Morgunblaðið - 15.03.1974, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
A mánudag verður sýnt BBC-sjónvarpsleikritið — Still Waters —
eftir Julie Jones, hina sömu og samdi framhaldsmyndaflokkinn
Heima og heiman.
SUNNUD4GUR
17. mars 1974
17.00 Endurtekið efni
Kona er nefnd
Monika Helgadóttir á Merki-
gili
Indriði G. Þorsteinsson ræðir
við hana.
Áður á dagskrá 30. desember
1973.
18.00 Stundin okkar
Meðal efnis eru myndir um
Jöhann og Róbert bangsa og
leikþáttur með Súsí og Tuma.
Einnig koma fóstra og börn
frá Brákarborg í heimsókn,
og loks endar stundin á
föndurþætti.
Umsjónarmenn Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar Stefánsson.
18.50 Gftarskólinn
6. þáttur endurtekinn.
19.30 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Réttur er settur
Laganemar við Háskóla ís-
lands sviðsetja réttarhöld í
smyglmáli.
Við dómsuppkvaðningu reyn-
ir meðal annars á nýtt laga-
ákvæði, sem eykur ábyrgð
skipstjórnarmanna og ann-
arra, sem undirrita móttöku-
skilríki og innsiglisskrár.
Sögumaður Gísli Baldur
Garðarsson.
Stjórn upptöku Magnús
Bjarnfreðsson.
21.15 Enginn deyr í annars
stað
Austur-þýzk framhaldsmynd,
byggð á samnefndri sögu eft-
ir Hans Fallada.
3. þáttur.
Þýðandi Öskar Ingimarsson.
Efni 2. þáttar:
Escherich, fulltrúi hjá Gesta-
po, leitar mannsins, sem
skrifar kort með áróðri gegn
nasistum og dreifir þeim víðs
vegar um Berlínarborg. Yfir-
boðarar hans heimta að hann
sýni skjótan árangur í starfi.
Hann þykist því heldur en
ekki heppinn, þegar komið er
með slæpingjanna Kluge á
stöðina, grunaðan um að hafa
dreift kortum á læknastofu.
í HVAÐ EB AÐ SJA?
ins með því að beina skotunum
að augljósu og tilvöldu tákni
þessa kerfis."
Filmubiitarnir, sem de
Antonio tínir til, geta verið
býsna neyðarlegir. A einum
stað má sjá Nixon ávarpa hóp
stuðningsmanna úr röðum
repúblikana í heimabæ sínum.
,^Iér voru áður appelsínurunn-
ar, sítrónurunnar og avókadó
tré,“ segir hann og breiðir út
faðminn. ,,Nú er þetta allt horf-
ið — í staðinn eru komin
heimili, byggingar og iðnaður.
Þetta eru framfarir! Þetta er
Ameríka! „Og þá fóru menn að
hugsa um umhverfisvernd. Eða
atriði úr „eldhúskappræðu“
þeirra Nixons og Knísjeffs, þar
sem hinn fyrrnefndi fullyrðir,
að Bandarikin muni sigra í
kalda stríðinu, því að Bandarík-
in framleiði fleiri <íg betri sjón-
varpstæki. Það ku vera
óborganlegt að sjá framan í
sovézka aðalritarann, sem rang-
hvolfir augunum í forundran,
er túlkurinn flytur honum
tíðindin.
Antonio skeytir einnig inn á
milli filmubútanna viðtölum
við ýmsa virta bandaríska
blaðamenn, sem fylgzt hafa
með ferli Nixons gegnum árin
— eins og Jules Witcover, höf-
und Resurrection of Richard
Nbton, Jack Anderson, James
Wecsler og Joe McGinniss höf-
und bókarinnar The Selling of
the President. En þó að Nixon
sé miðdepill myndarinnar fá
fleiri þar sinn skammt — því að
þarna koma fyrir menn eins og
John F. Kennedy, Lyndon
Johnson, Herbert Hoover, Joe
McCarthy og J. Edgar Hoover
— eins og til að minna áhorf-
andann á, að svona séu þeir
allir, á innra borði. Stundum
bregður fyrir bráðsmellinni
klíppingu í myndinni, eins og
þegar Eisenhover liggur fár-
sjúkur í sjúkrahúsi og Nixon
talar til fulltrúa repúblikana.
„Við skulum sigra þennan fyrir
Ike.“ Um leið er klippt yfir í
frægt atriði úr gamalli Holly-
wood-mynd, þar sem Pat
O’Brian (þjálfarinn) segir við
Ieikmenn f Notre Dame fót-
boltaliðinu — „Við skulum
sigra þennan fyrir Glitter.“ Þá
er aftur klippt yfir í sjúkrahús-
ið, þar sem Glitter liggur allur
reifaður og Glitter er auðvitað
Ronald Reagan, fyrrum kvik
myndaleikari, nú rikisstjóri og
iðulega orðaður sem líklegur
kandídat repúblikana f forseta-
stól að Nixon gengnum.
Já hvað hefði ekki de
Antonio getað gert sér úr
Votergeit hefðiþað verið komið
upp, er hann gerði myndina.
A sunnudag flytja laganemar við Háskólann árlegt tillegg sitt til sjónvarpsins f Réttur er settur,
sem að þessu sinni fjallar um smygl. Hér sjást smyglararnir (laganemar) um borð í vélbátnum
Blöndunni frá Ölgerði á heimsiglingu — ásamt Haraldi kvikmyndatökumanni og Sigfúsi hljóðupp-
tökumanni.
Richard Milhous Nixon fær
góðan skammt af skopi í mynd-
inni Millhouse — a White
Comedy.
FYRIR nokkrum dögum vakti
það töluverða athygli hér
heima fyrir, að kona nokkur sté
upp í pontu innan virðulegra
veggja Alþingis og kvaðst hafa
uppgötvað eftir stutta veru á
þingi, að leikhús borgarinnar
væru ekki tvö heldur þrjú —
Alþingi Islendinga væri sem
sagt þriðja leikhúsið. Á mið-
vikudagskvöld getur að líta í
sjónvarpinu víðfræga heim
ildarmynd, þar sem höfund
urinn, Emile de Antonio,
setur fram svipaða skoðun á
stjórnmálum heimalands síns,
Bandaríkjanna. Millhouse — a
White Comedy nefnist myndin
og er helguð stjórnmálaferli
Nixons Bandaríkjaforseta —
fram að þeim tíma, er hann er
endurkjörinn forseti.
Þessi kvikmynd var frum-
sýnd í Bandaríkjunum árið
1971 og varð geysivinsæl, var
sýnd fyrir troðfullum húsum í
30 borgum vestan hafs f margar
vikur, sem er afar fátítt um
heimildarmyndir, eins og
Millhouse vissulega er. Demó-
kratar sáu sér Ieik á borði,
þegar myndin kom fram og
vildu kaupa hana af de Antonio
í því skyni að nota hana í kosn-
ingabaráttunni fyrir forseta-
kjörið 1972. En de Antonio vildi
ekki selja. „Ég gerði ekki þessa
mynd til að fá demökratana
kjörna,“ sagði hann. „Ég gerði
hana til að upplýsa, hvílikt of-
boðslegt skripaleikhús banda-
rísk stjórnmál eru.“
Að sjálfsögðu má deila um,
hversu heiðarlega de Antonio
hafi farið að við gerð þessarar
myndar: Að tína til alla tiltæka
filmubuta með verstu stundum
sama stjórnmálamannsins —
allir hljóta að geta viðurkennt,
að slíkt verður aldrei féleg út-
koma. En hitt er eins vist, að
Richard M. Nixon hefur átt
fleiri „vondar stundir“ á ferli
sínum en flestir aðrir stjórn
málamenn.
Titill myndarinnar,
Millhouse — a White Comedy,
er orðaleikur af hálfu
höfundarins. M-ið í nafni
Richard M. Nixons stendur
fyrir Millhouse, en White
Comedy gefur bendingu um
samsetningu hirðarinnar kring-
um Nixon — helztu samstarfs-
menn hans hafa ætíð verið hvít-
ir, angló-saxneskir mótmælend-
ur, og í þessari mynd, 25 ára
stjórnmálakróniku forsetans,
sést hvergi negri. Auðvitað má
svo Iesa út úr titlinum Hvíta
húsið — æðsta tákn skrípaleiks-
ins, sém de Antonio er að lýsa.
„Ef myndin hefur engin önn-
ur áhrif en að hlaða undir
Nixon-fordóma fólks, þá er hún
misheppnuð að minum dómi,“
segir de Antonio líka á einum
stað. „Myndin er ekki persónu-
leg árás á Nixon. Hún er árás á
kerfið, á trúverðugleika kerfis-
Kluge játar til málamynda,
og Escherich sleppir honum,
en lætur þó fylgjast með hon-
um. Það mistekst, Kluge leit-
ar á náðir gamallar vinkonu,
en snuðrarinn Brokhausen
kemur upp um hann. Escher-
ich þarf einhvern veginn að
losna við Kluge. Hann tælir
hann með sér í gönguferð og
myrðir hann með köldu blóði.
22.55 Aðkvöldidags
Einar Gíslason, forstöðumað-
ur Fíladelfíusafnaðarins,
flytur hugvekju.
23.05 Dagskrárlok
/MNNUD4GUR
18. mars 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Skugginn
Norskur „nútímaballett". ,
Aðaldansarar Anne Borg og
Roger Lucas.
Kóreógrafía Roger Lucas.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
20.45 Við ána
(Still Waters)
Sjónvarpsleikrit frá BBC.
Höfundur Julía Jones.
Leikstjóri James MacTagg-
art.
Aðalhlutverk Margery Ma-
son, Brian Pringle og Rich-
ard Pearson.
Þýðandi Gísli Sigurkarlsson.
21.40 Isienski körfuboltinn
Umsjónarmaður Ömar Ragn-
arsson.
22.10 Fall þriðja rfkisins
Síðari hluti heimildamyndar
um endalok siðari heims-
styrjaldarinnar og fall Adolfs
Hitlers.
Þýðandi og þulur Oskar Ingi-
marsson.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
23.10 Dagskrárlok
Sjónvarps- og útvarpsdag-
skráin er á bls. ,?5
ÞRIÐiUDKGUR
19. mars 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lítið skákmót í sjón-
varpssal
Fimmta skák.
Hvítt: Friðrik Ölafsson.
Svart: Forintos.
Skýringar flytur Guðmundur
Arnlaugsson.
21.00 Mósambikk
Þáttur úr flokki sænskra
fréttamynda um ungu kyn-
slóðina í Mósambikk og starf-
semi frelsishreyfingarinnar,
Frelimo.
Þýðandi og þulur Gylfi Grön-
dal.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
21.30 Valdatafl
Bresk framhaldsmynd.
6. þáttur. Útsýnið
Þýðandi Jón O. Edwald.
Efni 5. þáttar:
Bligh-fyrirtækið hefur gert
samninga við hollenska og
ítalska aðila um samvinnu
við stórfelldar vega- og bygg-
ingaframkvæmdir á Italíu.
I ljós kemur, að einhverjir
hafa komist á snoðir um
fyrirhugaðar framkvæmdir,
því lóðir eru þar keyptar í
stórum stíl af aðvifandi
kaupahéðnum.
Grunur fellur á Wilder, en
honum tekst að sanna, að
háttsettir ítalskir aðilar eigi
þar mestan hlut að máli, og
þannig beinist athyglin frá
Pamelu Wilder og Don
Henderson, sem einnig höfðu
verið viðriðin lóðabraskið.
22.20 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um er-
lend málefni.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
Dagskrárlok