Morgunblaðið - 13.05.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1969
15
Afbrýðisemi,-eða...?
í Morgunblaðinu í dag er að
finrna, á bls. 23 eftirtektarverða
tilraun til árásar á mig sem mál
ara, með því að gefa í skyn, að
málari- eins og ég eigi ekki að
hafa jafn mikinn aðgang að
fréttaþjónustu útvarpsins, eins
og ýmsir aðrir starfsbræður mín
ir. Er það Kjartan Guðjónsson,
sem ummælin eru höfð eftir og
hann þar að bera mig saman við
frænda minn Jón heitinn Stef-
ánsson.
Samanburðinn er ekki hægt að
skilja á annan veg en þann, að
Kjartan og félagar hans séu að
reyna að rægja mig fyrir for-
ráðamönnum sjónvarpsins, svo
ég eigi þar framvegis ógreiðari
aðgang eða jafnvel engan.
Sennilega er hér á ferðinni öf
und, venjuleg listamanna-af-
brýðisemi, eða sársaukafull
minnimáttarkennd, sem orðið hef
ur viðskila við hið andlega innra
líf, er veitir allri sannri list ó-
dauðlega sál, en hagar athöfn-
um sínum eins og börn, sem með
nokkrum erfiðleikum eru að
glíma við að raða saman lit-
skrúðuguim kubba- eðastykkja
myndum, sem aðrir hafa í stríðni
sinni eða hefndarskyni, fætt af
sér, til þess að ná sér niðri á
hálfbrjáluðum heimi fyrir að
hafa vanfóstrað þá og misþyrmt
draumum þeirra og hæfileikum.
Meinið liggur, því miður, mjög
djúpt og hefur orsakað uppdrátt
arsýki og úrkynjun í listum al-
mennt í mestum hluta hins svo-
kallaða siðmenntaða heims! —
innantóm fölsk martraðar-við-
ureign við ófreskjur. Viðurkenna
verður þó, að hér hjá okkur eru
ennþá til nokkrar ósýktar und-
antekningar, en þeim virðist fara
sí-fækkandi.
Ég samþykki, að það sé alveg
í samræmi við viðtekna hefð, að
sýning Jóns heitins Stefánsson-
ar hafi verið mun meiri viðburð-
ur, en sýning mín, enda þótt
mun fleiri sæktu hana, — því
bæði var sýning Jóns yfirlits-
sýning og þar að auki sýning
látins marvns, og það munar
miklu, eins og flestir vita, á mati
listaverka, ef skapari þeirra er
dauður! og hanin því ekkert að
óttast lengur, — Mín sýning var
hins vegar aðeins sölusýning og
ég þar að auki enn með lífs-
marki. Styð ég það, að dauðir
listamenn fái yfirleitt mun lengri
tíma í sjónvarpinu framvegis,
heldur en þeir, sem hverju sinini
eru með nokkru lífsimarki.“ Ég
sætti mig einnig við, að Kjart-
an og félagar hans fái, hver um
sig, mun lengri tíma, en ég, í
sjónvarpsfréttum framvegis. Þeim
veitir varla af því. Mér nægir
1 sekúnta til þess að fólkið skilji
mig, á móti hverjum 5 til 10
sekúntum hjá hverjum þeirra.
Það eru sem sé sjónvarpsáhorf-
endur, sjálf þjóðin, sem dæmir,
en ekki klíka Kjartans og ko.
Þeim hluta viðtalsins við Kjart
an Guðjónsson, þar sem hann
ræðir um, að menn sem hafa
fengið sér litakassa og setjast
niður og mála í eitt ár, opni
svo sýningu og reyni að selja,
beri ekki þá þegar að telja með
listamönnum, — er ég alveg sam
mála. Þeir eru og hljóta að vera
að.eins byrjendur. En það er tæp
lega við sjónvarpið að sakast
um þetta sérstaklega, fremur en
einmitt dagblöðin og þá einnig
hljóðvarpið. Maður, sem hefur
t.d. verið einn vetur við nám í
Handíða- og myndlistarskólanum
eða jafnvel aðeins vetrarpart,
að eigin sögn, og heldur svo sýn-
ingu, fær vanalega, í blöðunum
titilinn listamaður eða listmálari
og sýning hans „listsýning" —
í stað t.d. málari, teiknari, mynd
höfundur og sýning hans ein-
faldlega: „Sýning“
Hafi Kjartan Guðjónsson, með
fyrri hluta viðtalsins, viljað láta
1—X — 2 — 1— X — 2 — 1— X — 2 — 1— X - 2
Getraunaseðlar
fást á þessum stöðum í Reykjavík innan Hringbrautar:
Bókhlaðan, Laugavegi 47
B.P. — smurstöðin, Klöpp v/Skúlagötu
B.P. — benzínafgreiðsla, Hlemmtorgi
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Söluturninn
Carl Bergmann, úrsmiður, Skólavörðustig 5
Hafnarbúðir
Hellas, Skólavörðustíg 17
Herrahúsið, Aðalstræti
Hverfiskjötbúðin, Hverfisgötu 50
Héðinn, vélaverzlun, Seljavegi 2
Hermann Jónsson & Co, úrsmiður, Lækjargötu 4
Verzlunin Krónan, Vesturgötu 35
Lúllabúð, Hverfisgötu 61
Málarinn, Bankastræti
Verzlunin Kilja, Snorrabraut 26
Pan Am-umboðið, Hafnarstræti 19
P. Eyfeld, Laugavegi 65
Sportval, Laugavegi 116
Tóbaksverzlun Tómasar, Laugavegi 62
Biðskýli S.V.R., Kalkofnsvegi
Verzlunin Varmá. Hverfisgötu 84
Ritfangaverzlun isafoldar, Bankastræti
Útsölustaðir Mjólkursamsölunnar.
Á þessum stöðum verður ekki tekið við útfylltum getrauna-
seðlum eftir fimmtudag.
ATH.: Getraunaseðlar, sem berast eftir að leikirnir á seðlin-
um eru hafnir, verða ekki teknir gildir í getrauninni.
GETRAUNIR
Iþróttamiðstöðinni v/Sigtún
PO Box 864
Geymið auglýsinguna. Reykjavík.
1—X — 2— 1— X — 2 — 1— X — 2 — 1— X - 2
fólk ákilja sig þatrnig að þar
hafi hann, meðal annarra, átt
við mig, sem ég hef mjög orðið
var við, þá ætla ég, til gamans,
að fræða hann um, að liðin eru
65 ár, síðan ég eignaðist fyrsta
málarakassanin og rúm 50 ár síð-
an ég hélt fyrstu málverkasýn-
ingu mína. Mig minnir, að Kjart
an sé eitthvað svolítið yngri.
Um myndlistarfræðslu í sjón-
varpi væri ekki nema gott eitt
að segja ef til þess veldust menn
ólíkra túlkunaraðferða. En ein-
hvern vegin hefur reynslan kennt
mér, að með myndlistarfróðum
manni eigi Kjartan og félagar
við mann úr þeirra hópi, eða
mann, sem þeir gætu ráðið yfir,
að minnsta kosti á bak við tjöld
in. Er þá komið að tilganginum
með þessu áhlaupi þeirra nú, —
að blöðrunni, sem fljótt mundi
springa og leiða í ljós, hvað
innan í henni felst.
Að lokum er ég Kjartani al-
veg sammála um það, sem hann
segir um ómenntaða og hæfileika
snauða menn. Honum ætti að
vera þetta augljósast úr sínu
nánasta umhverfi.
8. maí 1969.
Freymóður Jóhannsson.
Vörur óskast
Erum kaupendur að alls konar útsöluvörum, svo sem vinnu-
fatnaði alls konar, barna- og unglingafatnaði, peysum, nær-
fatnaði o. fl.
Sími 11670 virka daga kl. 5—6, laugardaga kl. 10—12.
SÓLÓ-húsgögn
SELJA NÆSTU DACA
lítið sem ekkert gölluð stálhúsgögn í eldhús og kaffistofur
á niðursettu verði.
SÓLÓ-HÚSGÖGN,
Hringbraut 121, sími 21832.
VI9ARHLJVS
Vandaðar — ódýrar
Þér getið SPARAÐ
fyrir fyrirtæki yðar
Kostnaður við vökva-ljósritun er nálægt kr. 9.40 pr. afrit.
Kostnaður við APECO-ljósritun er nálægt kr. 3.87 pr. afrit.
SPARNAÐ á ári, með notkun APECO
miðað við vökva-ljósritun, er því:
Séu tekin 10.000 afrit .............. kr. 55.300.00.
Séu tekin 30.000 afrit .............. kr. 165.900.00.
Hvað eru tekin mörg afrit á ári í fyrirtæki yðar? Areiðanlega fleiri en yður grunar?
APECO ER TILBÚIN um leið og
þér styðjið á einn rofa.
APECO ER SJÁLFVIRK, sendillinn
getur annazt Ijósritunina.
APECO MYNDAR ALLT, bækur
og skjöl, skrifuð í öllum
litum, vélrituð, prentuð
eða handskrifuð, einnig
þótt skrifað sé beggja
megin á blaðið.
TEKUR I EINNI VINNSLU
allt að 250 afrit, af sama
frumriti.
APECO VIÐHALDSÞJÓNUSTA er
tryggð af verkstæði voru.
Apeco er því hagkvæmasta og ódýrasta lausnin á Ijósritun í fyrirtæki yðar.
ÁPECO
Verið velkomin til að kynna yður
SKRIFSTOFUVELAR h.f.
+ 0 HVERFISGÖTU 33
SÍMI 20560 ' pÓSTHÓLF 377