Morgunblaðið - 10.09.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1971 11
Páll Pálsson
Þúfum - Áttræður
1 dag er Páll Pálsson, fyrr
hreppstjóri og oddviti í Þúfum
í Reykjiarfjarðarhreppi áittræð-
ur að aldri. Hann er fæddur að
Prestsbak'ka í Hrútafirði 10.
sept. 1891.
Foreldrar hans voru prests-
hjónin, séra Páll, siðar prófast-
ur í Vatnsfirði, Ólafsson, dóm-
'kinkjuprests og síðar prófasts á
Melstað Pálssonar og Arn-
dís Pétursdóttir Eggerz frá Ak-
ureyjum. Eru ættir þeirra
beggja merkar, fjölmennar og
ikunnar víða um land.
Vorið 1901 fluttist Páll með
fóreldrum sínum að Vatnsfirði í
N. Isafjarðarsýslu og ólst hann
þvi upp á þessu forna höf-
uðbóli til fullorðinsaldurs.
Óhætt er að fullyrða, að í
prestskapartíð séra Páls blakti
Æáni hins fomifræga Vátnsfjarð-
a-rstaðar með reisn og virðu-
léik, eins og verið hatfði í tíð
flestra þeirra höfuðklerka er
þar höfðu setið á liðnum öld-
um.
Búskapur allur var rekinn
með mikilii rausn og mynd-
arbrag, heimilið var mannmargt
og athafnamikið, enda urðu gæði
jarðarinnar ekki nýtt til fulls,
nema með árvekni, forsjá og
styrku starfsliði. — Þama ólst
upp hinn glæsilegi og þrekmikli
barnahópur prófastshjónanna,
U systkini, lifsglöð, gáfuð og
gjörfuleg. Þarf ekki að efa að
oft hefir verið léttur blær yfir
heimilislífinu og gamanmiál leik-
ið á imargra vörum. En hér var
einnig hollur og þroskarikur
skóli undir handleiðslu prófasts
hjónanna, bæði í bóklegri mennt
og verklegum efnum.
Innan við tvítugsaldur stund-
aði Páll í Þúfum nám við bún-
aðarskólann á Hvanneyri um 2
ára skeið. Minnist hann oft með
gleði og þakklæti námsdvalar
sinnar þar og þeirra hollu
áhrifa er þaðan bárust frá Hall-
dóri Vilhjálmssyni, skólastjóra
og samkennurum hans. —Eftir
dvöl sína á Hvanneyri sneri
hann heim í Vatnsfjörð og mun
mega telja, að hann tæki þá við
bústjórn hjá föður sinum, við
hinn umsviifamikla búrekstur
staðarins.
Árið 1919 kvæntist Páll
Björgu Jóhönnu Andrésdóttur
frá Blámýrum í Ögurhreppi,
hinni mætustu og mikilhæfustu
fconu. Hófu þau búskap í Vatns-
firði jafnframt því sem Páll ann
aðist búsýslu föður sins. Vorið
1929 fluttust þau hjónin svo að
eignarjörð sinni Þúfum í Reykj-
arfjarðarhreppi. Telja má, að
þau hæfu þar nýtt landnám, þar
eð á fyrsta ári þurfti að byggja
nýtt íbúðarhús, jafnframt því
sem hafizt var handa um mynd-
arlegar jarðræktarframkvæmd-
ir, eftir þvi sem þá voru tök á.
Jukust gæði jarðarinnar og af
urðir í höndum þeirra ár frá ári
einida blómgaðist hagur búsins
fyrir atorku elju og fýrir-
hyggju þeirra beggja. Bar heim-
dli þeirra fagurt vitni um hag-
sýni, smekkvísi og reglusemi
bæði uitan húss og innan.
Eins og að likum lætur átti
hin nærgætna og háttvisa hús-
freyja í Þúfum sinn mikla þátt
í því að sikapa hinn hlýja heim-
ilisarin, þar sem allir, er þar
knúðu dyra, mættu alúð, risnu
og hvers konar fyrirgréiðslu,
bæði í orði og athöfn. —
Páll í Þúíum hefir á þessum
timamótum yfir langan, merkan
og athafnamikinn æviferil að
líta. Fullyrða má að nokkuð á
fjórða áratug hafi hann verið
forvigismaður og fulltrúi
hrepps sins og héraðs í flest-
um opinberum málum, enda virt
ist hann sjálflkjörinn til þess að
takast á hendur hin margvls-
legu trúnaðarstörf, sem snertu
ekki aðeins Reykjarfjarðar-
hrepp heldur eimnig sýsluifélag-
ið í heild, t.d. í samgöngu- og
jarðræktarmiálum.
Heima fyrir var hann allt í
senn, oddviti, hreppstjóri og
sýslunefndarmaður. Eimnig sat
hann og um langt skeið á Bún-
aðarþingi, sem fulltrúi sýslunn-
ar. Þá vann hann hin síðari ár
að sammingu fasteignamats fyr-
ir N. ísafjarðarsýslu. Man ég
það hve hann fagnaði því, þeg-
ar þetta mikla og vandasama
verk var komið í höfn.
Það sem sérstaklega ein-
kenndi Pál í Þúfum var reglu-
semi harns og vandvirkni í
hverju starfi.
Hann var einnig manna starfs
glaðastur. Starfið veitti honum
nautn og yndi hvort sem hann
sat við skriflborðið eða hann
vann að jarðræktarframkvæmd-
um eða annarri búsýslu fyrir
heimili sitt. Þá einkenndi það
hann hve vel hann kynnti sér
hvert það málefni er hann hafði
með höndum og reyndi að
skyggna það að grunni. — Ég
þekkti það flestum betur, hve
gott var að vinna með honurn að
þeim verkefnum sem leysa
þurfti hverju sinni.
1 hvívetna var hann raunsær,
gætinn, úrræðagóður og sam-
vinnuþýður í öllu samstarfi. —
Þá gleymist það eikki að Páll
var einlægur kirkjumnar maður.
Sem sóknamefndarformaður,
safnaðarfulltrúi og meðhjálpari
Vatnsfjarðarsóknar sýndi hann
rnálum kirkjunnar í hvívetna
ræktarsemi, virðingu og góð-
vilja.
Það fymist heldur ekki að
heimili þeirra Páls og Bjargar
var. grundvallað á traustum
grunni fornrar þjóðmenningar
og trúrækni.
Björgu konu sína missti Páll
haustið 1966. Höfðu þau þá fyr-
ir makkrum árum afhent eignar-
jörð sína Þúfur, í hendur dóttur
sinni og tengdasyni.
Af bömum þeirra hjóna kom-
ust aðeins 2 til fullorðins-
aldurs. Eru það þau: Páll
hreppstjóri á Borg í Miklaliolts
hreppii, kvæntur Ingu Ásgríms-
dóttur og Ásthildur gift Ásgeird
Svanbergssyni, hreppstjóra i
Þúfum. Auk bama sinna ólu
þau upp 4 fósturböm, sem öll
eiga fagrar minningar um föstur
foreldrana og heimilið i Þúfum.
Eftir langt og heilladrjúgt
ævistarf, sem seint mun gleym-
ast íbúum Reykjarfjarðarhrepps
og Djúpsins, hefir Páll nú fyr-
ir mokkru dregið sig í hlé frá
opinberum störfum, og „setzt í
helgan stein“. Dvelur hann um
þessar mundir hjá Páli syni sín
um að Borg í Miklaholtshreppi.
Og þótt starfsorka hans hafi
þorrið hin síðari ár þá er hug-
ur hans glöggur og raunsær sem
fyrr og greinir og metur stefn-
ur og strauma í atvinnuháttum
og þjóðlifi voru af áhuga, skiln
ingi og dómgreind.
Á þessum merku timaimótum i
ævi vinar míns Páls í Þúfum,
sendum við hjónin og fjölskylda
okkar honum hugheilar ámað-
aróskir, með kæru þakklæti fyr
ir einlæga vináttu hans, tryggð
og góðvilja í ofckar garð frá
fyrsitu tíð, jafnframt því sem
við biðjum honum og ástvinum
hans allrar farsældar og bless-
unar um ókomin ár.
Þorsteinn Jóhannesson.
65-105 tonna togbntur
í góðu standi — óska*t í eins árs leigu frá áramótum —
með eða án togveiðarfæra.
Þeir sem hafa áhuga á þessu tilkynni það, þar sem fram er
tekið leiguverð, fyrir 27. sept. til auglýsingadeildar Morgun-
blaðsins, merkt: „Bátur '72 — 5852",
Leiklistarskóli
Þórunnar Magnúsdóttur
tekur til starfa 17. september.
Upplýsingar i síma 14839.
Fiskiskip til sölu
Vélskipið Drangey SK. 1, Sauðárkróki, er til sölu, ef viðunandi
tilboð fæst.
Nánari upplýsingar gefur Hákon Torfason, sími 95-5133 og í
Reykjavík sími 85734.
Útgerðarfélag Skagfirðinga hf.
Aðolíundur Hnndknnftleiks-
dómarnfélogs Reykjnvíkur
verður haldinn í Valsheimilinu þriðjudaginn 21. september
næstkomandi og hefst klukkan 20.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Rætt um handknattleikslögin.
STJÓRNIN.
VINYL - BAST - PLAST - PAPPIRS
VEGGFÓÐUR
Aðeins 3 sýningardagar eftir.
tiæfudagurinn stóri
Flugferð til London með BEA fellur í hlut þess
sem vinnur í getraun Alþjóða vörusýningarinnar.
Getraunaseðill var í dagblöðum í gær.
Skilið svörum í kvöld, föstudag, fyrir kl. 9.
50.000. gesturinn kemur í dag og fær hann flugferð
fyrir tvo til Kaupmannahafnar með
Flugfélagi íslands.
Flugferð umhverfis ísland á einum degi
með Flugfélagi íslands er vinningur í
gestahappdrættinu, í dag eins og alla daga.
ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING '71