Morgunblaðið - 29.05.1971, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1971
A h\ítasunnnkappri'iðum Fáks á annan hvítasunniidaff á nýja skeiðvellinum upp með Kliiðaán-
um verður sú nýjunft- að sýndur verðiir akstur i fimm kerrum, en siíkl þykir góó íþrótt víða er-
lendis.
Mosfellshreppur:
Bygging sumarhúsa
leyfð eftir 12 ára hlé
Uhlmann
vann
Larsen
— í 8. skákinni
Las Palmas, 28. maí. NTB-AP.
AUSTUR-Þjóðverjinn VVolfgang
Uhlmann vann öllum á óvart
Bent Larsen í áttundu einvígis-
skák þeirra í forkeppninni um
heimsmeistarat itilinn i skák.
Hefur Larsen því nú aðeins einn
vinning yfir Uhlmann, en stað-
an í einvíginu er 41/* gegn
3 * 2 Larsen i hag. Af einvigi
þeirra eru nú eftir tvær skákir.
Bobby Fischer frá Bandaríkj-
unum og sovézki skákmeistar-
inn Mark Taimanov tefldu
fimmtu einvígisskák sína í gær
og fór hún í bið eftir 41 leik.
Hafði Fiseher þá peð yfir og
frumkvæðið í sínum höndum.
Sinjavsky
senn laus
Moskvu, 28. mai NTB.
SOVÉZK yfirvöld hafa nú tindir-
ritað fyrirskipun um, að rithöf-
undurinn Andrei Sinjavsky verði
látinn laus úr fangelsi. Var þetta
haft eftir áreiðanlegtim heimild-
um í Moskvu i kvöld ogr það
með,. að Sinjavsky yrði sennilega
látinn laus mjög: liráðleg;a.
Sinjavsky var handtekinn í
sieptember 1965 ásamt félaga sín-
um, ri'fhöfundinum Juld Daniel
og þeir ákæirðir fyrir að hafa
dreift andsovézkum ritum eriend
is. Sinjavsky var dæmdur í sjö
ára fangelsi, en s'kal nú látinn
laus vegna góðrar hegðunar. —
Daniel hafði afplánað fimm ára
fangeisisdóm sinn í fyrra haust.
BYGGING sumarhúsa hefnr ver-
ið leyfð á ný i Mosíellshreppi,
en þær 1'ramkvæmdir hafa \erið
bannaðar síðan hreppnrinn varð
skipulagsskyldur árið 1959. Eftir
leiðis eru sumarbústaðabygging-
ar leyfðar eftir vissum reglum,
samanber reglngerð nr. 14(! um
viðauka við byggingarsamþykkt
Mosfellshrepps nr. 280/1967. Er
Mosfellshreppnr fyrsta sveitarfé-
lagið á landinu sem tekur bygg-
ingn sumarbústaða sem sérstakt
skipulagsmúl, samkvæmt stað-
Upplýsingastöð
umferðar
UMFERÐARRÁÐ og lögreglan
starfrækja að venju upplýsinga-
miðstöð umferðarmála um hvíta-
sunnuna. Mun miðstöðin safna
upplýsingum um umferð, ástand
vega og fólksfjölda á hinum ein-
stöku stöðum.
Upplýsingamiðstöðin tekur til
starfa laugardaginn 29. maí og
er öllum heimilt að leita upp-
lýsinga í síma 25200 og 14465 á
laugardag kl. 10.00-21.00, sunnu-
dag kl. 13.00-19.00 og mánudag
frá kl. 13.00.
Ekið á kyrr-
stæðan bíl
EKIÐ var á bifreiðina R 4817,
sem er af gerðinni Hilman,
græn að lit, þar sem hún stóð á
stæði við Rauðarárstíg, milli
Grettisgötu og Njálsgötu. Dæld-
að var farangurslok og rispað og
bentu allar líkur til að bakkað
hefði verið á bifreiðina. Bifreiðm
er station-bíll.
Raninsóknarlögreglan biður
tjónvald, svo og sjónarvotta um
að hafa samband við sig hið allra
fyrsta.
festri reglugerð. Svæðin sem af-
mörkuð hafa verið fyrir sumar-
bústaði, eru aðallega í einkalönd
nm eg eru mjög víðáttumikil.
Þeir, sem byggja sumarbústaði
í Mosfellssveít þurfa að saekja um
leyfi til byggingí’rnefndar Mos-
fellshrepps og leggja til teikn-
ingar til uppáskriftar. Við uppá-
skirift teikninganna greiðist
nokkur t'járhæð, sem er eins kon
ar leyfisgjald, en eínnig er lagt
á eigniina árlegt eftirlitsgjald,
sem nemur 1000 kr. Þeir, sean
byggt hafa sutnaibústaði í Mos-
fellssveit á árunum frá 1959 án
þess að leita samþykkis hrepps-
nefndar, geta öðlazt full réttindi
með því að greiða áðunnefnd
gjöld.
Fram til þessa hafa eigendur
sumarbústaða í Mosfellshreppi,
sem eiga lögheimili í öðrum
sveitarfélögum, ekki greitt nein
gjöld til Mosfeilshrepps utan lít-
inm fasteigmaskatt, em Mosfells-
hrepptir hefur aftur á móti bor-
ið fjárhagslega ábyrgð á bruna-
málum vegna þessara húsa, einis
og anaiarra húsa í hreppnum.
Þorvaldur Giiðmundsson
NÚTÍÐ Norrænir
s. töiubiað hóteleigendur
— þinga hér að ári
ÞRIÐJA tölublað af Táninga-
blaðinu Nútíð er komið út. í
blaðinu er að þessu sinni við-
tal við Pétur Steingrímsson um
upptökur og. stúdíó, grein um
tízkusamtökin Karon, Saltvík 71,
James Durst. Seals og Crofts,
Steve MeQueen. Þá er grein þar
sem spurningunni Ert þú öðru
vísi? er svarað, og margt fleira.
Forsíðumyndin er af Önnu
Scheving, en plagat 3. tölublaðs
Nútíðar er af Birgi Hrafnssyni
Ævintýri.
ÞORVALDUR Giiðmundsson,
liótele.igandi hefur verið kjörinn
forseti Norræna hótel- og veit-
ingaluisasanihandsins á ársfundi
|»ess i Flnnlandi, en næsti árs-
fundur samtakanna verðnr hald-
inn liér á landi að ári.
Það er venja í samtökum þess-
um að forseti nonrænu samtaik-
annia sé frá því landi, sem árs-
fundurimn er haldinn í, enda er
töluverð undirbúndngsviinna setn
framkvæmia þarf. Á fundinum
niú í Finnlandi kom mjög greim-
lega í Ijós skilningur á þvi að
efla þurfi menntun þess fólfcs,
sem vinnur við hótel, og veitinga-
störf. Lýstu norraenu fulltrúarn-
ir ánægju með hin nýju íslenaJku
lög um véitingaskóla. Jafnframt
kom fram á fundinum tillaga
eða hugmynd um að stofna beri
norræinta veitingaskóla 'fyrir öll
Norðurlönd. þar sem men.ntun
fólksins yrði samirsemd. Myndu
norrænu srmtökin þá og jafn-
fram koma fram sem sterfeari
heiid innan alþjóðasamtaka á
þessu sviði.
V egaþ j ónusta
FÍB að hefjast
7 þjónustubifreiðar á
ferð um helgina
VEGAÞJÖNUSTA F.f.B. hefst
nú um hvítasiininuhelgiiu', og
verður haidið óslitið áfram fram
í ágústmánuð. Um þessa helgi
verða 7 bifreiðar á vegum lands
ins, en siðan fer þeim sntáfjölg-
aiuli eftir því seni líður á sunt-
arið og um Verzlnnarmannahelg
ina nær {ijónustan liámarki, en
þá verða yfir 20 bifreiðir F.Í.B.
á þjóðvegunum.
Vegaþ jón ustubif reiðarnar byr j a
þjánustu siím kil. 13.00 á laugar-
dög'um og surnudögum, en bif-
reiðat’nar eru m. a. staðsettar í
Rey'kjavik, á Hvolsvelii, í Vílk í
Mýrdal, á Akranesi, Akureyri oig
fleiri stöðuim. Þjónustunni lýkur
kil. 24.00 að kvöldi. Skuldlausir
félagsmenn FÍB fá unninn lVi
tima e n du 1 ■ g j aldsl a ust og einnig
geta þeir fenigið bifreið sina
dregna 30 km án endurgjalds.
Vinna framkvæmd fyrir u'tamfé-
lagsmann er seld á kr. 500.00 pr.
klist.
Hvítasunnuferðir
UM HVÍTASUNNUNA gangast
Ferðafélag íslands og Guðmund-
ur Jónasson fyrir ferðum fyrir
almenning í Þórsmörk og á Snæ-
fellsnes. I gær höfðu samtals á
annað hundrað manns látið skrá
sig til þátttöku i þessum ferð-
um.
Ferðafélag íslands gengst fyr-
ir ferð í Þórsmörk og verður
gist í sæluhúsum þar, en auk
þess fer Ferðafélagið ferð á
Snæfellsnes og þar verður gist
í tjöldum. Lagt er af stað kl. 2
í dag í báðar þessar ferðir og
komið heim á mánudagskvöld.
Guðmundur Jónasson fer ferð
á Snæfellsnes og í þeirri ferð
verður gengið á Snæfellsjökul
ef veður leyfir. Farið verður kl.
2 í dag og komið heim á mánu-
dagskvöldið.
Aukin samvinna
flugfélaganna
FLUGFÉLAG Islands og Lot't-
leiðir hai'a ákveðið að hafa sam-
vinnu um móttökii á innlendri
frakt til útíliitnings, en frá ár-
inu 1966 hafa félögin hafi með
sér samvinnu uin fraktmóitöku
varnings sem kemur að iitan.
Samvinna þessi er aukin \
grundvei’i mjóg góðra: og árang
iirsrikr.tr sann;nnii félaganna og
er nm þessar mundir unnið að
iindirbún'iigi l ”ssa máis.
Ráðgerc er tð tekið verði á
móti slíkri frakt framvegis í við-
bótarhúanæði, sem félögin hafa
tryggt sér við S'jlvhóhgötu, þar
sem innllutningsfraktin er til
húsa. Standa vonir tii að þessi
nýbreytni komi til framkvæmda
inmian skamms.
Þessar upplýsingar koma fram
í fréttabréfi til starfsfólks Loft-
leiöa, aem Morgunblaðinu hefur
borizt. Þar er þess jafnframt get-
ið, að fraktflutningar Loftleiða
til íslands'í aprílmánuði hafi auk
izt um 55% miðað við sama tíma
i fyrra. Heildarfraktflutningar
félagsins jukust um 42,4% í
aprílmánuði.
— íbúðalán
Framhald af bls. 32
að aðeins mjög lítill hluti iauna-
hækkunar á hverju ári fer til
þess að standa undir vísitölu-
hækkun íbúðarláns. Þetta má sjá
af eftirfarandi dæmi:
Á árinu 1970 hækkuðu meðal-
kauptaxtar alls verkafólks og
iðnaðarmanna um 28,5%, en fyr
ir þær hækkanir voru meðalat-
vinnutekjur kvæntra manna í
þessum stéttum nálægt 310 þús.
kr. á ári. Með 28,5% hækkun er
þvi tekjuaukning þessara laun
þega að meðaltali 88.400.00 krón-
ur á ári. Sé gert ráð fyrir því,
að launþegi með þessa tekju
aukningu hafi skuldað íbúðar
lán að fjárhæð 500 þús. kr.,
mundi hann hafa þurft að taka
á sig viðbótarútgjöld árlega
vegn,a vísitölubindingar lánsins
að fjárhæð 4.173.00 krónur. Af
88.400.00 kr. kauphækkun þarf
hann m.ö.o. aðeins að nota
4,173.00 eða 4,7% af tekjuaukn
ingunni til þess að standa und
ir þeirri hækkun afborgana og
vaxta af íbúðarláni.nu, sem kaup
hækkunin hefur haft í för með
sér.
Rétt er að minna á það, að
vísitöluákvæði þau, sem gilda
um íbúðalán, voru tekin upp í
fuiilu samráði við launþegasam-
tökin og í sambandi við kjara-
samninga á árunum 1964 og
1965. Stefndu þessir samningar
bæði að því að stórhækka íbúða
lán og breyta kjörum þeirra í
hagkvæmara horf fyrir lántak
endur. MeðaJ annars voru vextir
af ibúðalánium liækkaðir um
4%, um leið og vísitöiuákvæð-
in voru tekin upp. Hefur þessi
vaxtalækkun til þessa verið
miklu þyngri á metunum fyrir
lántakendur en sú hækkun, sem
vísitöluákvæðin hafa haft í för
með sér. Kemur þetta fram i eft-
irfarandi dæmi, sem byggt er á
upplýsingum frá Veðdeild I.ands
banka Islands.
Sé tekið dæmi af manni, sem
fékk 200 þús. kr. íbúðarlán á
árinu 1964, mundi samanburður-
inn vera sem hér segir eftir því
hvort lánið hefði verið með
eldri kjörunum og föstum 814%
vöxtum, eða nýju kjörunum,
414% vöxtum og vísitölubind-
ingu:
Eldri iánakjörin
Samanlagðar greiðslur á gjald-
dögum 1. maí 1965 til og með
1. maí 1971.
afborganir 23.714.00
vextir 100.679.00
samtals 124.393.00
Nviu vísitolulanin
Samanlagðar
dögum 1. maí
1. maí 1971.
afborganir
vextir
vísitöluálag
greiðslur á gjöld-
1965 til og með
30.990.00
52.117.00
21.803.00
samtals
104.910.00
Sparnaður lántakanda á þessu
tímabili vegna hinna breyttu
lánskjara nemur því 19.483.00
kr. eða nær 10% af upphaflegu
lánsfjárhæðinni.
Með hliðsjón af því, að nú-
gildandi ákvæði um lánskjör af
íbúðalánum urðu til í samning-
um við fulltrúa verkalýðsfélaga,
hefur ráðuneytið farið fram _ á
það í dag við Seðlabanka I«-
lands, að hann taki fyrir ríkis-
stjórnarinnar hönd upp viðræð-
ur við fulltrúa Alþýðusambands
fslands um þetta mál. Óskað er
eftir því, að þessir aðilar kanni
sameiginlega áhrif núverandi
lánskjara á afkomu launþega,
svo að úr þvi fáist skorið, hvort
þau verka á einhvern hátt öðru-
vísi en upphaflega var að stefnt.
Einnig hefur verið óskað eftir
því, að þessir aðilar geri tillög-
ur um hugsanlegar breytingar á
þessum ákvæðum, ef athuganir
gefa tilefni til.