Morgunblaðið - 29.11.1973, Qupperneq 31
MORGUNpLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1973
31
| IÞBÓTFAFBÍITIR MBBG»aiBlAÐSIBI5
Island— Svíþjóð í kvöld:
Sá níundi ætti að vinnast
NtUNDI landsleikur tslands og
Svfþjóðar fer fram í Laugardals-
höllinni f kvöld og hefst klukkan
20.30. t þeim átta leikjum, sem
þjóðirnar hafa leikið, hafa Svfar
unnið 6 sinnum, einu sinni hefur
orðið jafntefli og landinn vann
frækinn sigur f Bratislava 1964,
12:10. tsland og Svfþjóð léku
einnig f sfðustu viku og sigruðu
þá Svfar ineð 16 mörkum gegn 13.
Ekki þótti sá leikur góður af
hálfu tslendinga og vonandi ná
landsliðspiitarnir betri árangri f
kvöld.
BANDARÍKJAMENN eru nú í
þann veginn að taka upp atvinnu-
mennsku í handknattleik. Það er
maður að nafni Abraham John-
son, sem á og rekur stóra sjón-
varpsstöð i Detroit, sem hyggst
UEFA-keppnin
NOKKRIR leikir fóru fram í
þriðju umferð UEFA-keppninnar
í knattspyrnu í gær og urðu úrslit
meðal annars þau, að sovézka
liðið Dynamo Tiblisi og Totten-
ham gerðu 1—1 jafntefli í Rúss-
landi. Honved frá Ungverjalandi
vann pólska liðið Chorzov 2—0 og
Dynamo Kiev vann Stuttgart 2—0
á þriðjudaginn. Standard Liege
átti að leika við Feyenoord, en
fresta varð leiknum um viku
vegna slæmra vallarskilyrða.
Þrjár breytingar hafa verið
gerðar á landsliðinu frá leiknum
í síðustu viku. Ólafur H. Jónsson
mun vera búinn að ná sér eftir
meiðsli, sem hann hlaut f keppn-
inni f 1. deild og þessi frábæri
handknattleiksmaður verður lið-
inu tvímælalaust styrkur f kvöld.
Þá koma tvær fallbyssur inn í
liðið í kvöld, þeir Gfsli Blöndal og
Ágúst Svavarsson, GTsIi hefur
leikið 20 landsleiki og Ágúst 11.
Liðið er rúmlega ár síðan Gísli
lék síðast með landsliðinu, en
skömmu fyrir Ólympíuleikana í
beita sér fyrir atvinnumennsk-
unni, en hann telur handknatt-
leikinn góða „sjónvarpsíþrótt" og
ekkert vafamál, að íþróttin eigi
eftir að öðlast miklar vinsældir í
Bandaríkjunum, hún hafi til að
bera hörku ameríska fótboltans
og mýkt ogtækni körfuknattleiks-
ins, en þessar tvær iþróttagreinar
eru í hávegum hafðar í Banda-
ríkjunum.
Bandaríkjamenn munu hafa
sýnt sænsku landsliðsmönnunum
f handknattleik, en þeir hafa
verið þar í keppnisferðalagi, sem
kunnugt er, mikinn áhuga, og
verði af atvinnumennsku þar er
mjög lfklegt, að til þess að byrja
með verði sótzt eftir handknatt-
leiksmönnum frá Norðurlöndum
og Vestur-Evrópu. Léku Svíar
„tilraunaleik" gegn bandarísku
liði fyrir sjónvarpstöð Johnsons,
Munchen siðastliðið sumar
meiddist hann á fæti og má segja,
að hann sé nú fyrst að ná sér
aftur. I hinum 20 landsleikjum
sínum hefur Gísli skorað 40 mörk.
Ágúst Svavarsson hefur ekki leik-
ið í landsliði f rúm tvö ár, en er nú
í mjög góðri æfingu og ætti að
verða Svíunum skeinuhættur, ef
hann fær þá hjálp, sem góð skytta
þarf að fá. Ágúst hefur skorað 15
mörk í landsleikjum sínum, sem
eru 11 talsins.
íslenzka liðið _í kvöld verður
skipaðólafi Benediktssyni, Gunn-
og þótti sú tilraun gefa góða raun.
Eins og skýrt var frá í blaðinu í
gær sigruðu Svíarnir í fyrri leik
sínum við Bandaríkjamenn,
20:13. Svíarnir unnu einnig
seinni leikinn og þá með meiri
mun, 27:17. Mörk Svianna gerðu
þeir Björn Andersson 7, Lennart
Eriksson og Thomas Persson 5,
Dan Eriksson, Johan Fischer-
ström, Göran Haard af Segerstad
og Marciniak 2, Bo Anderson og
Bengt Hansson 1.
Sviarnir héldu síðan til Kanada
og léku þar tvo landsleiki. Fyrri
leikinn unnu þeir 30:14, en ekki
eru kunn úrslit í seinni leiknum.
ari Einarssyni, Gunnsteini Skúla-
syni, Ólafi H. Jónssyni, Gfsla
Blöndal, Si'gurberg Sigsteinssyni,
Björgvin Björgvinssyni, Axel
Axelssyni, Viðari Símonarsyni,
Auðunni Öskarssyni, Herði
Sigmarssyni og Ágústi Svavars-
syni. Reynt var að fá Geir Hall-
steinsson til að koma til landsins
og leika þennan leik, en vegna
veikinda átti hann ekki heiman-
gengt.
Sænska liðið hefur síðastliðna
viku verið á keppnisferðalagi í
Bandaríkjunum og Kanada og
vann liðið þá fjóra leiki, sem það
lék þar. Sænska liðið verður að
mestu skipað sömu leikmönnum
og í fyrri leiknum, en þó mun
Lennart Eriksson koma inn í lið-
ið. Eriksson hefurveriðeinn bezti
maður Svía undanfarin ár og
skoraði hann sitt 400. mark í sfð-
ari leiknum við Bandaríkjamenn.
Telja verður talsverðar líkur á,
að islenzka liðið vinni landsleik-
inn í kvöld, það sem vantaði f liðið
i fyrri leiknum, langskyttur, er
fyrir hendi nú. Til að fá stemmn-
inguna eins mikla og hægt er,
hefur Ura- og skartgripavinnu-
stofa Jóns og Öskars fengið Skóla-
hljómsveit Kópavogs til að leika
fjörug lög fyrir leikinn og í hálf-
leik mun sveitin „marsera" um
gólf Hallarinnar og verður það i
fyrsta skipti sem það gerist.
Leikurinn hefst eins og fyrr
segir klukkan 20.30, en forsala
verður í Höllinni frá klukkan 17 i
dag.
Ágúst Svavarsson kotninn í
skotstöðu hátt yfir vörn
andstæðinganna, vonandi
fær Ágúst oft svona mark-
færi í kvöld.
„Trimmkonur sunnan Skarðsheiðar”
Svíar sigruðu vestra
Það tókst hjá Svíum!
SANNKÖLLUÐ þjóðhátfð var í
Svfþjóð f fyrrakvöld, er knatt-
spyrnulands:ið þeirra sigraði
Austurríkismenn með tveimur
mörkum gegn einu í leik, sem
fram fór f Gelsenkirken íVestur-
Þýzkalandi. Skáru úrslit þessa
leiks úr um það, að Svíar komast f
lokakeppni heimsmeistarakeppn-
innar í Vestur-Þýzkalandi að ári.
Sem kunnugt er, áttu Svíar kost
á því að tryggja sér þennan þátt-
tökurétt með því að sigra Möltu
með tveggja marka mun í seinni
leik landanna. Það tókst ekki, úr-
slitin urðu 2:1 fyrir Svía og þar
með voru þeir jafnir að stigum og
mörkum og Austurríkismenn og
því nauðsynlegt, að fram færi
leikur á hlutlausum velli.
Sænsku blöðin voru yfirleitt
jafn svartsýn á, að Svíum tækist
að sigra Austurrfkismenn og þau
voru bjartsýn á, að unnt væri að
„bursta" Möltu.
Aðstæður í Geesenkirken voru
ekki sem beztar f fyrrakvöld,
mikið hafði snjóað um daginn og
völlurinn því þungur og erfiður
fyrir leikmenn. Svíar náðu fljót-
lega tökum á leiknum og tókst
Roland Sundberg fljótlega að
skora. Ove Larson breytti sfðan
stöðunni í 2:0 fyrir Svia með
marki úr vítaspyrnu, en skömmu
fyrir leikslok tókst Austurríkis-
mönnum að rétta hlut sinn og
skora. Mikil barátta var í leiknum
síðustu mfnúturnar, en Svíum
tókst að hrinda öllum áhlaupum
Austurríkismannanna, og átti
markvörður þeirra, Ronnie Hell-
ström, þar mikinn hlut að máli.
Gífurlegur fögnuður brauzt út í
Svíþjóð að leikslokum, enda
árangur knattspyrnulandsliðsins
hinn glæsilegasti.
IA og Víkingur
ráða enska þjálfara
VÍKINGUR og ÍA hafa undanfarið unnið að því að
ráða enska þjálfara fyrir 1. deildarlið félaganna, og
eru miklar líkur á því, aðsamingur náist innan tíðar.
Félögin leituðu til enska knattspyrnusambandsins
um milligöngu f ráðningu þjálfara og hafa 10 enskir
þjálfarar sýnt áhuga á að koma hingað. í næstu viku
munu forráðamenn Víkings og ÍA fara til Englands
og reyna að semja við enska þjálfara. Engin nöfn
hafa verið nefnd í þessu sambandi, en knattspyrnu-
sambandið enska hefur áður haft milligöngu, en
íslenzk félög hafa leitað eftir enskum þjálfurum. Mál
þessi munu væntanlega skýrast á næstunni.
og fleira gott fólk á fímleikahátíð
Iþróttakennarafélag tslands og
Fimleikasamband tslands gang-
ast fyrir mikilli fimleikasýningu
f Laugardalshöliinni á sunnudag-
inn. Á sýningunni munu koma
f ram um 800 manns f fjölmörgum
sýningarflokkum, aldur þátttak-
enda er frá 7 ára til 60. Er þetta f
þriðja skiptið, sem sömu aðilar
gangast fyrir slfkri sýningu, og
hefur fjöldi þátttakenda vaxið
jafnt og þétt. Fyrst voru þeir 450
og svo 750 f fyrra.
Flestir þátttakenda eru af
Reykjavíkursvæðinu, en þó koma
sumir hóparnir lengra að, t.d. frá
Ólafsfirði og úr Reykjaskóla.
Allar þær stúlkur, sem iðka leik-
fimi í æðri skólunum á Lauga-
vatni, — ML, ÍKL, HL — alls um
200 stúlkur, sýna í einum hópi.
Þær hafa æft undir Ieiðsögn
stúlkna í Iþróttakennaraskól-
anum. Gerpla sýnir fjölskyldu-
leikfimi og ekki má gleyma borg-
firzkum húsmæðrum, sem kalla
sig „trimmkonur sunnan Skarðs-
heiðar“, en þær munu sýna,
hvernig þær trimma.
Það eru bæði skólarnir og
íþróttafélögin, sem taka þátt í
þessari sýningu, en af félögunum
má nefna Ármann, Gerplu, ÍR og
fimleikafélagið Björk í Hafnar-
firði.
Mikil vinna og skipulagning
liggur aðbaki þessari sýningu, en
aðalstarfið hvíldi á herðum undir-
búningsnefndarinnar, sem var
skipuð þeim Guðrúnu Nielsen,
Árna Magnússyni, Margréti Krist-
jánsdóttur, Margréti Jónsdóttur,
Jónasi Traustasyni og Ingibjörgu
Jónsdóttur. Myndin: Ungar
stúlkur á fimleikahátíð.
i f M i |fl $ Aigm *
^ „