Morgunblaðið - 15.03.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
Kosið til Stúdenta-
ráðs og Háskólaráðs
A MIÐVIKUDAG í næstu viku
verða kosningar til Stúdentaráðs
Háskóla íslands og Háskólaráðs
fyrir starfsárin 1974 til 1975. I
framboði eru tveir listar, — listi
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta, og listi vinstri manna.
Þessir eru í framboði til Háskóla-
ráðs, fyrir Vöku: Markús K. Möll-
er, 21 árs stærðfræðinemi og til
vara Inga Jóna Þórðardóttir 22
ára viðskiptafræðinemi. Fyrir
vinstri menn: Erling Ólafsson ís-
lenzkunemi og til varGizur Gott-
skálksson læknanemi.
Listi Vöku er:
1. Kjartan Gunnarsson 22ja ára
laganemi
2. Bogi Ágústsson 21s árs sagn-
fræðinemi
3. Einar Brekkan 22ja ára lækna-
nemi
4. Árni Gunnarsson 22ja ára við-
skiptafræðinemi
5. Einar Stefánsson 21s árs lækna-
nemi
6. Berglind Asgeirsdóttir 19 ára
laganemi
7. Magnús Björn Björnsson 21s
árs guðfræðinemi
8. Linda Rós Mikaelsdóttir 21s árs
enskunemi
9. Hilmar Baldursson 21s árs við-
skiptafræðinemi
10. Oddur Einarsson 21s árs guð-
fræðinemi
11. Ragnar 0. Steinarsson 27 ára
tannlæknanerm
12. Sveinn Guðjónsson 26 ára
sagnfræðinemi
13. Ragnar Önundarson 21s árs
viðskiptafræðinemi
14. Anna Kristrún Jónsdóttir 22ja
ára lyfjafræðinemi
15. Inga Sólnes 22ja ára frönsku-
og bókmenntasögunemi
16. Helgi Harðarson 22ja ára líf-
fræðinemi
17. Margrét María Þórðardóttir
23ja ára læknanemi
18. Ingibjörg Rafnar 23ja ára
laganemi
19. Jón Olafsson 24ra ára lyfja-
fræðinemi
20. Helgi Sigurðsson 22ja ára
læknanemi
21. Guðmundur Geir Gunnarsson
21s árs viðskiptafræðinemi
22. Sigríður Siemsen 22ja ára
lyfjafræðinemi
23. Gunnar Guðmundsson 21s árs
laganemi
24. Ólafur H. Jónsson 24ra ára
viðskiptafræðinemi
25. Hafliði Pétur Gíslason 21s árs
verkfræðinemi
26. Hannes J. S. Sigurðsson 24ra
ára læknanemi
Framhald á bls. 39
Frystingarhæf loðna
út af Snæfellsnesi
Nokkrir bátar lönduðu í Reykjavík f gær. Hér sést Reykjaborg, sem kom með 350 lestir.
Drengur
slasaðist
SJÖ ARA drengur, Guðmundur
Jchann Ilaraidsson, slasaðist um
helgina í Grímsey við það, að
steinn féll ofan á hann í Bakka
hjá Borgum, sem eru örnefni á
eynni. Óttazt var, að drengurinn
hefði meiðzt eitthvað innvortis
og var því farið með hann í báti
áleiðis til Akureyrar, en varðskip
tók við drengnum á móts við fjall-
iðGjögra í Eyjafirði.
SAMKVÆMT skýrslu Fiskifélags
íslands er þorskafli, bátaafli
óslægður í janúar og febrúar
23.727 lestir, en var á sama tíma í
fyrra 28.907 lestir. Þorskafli,
togarafli er hins vegar allmik'lu
meiri nú en í fyrra. Hann er nú
17.276 lestir, en var í fyrra 6.493
lestir. Heildaraflinn, að meðtöld-
um loðnuafla, var þessa mánuði
nú 382.833 lestir, en i fyrra
256.957 lestir.
Loðnuaflinn var samtals
340.006 lestir nú, en í fyrra
219.603 lestir. Rækjuaflinn er nú
Rannsókn vegna
bifreiðaeftirlits
í Hafnarfirði
Á VEGUM Bifreiðaeftirlits rikis-
ins fer nú fram rannsókn á viss-
um þáttum f starfsemi bifreiða-
eftirlitsins i Hafnarfirði. Að ósk
Bifreiðaeftirlits ríkisins lét bæj-
arfógetinn ( Hafnarfirði lögreglu-
menn sína sjá um að innsigla
skrifstofur bifreiðaeftirlitsins í
Hafnarfirði einn dag í siðustu
viku og mun Bifreiðaeftirlit 'rikis-
ins hafa látíð fjarlægja ýmis gögn
um reksturinn og taka þau til
rannsóknar. Guðni Karlsson for-
stöðumaður Bifreiðaeftirlits rikis-
ins sagði við Mbl. í gær, að hann
gæti ekkert látið uppi um þetta
mál á þessu stigi, rannsókn þess
væri það skammt á veg komin.
„En málin munu skýrast mjög
fljótlega,“ sagði hann.
Slysið varð með þeim hætti, að
drengurinn fékk leyfi ásamt syst-
ur sinni að fara út i fjárhús, sem
ekki eru alllangt frá Borgum, en
eins og börnum er tamt, freistuð-
ust þau til þess að fara út að
brúninni. Var drengurinn þar að
klifra og mun hafa gripið um all-
stóran stein, sem féll ofan á hann
og mun drengurinn hafa fylgt
steimnum eftir í fallinu. Bólgnaði
fótur drengsins talsvert og var
óttazt, að hann hefði hlotið inn-
vortis meiðsl og því ákveðið að
fiytja hann til Akureyrar.
Guðmundur Jóhann liggur nú í
sjúkrahúsinu á Akureyri og er á
batavegi, þar sem meiðsl hans
reyndust ekki eins alvarleg og
óttast var í fyrstu.
1.307 lestir, en var í fyrra 1.106
lestir. Hörpudiskafli er nú 384
lestir, en var í fyrra 848 lestir.
Annar afli er samtals 15 lestir, en
var enginn í fyrra.
Allar þessar tölur frá Fiski-
félaginu eru bráðabirgðatölur.
LAGÐUR hefur verið kjölur að
nýju varðskipi, sem smíðað er í
Danmörku. Búizt er við því að
unnt verði að hleypa því af stokk-
unum eftir sumarleyfi eða í ág-
ústmánuði. Til íslands er skipið
væntanlegt í desembermánuði, en
það er smíðað samkvæmt sömu
teikningu og varðskipið Ægir var
smíðað, en ýmsar breytingar hafa
þó verið gerðar á skipinu, sem
byggðar eru á þeirri reynslu sem
fengizt hefur af notkun Ægis.
Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar sagði í við-
tali við Mbl. í gær, að aðalbreyt-
ingarnar fælust í ýmsum endur-
bótum, sem komið hefði í ljós, að
þyrfti að gera. Stýrið hefur verið
stækkað og styrkt, bo'gskrúfa sett
i skipið til þess að gefa þvi betri
snúningseiginleika, bátakrani,
sem lyftir meiri þunga, en báta-
krani Ægis og er það vegna þess
að Gæzlan notar nú þyngri bata
HELDUR virtist f gær vera að
glaðna aftur yfir loðnuvertfðinni,
þvf að þá fékk einn loðnubátur
ógotna og vel frystingarhæfa
loðnu, 320 lestir, skammt norður
af Snæfellsnesi. Þá fékk annað
skip einnig fullfermi af loðnu úti
fyrir Skaftárósum í gær og þaðan
bárust þær fréttir, að sjór væri
svartur af ioðnu. Kemur þetta öll-
um á óvart, þar sem menn voru
farnir að halda, að loðnuævintýr-
inu væri lokið á þessu ári.
Loðnuveiðiflotinn var í gær
mjög dreifður úti fyrir suðvestur-
ströndinni og fengu menn dágóð-
an afla. Jón Garðar fékk 320 lestir
af ógotinni, fallegri loðnu í gær-
morgun norður af Snæfellsnesi og
voru 60% af aflanum kvenloðna,
sem kölluð er. Óvíst er, hvaða
loðna þetta er og sagði Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræðingur í við-
tali við Mbl. í gær, að hugsanlega
gæti hér verið um að ræða loðnu
frá A-Grænlandi, þótt ekki hefði
verið aðstaða til þess að kanna
það nánar.
Hjálmar sagði, að loðnan úti af
Skaftárósum, sem Skinney fékk
250 lestir af í gær, væri ein stór og
mikil torfa, en ekki væri gott að
segja, um hve mikið magn væri að
ræða. — Það er óþarflega lítið,
sem menn fá af loðnu núna og
en hún gerði áður. Þá verður nýja
skipið með sérstakan hraðgengan
léttbát úr plasti. I siglingatækja-
útbúnaði verða að sjálfsögðu full-
komnustu tæki, sem nú er völ á,
þ.á m. svokölluð 10 em ratsjá, sem
gefur betri mynd í snjókomu og
slyddu.
Sérstaklega hefur Landhelgis
gæzlan látíð útbúa öryggisbiínað
vegna eldsvoða. Er það gert
samkvæmt nýjustu kröfum
norska flokkunarfélagsins. Ger
ir það allmiklar kröfur
frammi í skipinu til efnis og
innréttinga, neyðarútganga, eld
varnarhurða og þess háttar.
Sömuleiðis verður Gæzlan vegna
breyttra aðstæðna, að gera íbúðir
vistlegri og er það aðallega vegna
þess að skipin eru lengur úti i sjó
en áður var. Verður fullkomnari
búnaður bæði fyrir sjönvarp og
útvarp, en verið hefur. Þá sagði
Pétur að messanum yrði breytt,
þetta getur enzt eitthvað áfram,
en við höfum ekki orðið varir við
neina alvarlega göngu hér fyrir
austan og við Suðausturland. —
Kvað Hjálmar þetta vera slatta
hér og þar, sem bátarnir fengju.
FYRIRHUGAÐ er að halda hér-
lendis í sumar 12. norræna dýra-
læknamótið og stendur það yfir
dagana 7. til 10. ágúst. Fundir
ráðstefnunnar verða haldnir í Há-
skóla tslands, húsi lagadeildar
Háskólans og i Norræna húsinu.
Er jafnvel búizt við því, að norr
ænir dýralæknar og fjölskyldur
þeirra verði um 900 manns, sem
gista munu 1 hótelum borgarinn-
ar.
Guðbrandur Hlíðar dýralæknir
H andleggsbrotn aði
SEX ára drengur varð fyrir bif-
reið á Suðurlandsbraut, vestan
Álfheima, á fimmtudagsmorgun-
inn oghlaut af handleggsbrot.
svo að hann yrði skemmtilegri, án
þess þó að notagildi hans rýrðist.
,,í Ægi hefur löngum verið einn
heildarmessi og ýmsir hafa verið
óánægðir með það — hafa viljað
skilja hafrana frá sauðunum —
að hafa ekki háseta og yfirmenn
saman og ég hef nú lítið verið
hrifinn af slíku, en við reynum að
skilja messana sundur með því að
setja skilrúm, sem hægt er að
taka á brott eftir hentugleikum.
Ef sú teikning, sem ég á von á
innan skamms er að okkar dómi
haganleg þá reynum við áreiðan-
lega að koma þessu á svipaðan
hátt fyrir bæði í Ægi og Óðni.“
Pétur sagði að ekkert væri
ákveðið um nafngift á skipið. en
þó væri ljóst að nafnið yrði tekið
úr goðafræðinni eins og oftast áð-
ur. Þá verður að sjálfsögðu gert
ráð fyrir notkun þyrla við nýja
varðskipið, enda kvað Pétur starf-
ið mundu þróast í þá átt að þyrlur
yrðu æ meir notaðar.
Loðnan, sem var í gær við
Skaftárósa var á mjög hraðri ferö
vestur með landi og seint i gær
kvöldi var hún komin á móts við
Skarðsfjöru. Farið er að styttast í,
að sú loðna hrygni.
hefur séð um undirbuning dýra-
læknamótsins og sagði hann, að
upphaflega hefði verið fram-
kvæmd könnun á vegum tímarita
dýralæknafélaganna á Norður-
löndum og hefðu 900 manns ti 1-
kynnt þátttöku sína í fyrra í kjöl-
far þessarar kynningar tímarit-
anna. Var þá m.a. kannað, hvort
unnt yrði að fá skemmtiferðaskip
til þess að koma með hluta móts-
gesta og að þeir byggju um borð í
skipinu í Reykjavíkurhöfn. Þetta
reyndist þó ekki unnt.
I kjallara Norræna hússins
verður sýning á dýralæknatækj-
um og öðru, er starf þeirra varð-
ar. Gefin verður út 400 blaðsíðna
bók, sem er eins konar skýrslu-
safn, og er þar m.a. skrá yfir öll
erindi, sem flutt verða á mótinu.
Munu þátttakendur fá þessa bók í
hendur i júlí og geta þá þegar
ákveðið, hvaða erindi þeir vilja
hlusta á. Ráðstefnan mun starfa í
11 deildum og fara fram fyrir-
lestrar í öllum deildum — sumir
hverjir samtímis, þannig að þátt-
takendur verða að velja á milli.
Ferðaskrifstofa Zoéga hefur
undirbúið ráðstefnuna. Hafa öll
Framhald á bls. 39
Lýst eftir öku-
mönnum og vitnum
MIÐVIKUDAGINN 6. marz um
kl. 17 — varð tjón á mosagrænni
Opel Record-bifreið með gráan
topp, er hún var að aka út á
Borgartúnið úr sundi á milli hús-
anna Borgartúns 6 og Skúlatúns
2. Vtnrauðri Volkswagen-sendibif
reið var ekið afturábak á fram-
enda Opel-bifreiðarinnar, en síð-
an á brott. Á VW-bifreiðinni var
fimm stafa númer og tveir fyrstu
starfirnir 20. Ökumaður VW-bif-
reiðarinnar er beðinn að hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una i Reykjavík vegna þessa.
Aðfararnótt eða morgun þriðju-
dagsins 12. marz, kl. 23:30—10,
var ekið á Volkswagen-bifreið, V-
1306, við Lokastíg 2 og vinstra
frambrettið dældað. Þeir,
sem kynnu að geta gefið upplýs-
ingar um ákeyrsluna, eru beðnir
að láta lögregluna vita.
Heildarfiskaflinn 126 þús-
und lestum meiri en í fyrra
Nýtt varðskip kemur
í desembermánuði
Mjög fjölmennt dýra-
læknamót hér í sumar