Morgunblaðið - 29.05.1971, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1971
5
Bæði híis Krabbameinsfélaffsins.
Krabbameinsfélagið
kaupir annað hús
STARFSEMI krabbameinsfélag- I fólk og tíma eins og fjöldarann-
anna vex ört með ári hverju. sóknir og krabbameinsskráning.
Starfsliði hefur þvi fjölgað mjög Leit að brjóstkrabbameini er nú
á seinni árum, jafnframt því,---
hafin og leit að lungnakrabba-
meini er einnig í byrjun. Pláss-
leysi er því orðið mjög tilfinnan-
legt í Suðurgötu 22 og leiddi til
þess, að ráðizt var í að kaupa
húsið nr. 24, til þess að bæta úr
erfiðleikunum og skapa mögu-
i leika fyrir nýbyggingu í fram-
tíðinni. Myndin er af báðum
I húsunum.
sem ný viðfangsefni hafa komið
til skjalanna, sum þeirra frek á
Félög Sameinuðu
leiðrétting bjéðinuiii á fuiicli hér
1 FRÉTT Mbl. í gær um Edin-
borgarráðstefnuna um islenzk
og norræn fræði, sem haldin
verður í ágúst n.k., féllu niður
tvær línur. Stóð þannig, að E. J.
Cowan flytti fyrirlestur um Vin-
heiðarorrustuna í Egilssögu en
átti að vera Bjarni Einarsson.
Þarna átti að standa: E. J.
Cowan frá Edinborg talar um
Oxkneyingasögu og sögu Skota
og Bjaxni Einarsson lektor við
háskólann i Osló talar um Vín-
heiðarorrustuna í Egilssögu og
orrustuna við Brunenburh.
FÉLÖG Sameinuðu þjóðanna á
Norðurlöndum munu halda ár-
legan sumarfund sinn að þessu
sinni á Islandi og munu um 50
til 60 þátttakendur frá Skandi-
navíu og Danmörku væntanleg-
ir til landsins í fyrstu viku
ágústmánaðar. Ráðstefna þessi
verður haldin að Hótel Loftleið-
um og sér Félag Sameinuðu þjóð
anna á íslandi um allan undir-
búning.
Foi'maður Félags Sameinuðu
þjóðanna á Islandi er Gunnar
G. Schram. Hann gat þess í við-
tali við Mbl. að þetta væri fyrsta
sinni, sem þessi sumarfundur fé-
laganna væri haldinn á Islandi,
en slíkir fundir eru haldnir í
ýmsum löndum. Fundarefni
fundarins hér verður umhverfi
manna og mengun og verður
eins konar undirbúningur félag-
anna að ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Stokkhólmi á næsta
ári, þar sem umhverfisvanda-
mál verða tekin til meðferðar.
Á fundinum i Reykjavík verða
m.a. fyrirlestrar íslenzkra sér-
fræðinga á þessu sviði.
Viðræður róru fram
áður en til yf irvinnu-
banns kom, segir VR
Blaðinu hefur borizt eftir-1
farandi frá Verzlunarinannafé ■
lagi Reykjavíkur:
Vegna ummæla formanns
Kaupmannasamtaka Islands,
Hjartar Jónssonar, í viðtali við
Morgunblaðið 26. maí s.l., þar
sem segir að Kaupfnannasamtök
in hafi ekki fengið viðræður við
Verzlunarmánnafélag Reykja-
víkur áður en til yfirvinnu-
bannsins kom þann 22. maí s.l,
er nauðsynlegt að eftirfarandi
komi fram:
Orðrétt segir í viðtali við for-
mann Kaupmannasamtakanna:
„Eru kaupmenn mjög óánægð
ir með að ekki fengust viðræð-
ur við V.R. áður en til banns-
ins kom, en kaupmenn höfðu far
ið þess á leit við V.R. að þessi
mál yrðu rædd á sameignleg-
um fundi.“
Hið rétta í málinu er það, að
þann 5. maí s 1, óskaði V.R. bréf
lega eftir viðræðum við Kaup-
mannasamtökin og aðra viðsemj
endur félagsins, sem hlut eiga
að máli vegna hins alvarlega
ástands, sem skapazt hefur í
vinnutíma afgreiðslufólks í kjöl
far þeirrar ringulreiðar, sem þró
azt hefur undanfarið i af-
greiðslutíma verzlana. Jafn-
framt var vinnuveitendum send
samþykkt félagsfundar V.R.
frá 29. apríl s.l. um heimild til
yfirvinnubannsins.
Fulltrúar Kaupmannasamtaka
íslands gátu ekki vegna anna
komið til fundiar fyrr en föstu-
daginn 14. maí. I>á var fundur
haldinn í skrifstofu V.R. ki. 10
að morgni og voru þar mættir
formaður og framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna ásamt
fulltrúum annara viðsemjenda
V.R. sem hlut eiga að þessu
máli.
í>að er því ekki rétt, sem hald
ið er fram i nefndu viðtali við
formann Kaupmannasamtak-
anna, hvort sem það kann að
stafa af ónákvæmni blaðamanns
eða ekki, að eigi hafi fengizt
viðræður við V.R. áður en til
bannsins kom.
Á viðræðufundinum þann 14.
maí var vinnuveitendum m.a.
skýrt frá því, að ef þeir gætu
ekki tryggt að félagsmenn
þeirra héldu og virtu ákvæði
7. greinar kjarasamnings að-
ila varðandi vinnutíma af-
greiðslufólks, þá neyddist
stjórn V.R. til að láta heimld
félagsfundar VR frá 29. ápríl
s.J. um yfirvinnubann, koma til
framkvæmda innan tíðar.
t>á skal þess getið, að við
samningagerð í júli 1970 óskaði
V.R. eftir að nefnd skipuð full-
trúum Kaupmannasamtaka Is-
lands og V.R. yrði skipuð til
að vinna að lausn þessa máls
fram til næstu samningagerðar.
Tillaga V.R. dags. 2. júlí 1970
var þannig:
„Samningsaðilar skipa sex
manna nefnd, þrjá frá hvorum,
sem vinna að því fram til næstu
samningagerðar að rannsaka
hvernig stytta megi vinnutíma
afgreiðslufólks. Ennfremur skal
nefndin gera tillögur um breyt-
ingu á afgreiðslutíma verzlana.
Nefnd þessi skal skipuð innan
14 daga frá undirskrift þessa
samkomulags."
Þessari málaleitan V.R. var
með öllu hafnað.
Samkvæmt þessu liggur ljóst
fyrir:
Að V.R. bauð upp á yiðræður
2. júlí 1970, sem Kaupmanna-
samtökin höfnuðu.
Að V.R. óskaði eftir viðræð-
um með bréfi dags. 5. maí s.l.
Að viðræður fóru fram milli
aðila þann 14 maí s.l., 8 dögum
áður en yfirvinnubannið kom
til framkvæmda.
ÞETTA ER REAAINGTOIM...
Remington veggskjalaskápar upp-
fylla kröfur um hagkvæma skjala-
röðun og skjalavörzlu. Skjalamöpp-
urnar eru hengdar upp hlið við hlið
og eru því allar sýnilegar og innan
handar um leið og skápurinn er
opnaður. Þegar tekið er tillit til þess
skjalamagns, sem veggskáparnir
geyma, kemur í Ijós, að þeir taka
aðeins u.þ.b. Va hluta þess gólf-
flatar, sem venjulegir skjalaskápar
þurfa. Remington veggskáparnir
| tryggja hagkvæmni og hámarks
nýtingu.
Remington FLEXIFILE®-skjalagrind
f skúffur nýtir betur rýmið, dreifir
innihaldi skúffunnar jafnt og gerir
auðveldara að opna hvern vasa
hæfilega til að fletta upp í bréfa-
safninu og flytja til í því.
Remington FLEXIFILE®-skjala-
grindur má nota í allar gerðir
skjalaskápa og með þefm má fá
spjöld og merkimiða, sem tryggja
góða yfirsýn yfir skjalasafnið.
Remington KARDVEYER® er sjálf-
virk, rafknúin skjalageymsla. KARD-
VEYER® spjaldskrárveltir gerir ein-
um starfsmanni kleift að finna eða
raða miklu magni spjalda og skjala
á örskömmum tíma. KARDVEYER®
spjaldskrárveltinum er stjórnað frá
sérstöku stjórnborði og hver færsla
tekur aðeins fáeinar sekúndur.
Remington spjaldskrárveltar eru fá-
anlegir í mörgum stærðum og geta
geymt frá 25 þúsund — 800 þúsund
spjöld og skjöl af ýmsum stærðum,
svo sem götunarspjöld, DIN-stærðir
allt að A4 og „folio’-stærðir.
Eldvarðir skjalaskápar frá Reming-
ton vernda hin ómetanlegu gögn
stofnana og fyrirtækja. Eldvörðu
Remington skáparnir þola elds-
voða, hátt fall, vatn og hvers konar
efnablöndur án þess að innihald
þeirra skemmist. Skáparnir full-
nægja ströngustu
yggi, en eru þó á
veldari í notkun
skjalaskápar.
kröfum um ör-
engan hátt tor-
en venjulegir
Remington framleiðir skrifstofubúnað, Veitum aðstoð við uppbyggingu og
sem fullnægir kröfum tímans og hentar endurskipulagningu á bréfa- og skjala-
þöríum fyrirtækja af öllum stærðum. söfnum.
NOTIÐ VANDAÐA VÖRU ?£*(•]
NOTIÐ REMINGTON. Laugavegi 178. Sími 38000.