Morgunblaðið - 08.07.1973, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.07.1973, Blaðsíða 31
MORGUÍNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLf 1973 31 20 tímar á sólarhring Atli Elíasson er deildar- stjóri’ yfir 3. deild, sem sinin ir hreiinsun og verkstæðis- málum verklegra fram* kvæmda bæjarins, en alls er viðreisnarstarf'nu í Eyj- 'Um skipt i 6 deildir. Atli sagði að lokið væri við að hreinsa 110 lóðir, en um 60 manns eru í lóðahreinsun inni og átti að fjölga í henni um mánaðamótiin. 25 menn vinna á verkstæðinu og 40 vörubilstjórar aka vikrinum úr bænum. 15 menn vinna á þungavinnuvélum, en aUs eru tækin um 25. Unnið er á tækjumum svo til allan sólar hringinn eða á tveimur vökt um frá kl. 6—16 og 16—02, en á tímanum milli vakta eru tækin yfiirfarin. 32 vörubíl- ar eru notaðir við hreinsun- ina og vinna bilstjórarn- ir e:mn:g á vöktum. Um mán- aðamótim var búið að flytja urn 250 þús. tonn af vikri úr bænum eða 32 þúsund bii- farma. Verið er að auka tækjakost v:ð hreinsuniina. „Jæja, þá er nú friiið bú- ið, þá er maður nú bara hætt ur í fríinu," sagði hin aldna kempa Óli Fúsa, þegar hann steig út úr flugvélinni í Eyj- um i síðustu viku, „og mik- ið skelfing er gott að vera kominn aftur. Öllum éljum létt'ir upp sagði Grímur og ég er m'kið ánægður með að vera kominn heim.“ Óli Fúsa er 82 ára gamal'l og húsið hans Gísliholt fór undir hraun. „Heldur finnst mér vi'kurfönnitn vera dýpri en ég bjóst við,“ sagði Óli, „Mér Uzt glimrandi á þetta,“ sagði Atli, „það er gjörbreyting til hins betra með hverjum degi og grasið sækir stöðugt á. Ég tel að bát ar muni geta róið héðan í vet ur og sjómenn komi með fjöl skyldur sínar, en það verð- lir varla fyrr en næsta vor að allt kemst í fulilan gang. Þó getur það orðið fyrr, en það fer effir gangi rnála næstu mánuði. Ég hef þá trú að þótt fólk- ið dveljist uppi á landi i ein hvern tíma þá verði það ekki rótgróið þar, við erum sér- stakur þjíðflokkur og vitum það sjálf, því verður ekki á móti mælt.“ „Hvenær heldur þú að bú ið verði að fínhreinsa allair lóðir?" „>að fer nú m'lkið eftir þvi hvort heimafólkið kemur í einhvern tíma og leggur hönd á plóginn, en gróf- hreinsun á að verða lokið á þessu ári. í versta falli ætti fínpússiriið og snuddvinnan „ég bjóst ekki við að hún væri svona andskoti mikil, en þeir eru duglegir við þetta strákarnir að hreinsa." Nýja dóttiir hans kom með honum og þau komu neð full an gám af húsgögnum heim aftur, en Nýja sagði að pabbi sinn hefði sleppt boði um silungsveiði og dvöl i sumarbústað við Þingvalia- vatn til þess að komast heim til Eyja. „Maður eldar á gasi eins og á þjóðhátíð," sagði Nýja, „enda er nú farið að styttast i hana.“ -á.j. að vera búið fyriir næsbs| vor.“ „Eru það heimamenn sem vinna hjá þér?“ „All't hemamenn, nema nokkrir sem eru með leigu- tæki og svo nokkrir bifvéla virkjar. Annars er ánægju- legt að fylgjast með heima- fólkinu, sem kemur hiingað. >að, sem er búið að vena í 2—3 daga vill helzt ekki fiama aftur og er orðið æst i að taka þátt í hreinsuninni þótt það hafi ef til vill blóhað fyrsta dag'nn, en þá eru margir svolítið styggir enda ekki nema von. En þeg- ar fólkið er búið að fara um allan vesturbæinn og sér hve vel miðar þá hleyputr skap- ið i það, Eyjaskapið." -á.j. Snuddar við það venjulega Bernharð I ngimu ndarsom hefur verið í Eyjum í atlan vetur ásamt Fjólu konu sinni, en börn þeirra 10 og 14 ára sóttu skóla á megiin- landinu. „Krakkarnir komu svo eft ir skóla," sagði hamn í stuttu rabbi, „stelpan er i sániing- unni og peyinn snuddar við það venjulega, innii í Spröngu, við höfnina og svona eitt og amnað. Hann reynjr að hafa ofan af fyri'r sér og virðist takast veL Vlið búum i lánshúsi við Illuga- götu hjá Sigurði Etíassyini og höfum verið þar í allan vetur, en húsið okkar fór undir hraun.“ Maður er bara kominn heim! Erf iðast að f á f ólk til að tjá sig Eyjapistill hefur hljómað tí*tt i útvarpinu síðan skömmu eftir gos. Aðdragandi hams var sá að útvarpsmenn vildu gera s»tt til þess að halda Eyjafólkinu saman og þrír út varpsráðsmanna, Njörður P. Njairðvík, formaður útvarps- ráðs, Stefán Karlsson og Ótafiur Ragnar Grimsson, brugðu sér til Eyja og ræddu við forráðamenn bæjarins um fyrirkomulag á þætt'num. I fyrstu var áformað að ráða kennara úr Eyjum til þáfct- arins, en vegna kennslu gat ekki orðið af því en bræð- urnir Amþór og Glsli Helga- synir tóku að sér starfið í samvinnu við aðra. Hafa þeir 'þótt leysa verkefnið vel af hendi og hafa Eyjapistlamir vakið mikla athygli. Við ríibb uðum við þá bræður um starf þeirra við Eyjapistil. Gísli: Þeð hefur verið ákaf lega skemmtilegt að heyra hvernig hugmyndr fólk hef- ur um vinnslu þátfcariins. Sum ir. halda að við tölum bara beint í Mjóðnem'ainin og emg- in önnur vinna liggi á bak við, en það er öðru nær. Amþór: Einna forvitn'leg- ast var að verða vifcni að við- brögðum fóllcs við þess- um voða og fylgjast með af- leiðingunum sem urðu af þessum glundroða og hræðslu, sem varð í gosimu og kom ekki fram fyrr en löngu síðar. Starfið við Eyjapistl hef- ur gefið góðan möguleika á að fylgjast með félagsstarfinu og aðstöðunni eða öllu held- ur aðstöðuleysinu og sálar- ástandi fólks. Við höfum haft mikið samband við fólk og ýrríslegt hefur borið á góma. — Hvemig haflið þið unnið flutt efni fyrir upptökur? Gísli: Við höfum vélribað punkta og síðan höfum við stuðzt Við þá. — Erfiðast ? Gísli: Að fá fólk til þess að tjá sig í sambandi við þernnan þátt. Fótk hefur varla nennt að leggja til efni. Arnþór: Stundum þarf líka að sigla milli skers og báru, vegna þess að spumingamar vflja verða of persónulegar. Gísli: Svo heyrir fólk milk- ið af gróusögum og vill að við flytjum þær á stundinni, en við eyðum oft miklum tíma í að kanna réttmæti þeirra, en að flestu öðm leyti hefur þetta ver.ð ákaflega skemmti legt. Arnþór: Og skemmtilegast hefur verið, að mér finnst, að í þessum þætti hefur tek- izt að koma í veg fyrir ná- grannarig og þorpskritur að mestu. Gísli: Það var áætlað að við þyrftum 2 tíma á dag tH efn- isöflunar og liðlega 1 bima í upptöku, en oft hefur okkur ekki veitt af öllum deginum og allt upp í 12 fiímar hafa farið í að gera einn pistil. Amþór: Við tókum það ráð að hafa þáttinn lausan í reipunum. Hann móitiast frá degi til dags og við erum þakklátir fyrir ailar breytiing- artillögur sem við kunnum að fá. Allar uppástungur eru vel þegnar og við beinlínis óskum eftir þeim. Gísli: Við vitum að sjálf- sögðu ekki hvað þessi þáttur verður lengi við lýði, en við vildum gjarnan hafa meira samband við fólk um leið og við óskum þess að það hafi meira samband við okkur að fyrra bragði. Amþór: Okkur hafa stund um borizt nafnlaus bréf með hvössum ádeilum, en sMkum bréfum sinnum við ekki, þvi ef fólk vMl ekki láta nafin sitt fylgja getum við ekki af- greitt slíkt. Hins vegar höf- um við nobað dulnefni ef fólk hefur óskað þess með undir- ritun nafns og heimilisfangs. Opinberir aðilar hafia yf- irleitt verið mjög liðlegir við okkur nema einstaka Vest- mannaeyingar, sem hafa kom izt í oddaaðstöðu eftir gos. Þeir hafia oft sýnt litla samn ingslipurð, en það er við fáa að sakast, þó að slikt setji 'sinn svip á Sbarf hins opin- bera. -á.j. „Búa hér? Já, við ætlum að búa hér. Við verðum þó að hugsa fyrir samasfeað uppi á landi meðan skólar eru ekki starfandi hér, en ég verð hér og okkur líkar bezt að ver* hér. Mig óar við því að fara að setja mig fast uppi á landi og við erum öli sam- •mála i þvi efhi í fjöisikyid- utini.“ -á-j. Unum okkur ekki annars staðar Við hittum Guðrúnu Sehevmg (Diddu) og Sigriði Auðumsdófctur (Siggu) á Heiðarvegimuim. Þær voru á gönguferð í góða veðrimu. Þær eru búnar að vera í Eyjum svo ti-i allan gostím- ann og v'nna í Gagnfræða- skólanum í ræstimgum. „Okkur líkar dásamlega hér,“ sagði Didda, „við un- um okkur ekki nema hér í Eyjum. Mi'tt hús er að visu við suðumark og Si'gga missti sitt undir hraun, en við lát- um það ekkert á okkur fá, við ætlum að láta okkar af mörkum til að koma þessum bæ upp aftur og gera hann enn glæsiilegri en fyrr. Sigga ætlar að byggja nýjan Hlað- bæ suður á Breiðabakka." „Já, þetta er eini staður- inn sem við viijum vera á,“ sagði Sigga, „hvað sem á geng ur. Við mögnumst bara við hverja raun. Svo fer fólk nú að koma í sumar og haust og líkliega verður einhver kennsla i vetur. Svo er llka það að margt Evjafólk uppi á landi er nú að verða hús- næðislaust og hvert á það að flýja annað en himgað. Við erum bjartsýnar og bjartar yfirlitum e'.ns og þú sérð,“ sagði Sigga að lokum og svo hlógu þessar hiressu Eyjakon ur léttiilega. -á.j. Bræðurnir Gísli og Arnþór Helgasynir. EYJAFÓLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.