Morgunblaðið - 15.03.1974, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974 7
Kynning ódýrra utanlandsferða i máli og myndum:
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar.
Ferðabingó: Vinningar 3 glæsilegar Útsýnarferðir til
Kaupmannahafnar, (talíu og Costa del Sol, Spáni.
Dans.
Á HÚSAVÍK — laugardaginn 16. marz kl. 21.00
stundvíslega.
Á AKUREYRI — sunnudaginn 17. marz kl. 21.00
stundvislega.
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN
ÚTSVNARKVOLD Á
NORDURLANDI
KEFLAVÍK Óska eftir góðri konu til að passa dreng á 2. ári, frá kl. 8 — 5. Upp- lýsingar í síma 1 579. 18ÁRA REGLUSAMUR PILTUR óskar eftir vinnu i sumar á góðum sveitabæ Upplýsingar í síma 94- 2556 næstu daga
ÓSKUM EFTIR notuðum miðstöðvarkötlum með spíralgeymum og brennurum og stjórntækjum. Upplýsingar 1 síma 2 1 703 milli 9 og 1 0 f.h. og 3 og 5 e h næstu daga CHEVROLET VEGA GT. Nýinnfl uttur/ rauður Ekinn 26 þús/ mfl. Árgerð 1972 Upp- lýsingar 13285, 34376
RITVÉL Til sölu 5- mánaða TRIUMPF GABRIELE 5000 rafmagnsritvél. Verð kr. 34.000.— Upplýsingar í síma 72043 eftir kl. 17. SCANIA árg '71, 110, 3ja öxla, i góðu ástandi til sölu. Getur fengist pall- og sturtulaus. Upplýsingar i sima 92-6903.
ATVINNUREKENDUR. Stúlka i landsprófi vantar vinnu í sumar. Flest kemur til greina. Uppl. í sima 43242. UNG KONA óskar eftir vinnu á kvöldin, má vera ræsting. Upplýsingar í síma 851 92.
CHEVROLETIMPALA 1966 hardtop til sölu. Mjög góður bíll. Uppl i sima 33066 — 82393. VÖRUBÍLLTIL SÖLU Scania Vabis L 56 árgerð '64 1 4 tonna heildarþungi. Upplýsingar i sima 97-7559.
NETABÁTUR óskast i viðskipti. Góð kjör. Upp- lýsingar i sima 16260 og 41423 eftir kl . 5. LANDAKOTSSPÍTALI óskar eftir herbergi eða litilli ibúð til' leigu fyrir sjúkraliða. Upp- lýsingar hjá starfsmannahaldi.
TILKYNNING
irá Áiengis- og tóbaksverzlun rlklslns
Kaupum tómarflöskur merktarÁTVR í glerið.
Verð: heilflöskur kr. 10,00
hálfflöskur kr. 8,00.
Móttaka Skúlagötu 82, mánudaga til föstudaga frá kl.
9—1 2 og 1 3 —18. Laugardaga frá kl. 9—1 2.
ÁFENGIS OG TÓBAKSVERZLUN RÍKISINS
GLÆSILEG
NORSK FRAMLEIÐSLA.
I IIUIÍ '
V tnoBo) #
\
SÉRFLOKKI
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 4, HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919
Hvað sýna
dönsku kosn-
ingamar?
KREPPAN í dönskum
stjórnmálum er söm og
áður. Bæjar- og sveitar-
stjórnakosningarnar i
fyrri viku verða óhjá-
kvæmilega til að vekja til
umhugsunar, ekki aðeins
gömlu grónu flokkana,
heldur alla dönsku þjóð-
ina. Minni kosningaþátt-
taka hefur ekki þekkzt
þar í landi síðan á milli-
stríðsárunum.
Sú spurning, sem
flestir báru fram, fyrir
kosningarnar, var, hvort
úrslitin myndu hafá
einhver áhrif á lands-
málapólitíkina í Dan-
mörku. Siðan þingkosn-
ingarnar fóru fram í des-
ember hafa verið vanga-
veltur um það, hvort nýj-
ar þingkosningar myndu
skýra línurnar í dönskum
stjórnmálum. Niðurstöð-
urnar í bæjar- og sveit-
arstjórnarkosningunum
benda ekki til, að heppi-
legt væri að gera slíka
tilraun. Það er engin
ástæða til að álíta að
nokkur flokkur myndi fá
starfshæfan ríkisstjórn-
armeirihluta í þingkosn-
ingum nú.
Hvað viðkemur úrslitunum
má segja að Framfaraflokkur
Mogens Glistrup
Mogens Glistrup hafi enn mjög
einkennilega stöðu í stjórnmál-
unum, hann er einhversstaðar
milli sósíalisku flokkanna og
hinna borgaralegu. Sú reynsla,
sem fengin er af starfi fulltrúa
Framfaraflokksins á danska
þinginu, hefur ekki aukið
löngun hinna flokkanna til að
ganga til bindandi samstarfs
við þann flokk. Að vísu missti
Framfaraflokkurinn fylgi
miðað við þingkosningarnar,
hafði 15,9% en fékk nú 8,5%.
en vafasamt er hvort þessar
tölur gefa rétta mynd af stöðu
flokksins meðal þjóðarinnar
nú. Maðurinn Glistrup var
sjálfur eins og atkvæðasegull
fyrir flokkinn við þingkosn-
Anker Jörgensen
Or
EFTIR
HAA VARD
NARUM
c O
Poul Hartling
ingarnar. Aftur á móti varð
flokkurinn við þessar kosn-
ingar að treysta á frambjóð-
endur sfna á hverjum stað og
flestir þeirra áttu mun erfiðara
með að slá í gegn á þeim stutta
tima sem - flokkurinn hefur
starfað.
Fyrir sósíaldemókrata voru
kosningarnar vissulega ósigur.
Flokkurinn missti meirihluta
sinn í þremur af stærstu
borgum landsins, í Kaup-
mannahöfn, Árósum og Óðins-
véum og verður nú að hefja
samninga við sér ólíka flokka
til að koma fram þeim málum,
sem flokkurinn berst fyrir.
Flokksforystan huggar sig við
að fylgistapið var ekki eins
gífurlegt og í desember og
bendir einnig á niðurstöður
Gallupskoðanakannanna sem
sýna meira fylgi við flokkinn
en hann fékk við þingkosn-
ingarnar.
Það sem athyglisverðast var í
sambandi við þessar kosningar
er trúlega þokkaleg útkoma
Venstre. Þrátt fyrir litla kosn-
ingaþátttöku jók flokkurinn
fylgi sitt miðað við þingkosn-
ingarnar. Af sliku gat enginn
annar flokkur státað.
Enda þótt gera verði greinar-
mun á landsmálum og bæjar- og
Poul Möller
sveitarstjórnamálum, verður
þessi niðurstaða að teljast sigur
fyrir Poul Hartling forsætisráð-
herra og þá stefnu, sem hann
hefur fylgt með minnihluta-
stjórn sína þann skamma tíma,
sem hún hefur setið að völdum.
Það samkomulag sem hann
varð að gera til að koma á
ákveðinni samvinnu við sósial-
demókrata í þinginu hefur ekki
skaðað flokk hans. Sönnu nær
væri að segja þvert á móti.
En sigur Venstre er þó ekki
nægileg mikill til að hægt væri
að hugsa sér ríkisstjórn borg-
araflokkanna. Bæði Radikale
Venstre og íhaldsflokkurinn
standa enn það höllum fæti, að
enn er ekki tímabært að hugsa
sér þriggja flokka stjórn eins
og var á timabilinu 1968—1971.
Hartling hefur þar af leiðandi
ekkert að vinna með því að efna
til nýrra kosninga, nema aðeins
að hann verði tilneyddur, ef
meirihluti fæst ekki í þinginu
fyrir stefnu hans.
Ekki er þó ósennilegt, að slík
staða komi upp. Sósíaldemó-
kratar hafa hvað eftir annað
lýst yfir, að flokkurinn hafi
ekki skuldbundið sig til að
styðja Venstre-stjórnina um
ótakmarkaðan tíma. Samkomu-
lag það, sem var gert i byrjun
febrúar snerist um efnahags-
málin, sem nauðsynlegt
reyndist að fá samstöðu um að
leysa. En enginn er kominn til
með að segja, að sósialdemó-
kratar styðji Venstre einnig í
næsta skipti, ef ágreiningur ris
milli flokkanna.
Fylgistap íhaldsflokksins í
bæjar- og sveitarstjórnakosn-
ingunum var nokkuð, en þó
minna en í þingkosningunum.
íhaldsflokkurinn virðist hafa
sett niður deilurnar um for-
ingja þingflokksins, Poul
Schluter hefur tekið við af Erik
Ninn Hansen og formaður
flokksins, Erik Haustrup Clem-
mensen, hefur heitið því að
hætta á næsta landsfundi
flokksins í haust.
Athyglisvert er í sambandi
við árangur íhaldsflokksins í
Kaupmannahöfn að fyrrver-
andi leiðtogi flokksins, Poul
Möller, sem dró sig í hlé fyrir
nokkrum árum af heislufars-
ástæðum, var í hópi þeirra sex
fulltrúa, sem flokkurinn fékk
þar kosinn í borgarstjórn þrátt
fyrir að hann væri þar í neðsta
sæti. Hann fékk sem sagt
óhemju mikið magn persónu-
legra atkvæða. Kannski þá
verði Poul Möller sem verður
til þess að þjappa íhaldsflokkn-
um saman i baráttunni við Gli-
strup og flokk hans, en það er
fyrst og fremst Framfara-
flokkur Glistrups sem hefur
valdið því að ihaldsflokkurinn
hefur misst meira fylgi en
nokkur annar danskur stjórn-
málaflokkur.