Morgunblaðið - 10.09.1971, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1971
Leyniher inn sem
storkar Bretum
„Við erum aftur orðnir her-
menn,“ segir IRA-foringinn
Cahill, sem heldur í gamla hefð
Q „Harðasti kjarni írska
lýðveldishersins (IRA)
hefur verið sigraður,“ sagði
einn af yfirmönnum brezka
hersins á Norður-írlandi
fyrir nokkrum vikum. „Við
höfum fellt um 50 haráttu-
menn hreyfingarinnar, 70%
stuðningsmanna þeirra hafa
verið handteknir og lang-
flestir leiðtoganna gerðir
áhrifalausir.“
£ Tveimur klukkustund-
um síðar hélt einn af for-
ingjum IRA, Joe Cahill,
fund með 50 blaðamönnum
og sjónvarpsmönnum heint
við nefið á brezku hermönn-
unum, sem leituðu hans
ákaft. Brezkir hermenn
gengu hvað eftir annað
fram hjá húsinu þar sem
blaðamannafundurinn var
haldinn meðan hann fór
fram í aðeins 200 metra
fjarlægð, en leyniskyttur
IRA voru vel á verði.
„Nærvera mín hrekur orð
brezka yfirmannsins,“ sagði
Cahill við blaðamennina. Hann
fullyrti, að IRA gæti haldið
áfram baráttunni þótt skot-
færaskortur myndi gera vart
við sig. Hann játaði, að IRA
gæti ekki sigrað brezka her-
inn í beinni orrustu, en sagði, að
„skæruhernaði í borgum og
bæjum yrði haldið áfram“.
Nú orðið kannast allir við
Joe Cahill. Hann situr í gæzlu-
varðhaldi í New York og hefur
verið bannað að ferðast um
Bandaríkin og safna fé til
kaupa á vopnum í baráttuna
gegn brezka hernum. Hingað til
hefur honum tekizt að komast
hjá ótal tilraunum hersins og
lögreglunnar til að hafa hendur í
hári hans. Hann er líka venju-
legur í útliti. Hann er maður
hæglátur, sköllóttur, miðaldra
maður og sjö barna faðir.
• ÞROTLAUSBARATTA
Cahill hefur þá bjargföstu
sannfæringu að mögulegt sé að
frelsa Norður-írland undan
brezkri stjórn með vopnavaldi.
Hann lítur á sig sem foringja
í aldagamalli baráttu Ira fyrir
þvi að losa sig undan öllum
yfirráðum Breta. Hann er for-
ingi herskáasta arms Irska lýð-
veldishersins, „Provisionals".
Hann hefur getað ferðazt að
vild um kaþólsku héruðin á
Norður-írlandi. Öll hús hafa
staðið honum opin í Belfast
þegar hann hefur vantað húsa-
skjól.
Eina menntunin, sem Cahill
hefur hlotið síðan hann var 14
ára gamall, hefur verið i Irska
lýðveldishernum. Hann gekk í
lýðveldisherinn 16 ára og lærði
að meðhöndla vopn og skot-
færi. Hann hefur æ síðan verið
trúi- hugsjón IRA um linnu-
lausa baráttu við lögregluna og
brezka hermenn. Tuttugu ára
gamall var hann dæmdur til
dauða ásamt fimm öðrum
mönnum úr IRA fyrir morð á
lögreglumanni. Dómi Cahills
var breytt í 15 ára fangelsi, og
honum var sleppt eftir 7x/2 ár.
írski lýðveldisherinn hefur
breytzt mikið á undanförnum
50 árum. Lýðveldisherinn er
afsprengi sjálfboðaliðshers,
„Irish Volunteers", sem var
stofnaður í Dublin þegar bar-
áttan fyrir heimastjórn harðn-
aði á árunum fyrir fyrri heims-
styrjöldina og mótmælendur
settu eigin sjálfboðaliðsher á
laggirnar. Lýðveldisherinn hóf
stríð gegn Bretum árið 1919
undir forystu Michael Collins,
sem hafði komið mikið við
sögu páskauppreisnarinnar
blóðugu þremur árum áður.
Skipting Irlands skömmu síð-
ar batt ekki enda á baráttu
IRA. Þeir, sem vildu halda
áfram baráttunni fyrir algeru
írsku sjálfstæði, réðust gegn
þeim, sem sættu sig við þá
málamiðlunarlausn, sem samið
var um. Hreyfingin var klofin
og er það enn. Margir af leið-
togum lýðveldishersins, þeirra
á meðal Collins, voru felldir.
Stofnun Irska lýðveldisins
dró einnig vind úr seglum lýð-
veldishersins, sem gat talsvert
látið að sér kveða á árum síð-
ari heimsstyrjaldarinnar þegar
þrengt var að Bretum, meðal
annars með samvinnu við Þjóð-
verja. Smáhópar stuðnings-
manna lýðveldishersins héldu
þó ótrauðir áfram hryðjuverka-
baráttu sinni, ekki aðeins á
Norður-lrlandi heldur einnig í
Englandi. En smátt og smátt
dró úr hryðjuverkunum, og fyr-
ir um það bil tíu árum virtist
hreyfingin hafa lognazt út af.
• NÝIR SIÐIR
Árið 1956 skipulagði IRA
mikla hryðjuverkabaráttu á
Cahill í fangavi stinni í New Y'ork.
Brezkir hermenn á verði eftir sprengjntilræði í byggingu í Bei-
fast. I.ýðveldisherinn segist bera ábyrgð á langflestum sprengju-
tilræðum.
Norður-írlandi og stóð hún í
um það bil sex ár. Fyrst fram-
an af voru gerð mörg sprengju-
tilræði, og leyniskyttur IRA
voru athafnasamar. En smátt
og smátt fækkaði hryðjuverk-
unum. Cahill var einn þeirra,
sem skipulagði þessa hryðju-
verkabaráttu i upphafi. Hann
gat þó ekki tekið virkan þátt
í baráttunni nema skamma
hríð, þvi hann var handtekinn
1957 samkvæmt lögum um
handtökur án réttarhalda, sem
aftur voru innleidd í síðasta
mánuði. Hann sat í fangelsi i
4V2 ár.
Cahill var siðasti IRA-maður-
inn, sem var leystur úr haldi,
þegar hryðjuverkabaráttunni
var hætt. Hann komst að raun
um það, þegar hann kom úr
fangelsinu, að IRA hafði giatað
fyrri baráttuanda. „Margir
félagar IRA voru þeirrar skoð-
unar, að það, sem nú vantaði,
væri algerlega nýr hugsunar-
gangur og nýjar aðferðir,"
sagði Cahill nýlega í leynivið-
tali. Félagar IRA voru almennt
þeirrar skoðunar, að lýðveldis-
hernum hefði ekki orðið sér-
lega mikið ágengt sem hersam-
tökum.
IRA gerði þess vegna eins
konar bandalag við hóp komm-
únista. „Félagar hreyfingarinn-
ar vildu heldur skrafa um ráða-
gerðir en berjast með vopn í
höndunum," sagði Cahill í við-
talinu. Joe Cahill leit á sig sem
hermann og sneri baki við sam-
tökunum, sem hann hafði bar-
izt fyrir alla ævi. Hann hafði
óbeit á formi hins nýja skipu-
lags hreyfingarinnar og nýju
marxistísku yfirbragði hennar.
Hann gerðist: byggingaverka-
maður og væri það sennilega
enn þann dag í dag, ef ekki
hefði komið til blóðugra átaka,
sem færðu Norður-lrland á
Framhald á bls. 20.
LTng móðir í Belfast nieð 18 niánaða ganila dóttur sína hjá heimili sínu, sem eina
nóftina varð fyrir skothríð brezkra hormanna og manna ór lýðveldishernum.
Cahill (lengst t.v.) á blaðamannafundinum, sem var haldinn við nefið á hrezku her-
mönnunum. Við hlið hans situr þingmaðurinn I’ailily Kennedy.