Morgunblaðið - 29.05.1971, Síða 17
16
MORGUNBLAÐH), LAUGARDAGUR 29. MAl 1971
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAl 1971
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvœmdastjóri Haraidur Sveinsson.
Rilstjórar Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aöstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti S, sími 10-100
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 12,00 kr. eintakið.
HVERS VEGNA
S JÁLFSTÆÐISFLOKKINN ?
1\Tú eru um það bil tvær vik-
ur þar til þjóðin gengur
að kjörborðinu og ákveður
valdahlutföll stjórnmála-
flokkanna á Alþingi næsta
kjörtímabil. Stjórnmálaflokk-
amir eru vanir því að telja
hverjar kosningar hinar ör-
lagaríkustu, sem háðar hafa
verið. Einu gildir, hvort þessi
fullyrðing er rétt eða ekki;
hitt stendur eftir, að við
hverjar kosningar gefst fólk-,
inu kostur á að hafa áhrif á
framtíðarstefnu þjóðfélags-
málefnanna. í áratugi hafa
kjósendur skipað Sjálfstæðis-
flokknum í fylkingarbrjóst í
íslenzku stjórnmálalífi. Þann-
ig hefur sjálfstæðisstefnan
öðrum stjómmálastefnum
fremur mótað þjóðfélagsþró-
unina á íslandi.
Fulltrúar Sj álfstæðisflokks
ins hafa nú um 12 ára skeið
haft á hendi stjómarforystu.
Engum dylst, að þetta tíma-
bil er eitt mesta framfara-
skeið í sögu landsins. Við
upphaf liðins áratugar var
mörkuð ný frjálsræðisstefna
í atvinnu- og viðskiptahátt-
um þjóðarinnar. Það er fyrst
og fremst þessi frjálsræðis-
stefna, sem lagt hefur grund-
völlinn að efnalegum fram-
förum og velmegun þjóðar-
innar á undanförnum árum.
Gegn þessari stjórnarstefnu
hafa staðið afturhaldssamir
og sundraðir flokkar. Við
upphaf núverandi stjórnar-
samstarfs vom stjórnarand-
stöðuflokkamir tveir, en eru
nú a.m.k. þrír, eftir að Al-
þýðubandalagið hefur marg-
klofnað í ýmsar fylkingar.
Allan þennan tíma hefur
Framsóknarflokkurinn verið
staðnað stjómmálaafl, sem
staðið hefur gegn hverju
framfaramálinu á fætur öðru.
í orði kveðnu virðast stefn-
ur stjórnmálaflokkanna oft
og tíðum vera keimlíkar* og
fátt virðist greina einstaka
stjórnmálaflokka í sundur.
Það er því framkvæmd-
in ein, sem sker úr um
gildi hverrar stjórnmála-
stefnu. Þegar á þá hlið er
litið, blasa andstæðurnar við.
Engum dettur í hug, að allt
hafi gengið að óskum, og
Ijóst er, að margt hefði mátt
fara betur. En í störfum
stjórnmálaflokkanna liðinn
áratug koma andstæðurnar
þó skýrt fram. Allan þennan
tíma hafa kjósendur stutt
stefnu frjálsræðis og fram-
fara og hafnað hikandi og
sundurlausu afturhaldi.
Þó að á þennan hátt hafi
fjölmargt vel tekizt, bíða
fjölmörg viðfangsefni enn úr-
lausnar, og ný og áður
óþekkt vandamál hafa skotið
upp kolli. Sum þessara við-
fangsefna eru bein afleiðing
þeirra öru framfara, sem átt
hafa sér stað á liðnum árum
og stuðlað hafa að nýju verð-
mæta- og gildismati. Við
áframhaldandi uppbyggingu
atvinnuvega verðum við í
náinni framtíð að taka aukið
tillit til gæða landsins, sem
við byggjum. Aukin velmeg-
un auðveldar ýmis konar
samfélagslegar ráðstafanir.
Síaukin þátttaka kvenna í
atvinnu- og félagslífi hefur
ný viðhorf í för með sér.
Nýjar hugmyndir ungu kyn-
slóðarinnar munu á næstu
árum hafa vaxandi áhrif á
þróun stjómmála og alla þjóð
félagsþróun. Það er af þess-
um sökum, sem úrslit kosn-
inganna eru mikilvæg; það
snertir lífshamingju hvers
eínstaklings, hvort straumar
nýs tíma og framfara ná að
móta þjóðlífsmyndina.
Kjósendur hafa nú sam-
fellda 12 ára reynslu af
stjómarforystu Sjálfstæðis-
flokksins. Sú reynsla sýnir,
að Sjálfstæðisflokknum og
forystumönnum hans má
treysta. Þegar kjósendur
ganga í kjörklefann að tveim
ur vikum liðnum, vita þeir
því, að með því að greiða
Sjálfstæðisflokknum atkvæði
sitt eru þeir að tryggja
áframhaldandi festu í stjórn
landsins. Með því að' kasta
atkvæði sínu á stjórnarand-
stæðinga eru þeir á sama hátt
að kjósa óvissu og upplausn.
En það er ekki aðeins
vegna fenginnar reynslu.
sem happasælast er fyrir þjóð
ina að tryggja áfram stjórn-
arforystu Sjálfstæðisflokks-
ins.. Sjálfstæðismenn hafa
jafnan horft fram á við og
þeir hafa veitt hugmyndum
nýrrar kynslóðar brautar-
gengi. í þessum kosningum
tefla Sjálfstæðismenn fram
reyndum forystumönnum,
sem njóta trausts en þeir
bjóða líka fram unga menn
með nýjar hugmyndir. Eng-
inn flokkur hefur endumýjað
framboðslista sína í jafn rík-
um mæli og Sjálfstæðisflokk-
urinn fyrir þessar kosningar.
Þannig leitast Sjálfstæðis-
flokkurinn við að sameina
reynslu og traust og hug-
myndir nýrrar kynslóðar.
Með því að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn í kosningunum 13.
júní kjósa landsmenn reynda
og trausta forystu en þeir
kjósa líka nýja menn með
nýjar hugmyndir.
NÚ er laxveiðitíminn byrj-
aður og veiðimenn farnir að
hugsa sér til hreyfings eftir
langan vetrardvala, því að
upp úr mánaðamótunum má
víðast fara að renna færi. En
eins og ég hefi áður rætt í
þessum þætti eru ýmsir að-
ilar, sem ekki sitja auðum
höndum á veturna, heldur
vinna markvisst að því að
búa í haginn fyrir veiði-
mennina og það eru fisk-
ræktarmennirnir. I síðasta
þætti var fjallað um starf-
semi laxeldisstöðvarinnar í
Kollafirði og þær ýmsu til-
raunir, sem þar hafa verið
gerðar og verið er að gera.
Kollafjarðarstöðin er sú eina
á landinu, sem hið opinbera
rekur, allar aðrar stöðvar
eru í eigu einstaklinga, sem
flestir hafa lagt fram mikið
og óeigingjarnt starf, vegna
þess að fiskrækt hefur verið
þeirra áhugamál og tóm-
stundagaman. Flestir hafa
byrjað smátt, en síðan aukið
við sig.
fiskrækt o
„Við getum fallizt á
að þetta séu skýjaborg
ir þar til starf semin er
komin í gang6í
Þrír af forráðamönnum Timgulax h.f. í vinnugaHa austur við Tungu. T.f.v. Snorri Hallgrímsson,
Kristinn Guðbrandsson og Eyjólfur Konráð Jónsson.
Tungulax h.f. er dæmi um
áhuga tveggja manna, sem byrj-
uðu fiskrækt i bílskúr heima hjá
sér, sem tómstundagaman fyrir
9 árum, en hafa nú með hönd-
um framkvæmdir i tveimur lands
hlutum, sem, ef svo fer sem horf-
ir, verða að stórbúi sem fram-
leiðir lax og bleikju til manneld
is svo skiptir tugum eða hundr-
uðum lesta. Frumkvöðlarnir að
stofnun fyrirtækisins voru þeir
Kristinn Guðbrandsson í Björg-
un h.f., Snorri Hallgrimsson próf
essor og Oddur Ólafsson yfir-
læknir á Reykjalundi. Siðar
gekk Eyjólfur Konráð Jónsson
. ritstjóri i félag með þeim og nú
síðast Guðmundur Hjaltason
skipstjóri, sem jafnframt er fram
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hjónin Jón Sigurðsson fyrrver-
andi skipstjóri á Gullfossi og
kona hans Dýrfinna Tómasdótt-
Ir eiga einnig drjúgan hlut, en
þau hafa um árabil haft eftirlit
með laxeldisstöðinni að Keldum,
sem var næsta skref þeirra fé-
laga, eftir bílskúrinn.
Mér hefur undanfarið gefizt
kostur á að heimsækja all-
ar stöðvarnar, sem eru auk
stöðvarinnar að Keldum, i
Tungu í Landbroti og Öxnalæk
í Ölfusi, rétt fyrir neðan Hvera-
gerði, og kynna mér starfsem-
ina og framtíðaráætlanirnar,
sem byggjast mest á tveimur sið
astnefndu stöðvunum. Eftir þær
könnunarferðir er ljóst að hér
eru stórhuga menn á ferðinni.
Eitt vorkvöld nú fyrir skömmu
settist ég niður með þeim Snorra
og Kristni og ræddi við þá um
fortíð, nútíð og framtíð.
BVR-TAÐ í BÍLSKÚR
— Hvert var uppliafið að fiski
rækt ykkar?
— Við höfðum alla tíð haft
feiknalegan áhuga á að koma af
stað fiskirækt, sem var í beinu
sambandi við áhuga okkar á
veiðiskap. Við vorum búnir að
ræða mikið um þessi mál og 1961
byrjaði þetta á fiskirækt i bil-
skúrnum hjá Kristni. Sú tilraun
endaði með því að öll seiðin
drápust um sumarið. Ekki gáf-
umst við upp við svo búið og
haustið eftir var aftur byrjað í
bilskúrnum. Þá vorum við bún-
ir að ákveða að reisa alvöru
stöð. Þar eð ætlunin var, að
rekstur og umsjón stöðvarinnar
yrði tómstundagaman okkar, var
það mikið atriði að aðstaða feng
ist sem næst Reykjavík. Fyrir
velvild og áhuga fyrrverandi for
stöðumanns Tilraunastöðvarinn-
ar að Keldum, Páls Á. Pálsson-
ar, yfirdýralæknis, fékkst með
leyfi ráðherra, leigð lítil lóðar-
spilda i landi Grafarholts, svo
og afnot af tveimur uppsprett-
um. Undirbúningurinn að bygg-
ingu eldisstöðvarinnar hófst
seinni hluta vetrar 1963, en við
ákvörðun um skipulagningu
stöðvarinnar nutum við ráða
Eriks heitins Mogensen fiski-
ræktarfræðings, Þórs Guðjóns-
sonar, veiðimálastjóra og Guð-
mundar Gunnarssonar, verk-
fræðings, sem teiknaði stöðvar-
húsið. Bygging stöðvarinn-
ar hófst i júni 1963 og var lokið
í október sama ár. Það haust
byrjuðum við svo á fiskirækt og
fiskeldi fyrir alvöru. Seiðin sem
við ræktuðum í bílskúrnum
fengu inni í Kollafirði um sum-
arið, en við fluttum þau að Keld
um, þegar húsið var tilbúið.
— Hvernig fórst ykkur þetta
úr hendi. Nú hafið þið varla
verið niiklir sérfræðingar á sviði
fiskoldis?
_ Rétt er það og við urðum
fyrir ýmsum skakkaföllum, er
við vorum að fikra okkur áfram,
einkum drapst mikið af smáseið
um hjá okkur. En, við héldum
ótrauðir áfram og reyndum að
draga lærdóm af mistökunum og
bæta úr vanþekkingunni.
FURÐULEG FERÐASAGA
— Þið sögðuð að þetta hefði
verið imgsað sem tómstundafram
an. Þið hljótið að minnast ein-
hvers skemmtilegs atviks frá
liðntim árum?
— Það hefur óneitanlega ým-
islegt skemmtilegt gerzt á þess-
um tíma, sem hefur gert starfið
auðveldara og ánægjulegra. Það
sem ber hæst er að starfsemi
stöðvarinnar að Keldum hefur
gengið vel og nú höfum við frá
upphafi framleitt 310 þúsund sjó
gönguseiði og 250 þúsund minni
seiði, sem sleppt hefur verið í ár
víðs vegar um landið og þannig
stuðlað að ræktun og uppbygg-
ingu ánna. Við höfum lent i ýms
um ævintýrum í sambandi við
öflun klaklax, en hér áður fyrr
höfðum við ekki um aðra
leið að ræða en að afla hans
með stangveiði, því erfitt var að
fá leyfi tii ádráttar fyrir
óreynda áhugamenn. Við veidd-
um klaklaxinn á stöng í lok
Spjallað við
Snorra Hali-
grímsson og
Kristinn Guð-
brandsson um
framkvæmdir,
áætlanir og
drauma
Tungulax hf.
veiðitímabilsins og var komið
víða við. Þessi háttur var óneit-
anlega bæði dýr og erfiður, en
íþróttin er óviðjafnanleg. Við
þurftum að flytja laxinn í stöð-
ina að Keldum og gekk oft á
ýmsu í þeim flutningum. Lengsti
flutningurinn átti sér stað haust
ið 1965, er nokkrir laxar voru
fluttir frá Laxá í Þingeyjarsýslu,
þar á meðal einn 25 punda hæng
ur. Sökum meiriháttar bilunar á
bílnum tók flutningurinn alls 27
klukkustundir, en allir voru
fiskarnir þó við beztu heilsu er
á áfangastað kom. í þessu sam-
bandi er ekki úr vegi að segja
frá skemmtilegu atviki, sem gef-
ur glögga mynd af ratvísi lax-
Frá Laxeldisstöðinni að Keldu m.
Frá laxabúinu í Tungu. Hér verða framleidd 50—100 þúsund sj ógönguseiði á árt. Neóan við
Iiúsið verða búnar til útitjarni r.
Hér eru sprelif jörug: sjóg:öng-us eiði á Keldum, sem bíða eftir að
verða flutt austur í Tungu.
Er Mbi. heimsótti stöðina i Tungu fyrir nokkru voru nokkrir
vinir Tungulax li.f. við sjóbirtingsveiði í Eldvatni, Tungulæk
og Hæðarlæk og hér er Hreinn Pálsson nieð morgunveiðina.
Ljósm. Mbl. — ihj.
ins heim til bernskustöðvanna.
Að lokinni hrognatöku á hverj-
um vetri, hefur allur lífvænleg-
ur klaklax verið merktur af
veiðimálastofnuninni. Fyrstu tvo
veturna var hoplaxinn fluttur
austur í Tungulæk, sem kemur
við sögu á eftir, og sleppt þar.
Hin siðari ár hefur honum ver-
ið sleppt í Keldnalæk. Alls hafa
verið merktir 200 hoplaxar, en
þrír þeirra hafa skilað sér og er
ferðasaga þeirra hin furðuleg-
asta, en við skulum láta nægja
hér að segja söguna af þriðja
fiskinum sem endurheimtist.
Hann var lítill hængur, veidd-
ur á stöng framarlega í Vatns-
dalsá í september 1966. Hann
var fluttur ásamt 15 öðrum löx-
um i eldishúsið að Keldum og
geymdur þar í 2i4 mánúð og sið-
an merktur og sleppt í Keldna-
lœk. Við merkingu mældist
hann 58 cm. Sumarið eftir, þ.
31. ágúst 1967 veiddist þessi
hængur aftur á stöng i Torfu-
hvammshyl í Vatnsdalsá og var
þá 3,8 kg að þyngd og 75 cm
að lengd.
Fróðlegt væri að vita, hvora
leiðina þessi hængur hefur val-
ið, vestur eða austur fyrir land.
En hvor leiðin sem fyrir valinu
hefur orðið, þá hefur hún legið
fyrir mynni margra álitlegra
laxavatna, en ekkert þeirra
fann náð fyrir augum þessa
hængs nema heimaáin.
Endurheimt þessara þriggja
iaxa og sú saga, sem i henni
felst, eru ríkuleg laun fyrir erf-
iðið og kostnaðinn við laxaflutn
inginn og merkinguna.
— Var þetta ekki tíniafrek
tómstundaiðja?
— Jú, óneitanlega og fyrstu
árin þurftum við að fara marg-
ar ferðir á dag. Snorri fór öll
kvöld og allar helgar en Krist-
inn fyrstu árin á morgnana og
um miðjan daginn. Auk þess kom
Erik heitinn Mogensen einu
sinni á dag upp eftir. Erfiðleik-
arnir voru mestir fyrstu árin,
því að þá vorum við eingöngu
með blautfóður, sem krafðist
mikillar vinnu. Hér varð gjör-
breyting á, er þurrfóðrið kom
til sögunnar og þar með sjálf-
virkir fóðurdreifarar.
ELDVATN
— Þið hafið eitthvað femgizt
við fiskirækt austur í Meðal-
Iandi ?
— Tilgangurinn með stöðinni
var að hluta tómstundagaman
fyrir okkur, en einnig til að gera
okkur kleift að rækta upp lax-
veiðiár, sem við hefðum áhuga á.
1961 keypti Kristinn Tungulæk i
landi Tungu í Meðallandi og er
jarðirnar Ytri-Tunga og Eystri-
Tunga voru boðnar til sölu 1963
keyptum við þær og eignuðumst
þannig Hæðarlæk, en sú á er
um 2 km. Tungulækur er um 10
km á lengd, en fiskgengur hluti
aðeins um 2 km. Báðar þessar ár
renna í Skaftár. Hér vorum við
því komnir með tvær þægilega
litlar laxveiðiár til að leika okk
ur með og rækta upp. Rekstri
stöðvarinnar að Keldum var
þannig hagað að við seldum
seiði til að standa undir kostn-
aði, en það sem umfram var, flutt
um við austur og slepptum í árn
ar tvær.
— Hvernig kom það til að þið
tókuð Eldvatn á leigti?
— Á árunum 1966—1967 byrj-
uðum við að gæla við þá hug-
mynd að rækta upp allt Skaftár-
svæðið, þ.e.a.s. allar ár, sem falla
i Skaftá og hafa útrennsli í
Veiðiós. Við gerðum veiðifélagi
Skaftár tilboð um að taka svæð-
ið á leigu til ræktunar og sleppa
árlega seiðum fyrir 1 milljón kr.,
sem er um 40000 sjógönguseiði,
en það eru seiði, sem alin hafa
verið upp í 10—17 cm stærð.
Áhugi var þá ekki fyrir hendi
hjá veiðifélaginu. Nokkur tími
ieið þar til okkur gafst tæki-
færi til að fara út í meiriháttar
fiskrækt, en árið 1969 var stofn-
að veiðifélag um Eldvatn og áin
boðin út. Þá sáum við möguleik-
ana opnast og gerðum tilboð í
ána til 10 ára. Var samið
um fasta árlega peninga-
greiðslu en auk þess skuldbund
um við okkur til að sleppa 10000
sjógönguseiðum í hana á ári og
liggur nærri að leigan á ári
nemi um 340 þúsund krónum.
Samningurinn var undirritaður í
júní 1969 og það sumar sleppt-
um við 17500 seiðum. Þetta var
meira en umsamið var, en við
vildum koma ánni af stað sem
fyrst og þá með sæmilegum
myndarbrag. 1970 slepptum við
svo 26500 seiðum og ætlunin er
að magnið verði eitthvað svipað
í ár. 1 sumar er síðan von á að
fyrstu laxarnir skili sér en við
vonum fastlega að innan fárra
ára veiðist á annað þúsund lax-
ar í ánni, því Eldvatnið hefur
allt það til að bera, sem þarf til
að gera eina á að mikilli lax-
veiðiá. Hún mun vera 3. stærsta
bergvatnsá landsins. Hér áður
fyrr var mjög mikil sjóbirtings-
veiði í Eldvatni, en sú veiði hef-
ur farið þverrandi á undanförn
um árum. Nokkrir laxar hafa
veiðst á hverju ári undanfarin
ár og hefur laxveiðin aukizt
nokkuð eftir að byrjað var að
rækta lax á Skaftársvæðinu, t.d.
hafa veiðzt þar merktir laxar,
sem sleppt var I Tungulæk og
Hæðarlæk. Við bíðum því með
nokkurri eftirvæntingu eftir að
sjá hversu laxinn skilar sér í
sumar.
— Er þetta ekki kostnaðar-
sanit?
— Kostnaðurinn við ræktunar
framkvæmdir við Eldvatn er nú
um 1,5 milljón króna, en auk
fyrmefndra 44 þúsund seiða hef
ur verið byggt veiðivarðarhús,
svo og komið fyrir veiðihúsi og
ennfremur ráðizt í allmiklar
vegaframkvæmdir. Veiðisvæði
Eldvatns er um 26 km og er ætl-
unin að leggja veg meðfram allri
ánni og gera aðstæður sem bezt-
ar. Við endurleigjum stangaveiði
Framhald á bls. 20