Morgunblaðið - 29.05.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 29. MAl 1971
19
Barizt á ind-
versku landi
Auknar viðsjár á pakistönsku
iandamærunum
Nýju Delhi, 27. maí — NTB-AF
VIÐSJAR hafa aukizt á landa-
nwnim Indlands og Austur-
Pakistans síðan indverska frétta-
stofan PTI skýrði frá því, að
imdverskar öryggrissveitir hefðu
fellt 120 pakistanska hermenn,
sem hefðu sótt inn á indverskt
land. Haft er eftir áreiðanlegrum
— Karólína
Framliald af bls. 3L,
aldrei hafa verið í vatidræð-
um með að sameina heimilis
verkin og skíðaferðirnar.
—! Fyrri hluta vetrar þeg
ar ég kemst ekki á skíði er
ég alveg ómöguleg mann-
eskja en hressist öll við um
leið og hægt er að fara í fjall
ið. Það verður til þess að ég
á aftur léttara með að vinna
önnur nauðsynleg störf og
má því segja að mun betra
lag sé á öllum hlutum heima
fyrir þann tíma, sem hægt er
að fara á skíði heldur en
hinn tímann. Fyrir utah
þetta þá líður mér einnig bet
ur líkamlega þann tíma, sem
skíðafærð er, því ég er fóta-
veik og á að hafa mikla
hreyfingu samkvæmt læknis
ráði,
Að lokum sagði Karólína
Guðmundsdóttir að þegar
hún liti til fjalls út um stofu
gluggann hjá sér og sæi skiða
brekkurnar hvitar og freist
andi fylltist hún löngun til
þess að fara út og spenna á
sig skíðin og njóta útiverunn
ar um stund.
— Ég fell í þessa freistni
eins oft og mögulegt er enda
tel ég að hver manneskja eigi
að reyna að hafa eins mikla
ánægju út úr lífinu og frek-
ast er kostur á.
Gunnar Pálsson
Nýr sveitarstjóri
á Suðureyri
GUNNAR Pálsson var fyrir
skömmu ráðinn sveitarstjóri á
Suðureyri við Súgandafjörð frá
1. júlí n.k. að telja og til loka
kjörtímabilsins. Gunnar Pálsson
er 24 ára gamall; hann lauk
próft frá Verzlunarskóla íslands
vorið 1967, en hefur síðan starf-
að hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna í Reykjavík.
IESI0
jWíröunblítbib
DRGLECn
heimildum, að vestur-pakistanskt
herlið hafi uppi mikinn viðbún-
að og liðssafnað á 1.000 kilö-
rnetra svæði meðfram indversku
landamærunum í norðanverðu
Austur-Pakistan.
Indverska fréttastofan sagði í
frétt frá bænum Shilong í Nórð-
austur-Indlandi í gærkvöldi, að
barizt hefði verið í tvo sólar-
hringa og 30 menn hefðu fallið
úr landamæraliði Indverja. PTI
segir, að ráðizt hafi verið inn í
nyrzta og austasta fylki Ind-
lands, Assam og á Meghalya-
svæðið.
Indverska stjórnin hélt þvl
síðan fram í dag, að 100 pakist-
anskir hermenn hefðu fellt 11
menn i landamæravarðstöð í
Kilapara i Austur-Assam og auk
þess orðið að bana 13 óbreyttum
borgurum og sært 11. K.C. Pant,
innanríkisráðherra, sagði þing-
heimi, að indversku hermennirn-
ir hefðu varizt af mikilli hug-
prýði, en stöðin hefði fallið fyrir
ofurefli liðs. Yfirlýsing Pants olli
gífurlegu uppnámi á þinginu, og
stjórnarandstæðingar hrópuðu
og kölluðu stanzlaust í hálftíma.
Þess var kirafizt að liðsaukt yrði
sendur til landamæranna.
FlóttamanEa-
söfnunin
FLÓTTAMANNARÁÐ Islands
mtin á næstu dögum hafa sam-
band við öll fyrirtæki og stofn-
anir í Reykjavík til þess að leíta
eftir fjárframlögum til styrktar
flóttafólki í Afríku. Hjálparfram
lög að fjárhæð 300 krónur og
hærri eru frádráttarbær við
framtal til skatts.
Flóttamarmaráð íalands efndi
til aimenorar fjársöfnunar um
allt land hinn 25. apríl, Tókst
söfnun þesai mjög vel víða um
land, en þó öllu verr í Reykja-
vík en vonir stóðu til, segir í
fréttatilkynniingu frá Flótta-
mannaráði. Stafaði það einkum
af því hve margiir borgarbúa
voru utan heimila sinna á söfn-
unartímanum. Að ráði hefur því
orðið að leita til fyirdxtækja og
stofnana í borginni og verður
haft símasamband við hvern eint-
stakan aðila og undirtektir
kannaðar.
- Það er fallegt
Framhald af bls. 14.
vegna hinna miklu fiskflutn-
inga og þeas vegna mætti bú-
ast við góðum stuðningi til
dæmis þingmanna Reykjavík-
ur í þessu mikla málL
hafnarmAl I
SANBGERÐI
Frá Gerðarhreppi var ekið
til Sandgerðis, og þar voru
í fyrirsvari Jón Axelsson,
kaupmaður og Alfreð Alfreðs
son, sveitarstjóri. Áður hefur
verið lýst hlut Sverris Júllus-
sonar í heimsókninni til Sand
gerðis, en af máli heimá-
manna mátti marka, að aðal-
vandamál þeirra Sandgerð-
inga eru hafnarframkvæmdir.
Hafnargarðurinn þar hefur
verið lengdur mjög, en þær
framkvæmdir kostuðu mikið
fjármagn, mun meira fjár-
magn, heldur en Miðneshrepp
ur getur undir staðið. Þar er
sömu söguna að segja og I
sambandi við varanlega vega-
gerð á Suðurnesjum, að höfn-
in í Sandgerði tekur ekki að-
eins við fiski, sem unniim er
i í fiskvinnslustöðvum í Sand-
gerði, heldur er hráefninu
ekið þaðan til fiskvinnslu-
stöðva í nálægum byggðar-
lögum. Þess vegna þykir
i Sandgerðisbúum og raunar
i fleirum, að eðlilegt sé, að aðr
ir taki einnig þátt í þeim
mikla kostnaði, sem bundinn
er við hafnarframkvæmdir á
staðnum. Sandgerði er ein
helzta verstöð á Suðumesj-
um, eins og kunnugt er.
I HAFNARHREPPI
Að þvl er Jósep Borgara-
son, oddviti, sagði okkur, er
Hafnarhreppur minnsta sveit-
arfélagið í Reykjaneskjötr-
dæmi og þar voru á íbúa-
skrá hinn 1. desember sl. 182
íbúar. Hafnir voru áður mik-
il og blómleg verstöð, en
breyttir útgerðarhættir og
hafnarskilyrði hafa valdið
því, að hlutur Hafnarhrepps
er ekki jafnmikill og áður.
Engu að síður eru ýmsir
þeirrar skoðunar, að í Ósun-
um svonefndu, sé toleift að
gera stóra og mifkia höfn, og
er það að sjálfsögðu áhuga-
rrtál íbúanna þarna, að það
mál verði kannað rækillega.
Nú standa yfir framkvæmd
ir við breytingar á frystihús-
inu í Höfnum, sem ekki hef-
ur verið starfrækt um skeið,
en komið er í hendur nýrra
eigenda, og gera menn sér
vonir um, að frystihúsið muni
hefja starfrækslu innan tíð-
ar, en þá verður vandinn að
útvega nægilegt vinnuafl, og
það er ekki til í Hafnar-
hreppi, þannig að það verður
að koma annars staðar frá.
Jens Sæmundsson, formað-
ur Sjálfstæðisfélagsns í Hafn
arhreppi og kona hans sýndu
af sér þann höfðingsskap að
bjóða öllum hópnum heim til
sín, þar sem frambjóðendur
og fylgdarlið þeirra nutu
góðra veitinga, en síðan var
haldið sem leið liggur út að
Reykjanesvita. Á þeirri leið er
komið á æskuslóðisr Odds Ól-
afssonar læknis, sem skipar
2. sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi. Þessi hluti ferðar-
innar undir leiðsögn Odds Ól-
afssonar og Sigurjóns vita-
varðar í Reykjanesvita, var
sérstaklega ánægjuleguir. Á
þessu svæði þekkir Oddur
hvern einasta stað, og hann
rifjaði upp endurminningar
frá æsku sinni á þessum slóð-
um, meðan við ókum frá
Höfnúm og út að Reykjanes-
vita. En þaðan var síðan hald
ið áleiðis til Grindavíkur og
ekið framhjá nýju borhol-
unni. Þangað ættu sem
flestir að leggja leið
sina og sjá þann ótrú-
lega kraft, sem ryðst upp úr
iðrum jarðar, með tilheyrandi
drunum. Þá fyrst gerir mað-
ur sér grein fyrir því sem
kafflað er oúkulmdir íslands.
FERÐLOK I GRINDAVÍK
„Það er fallegt í Grinda-
vík, þegar vel veiðist", sagði
Eiríkur Alexandersson, sveit-
arstjóri þeirra Grindvíkinga,
þegar við ókum með honum
um þessa mestu löndunarver-
sfcöð landsins. 1 Grindavík em
12 fiskverkunarstöðvar, þar
af 3 frystihús. Þar er lagður
upp á vetrarvertíðinni meiri
fiskur en í nokkurri annarri
verstöð á íslandi, og Grinda-
Vík ber þess glögg merki;
þar er allt í miklum upp-
gangi, ný íbúðarhús hafa ver
ið byggð og eru í byggingu,
nýtt félagsheimili verður opn
að á næstunni, nýjar fisk-
verkunarstöðvar og önnur
aðstaða hafa verið í upp-
byggingu og þannig mætti
lengi telja. Meðan við stóð-
um við, komu þrír bátar í
höfn með fisk, og í þessu
þróttmikla sjávarplássi sáum
við í hnotskum þá grósku,
sem nú ríkir í íslenzku þjóð-
lífi og á hverju hún byggist,
þ.e. á fiskveiðunum og fisk-
vinnslunni.
í gamla félagsheimilinu í
Grindavík nutum við góðra
veitinga og hlýddum á Viðar
Hjaltason, formann Sjálf-
stæðisfélagsins skýra frá
helztu verkefnum, sem fram-
undan eru i Grindavik.
Greinilegt er, að Grindvík-
víkingar hafa mikinn áhuga
á því, að varanlegt slitlag
verði lagt á veginn frá
Grindavík að Reykjanesbraut,
og er það að vonuim. Meðan
vetrarvertíðin stendur y£ir
fer heill floti þungra vöru-
flutningabifreiða frá Grinda
vík til fiskvinnslustöðva viða
við Faxaflóasvæðið með fisk.
Þessi vegur er holóttur og
rykugur, og hráefnið skemm
ist, og bílarnir skemmast,
meðan á þessum flutningum
stendur. Hér er bersýnilega
um að ræða verkefni, sem
huga verður að í allra nán-
ustu framtíð, enda hafa þing
menn kjördæmisins þegar
unnið að þvi að þoka mállnu
áleiðiis. Höínin í Grindavik er
slíkt mannvirki, að væri hún
byggð í dag, mundi hún
kosta um 100 milljónir króna,
sagði Eirikur Alexandetrssan
okkur.
Grindavík var síðasti
áfangi í þeirri ferð, sem fram
bjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi tók
ust á hendur tvo sunnudaga í
röð. Þótt allir þessir menn
hafi að sjálfsögðu farið um
kjördæmi sitt áður og þekki
þau vandamál, sem við er
að etja á hverjum stað, er
enginn vafi á því, að ferðir
sem þessar eru mjög gagn-
legar. Alls staðar var mikiil
hópur Sjálfstæðismanna sam
an kominn til þess að taka á
móti gestumuim, og bendir það
tvímælalaust til þesa, að
flokksstarf Sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi standi
með miklum blóma. Ekki
verður þessari frásögn lokið
áin þess að getið
sé þáttar Jóhanns Pet-
ersens, varaformamns kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjaneskjördæmi,
sem skipulagði þessa ferð
með mikilli prýði og var far-
arstjóri á leiðinni. Hann sá
um að ferðaáætlunin var
haldin mjög nákvæmlega,
enda voru frambjóðenduir
hættir að kalla Jóhann far-
arstórá undir lokin, en töldu
réttara að kalla hann harð-
stjóra.
StG.
Brottfarar
Sumariö er aö
fjallabaki
dagar:
25.júní og 2.júlí
Ofangreinda daga bjóðum við yður 7 daga ferðir austur
sanda, allt að NÚPSSTAÐ. Þér skreppið niður MEÐAL-
LAND og farið síðan um FJALLABAKSVEG. Stanzið í
ELDGJÁ og við ÓFÆRUFOSS, dveljið við VEIÐIVÖTN,
komið við í LANDMANNALAUGUM og skoðið ‘STÖNG
í ÞJÓRSÁRDAL.
Ö!l ferðin ásamt fæði, leiðsögn o*g gistingu f stórum
ferðatjöldum kostar aðeins kr. 8.900.00.
Hópar 5 manna eða fleiri fá 10% afslátt.
þér fáiö
ydarferó
hjá okkur
hringid í
síma 25544
FERÐASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5
II
)