaður 2.759
Eskifjörður 3.843
Stöðvarfjörður 1.243
Erlendis hefur verið landað:
Þýzkaland 4.357
Færeyjar 1.351
Hjaltland 1.349
Skotland 1.224
Noregur 79
Erlend skip á miðunum . 1.115
SÍLDVEIÐARNAR
VIÐ SUÐURLAND
Hinn 29. september hófust
haustveiðarnar vif Suðurland,
þegar síld fannst 15—20 sm. NV
af Eldey. Fyrstu dagana voru fá
skip á miðunum og til 12. októ-
ber var ekki landað nema 1.003
lestum. Vikuna 13.—19. október
komu 03 skip með afla að landi,
alls 4.506 lestir. Um hagnýtingu
er það eitt að segja, að síðast-
liðna viku var saltað í 7.589
tunnur.
Heildaraflinn frá X. júní að
telja er orðinn 6.397 lestir og
skiptist þannig á löndunarhafn-
ir:
Lestir:
Vestmannaeyjar............. 463
Grindavík ................. 845 í
Sandgerði/Garður .......... 335
Keflavík ................ 1.549
Hafnarfjörður ........... 1.089
Reykjavík ............... 1.032
Akranes ................... 932
Rif ........................ 85
Ólafsvík . ................. 67
Á sama tíma í fyrra var heild-
araflinn 47.147 lestir, en þá voru
engar veiðihömlur yfir sumar-
tímann sem nú. Aftur á móti
hófust haustveiðar þá ekki fyrr
en 24. október.
- SKARTGRIPIR
Framhald af bls. 2
að horfa á hann. Hver sá í Banda
ríkjunum, sem efast um að hún
sé ástfangin af honum, er fífl“.
Brúðkaupjð hefur vakið nokkr
ar deilur meðal kaþólskra víða
um heim vegna þess að Onassis
er fráskilinn, en kaþólska kirkj-
an viðurkennir ekki skilnað.
Fornvinur frú Jacqueline Onass-
is, Richard Cushing kardináli í
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
l—----------------------r
sé um að ræða samband milli
sjálfsmorðanna þar eð þeir semi
eigi í hlut hafj haft aðgang aði
ríkisleyndarmálum.
—TÉKKÓSLÖVAKÍA
Framhald af bls. 1
etsov, en ekki er vitað hvað
þeim fór á milli.
FUNDAHÖLD
MOSKVUSINNA
í ályktun, sem birt var í dag
í slóvakíska flokksmálgagninu
,,Pravda“, er mótmælt funda-
höldum nokkurra flokksmeðlima
eins og Jozef Jodas, Antonin
Kapek, Arel Mestek og annarra
er rejmi með vafasömum ráðum
að kasta rýrð á frjálsræðisstefnu
flokksins. (Mestek var ráðherra
í stjórn Novotnys forseta). Því
er haldfð fram, að klofningshóp-
ar hliðhollir Moskvu-stjórninni
hafi síðan í byrjun mánaðarins
haldið fundi á ýmsum stöðum í
landinu og barizt fyrir brott-
vikningu Alexanders Dubcek.
í ályktuninni, sem samþykkt
var á fundi flokksdeildar komm
únista, í vísindastöð í Nove
Mesto nad Voham í Vestur-
Slóvakíu, er skorað á miðstjórn
flokksins að binda enda á þessa
starfsemi, draga ályktanir af
henni og lýsa ótvírætt yfir því,
að fólk, sem standi gegn stefnu
flokksins, eigi þar ekki heima.
Birting greinarinnar ber vott
um, að leiðtogar slóvakíska
kommúnistaflokksins eru henni
sammála.
Annað slóvakískt blað, „Vecer-
nik“, segir, að réttlínukommún-
istar telji sig einu vini Sovétríkj-
anna i Tékkóslóvakíu, en starf-
semi þessara klofningsmanna
væri ekki áhyggjuefni ef þeir
væru ekki fulltrúar stalínisma.
Bla'ðið sagði, að hér væri aðal-
lega um að ræða menn, sem mis-
tekizt hefði í stjórnmálum og
efnahagsmálum.
Blaðið „Smena“ í Bratislava
segir, að hætt hafi verið að
mestu leyti umræðum um þörf-
ina á frekari eflingu lýðræðis
en krefst þess að haldið verði
áfram á þeirri braut er mörkuð
var í janúar. í grein um 23 ára
afmæli SÞ segir Bratislava-blað-
fð Pravda, að sú grein sáttmála
SÞ er kveði á um að valdi skuli
ekki beitt í samskiptum þjóða sé
mikilvægasta ákvæði sáttmálans
eins og nú sé háttað.
FAGNAÐ MEÐ BLÓMUM
Rauða stjarnan, blað sovézka
hersins, segir í dag í grein, þar
sem í fyrsta sinn kemur fram af
sovézkri hálfu að Rússar séu að
flytja herlið sitt á brott frá
Tékkóslóvakíu, að nálægt landa
mærunum hafi fjöldi manns tek-
ið sér stöðu og veifað blómum
þegar hermennirnir fóru þar um
á heimleið frá Tékkóslóvakíu.
Blaðfð segir, að hermennimir
hafi komið aftur til Sovétríkj-
anna skammt frá Kaliningrad,
nálægt sovézka Lithaugalandi,
og bendir það til þess að þeir
hafi farið um Pólland. Þess var
ekki getið, hve hermennirnir
voru margir, en hér var um áð
ræða brynvæddar hersveitir.
Blaðið segir, að í Kaliningrad
hafi verið festir upp borðar þar
sem stóð: „Þfð hafið gert alþjóð-
lega skyldu ykkar. Velkomnir
heim til ættjarðarinnar." Margir
buðu hermönnunum brauð og
salt og sigurhátíð var haldin I
herstöð þeirra eftir komuna.
Pólitískur liðsforingi sagði, að
hermönnunum hefði létt mikið
þegar samningurinn um her-
námið var undirritaður í síðustu
viku: „Sviksamleg samsæri gagn
byltingarsinna og heimsvalda-
sinna, sem studdu þá, hafa farið
út um þúfur. Hermenn okkar
ger'ðu alþjóðlega skyldu sína
með miklum sóma og djörfung,"
sagði hann.
Tilkynnt var í Vín í dag, að
2.248 Tékkóslóvakar hefðu beð-
ið um hæli sem pólitískir flótta-
menn í Austurríki síðan innrás-
in var gerð. 7.900 Tékkóslóvakar
munu dveljast í Austurríki, og á
hverjum degi biðja einhverjir
um hæli, eða spyrjast fyrir um
hvort þeir geti flutzt til ann*
arra landa.