Morgunblaðið - 25.10.1968, Síða 32
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1968
INNIHUKÐIR
1 landsins
mesta urvali 4A-4
SIGURÐUR ELÍASSON HF.
AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI.
Torfuslæðingur
VIÐ höfðum samband við Hjálm
ar Vilhjálmsson fiskifræðing á
síldarleitarskipinu Hafþór í gær,
þar sem skipið var statt á mið-
unum um 130 mílur austur frá
Gerpi. Torfuslæðingur var en lít
Háskóla-
hátíð
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður hald-
in fyrsta vetrardag, laugardag
26. okt., kl. 2 e.h. í Háskólabíói.
í>ar leikur strengjahljómsveit
undir forystu Björns Ólafssonar.
•Háskólarektor, prófessor Ár-
mann Snævarr, flytur ræðu.
Stúdentakórinn syngur undir
stjórn Jóns Þórarinssonar tón-
skálds. Háskólarektor ávarpar
nýstúdenta ,og veita þeir við-
töku háskólaborgarabréfum.
Einn úr hópi nýstúdenta flytur
stutt ávarp. Foreldrar nýstú-
denta eru velkomnir á háskóla-
hátíðina.
il veiði. Hjálmari fórust orð á
þessa leið; þegar við spurðum
hann hvernig gengi:
„Það er svona og svona. Það
fannst nú þó nokkuð í morgun
á töluverðu svæði um 130 míl-
ur frá Gerpi, eða um 8 gr. og
20-30 vestl. b. og 64. gr. 40-50
nl. 1.
Það var þó nokkuð af stórum
torfum á þessu svæði og bátur,
sem var á leið frá Austfjörðum
og á miðin þama varð var við
torfuslæðing á leiðinni, eða frá
90 mílum austur af landinu og
út 130 mílurnar.
Maður gæti látið sér detta í
hug að þarna væri einhver strjál
ingur að staðaldri um þessar
mundir, en síldin er ljónstygg.
Rússneski flotinn er um og vest
an við 8 gr. og svo nokkru sunn
ar en við. Á því svæði virtist
vera um að ræða hinar venju-
legu dreifilóðningar, sem hafa
verið algengar 2 síðustu vik-
ur. Síldin er uppi á nóttunni, en
niðri á daginn, en það smá reit-
ist. Það eru ekki margir bátar
hér, en þeir eru að snúast á
þessu svæði 8-9 gr. og fundu t.d.
bletti í morgun, sem vom á 160-
200 faðma dýpi, en í kvöld var
sú síld komin upp, en mjög stygg
og virðist á vesturleið áfram“.
Frú Lára Sigurbjömsdóttir, gjaldgeri Barnaverndarfélags
Reykjavíkur, afhendir séra lngólfi Ástmarssyni, gjaldkera
húsbyggingarsjóðs taugaveiklaðra bama, 250.000 krónur.
Tómas Þorvaldsison flytur skýrslu sína á SÍF-fundinum. Til hægri er Jón Ámason, fundarstjóri,
til vinstri Bragi Steinarsson fundarritari. — Ljósm.: Ól. K. M.
Saltfiskframleiðslan 60% meiri
í ár en á sama tíma 1967
Aukafundur SÍF samþykkti einróma
traustsyfirlýsingu á stjórn samtakanna
AUKAFUNDUR Sölnsamtaka
ísl. fiskframleiðenda, sem hald-
inn var í gær, saniþykkti einróma
traustsyfirlýsingu á stjórn sam-
takanna og þakkaði henni vel
unnin störf að markaðs- og sölu
málum. Allir fundarmenn voru
sammála um, að efla bæri starf
semi SÍF. Tillaga um að heimila
fleirum en SÍF útflutning á salt
fiski var felld með 486 atkvæð-
um gegn 26. Á fundinum kom
fram, að fyrstu 9 mánuði ársins
nam saltfiskframleiðslan 35 þús-
und tonnum, en 21.810 tonnum á
sama tíma 1967. Aukning nem-
ur því 60% á árinu. Á fundin-
um kom fram, að stjórn SÍF tel
ur góðar horfur á þvi, að tak-
ast muni að selja allar birgðir
af blautverkuðum saltfiski í
landinu á næstu vikum.
í skýrslu formanns SŒF, Tóm-
Stórgjöf til húsbyggingar-
sjóðs taugaveiklaðra barna
í GÆR afhenti frú Lára Sigur-
björnsdóttir, gjaldkeri Barna-
verndarfélags Reykjavíkur, séra
Ingólfi Ástmarssyni, gjaldkera
Húsbyggingarsjóðs taugaveikl-
aðra barna, stórgjöf, að upphæð
250.000 krónur.
Eru tvöhundruð þúsund hreinn
ágóði vegna merkjasölu og bóka-
sölu (Sólhvörf), en fimmtíuþús
und krónur ágóði fyrir servíettu
sölu, sem konur í félaginu hafa
annazt og munu halda áfram að
gera.
Á þeim tíma, sem leitazt hef-
ur verið við að reyna að hjálpa
sjóndöprum börnum og heyrnar-
daufum, og öðrvísi afbrigðileg-
um, sögðu forráðamenn félagsins
á fundi með fréttamönnum, hef-
ur ekkert verið gert til að hjálpa
taugaveikluðum börnum, sem
kynnu þó að vera með veilu, sem
lækna mætti, einkum og sér í
lagi, ef hægt væri að taka hana
til meðferðar á vægu stigi.
Sjóðnum hafa borizt gjafir
víðsvegar að, og voru eignir hans
um áramótin, 1967-68 1.800.000.
Hefur húsbyggingasjóðurinn
fulla samvinnu við Hringinn, og
hafa borgaryfirvöldin lofað lands
spildu á lóð Borgarsjúkrahúss-
ins í Fossvogi, og mun það senni
lega annast einhverjar hliðar
rekstursins, er fram í sækir. Er
í ráði að sameina lækningarheim
ili og geðverndardeild Heilsu-
verndarstöðvarinnar, en að 3.
deildin verði deild fyrir geð-
truflun á háu stigi.
Formaður byggingarnefndar-
ar Kristinn Björnsson, sálfræð-
ingur. Sagði hann, að ennþá
hefði ekki fengizt leyfi til hús-
byggingarinnar, en vonandi væri,
að rætast færi úr því.
Gerði nefndin ráð fyrir þvi,
að fyrsti áfangi heimilis fyrir
20 börn myndi kosta 10 millj-
ónir króna, og mætti þessvegna
hefjast handa strax um fram-
kvæmdir.
Merki sjóðsins og bókin Sól-
hvörf verða afhent til sölu í
skólum.
asar Þorvaldssonar, kom m.a.
fram, að af 35 þúsund tonnum
af heildarsaltfiskframleiðslunni
fyrstu 9 mánuði ársins 1968 fari
ca. 1500 tonn til neyzlu innan-
íands og því komi til sölu á er-
lendum mörkuðum um 33.500
tonn.
Af því magni hafa þegar ver-
ið flutt út 18.728 tonn, þar af
89 tonn til Danmerkur, 2.127
tonn til Englands, 1.378 tonn til
Gri'kklands, 4.635 tonn til Ítalíu,
5.322 tonn til Portúgals og 5.185
tonn til Spánar.
Þá hafa verið gerðir samning-
ar um sölu til viðbótar á 1200
•tonnum til Ítalíu, 2.750 tonnum
til Portúgal( mun hcifa verið
gengið frá sölu þangað á 1.300
tonnum í gærdag) og 1400 tonn-
ur því verið samið um sölu á
um til Grikklands. Samtals hef-
ur því verið saniið um sölu á
5.360 tonnum til viðbótar, sem
enn á eftir að flytja út.
Loks liggja fyrir yfirlýsingar
frá kaupendum um kaup á 1.700
tonnum til viðbótar til Spánar,
fáist innflutningsleyfi stjóm-
valda. ítalir munu vera kaup-
endur að 1.000 tonnum til við-
bótar. Er nú unni'ð að því að fá
innflutningsleyfi á Spáni.
Samtals hafa því verið seld
25.778 tonn, en að vísu beðið
eftir innflutningsleyfum fyrir
1.700 tonnum af þvi.
Samkvæmt þessu hafa verið
te'kin til verkunar 7 þúsund tonn
af blautsöltuðum fiski, sem miun
gera um 4.500 tonn af þurrkuð-
um sal'tfiski, en af þvi magni er
þegar búið að selja 2 þúsund
tonn á verði sem ei heldur lak-
ara en fékkst á sl. áxi.
Sjá frásögn af umræðum á
SÍF-fundinum á bls. 3.
Rússornir við
Ingólfshöiðo
TVÖ rússnesk herskip héldu sig
enn skammt út af Ingólfshöfða
í gær, samkvæmt upplýsingum,
sem við fengum hjá Landhelgis-
gæzlunni. Tvö önnur rússnesk
skip sigldu þá í stefnu frá land
inu og til Færeyja, og var þai
um að ræða annan tundurspill-
inn, sem hefur verið hér við
landið að undanförnu, svo og
olíuskip.
ÁRSHÁTÉÐ Sjálfstæðisflokksins
í Vestmannaeyjum verður hald-
in n.k. laugardag í samkomuhús-
inu þar, en hátíðin er ávallt hald
in 1. vetrardag.
Hátiðin hefst með borðhaldi
kl. 8 e.h. Magnús Jónsson, fjár
málaráðherra, mun mæta á árs-
hátíðinni.
Aðgöngumiðasala og borðapant
anir verða í Samkomuhúsinu frá
kl. 5-7 í dag og á morgun.
T augatöf luney tendur handteknir
LÖGREGLUNNI var í fyrri-
nótt tilkynnt, að í húsi við
Háagerði væri fólk undir
annarlegum áhrifum. Þegar
lögreglan kom á staðinn voru
þar fyrir tveir menn og ein
kona, sem voru undir áfengis
áhrifum og áhrifum tauga-
róandi lyfja. Þriðji maðurinn
var nýgenginn út og handtók
legreglan hann skömmu síð-
ar, en í framhaldi af þvi
fundust 300 Valium-töflur,
sem maðurinn hafði ætlað að
skjóta undan. Er talið að
þarna sé um að ræða hluta af
þýfinu, sem stolið var úr Ing-
ólfs-Apóteki aðfaranótt 1. okt
óber sl.
Aðfaranótt 4. október sl.
var lögreglan kvödd að þessu
sama húsi við Háagerði og
kom þá þar að fjórum imönn-
um, sem vart voru viðmæl-
andi sakir annarlegra áhrifa.
Voru þeir þrír, sem hand-
teknir voru í fyrrinótt, þar á
meðal. Við leit í húsakynnun-
um þá, fundust alls um 2000
Valium-töflur, en fólkið seg-
ist síðan hafa neytt taflna, er
það faldi í pappaboxi milli
þilja. Eru þessar 300 töflur
þær síðustu, sem þetta fólk
segist vita um.
Talið er að um 15000 tauga-
róandi töflum hafi verið stol-
ið úr In.gólfs- apótek i, en sá,
sem þar var að verki, kveðst
ekki hafa tekið nema um 6000
stykki. Segist hann hafa graf-
ið megnið af þýfinu í bing,
sem hann nú getur ekki fund-
ið aftur.