Morgunblaðið - 13.05.1969, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 1969
Oddrún Sigurðar
dóttir — Minning
F. 19. september 1878
D. 6. maí 1969
í dag er 1Ö.0 tiJ ninztu hvílu
frú Oddrún Sig'.;r5ardóttir en
hún andaðist . B< rgarsjú’írahús-
inu 6. þ.m., á nitugasta og fyrsta
aldursári, eftir nokkurra daga
legu þar. Vil ég hér minnast
hennar með nokkrum kveðjuorð
um og sýna með því þakklæti
mitt til henmar og fjölskyldu
hennar fyrir þá góðvild, sem móð
ir mín og ég jafnan nutu á heim-
ili þessarar heiðurskonu. Móðir
min og Oddrún voru æskuvin-
konur, þótt nokkur væri aldurs-
munur, og hélzt sú vinátta með-
an báðar lifðu. Auðvelt var að
hittast, þar sem æskuheimili móð
ur minnar var á Keldum í Mos-
fellssveit en Oddrúnar á Reykj-
um og síðar í Gufunesi. Þegar
báðar voru fluttar til Reykja-
víkur var einnig stutt milli
Bankastrætis og Skólavörðu-
t
Eiginkona mín og móðir
okkar
Steinunn D.
Þorsteinsdóttir
Ólafsvöllum, Stokkseyri,
andaðist í SjúkraRúsi Sel-
foss 11. maí. Jarðarförin aug-
lýst síðar.
Guðmundur Ingjaldsson
og börn.
t
Lovísa Ólafsdóttir
andaðist á Borgarsjúkrahús-
inu 11. þ.m.
Fyrir hönd ættingja.
Andréas Pétursson.
t
Bróðir minn,
Karl Magnús Magnússon,
andaðist sunnudaginn 11.
þ. m. í Borgarsjúkrahúsinu.
Lára Magnúsdóttir
og vandamenn.
t
Hjartkær móðir okkar
Kristín Helga Gísladóttir
frá Hafrafelli
til heimilis Baugsveg 44
andaðist á Heilsuverndarstöð-
inni að mcrgni 10. maí.
Börn hinnar látnu.
t
Maðurinn minn og faðir
okkar
Sigurþór Guðfinnsson
útgerðarmaður, Keflavík,
lézt að heimili sínu laugar-
daginn 10. maí s.l. Jarðar-
förin augiýst síðar.
Kristjána Magnúsdóttir
Jóhanna og Guðfinna
Sigurþórsdætur.
stígs. Frá því fyrsta að ég man
nokkuð eftir mér, var ég heima-
gangur á nýstofnuðu heimili frú
Oddrúnar — og síðar heimilis-
vinur. Vænti ég þess að mega
njóta þeirrar vináttu þar til yfir
líkur.
Oddrún Sigurðardóttir var
fædd á Esjubjergi á Kjalarnesi
19. september 1878. Foreldrar
hennar voru Valgerður Þorgríns
dóttir, dóttir séra Þorgríms Thor
grímsens, síðast prests að Saur-
bæ á Hvalfj arðarströnd, og Sig
urður Oddsson, sonur Odds Eg-
ilssonar bónda í Nesi í Selvogi,
en Sigurður Oddsson var síðast
bóndi í Gufunesi. Foreldrar Odd
rúnar eignuðust 6 dætur, sem
þau komu öllum til mennta í
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Þau tóku einnig til fósturs syst-
urdóttur Sigurðar og reyndust
henni sem beztu foréldrar. Tvær
systur Oddrúnar eru enn á lífi,
Sesselja og Steinunn og voru
miklir kærleikar með þeim systr
um. Oddrún útskrifaðist úr
Kvennaskólanum árið 1898. Síð
an fór hún til náms í matreiðslu
til frú Kristínar, konu Jóns Ja-
cobson, landsbókavarðar, og
taldi sig ávallt hafa haft mikið
gagn af veru sinni á því mynd-
arheimili, enda sást það fljót-
lega, þegar hún stofnaði heimili
sjálf. Loks lærði hún fatasaum
hjá Andersen klæðskera, og kom
það henni að miklu gagni á hinu
mannmarga heimili, sem hún síð-
ar stjórnaði svo vel, að orð fór
af.
Hinn 5. október árið 1901 gift
ist Oddrún Helga Magnússyni
frá Syðra-Langholti í Hruna-
mannahreppi, valinkunnum
mannkostamanni, síðar kaup-
manni og meðeiganda í verzlun
Helga Maignússonar og Co, Hel'gi
var þá að ljúka járnsmíðanámi
t
Ólafía Sigurðardóttir
er lézt á Kristnesihæli 9. maí
sl. verður jarðsett frá Sauð-
árkrókskirkju föstudaiginn 16.
mai n.k. kl. 2 e.h.
Stefán E. Sigurðsson
Ólafur Stefánsson.
t
Eiginmaður minn,
Asmundur Friðriksson
sem lézt í Landspítalanum 7.
þ.m., verður jarðsettur frá
Fossrvogskirkju miðvikudag-
inn 14. maí 1969 kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Hjarta- og
æðaverdunarfélagið.
Jóna Hjálmaradóttir.
t
Hjartkær mó'ðir, tengdamóð-
ir, amma og terngdamamma
Kristjónsína Björnsdóttir
er andaðist að Hrafnistu 7.
maí, verður jarðsungin frá
Safnaðarheimili Lang'holts-
sóknar miðvákudagiinn 14.
maí kl. 1.30. Blóm afþökkuð.
Þeim, sem vildu minnast
hinnar látnu er bent á Safn-
aðarheimili Langholtssóknar.
Kristín Gísladóttir
Þeirgeir Jónsson
Guðrún Gísladóttir
Ragnar Þorsteinsson
Arni Gislason
Þórey Hannesdóttir
Bjöm V. J. Gíslason
og leigði hann stofu hjá foreldr-
um mínum sem þá voru flutt til
Reykjavíkur og bjuggu í húsi
Hjartar Hjartarsonar og Sigríð
ar Hafliðadóttur við Bókhlöðu-
stig. Það hús brann fyrir nokkr
um árum, en ég get þess hér, af
því að góð kynni voru milli hús-
ráðenda og leigjenda. Þar hjá
móður minni, munu þau Oddrún
og Helgi hafa stofnað til fyrstu
kynna. Móðir mín gladdist yfir
þessum ráðahag, og taldi hún
þarna vera mikið jafnræði, enda
leiddu þessi kyrnni til einhvers
hamingjusamasta hjónabands,
sem ég hefi þekkt fyrr og síðar.
Fyrstu árin bjuggu ungu hjón
in í húsi Eyvindar Árnasonar
við Laufásveg, en þar varð hús-
næðið fljótlega of lítið og byggði
Helgi þá húsið í Bankastræti 6,
í félagi við tengdaföður sinn. Þótt
ég væri ekki nema 8—9 ára göm
ul varð mér tíðförult til vin-
konu minnar Oddrúnar í Banka
strætinu. Heimi-lið stækkaði ár
frá ári. Helgi hafði kcmið á fót
járnsmíðaverkstæði á kjallara-
hæð hússins og hafði 2—3 lær-
linga. Að þeirra tíðar hætti
bjuggu ’lærlingar hjá meistara og
höfðu allan viðurgerning þar,
herbergi, fæði og þjónustu. Hin
unga húsfreyja hafði í mörg
horn að líta og barnahópurinn
stækkaði. Ég man vel hve ég
hlakkaði til, þegar ég fékk boð
um að nú mætti ég koma og sjá
litla, nýja barnið í drifhvítu
vöggulíni. Börnin urðu 12 og
t
Þökkuim innilega auðsýnda
saimúð og vinarhuig við and-
lát og jarðarför móður okkar,
tenigdamó'ður og ömmu
Ingunnar Eyjólfsdóttur
Laugarvatni.
Börn, tengdabörn og bama-
börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför
Sigríðar Helgadóttur
frá Norðfirði.
Vandamenn.
t
Hjartans þakkir til allra
þeirra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við and-
Lát og útför
Halldórs Benjamínssonar
frá Skaftaholti.
Steinnnn Jónsdóttir
og fjölskylda.
þrátt fyrir miklar heimilisannir,
virtist allt vera svo viðráðan-
legt, enda stuðningur af einkar
umyggjusömum eiginmanni, sem
elskaði konu sína og dáði.
Börn Oddrúnar og Helga eru:
Valgerður fv. yfirhjúkrunar
kona á Reykjalundi, Sigurður
kaupmaður, kvæntur Guðrúnu
Bíldda'l, en hún er látin, Katrín
skólastjóri Húsmæðraskóla Rvík
ur, Torfhildur sjúkraþjálfari á
Akranesi, Ingibjörg sem staðið
hefur fyrir heimili móður sinnar
um árabil. Oddur forstjóri,
kvæntur Björgu Ingjaldsdóttur,
Magnús framkvæmdastj., kvænt
ur Katrínu Sigurðardóttur, Jó-
hanna teiknari, Viggó sölumað-
ur.
Þrjú böm misstu þau, Sigríði
23 ára, og Jakobírou 17 ára, ynd-
islegar stúlkur, sem fyrirvaralít
ið voru hrifnar burt i blóma lífs
ins. Ennfremur Viggó, sem var
4 ára gamall, þegar hann lézt.
Hann var heitinn eftir Vigdísi
systur minni, sem andaðist tví-
tug að aldri, eftir margra ára
vanheilsu.
Auk þess élst upp á heimili
frú Oddrúnar dóttursonur, Helgi
Rúnar, við mikið ástríki. Hann
er nú 10 ára gamall.
Árin líða. Helgi Magnússon
andaðist 13. marz 1956, en and-
legur styrkur húsfreyjunnar og
samheldni barnanna gerði kleift
að halda þessu myndarheimili
uppi með sömu rausn og áður.
Alla tíð sýndu börn frú Odd-
rúnar henni einstaka umhyggju.
Þeim var í mun, að lífið yrði
henni sem ánægjulegast og heim
ili hennar var þungamiðja
sterkra fjölskyldutengsla þriggja
kynslóða.
Frú Oddrún Sigurðardóttir
hafði til að bera mikinn per-
sónuleika. Hún var mjög and-
lega sterk og miðlaði þeim styrk
leika til vina sinna, ef þeir áttu
um sárt að binda. Hún var vin-
ur í raun. Hún var bráðmyndar-
leg í öllu, sem að heimilishaldi
laut handavinnukona mikil,
rausnarleg og gjöful svo af bar.
Þrátt fyrir miklar amnir, gaf hún
sér alltaf tíma til lesturs. Odd-
rún var glæsileg kona. Henni
lét vel að taka á móti gestum
og var aldrei ánægðari en þeg-
ar margt manna var í stórum
gestaboðum á heimili hennar. Á
90 ára afmæli hennar voru að
vanda margir gestir. Hún gekk
á milli vina sinna, bauð góðgerð-
ir á sinn virðulega hátt og hélt
uppi samræðum. Hún var minn-
ug og glöggskvggn. Barngóð var
hún svo að það geislaði af henni,
þegar hún komst í samband við
yngstu kynslóðima. Ég minnist
einstæðs boðs, sem hún hafði fyr
ir mörgum árum. Við áttum að
mæta með börn okkar, sem helzt
máttu ekki vera yfir ársgömul.
Oddrún hafði breitt yfir hjóna-
rúmin foirláta ábreiðu, sem hún
hafði nýlokið við að prjóna, og
þar var raðað 18 hvítvoðungum,
að mig minnir, en 2 ungfrúr
voru orðnar ársgamlar og urðu
því að rísla sér á gólfiniu. Gest-
gjafinn átti erfitt með að slíta
sig frá svefniherberginiu þenman
eftirmiðdag, þar sem gestirnir
ýmist sváfu eða tottuðu pela
sína. Öll þekkti hún þau með
nafni og sýndi það að hún var
beim ekki alveg ókunnug.
t
Innilegt þakklæti fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför
Kristjáns Soffíassonar
fyrrv. póstmanns
Asgarði 103.
Sérstakar þakkir flytjum við
læknum og starfsfólki Vífils-
staðarhælis.
Svava Guðjónsdóttir,
börn, tcngdabörn og
barnabörn.
Enn man ég eftir öðru boði,
sem haldið var í nafni einnar
dótturinnar. Þetta var á styrj-
aldarárumum. Þar voru saman
komnar 90 konur á öllum aldri,
allar klæddair í íslenzka þjóð-
búnimga, peysuföt, upphlut, kirtil
Skaut, samfellur. Ein gestanna
átti meira að segja gamla fald
búnimgimn en yngsti gesturinn
var tæplega tveggja ára sonar-
dóttir Oddrúnar. Var hún klædd
í peysuföt, sem henni höfðu ver
ið gerð í tilefni dagsins og heill
aði hún alla viðstadda, er hún
vappaði um þannig búin. Þetta
boð er mér sérstaklega minnis-
stætt af því að mér fanrnst við
vera að benda á, að við mættum
ekki gleyma þjóðerni okkar og
sjálfstæði í hrikalegum átökum
heimsstyrjaldarinnar síðari.
Þótt ég mimmist hér sérstak-
lega sórkennilegra og skemmti-
legra gesfaboða á heimili Odd-
rúnar, ber ekki að sikilja það
svo, að veizlulhöld hafi verið
stunduð þar umfram amnað. Á
heimilinu var mi'kið unnið fyrr
og síðar, öllu vel við haldið og
nýtni og hagsýni í hávegum
höfð.
Þegar vetur færist að og dag
ar verða dimmir, eignast margir
Islendiingar sumarauka með því
að dreyma sig imn í sumardýrð
íslenzkrar náttúru. Oddrún, móð
ir mín og ég áttum fjölmanga um
aðsdaga á hverju suimri, er við
reikuðum um heiðar Mosfells-
sveitar, Heiðmörkina eða mosa-
vaxin hraun Þimgvalla við berja
tínslu. f hugum okkar hef-
ur þetta seranilegast verið
skemmtilegasta tímabil sumarEÍms
því strax í vetrarbyrjun vorum
við farnar að skipuleggja ferð-
ir nœsta sumars.
Ég kveð þessa öldmu sæmd-
arkomu með þakklæti fyrir vin-
áttu og órofa tryggð allt frá
bermskuárum mínum. Hún er méir
hugstæðari en flestir aðriir, sem
ég hefi mætt á lífsleiðinni.
Sigríður Eiríksdóttir.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar.
púströr og fleiri varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. - Sími 24180.
Alúðarþakkir færi ég frænd-
um og vinum fyrir hlýjar
kveðjur og árnaðaróskir á 80
ára afmætli mímu 23. apríl sl.
Stjórn Ferðafélaigs ísiamds
þakka ég sérstakleiga vima-
kynmi margra ára. Heill fylgi
ykkur öllum.
Sigurjón Magnússon
Ilvammi.
Innilega þatoka ég systkinum
mínum og öðrum kunnimgjum
sem glöddu miig með blómum
og öðrum góðum gjöfum á
70 ára aámæili mímu 9. þ, m.
Bið Guð að launa það.
Pálína J. Scheving
Urðaratíg 15.
Innilegar þakkir til allra sem
glöddu miig með gjöfum,
blómum og skeytum á sex-
tugsaifmæli mínu 1. maí si.
Sérstakar þakkir til barna,
tengdabarna og starfsfélaga
minna sem ger'ðu mér daginn
óg'leym anlegan.
Einar Karlsson
Laugavegi 84.