Morgunblaðið - 10.09.1971, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1971
Mál arasveinar
Tveir málarasveínar óskast.
Upplýsingar í síma 40627 eftir klukkan 7 á kvöldin.
Sigurður íngólfsson,
málarameistari.
Tilboð óskast
í fólksbifreiðar og sex saeta Píck-up, er verða sýndar að Grens-
ásvegi 9, miðvikudaginn 15. september klukkan 12—3.
Tilboðin opnuð í skrifstofu vorri klukkan 5.
Sölunefnd vamarliðseigna.
Auglýsing
um bifreiðastöður í Hafnarfirði
Að fengnum tillögum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og samkvæmt
'heimi'ld í 66. gr. umferðarlaga nr. 40/1968 eru hér með settar
eftirfarandi reglur um stöður bifreiða í Hafnarfjarðarbæ:
1. Bifreiðastöður eru bannaðar austan megin á Öldu-
götu frá Lækjargötu að Selvogsgötu og báðum meg-
in á sömu götu frá Selvogsgötu að Reykjanesbraut.
2. Bifreiðastöður eru bannaðar vestan megin á Hverfis-
götu.
3. Bífreiðastöður eru bannaðar fyrir enda póshússins
milli Strandgötu og Fjarðargötu.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
3. september 1971.
EINAR INGIMUNDARSON.
VORUM AÐ FÁ NÝJA SENDINCU
AF ENSKUM HAUST- OC
VETRARKJÓLUM
-K -X * * *
GLÆSILECT ÚRVAL AF FALLECUM
KJÓLAEFNUM
KJÖRCARÐUR
VEFNAÐARVÓRUDEILD
— Leyniherinn
Framh. af bls. 12
barm borgarastyrjaldar í ágúst
1969.
Blóðug átök urðu milli
kaþólskra og mótmælenda í
Belfast, Londonderry og nokkr-
um öðrum bæjum Norður-lr-
lands. Þessar óeirðir voru for-
leikur átakanna, sem nú standa
sem hæst. En það var ekki IRA,
sem þeim kom af stað, heldur
ný og herská mannréttinda-
hreyfing undir forystu Bema-
Bókhaldsvinna
Öska eftir vel launuðu starfi við handfært bókhald.
Er vanur dagfærslum (journal) og viðskiptabók.
Svör óskast send Morgunblaðinu fyrir 15. september,
merkt: „Bókari — 5919".
Atvinnurekendur
Ungur maður, sem starfar hjá flugfélagi, óskar eftir framtíðar-
starfi hjá fyrirtæki staðsettu á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
Verzlunarmenntun fyrir hendi, svo og reynsla í almennum við-
skiptum, þar með töldum erlendum sem innlendum bréfaskriftum.
THboð, sem tilgreini starfssvið, vinnutíma og hugsanleg laun,
berist afgr. Mbl., merkt: „Ábyrgð — 5856" fyrir 16. þ. m.
óskast frá 1. 10. í nágrenni Borgarspítalans.
Uppl. gefnar í skrifstofutíma í síma 81200.
Borgarspítalinn.
Trésmiðir og
ófaglœrðir menn
óskast. — Framtíðaratvinna.
Timburverzlunin Völundur hf.,
Klapparstíg 1, sími 18430.
Lögtaks úrskurður
Eftir kröfu bæjarritarans í Keflavík úrskurðast hér með löktak
fyrir ógreiddum útsvörum, aðstöðugjöldum og fasteignagjöld-
um árið 1971 til bæjarsjóðs Keflavíkur.
Lögtökin verða framkvæmd fyrir gjöldum þessum að 8 dögum
liðnum frá birtingu úrskurðar þessa hafi þau ekki verið greidd
fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
8. september 1971,
JÓN EYSTEINSSON e.u.
cru þessar þriggja herbergja íbúðir í húsi sem er i smiðum að
Kársnesbraut 77. ibúðimar seljast fokheldar, herbergi, geymsla
og bílskúr á jarðhæð fylgja hverri ibúð.
Mjög gott útsýni. — Upplýsingar á staðnum.
GESTUR PÁLSSON,
SIGURÐUR ÓLAFSSON.
dette Devlin. IRA greip hins
vegar tækifærið og notaði
ástandið sér til framdráttar.
• KLOFNIN GUB
Á ársfundi IRA í desember
1969 klofnaði lýðveldisherinn.
Cahill og aðrir fylgismenn bar-
áttu lýðveldishersins í sinni
gömlu og upprunalegu mynd
og hins gamla anda baráttunn-
ar stofnuðu baráttusamtökin
„Provisionals", eins og þau eru
kölluð. „Nú erum við loksins
byrjaðir aftur. Við höfum sett
á fót vopnað herlið, sem mig
hefur dreymt um árum saman.
Við erum aftur orðnir her-
rnenn," sagði Cahill.
Yfirlýst markmið annarra
stuðningsmanna IRA er að
sameina Irland undir sósíalíska
stjóm. Þeir telja unnt að berj-
ast fyrir þessari hugsjón í
kosningum og þjóðaratkvæða-
greiðslum. „Provisionals" segja,
að kommúnistar og stjórnleys-
ingjar hafi laumazt til áhrdfa
í lýðveldishernum, spillt hinum
upprunalega og hreina föður-
landsanda samtakanna og horf-
ið frá markmiðinu: „Við berj-
umst fyrir þvi að frelsa Irland
óg stjómarformið verður ekki
ákveðið fyrr en landið er orðið
frjálst. Hinir berjast fyrir því
að koma á fót alþýðulýðveldi,
sem á að þröngva upp á þjóð-
ina," segja „Provisionals".
„Provisionals" beita sér fyrir
baráttu í þremur stigum:
Fyrsta stigið er áróðursherferð
og æsingastarfsemi, og á því
stigi er samvinna við vinstri
sinnuð mannréttindasamtök tal-
in sjálfsögð. Annað stigið er
efnahagsleg mótspyma. Loka-
stigið er vopnuð uppreisn. Bar-
áttan hefur að dómi baráttu-
manna samtakanna núna færzt
á það stig. Cahill hefuf haldið
því fram, að nú sé hafin endan-
leg úrslitabarátta gegn Bretum,
og hann hefur viðurkennt
hreinskilnislega, að samtök
hans hafi borið ábyrgð á lang-
flestum sprengjutilræðum og
launmorðum, sem hafa átt sér
stað að undanförnu.
Fréttir hafa borizt um sættir
milli hinna andstæðu fylkinga
lýðveldishersins, en samtökin
eru ennþá klofin. Foringjunum
ber heldur ekki alltaf saman.
John Kelly, einn helzti foringi
„Provisionals", hefur sagt, að
vettvangur baráttunnar muni
senn færast til Englands. For-
ingi hins armsins, Cathel
Goulding, hefur sagt, að bar-
áttan muni einskorðast við
Norður-írland og verði að
mestu leyti háð i mynd óvirkr-
ar andstöðu og óhlýðniaðgerða.
• UPPGJÖR VIÐ BRETA
Fylgi IRA virðist hafa vax-
ið eftir því sem hryðjuverkin
hafa þó neyðzt til að játa að
íbúa aukizt. Foringjar IRA
hafa þó neyðzt til að játa að
þeir séu að miklu leyti í varn-
arstöðu. En mikilvægu tak-
marki IRA hefur verið náð, þar
sem brezka stjórnin hefur orðið
að taka stjóm mála á Norður-
írlandi meira og meira i sinar
hendur. Þar með hafa samtök-
in komið til leiðar beinum átök-
um við Breta. Uppgjör við
Breta er vatn á myllu samtak-
anna, og þau telja að fátt vinni
hugsjóninni um sameiningu Ir-
lands í kaþólskt lýðveldi meira
gagn.
Ekki er síður mikilvægt frá
sjónarhóli samtakanna, að for-
sætisráðherra Irska lýðveldis-
ins, Jack Lynch, hefur opinber-
lega hvatt til þess, að stjórn
Brian Faulkners verði rekin frá
völdum. Stjórn hans hefur
hvorki haft næði né vald til
þess að framfylgja þeirri sátta-
stefnu, sem var markmiðið þeg-
ar fyrstu 300 brezku hermenn-
irnir voru sendir til Norður-lr-
lands fyrir þremur árum. öll
viðleitni til sátta og samninga
er miklum erfiðleikum bundin
eins og komið hefur á daginn.
Meðan ekkert miðar í sam-
komulagsátt er lýðveldisherinn
ánægður.