Morgunblaðið - 29.05.1971, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1971
Frá gagnfrœðaskólum
Reykjavíkur
Innritun nemenda, sem ætla að stunda náms ! 3. og 4. bekk
gagnfræðaskólanna í Reykjavík næsta vetur, fer fram þriðju-
daginn 1. júní og miðvikudaginn 2. júní n.k. kl. 14—18
báða dagana.
Það er mjög áríðandi, að nemendur gangi frá umsóknum sín-
um á réttum tíma, því ekki verður hægt að tryggja þeim
skólavist næsta vetur, sem siðar sækja um.
Um skiptingu skólahverfa er vísað til orðsendingar, er nem-
endur fengu i skólunum.
FRÆÐSLUSTJÓRIN'' I REYKJAVÍK.
Ætlarðu að segja að Mánudagsblaðið
sé ALLTAF svona spennandi.
VEITINGAHÚSIÐ
ÓDAL
Annað heimili þeirra,
sem telja góða þjónustu og
bragðgóðan mat á þægilegum
veitingastað vera ómissandi.
Ljúffengir réttir og þrúgumjöður.
Framreitt frá kl. 11.30—15.00
og kl. 18—23.30.
Borðpantanir hjá
yf irfram reiðslumanni
Sími 11322
ÓDAL®
VIÐ AUSTURVÖLL
— Fiskrækt
FiiamhaW af bls. 17
félagi Hafnarfjarðar ána þetta
ár og nú eru leytfðar 8 stengur
i ánni, en það er sá íjöldi, sem
við höfum ákveðið heppilegan,
meðan við erum að rækta hana
upp.
LAXABÚ I TFNGU
— Þið erað nú að ljúka fram-
kvæmdum við byggingu laxabús
í Tiingu. Hvernig er starfsemi
þess hugstið?
— Hún er tviþætt. 1 fyrsta lagi
að ala upp seiði, til fiskiræktar-
innar í Eldvatni, Tungulæk og
Hæðarlæk og í öðru lagi verður
afgangsseiðunum sleppt í Hæðar
læk og sá lax, sem síðan skilar
sér til baka til sfröðvarinnar
verður seldur til neyzlu. Gert
er ráð fyrir að stöðin geti skil-
að frá sér 50—100 þúsund laxa-
gönguseiðum árlega og að feng-
inni reynslu virðist mega gera
ráð fyrir að 5—10% gönguseiða
skili sér til baka sem fullorð-
inn lax. Reynist þetta á rökum
reist, getur hér orðið um arð-
vtænlega atvinnugrein að ræða.
i*að hefur einnig komið í ljós
hjá Laxeldisstöðinni í Kollafirði
að skilaprósentan hjá seiðum,
sem alin eru í tvö ár fer allt
upp í 17%. Eru þá seiðin alin
innanhúss í eitt ár, en í útitjörn
um seinna árið. Við höfum full-
an hug á að gera frekari til-
raunir á þessu sviði og ætlum
því að setja upp útitjamir við
sjálft eldishúsið. Með þessu móti
er hugsanlegt að vera með 200
þúsund seiði í gangi, hverju
sinni. Eldishúsið er um 350 m2
að stærð og auðvelt að koma við
svo stórfelldri ræktun i þvi.
Húsið er komið undir þak og
langt komið að ljúka við inn-
réttingu þess. Stíflugerð og raf-
stöðvarbyggingu er einnig lok-
ið, þannig að í haust er hægt
Að ÖxnaJæk í Ölfusi á að rísa bleikjubú. Hér sjást vænar bleikj-
nr í tilraimastöðinni þar. Ljósm. Orri Vigfússon.
Jón Sigurðsson fyrrverandi skipstjóri á Gullfossi og Dýrfinna
kona hans annast stöðina að Keldiim.
að hefjast
búskapinn.
handa við laxa-
BI.EIKJUBÚIÐ AÐ ÖXNALÆK
— Manni virðist, að það sem
þegar er upptalið séu ærin verk
Skrifstofudama
sem getur aniiast bréfaskriftir á ensku og dönsku að forskrift
eða fyrirsögn óskast allan eða hálfan daginn.
Umsókn með fylgjandi meðmælum sendist Morgunblaðinu,
merkt: „Skrífstofudama — 7578".
eifni fyrir ykkur, en þið ráðizt
greinilega ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur, því að ank
iaxabúsins í Tungu og stöðvar-
innar að Keldum eru ýmsar áætl
anir í gangi að Öxnalæk?
— Áhugi okkar hefur ekki ein
göngu beinzt að laxel'di, því að
við höfum löngum verið með
bleikju og sjóbirtingsseiði með
laxaseiðunum á Keldum. Áhugi
ökkar hefur beinzt að silungs-
eldi, sérstaklega með tilliti til
þess að það geti orðið arðbær
atvinnuvegur. Skilyrði voru
hins vegar ekki fyrir hendi fyr
ir slíka stöð, hvorki í sambandi
við stöðvamar að Keldum eða
Tungu. Vorið 1969 keyptum við
6 hektara lands ásamt vatnsrétt
indum á landi jarðarinnar Öxna
lækjar í Ölfusi, þar sem skil-
yrði fyrir silungsrækt virð-
ast vera hin ákjósanlegustu. Við
reistum þar siðan 50m2 tilrauna
eldishús, og á s.l. vori keyptúm
við helming jarðarinnar, með
það fyrir augum að hefja
bleikjurækt í stórum stíl. Um
þær mundir vorum við svo
heppnir að fá Eyijóif Konráð
Jónsson i félag við okkur, en
hann hefur af sinum alkunna
áhuga og dugnaði verið okkur
mikil stoð.
— Hvernig verður búskapn-
um báttað?
— Að rækta bleikju og selja
hana til manneldis. Hugmyndin
er að reisa þama 700 m2 eldis-
hús, sem við höfum þegar keypt
tilbúið og auk þess 1400 m2 úti-
ker, sem við höfum einnig fest
kaup á. Eldið fer fram á svip-
aðan hátt og laxeldið. Við byrj-
um á þvi að klekja út hrognun-
um og siðan eru seiðin flutt ker
úr keri eftir því sem þau stækka
og er þau hafa náð hæfilegri
atærð eru þau sett í útitjarn-
irnar, þar sem þau verða
alin áfram unz þeim verður slátr
að. Munurinn á bleikjueldi og
laxeldi er sá, að bleikjuseiðin
eru miklu harðgerðari og vaxa
fljótar, þannig að hægt er að
rækta hana upp í sölustærð á 8
mánuðum. í áætluninni er gert
ráð fyrir að stöðin framleiði
50—100 lestir af bleikju árlega,
þegar hún hefur náð fullri stærð,
en í byrjun er vart hægt að gera
ráð fyrir meira en 25 lestum á
ári. Framleiðslan verður seld á
innaniandsmarkaði eða hugsan-
lega til útlanda. Fiskinum verð-
ur slátrað vikulega eða mánað-
arlega, eftir þvi sem eftirspurn
og markaður segja fyrir um.
SKÝJABORGIR?
— Eru þetta skýjaborgir?
— Við getum faMizt á að þetta
séu skýjaborgir þar til starfsem-
in er komin í gang.
— Ég tók eftir þvi við Öxna-
læk um daginn að þar er verið
að bora eftir heitu vatni?
— Já, við erum að bora þar
eftir heitu vatni, til að nota við
silungseldið. Öxnalækur er
mjög hentugur til fiskræktar,
því að vatnið i honum er yfir-
leitt 11—12 gráðu heitt, en það
er nauðsynlegt að hafa heitt
vatn, tíl að tryggja það að vatn-
ið kólni ekki, t.d. í kuldaköstum
á veturna og einnig þurfum við
vatn til að hita upp eldishúsið.
— Nú er þetta varla lengur
tómstundagaman ykkar?
— ABa vega ekki eins og var
hér áður fyrr. Þetta er orðið tals
vert fyrirtæki og ekki lengur
hægt að sinna því í aukavinnu.
Við vorum svo heppnir að fá
Guðmund Hjaltason skipstjóra i
félag við okkur og hann verður
jafnframt framkvæmdastjóri fyr
irtækisins. Guðmundur hefur
mikia reynslu á sviði fiskeldis
og fiskræktar og við bindum
miklar vonir við störf hans.
Auk Guðmundar starfa þau Jón
og Dýrfinna hjá Tungulax h.f.,
svo og tveir menn í Tungu og
Öxnalæk.
.— Hér að framan höfum við
rætt um rniklar framkvæmdir,
áætlanir og drauma. Kostar ekki
slíkt talsvert fé og hvernig haf-
ið þið f jármagnað starfsemina?
— Fram til þessa hefur
stærsta framlagið komið frá hlut
höfunum i vinnu og fjárframlðg-
um en það dugir nú ekki til
lengur, þegar umsvifin eru orð-
in svo mikil. Þessi atvinnugrein
flokkast undir landbúnað og við
höfum notið fyrirgreiðslu stofn-
lánasjóðs, en stóran þátt í
hvernig miðað hefur áfram, ber
að þakka velvild og skilningi
Landsbanka Islands og útibús
Búnaðarbankans í Hveragerði,
sem hafa verið okkur innan
handar með stutt lán.
— ihj.
Hærri verðlaun til höf-
uðs Quantasræningjum
Canberra, 27. maí. AP.
STJÓRNABVÖLD í Ástralíu
hækkuðu í dag uni 30.000 ástr-
aiska doilara (34.000 bandaríska
dollara) verðlaun þau, sem heit-
NOTAÐIR BILAR
Skoda 110 L '70
Skoda 100 S '70
Skoda 1000 MB '69
Skoda 1000 MR '68
Skoda 1000 MB '67
Skoda 1000 MB '66
Skoda Combi ’67
Skoda Combi '66
Skoda Combi '65
Skoda Combi '64
Skoda 1202 ’66
Skoda 1202 '65
Skoda 1202 '64
Skoda Octavia '65
Skoda Octavia '61
Volkswagen 120C '68
SKODA
Auðbrekku 44—46, Kópavogi
Sími 42600
ið er fyrir upplýsingar, er leitt
geti til handtöku manna þeirra,
sem í gær göbbuðu forráða-
menn flugfélagsins Quantas til
þess að greiða sér hálfa millj.
dollara fyrir að skýra frá, hvar
sprengja væri falin í einni af
farþegaþotum félag^is. Maður-
inn, sem tók við peningunum,
ók síðan á burt, en hringdi
skömmu síðar og sagði, að um
gabb hefði verið að ræða, það
liefði aldrei verið nein sprengja
um borð í þotunni.
Flugvélin lenti síðan, eftir að
hún haíði verið sjö Idutokusftund-
ir og fi'mimtán mínútur á flugi.
Lögreglan og stjómarvöld telja,
að þetta bíræfna rán hafi verið
tekið upp eftir kvikimynd, sem
sýnd var í sjónvarpinu í Sydney
srnemma í marz. Verðlaun, sem
heitið er fyrir upplýsinigar, sem
geta leitt til handtöku þeirra,
sem ránið fröimdu, hafa nú ver-
ið hæikikuð upp í aWs 50.000 ástr-
alska doWaira (56.000 banda-
risika). <
Útboð
Tilboð óskast í að byggja í fokhelt éstand og fullbúíð að utan
einbýlishús í Garðahreppi.
Otboðsgagna má vitja á Teiknistofuna Óðinstorg s/f., Óðins-
götu 7, gegn 3.000,00 kr. skilatryggingu.