Morgunblaðið - 15.12.1973, Side 20

Morgunblaðið - 15.12.1973, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1973. Gagnrýni Dagens Nyheter um Sögu af sjónum lli afn <iuniilau);ss<»n Eins «k komið hefur fram í fréttum. hlaut íslen/ka sjón- varpsleikritii! Sa«a af sjónum. oftir Hrafn (íunnlaugsson. som sionska sjónvarpið sýndi síðast- liðinn sunnudag. lof sænskra gagnrvnenda. Hér birtast í lítil- loga styttri þýðingu skrif Ingvar Orre, aðalsjónvarps- gagnrýnenda Dagens Nyheter. en hann helgaði gagnrýni sfna fslen/ka sjónvarpsleikritinu daginn eftir sýninguna. Gréinin heitir á sænsku. Kuslig saga (óhugnanleg saga): Nafnið ..Saga af sjónum" (En skepparhistoria) var skemmti- lega sakleysislegur titill á liinu magnaða leikriti llrafns Gunn- laugssonar um drykkjuskap aklraðs sjómanns yfir ungum stúdent niðri í skuggalegri káetu flutningadalls á siglingu heim gegnum þokuna. Sá eldri lætur ýmislegt í veðri vaka: Samvizka hans er svartbrunn- in, hann hefur gert föður sinn að þjóf í gröfinni, hann á barn með mágkonu sinni, o.s.frv. Hann raupar hokinn yfir vodkaglasinu og með liníf við höndina, eins og hánn finni til vanmáttar gegn menntabrag þess yngri. Þegar í upphafi náði Róbert Arnfinnsson jafnri stfgandi í leik sínum og naut hann öruggs stuðnings Sigurðar Skúlasonar, sem skaut inn athugasemdum sinum En svo kemur Róbert inn á söguna um sjómennina tólf í þokunni. sem b.vrjuðu ó- vænt að heyra neyðaróp frá skipsfélögum sínum. sem féllu skýringarlaust fyrir borð og sukkuíhafið þartilallir voru horfnir nema . . . Skyndilega vakna drykkjufélagarnir eins og af dásvefni: Hvað var orðið um þnðja manninn f félags- skapnum. sem hafði farið að ná í bland? Var ekki eins og þeir hefðu hevrt óp. þegar þeir brugðu sérsjálfir út? Smám saman leystist realism- inn upp í þjciðsögu. þó umh verf- ið væri það saina. Félagarnir gripu hnífana sína. báðir jafn óttaslegnir. An þess að áhorf- andi vissi af. hafði hann dregizt inn í heini sögunnar. Skelfingin læddist aftan að manni. Þegar leiknum lauk og afkynningar- textinn birtist á skjánum. var mér innanbrjósts eins og ég hefði vaknað af martröð. Sjón- varpstækið stóð á sínum stað, lampinn lýsti eins og áður og ritvélin beið á borðinu — takk fyrir það Takk fyrir sýning- una." Þess má geta að iokuin. að höfundur Ieikritsins. Ilrafn Gunnlaugsson. sendir frá sér tvær bækur nú fyrir jölin. Astarljóð hjá Helgafelli og skáldsöguna Djöflana hjá Al- menna bókafélaginu. ISLENZKAR EFNA- VERKSMIÐJUR í HRÁEFNISVANDA ÍSLENZKAR efnasmiðjur eiga nú í dálitlum örðugleikum vegna hráefnisskorts. Er það aðallega fosfat, sem verksmiðjurnar van- hagar um. Þeir Hallgrfmur Björnsson, framkvæmdastjóri Hreins og Gunnar .1. Friðriksson framkvæmdastjóri Frigg sögðu í samtali við Mbl.. að þrált fyrir þennan hráefnisskort þyrfti fólk ekki að óttast skort á sápum og þvottaefni næstu mánuðina. Gunnar J. Friðriksson sagði, að skortur væri á fleiri efnum en fosfati, en hann væri mestur; einnig væri skortur á sóta og nokkrum efnum öðrum. sem not- uð eru til sápu- og þvottaefnis- gerðar. Hrgefnið kæmi frá Marokkó, og þarlendir hefðu dregið úr framleiðslunni. Sagði Gunnar aðcjaglega kæmu upp vandamál t sambandi við hrá- etnisutvegun, og alturkippur kæmi í samninga, sem búið væri að gera. Allt hráefni hefði hækkað gifurlega og að jafnaði um 10%, frá því í haust. Annars sagði Gunnar, að fólk þyrfti ekki að óttast, að sápa eða þvottaefni fengist ekki á næst- unni. því íslenzku verksmiðjurn- ar ættu 4—5 mánaða birgðir, en hitt væri svo annað mál, að ef fólk færi að hamstra, gætu verk- smiðjurnar ekki haft undan. Hallgrímur Björnsson tók í sama streng og Gunnar. Sagði hann, að eftirspurnin eftir fosfati hefði aukizt gífurlega og sitt fyrirtæki keypti fosfatið frá Eng- landi, en verksmiðjur þar þyrftu nú á öllu því fosfati að halda, sem þangað kæmi. Öryggi loðnuveiðiskipa MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Hjálmari Bárðarsyni siglinga- málastjóra um ör.vggi loðnuskipa: Nú fer vetur í hönd og loðnu- vertíðin nálgast. Það er því full ástæða til að hugleiða, hvað helzt megi verða til aukins öryggis loðnuveiðiskipanna og áhafna þeirra. Mörg þeirra fiskiskipa, sem í vetur fara á loðnuveiðar. eru stór og vel búin skip. en önn- ur eru minni en svo, að beita megi nema með mikilli varkárni og alls ekki í verstu veðrum. En jafnvel stærstu og beztu skipum getur hlekkst á ef ekki er gætt fyllstu varúðar við veiðar. við hleðslu og siglingu undan kröppum sjó og veðrum. íslenzkar reglur frá 1963 banna reyndar að hlaða fiskiskip að vetrarlagi, mánuðina október til apríl. dýpra en að efri brún þilfars við skipshlið. Þótt margir skipstjórar hafi virt þessar regl- ur, þá er þó ekki því að le.vna, að ýmsir hafa gerst brotlegir, eink- anlega þegar mikil veiði hefur freistað, sigling verið stutt til hafnar og veður sæmilegt. Ilvorki vil ég þó afsaka gjörðir þeirra brotlegu né hóta aðgerðum gegn þeim. Miklu meira virði er. að skipstjórnarmenn geri sér sjálfir fulla grein fyrir áb.vrgð sinni. bæði á mannslífum í þeirra umsjá og þeim verðmætum, sem skipið er. Það er góðra gjalda vert, að skipstjórar kalli alla skipshöfn upp í brú og láti alla vera í bjargbeltum tilbúna til að yfirgefa drekkhlaðið skip á leið til hafnar, en þótt áhöfn geti bjargast, þá er þaðmikið vafamál. f hve mikla tvísýnu er rétt að stefna þeim verðmætum, sem i húfi eru. Það er re.vndar rétt athugað hjá mörgum skipstjórum, að á loðnu- veiðum er það til aukins öryggis, ef hægt er að fylla lestar alveg, þannig að ekki sé hætta á að þessi lausi farmur sláist til f Iest. En þá ber að athuga stærð lestarrýmis miðað við burðargetu hvers ein- staks skips. Bezt væri að tak- marka stærð lestar á loðnuveiðum þannig, að með fulla lest af loðnu væri skipið ekki lestað dýpra en að efri brún þilfars við skipshlið. eins og reglurnar gera ráð fyrir. Nú hafa mörg skip verið lengd. Lengingin hefur í öllum tilfellum bætt lestarrými við skipið. Mörg lengdu skipanna þola ekki fullar Rógsiðja vinstri manna um Hitaveituna MORGUNBL VÐI.NU hefur bori/t svohljóðandi athugasemd frá Jö- hannesi Zoéga vegna skrifa Þjóð- viljans uni rekstrarafkomu Hita- veitunnar: f Þjóðviljanum birtist s.l. sunnudag. 9 desember. grein merkt stöfunum hj undir fyrir- sögninni ..Ur Reykningum Hita- veilu Revkjavíkur 1969—1972: Greiðsluafgangur er 6o% af brúttótekjum. íhaldið vill riota Hitaveituna sem f járplógsfyrir- tæki." Blaðið telur saman tekjuafgang af rekstrarreiknigi og afskriftír og kallar þaðgreiðsluafgang. Lát- um það gott heita. Fyrir árin 1969—72 nemur þessi fjárhæð 757 milljónum króna. Síðan segirblaðið: „Þettáerþað sem segja má. að fyrirtækið leggi til hliðar sem framkvæmdafé. A sama tíma nemur fjárfesting í aukningu kerfa alls 576 milljón- uni króna. Fjárfestingin er ekki nema 76",', af framkvæmdafénu.'" HviTíkt hneykslt. en bíðum nú við — blaðið segir énnfremur: „A þéssum sömu árum. 1969—72 þurfti Hitaveitan að verja saman- lagt 229 milljónuin króna til af- borgana af lánum til langs títna. sem gjaldféllu á tímabilinu. Aukníng eígin veltufjár nam því 265 milljóntim króna." Ekki fæ ég séð samhengið á milli þessara talna. þótt blaðínu finnist þaðaugljóst. Ilins vegar segir blaðið sjálft. að greiðsluafgangi að upphæð 757 milljónuni króna liafi verið varið til framkvæmda að uppliæð 576 milljónuni króna og til afborgana af lánum 229 milljónum króna eðasamtals 805 milljónum króna. ilér liefur ..greiðsliiafgangur" greinilega ekki verið nægilegur til þess að standa undir þeim út- gjöldum. sem lionuin er ætlað að bera. Mismuninn, 48 milljónir króna, vantar. Eg ætla ekki að elta ólar við meðferðgreinarhöfundar á tölum í grein sinni og sýnir það, sem hér var tilgreint, aðeins að hann er sjálfum sér ósamkvæmur. Svo er það lánið, sem var of hátt. Þaðer rétt að Hitaveitan tók lán hjá Ilambrosbanka 1972 til virkjunarframkvæmda. Það átti ekki aðeins aðná til ársloka held- ur til loka þeirra framkvæmda. sem greiðast áttu með andvirði lánsins. Eg verð að hryggja Þjóð- viljann með því, að nú þegar þess- um verkum er enn ekki að fullu lokið. hefur Ilitaveitan þurft að taka annað lán í viðbót. og ekki er út séð um það, hvort það muni til hrökkva. Um 40 milljón krónurnar, sem „borgarstjóri tók hjá Ilitaveit- unni og setti í eyðsluhít borgar- sjóðs", er bezt að vfsa tií borgar- reikninganna fyrir árið 1972, sem gi'einarhöfundur hefði átt að lesa betur. Þar segir á bls. 176 í „Greinar- gerð borgarritara": „Greiðslu- munur sjóða og fyrirtækja á ár- inu 1972 varð fyrirtækjunum í hag um kr. 45 millj. sbr. sundur- liðun á bls. 4—5. Þess ber þó að geta. að lán það, sem Ilitaveita Reykjavíkur veitti hinn 31. des- ember 1972. kr. 40 millj. var greitt að fullu 2. janúar 1973, þannig að það stóð aðeins yl'ir áramólin í bókum." Þjóðviljinn talar um að arðsemi Hitaveitunnar á undanförnum þrem árum hafi verið 17,8— 20.6",’, og eru þessar tiilttr Jóhannes Zoéga. sennilega miðaðar við bókfærðar fasteignir. Þetta væri gott og blessað, ef verðlag væri stöðugt í landinu og ný mannvirki kostuðu nú hið sama og meðalverð þeirra var á árunum 1950—1970. Því er þó ekki að heilsa og er Hitaveitunni sem öðrum lítill matur I slíkum i'mynduðum tölum. Greinarhöfundur veltir sér upp úr þeirri blekkingu, að hátt hlut- fall „greiðsluafgangs" og árs- tekna sé eiginleiki „fjárplógsfyr- irtækis". Hreinum tekjum og afskriftum hvers fyrirtækis er ætlað að standa undir fjárfesting l>ess, þ.e. annaðhvort er þessu fé varið beint til stækkana og endurbóta þess búnaðar, sem fyrirtækið not- ar við þjónustu sína, eða til greiðslu þess fjár, sem tekiðer að láni til þess að hraða framkvæmd- um ásamt vöxtum af lánsfénu. Ofangreindur „greiðsluafgang- ur" þarf að vera þvf hærri sem viðkomandi fyrirtæki þarf að fjárfesta meira til þess að full- nægja þeim þjónustukröfum, sem til þess eru gerðar. Ilitaveita Reykjavíkur er eitt þeirra fyrirtækja, þar sem fjár- magnskostnaður er stærsti hluti rekstrarkostnaðar, og ætti blaði iðnaðarráðherra að vera kunnugt um fleiri slfk dæmi. Ef greinarhöfundur settist nú aftur niður og læsi borgarreikn- ingana betur vfir, hlyti hann að sjá, að Ilitaveitan hefur ekki safn- að öðrum fjármunum en þeint. sem fastir eru í rekstri hennar, og þá einnig. að borgarsjíiður hefur jafnan verið veitandi lána tll Hitaveitunnar en ekki þiggjandi lán hjá henni. Að lokum mætti svo athuga hve mikla fjármuni þetta „fjárplógs- fyrirtæki" hefur haft af borgur- um þessa bæjar. Skal ég þar að- eins nefna eitt dæmi: Þjóðviljinn segir, að árið 1972 hafi Reykjvíkingar greitt 385 milljónir króna f.vrir heita vatnið til Hitaveitunnar, og er það nærri sanni. Þetta vatn var jafnvirði um 200 miljön lítra af olíu, setn f fyrra kostuðu um 790 milljónir króna. Mismunurinn er um 400 millj. króna Reykvíkingum f hag. Nú er þessi mismunur um tvis- var sinnum rneiri og fer vaxandi. Þessar tölur tala skýrara máli en rógsiðja vinstri manna. sem frá upphafi hefur verið stunduð í þeim tilgangi að hefta þjónustu Hi t a vei tu Reykj avík u r. lestar af loðnu nema hlaðast mik- ið fram og hlaðast dýpra en að þilfarsbrún. Bezta leiðin til auk- ins öryggis þessara lengdu skipa, og reyndar annarra skipa líka, sem hafa stórar lestar miðað við skipsstærð, væri að setja sterkt þverþil framarlega í lest, og tak- ntarka loðnufarm við rúmmál lestar aftan við þetta þil. Með auknu flotrými fremst verja skip- in sig betur á siglingu og þeim er verulega minni hætta búin. Að sjálfsögðu þarf að búa svo um lensingu, að dælur nái að tæma sjó úr þessu rými fremst f lest. Þá er að huga að öðrum þeim atriðum sem verða mega loðnu- skipum til aukins öryggis. Þar vil ég fyrst nefna nauðsyn þess, að lestarlúgur séu ávallt vel lokaðar vatnsþétt (skálkaðar), strax þeg- ar farmi hefur verið komið fyrir í lest. Sama gildir um vatnsþétta jokun á öllum hurðum og opum á aðalþilfari, bæði hurðum aftan á bakka og á reisn. Austurop á skjólborði þarf að hafa vel opin. þannig að allur sjór renni við- stöðulaust af þilfari fvrir borð. Enga stíuuppstillingu skal hafa á þilfari, ef enginn farmur er þar. Þetta kann að þykja óþarfa íhlutunarsemi og áminning um sjálfsögð atriði, sem öll eru á ábyrgð skipstjóra, en stundum getur þó verið gagnlegt að rifja upp jafnvel einföldustu og sjálf- sögðustu öryggisatriði. Þau eru þá ofarlega í huga og nærtækari. þegar á reynir. Svo er það minni stærðir loðnu- skipanna. Eins og nefnt var hér að framan, þá er það að mínum dómi mjög varhugavert að beita minnstu skipunum við loðnuveið- ar um hávetur, þegar allra veðra er von. Þar á ég sérstaklega við tréskipin, sem fæst hafa sömu möguleika og stálskipin á að loka hurðum á aðalþilfari vatnsþétt. og þil f þessum skipum eru í fæstum tilfellum vatnsþétt. Ég vil því beina þeim tilmælum til útgerðar- manna og skipstjóra. að þeir geri sé'rsem bezta grein fyrir því. hvað bjóða megi hverju einstöku þess- ara minni skipa, og miða þá við þeirra eigin re.vnslu. Ef að athug- uðu niáli er talið réttlætanlegt að beita þessum minni skiputn á loðnuveiðum að vetrarlagi, þá væri rétt aðkanna unt leið öll þau atriði varðandi vatnsþétta lokun, lestárbúnað, austurop og annað það, sem áríðandi er að uppfylli ströngustu kröfur til að fyllsta öryggis sé gætt miðað við stærð skipanna. Ilér hefur verið rætt um skipin sjálf, en auðvitað er það ávallt skylda hvers ábyrgs skipstjiirnar- manns að sjá svo um. að áhöfn l>ekki vel staðsetningu og notkun bjargbelta, gúmmfbáta og neyðar- talstöðva. ef vera k.vnni, aðgrípa þyrfti til þessa búnaðar fyrirvara- laust. Það er þó einlæg von mín, að til þess komi ekki á þessari komandi loðnuvertfð, og vil þvf öska öllum íslenzkum skipstjiirn- armönnum þess, að þeir megi sigla skiptim sínum heilum í höfn á þessum vetri, án skipstapa og sjóslysa, færandi björg í bú okkar allra. sem þetta eyland byggjum. Reykjavfk, 11. desemhor 1973. (Fréttatilkynning frá Siglingarmálastjóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.