Morgunblaðið - 15.03.1974, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
17
Sovézkt geim-
far lenti á Mars
Moskvu, 14. marz,
AP—NTB.
TASS-FRÉTTASTOFAN sovézka
skýrði svo frá í dag, að geimfarið
IVIars 6. hefði lent á reikistjörn-
unni Mars sl. þriðjudag og sendi
nú upplýsingar til jarðar. Geim-
farið var sent á braut 5. ágúst sl.,
eitt af fjórum Mars-förum sem
Sovétmenn sendu á loft í fyrra-
sumar.
Hið fyrsta, Mars 4., komst ekki
á braut umhverfis reikistjörnuna
vegna bilunar í hemlum, Mars 5.,
fór á braut umhverfis stjörnuna
12. febrúar sl. og það siðasta,
Mars 7., er sagt hafa komizt í
námunda við Mars sl. laugardag,
en ekkert hefur verið upplýst,
hvað síðan hefur orðið um það, en
vestrænir sérfræðingar geta sér
þess til, að það hafi átt að fara á
braut og gegna hlutverki endur-
varpsstöðvar fyrir geimfarið, sem
lenti.
Yfirmaður sovézku geim-
vísindastofnunarinnar, Roald
Sagdejev, sagði, þegar geimförun-
um var skotið á loft, að a.m.k. eitt
þeirra ætti að lenda á Mars til að
rannsaka yfirborðið og taka
myndir, er sjónvarpað yrði til
jarðar.
Sovétmenn lentu geimfari á
Mars í fyrsta sinn 2. desember
1971. Það var Mars 3. Mars 1., sem
skotið var á loft 1962, týndist, en
Mars 2, sem skotið var upp 19.
maí 1971, fór á braut umhverfis
stjörnuna og sendi ljósmyndir
þaðan til jarðar.
„LEÐJUMENNIRNIR" eru mjög hátt skrifaðir f Nýju-Guineu. Þeir halda uppi aga og reglu með
því að setja á sig hræðilegar grfmur og hræða líftóruna úr þeim vesalingum, sem hafa á einhvern
hátt gerzt brotlegir. I sfðustu viku fklæddust þeir þó búningi sfnum einungis til hátfðabrigða og
skokkuðu tii Goroka til að taka á móti „No. 1 Bilong All“, sem útleggja má Yfirmaður allra.
Og þegar „No. 1 Bilong all“ sá þá í skrúðanum varð hún yfir sig hrifin og þreif fram myndavél
sfna til að festa þá á filmu. Elfsabet Englandsdrottning er nefnilega ágætis áhugaljósmyndari.
Málamiðlun eftir 15
mánaða samningaþóf
A- og V-Þýzkaland skiptast
á sendimönnum
36 fórust í flugslysi
í Kaliforníu í gær
Bishop, Kaliforníu, 14. marz, AP.
Bonn, 14. marz, AP.
í DAG var undirritað samkomu-
lag milli stjórna Austur- og Vest-
ur-Þýzkalands um að skiptast á
opinberum sendimönnum. Hefur
verið ákveðið, að Gunter Gaus
ráðuneytisstjóri verði fyrsti
sendimaður V-Þýzkalandi í Aust-
ur-Berlin og Michael Kohl starfs-
Ný upp-
reisn
Kprda
ílrak
bróðir hans frá AusturÞýzka-
landi verði fyrsti sendimaður
lands síns í Bonn. Samkomulagið
undirrituðu Gúnter Gaus og Kurt
Nier aðstoðarutanríkisráðherra
A-Þýzkalands og skáluðu f kampa-
vín áeftir.
Austur-Þjóðverjar munu kalla
sinn fulltrúa sendiherra, en V-
Þjóðverjar, sem ekki viðurkenna,
að A-Þýzkaland sé erlent ríki,
kalla sinn mann ,,fastafullti'úa“.
Tekið hefur fimmtán mánuði að
finna málamiðlun milli sjónar-
miða stjórnarinnar. Hún er m.a.
fólgin i því, að þótt Michael Kohl
afhendi forseta V-Þýzkalands
sendiherraskilríki sín samkvæml
venju, munu samskipti hans við
v-þýzka embættismenn fara fram
með milligöngu forsætisráðu-
neytisins en ekki utanrfkisráðu-
neytisins. Gaus mun hinsvegar
hafa samband við a-þýzka
embættismenn með milligöngu a-
þýzka utanríkisráðuneytisins.
Tekið er fram í samkomulaginu,
að v-þýzka skrifstofan í Berlín
fari einnig með málefni Vestur-
Berlínar.
Brussel, 14. marz, NTB.
FULLTRÚ AR 15 aðildarrfkja
NATO ákvaðu í dag að vfsa á bug
tillögu frá Sovétríkjunum um að
halda toppfund um öryggismál
Evrópu. Sendiherrar og aðrir
háttsettir embættismenn NATO-
ríkjanna ákváðu að styðja Pompi-
dou Frakklandsforseta í svari
hans til Sovétleiðtoganna.
1 lok heimsóknar sinnar til Sov-
étríkjanna síðastliðinn miðviku-
dag, skýrði Pompidou frá því, að
hann hefði hafnað tillögu frá
Leonid Brezhnev þess efnis, að
haldinn yrði toppfundur um ör-
yggismálin með þátttöku þeirra
36 manns biðu bana, þegar
tveggja hreyfla flugvél af gerð-
inni Convair 440 rakst á fjall
í Kaliforniu, skammt austur af
Bishop.
Ahöfn vélarinnar var fimm
manns, en farþegarnir 31 talsins
voru frá Wolper kvikmyndafram-
leiðslufyrirtækinu i Los Angeles,
sem hafði tekið vélina á leigu.
Voru leikarar, tæknimenn og
kvikmyndastjóri að fara upp i
snæviþakin fjöll til að kvikmynda
þar eitt atriði sjónvarpsmynda-
seriunnar „Primal Man“, sem átti
að hefja sýningar á i maí nk. Ekki
er til þess vitað, að nafnkunnir
ríkja, sem eiga fulltrúa á öryggis-
málaráðstefnu Evrópu.
Embættismennirnir í Brússel
lýstu þeirri skoðun sinni, að ekki
yrði hægt að fá viðunandi lausn á
toppfundi allra ríkjanna um ör-
yggisinál meðan Sovétríkin fengj-
ust ekki til að efla mannleg sam-
skipti við Vesturlönd.
Þessi fundur i Brússel var hald-
inn að tillögu Henry Kissingers
utanríkisráðherra Bandaríkjanna
til að fjalla um þá ósamstöðu, sem
um tíma ríkti milli NATO-rikj
anna í kjölfar októberstríðsins i
Miðausturlöndum.
leikarar hafi verið meðal þeirra,
sem förust. Björgunarmenn áttu
langa leið og erfiða fyrir höndum
til að komast að flakinu, sem að
sögn þyrluflugmanna, er flugu yf-
ir slysstaðinn, var Ula brunnið.
í Mozambique?
Dar Es Salaam,
Tanzaniu, 14. marz AP.
I SKÝRSLU, sem FRELIMO —
frelsishreyfing blökkumanna í
portúgölsku nýlendunum í
Afríku — hefur birt um hernað-
araðgerðir í héraðinu Manico e
Sofala í Mozambiqui, á tímabii-
inu sept. 1973 — jan. 1974, er
staðhæft, að portúgalskir her-
menn hafi hinn 13. janúar sl.
myrt 28 óbre.vtta borgara í smá-
þorpinu Chimara í námunda við
Tampara, og áður verið búnir að
evðileggja alla uppskeru á svæð-
inu. Hafi þetta verið liður í aukn-
um hernaðaraðgerður Portúgala
gegn þeim, sem grunaðir voru um
stuðning við FRELIMO á þessu
svæði.
Þá segir i skýrslunni. að á sama
tíma hafi 30 portúgalskir her-
menn verið felldir í héraðinu, sex
járnbrautarlestir verið settar af
sporum, auk annarra skemmdar-
verka, sem sveitir FRELIMO hafi
unnið þar.
Enginn toppfundur
um öryggismálin
Fjöldamoi
Portúgala
Ankara, 14. marz, NTB.
KOMIÐ hefur til bardaga
milli stjórnarhersveita í
írak og uppreisnarsveita
Kúrda, að því er tyrkneska
stjórnin upplýsir í dag.
Hefur hún lokað landa-
mærum Tyrklands og
íraks þessa vegna, en
fregnir, sem borizt hafa til
Ankara, benta til þess, að
uppreisnarsveitir Kúrd-
anna hafi landamærasvæð-
in írakmegin á sínu valdi.
Hafa þeir, að sögn, lokað
þjóðveginum milli íraks
og Kuwaits um bæinn
Zaho.
Kúrdar eru herská hirðingja-
þjóð, sem býr í norðurhluta íraks,
þar sem eru einn auðugustu olíu-
svæði í landinu. Hefur hvað eftir
annað komið til átaka miili þeirra
og stjórnarhersveita á umliðnum
árum og kröfur þeirra um aukna
sjálfstjórn verið sterkar. Sömu-
leiðis búa Kúrdar í hlutum Irans
og Tyrklands.
Pólskar f allhlífasveitir æf ð-
ar í að leika danska hermenn
EINN liður í uppfræðslu og
þjálfun 6. fallhlífasveitar
pólska hersins, sem aðsetur
hefur í námunda við Krakau, er
dönskukennsla, að því er
danska blaðið Berlingske Tid-
ende skýrir frá 9. marz sl. og
kveðst hafa eftir v-þýzkuin
heiinildum. Þar segir, að
dönskukennsla fallhlífarher-
manna hafi staðið yfir í nokkra
mánuði og kennarar þeirra séu
ungir Pölverjar, sem stundað
hafi dönskunám sem styrkþeg-
ar við háskólana í Kaupmanna-
höfn og Arósum. Sömu heim-
ildir herma, að 5. deild a-
þýzkra fallhlífahermanna, sem
bækistöð hefur á Rúgen, gang-
ist undir þjálfun í neðanjarðar-
starfsemi í aðildarríkjum
Atlantshafsbandalagsins.
Forystumönnum danskra
varnarmála hefur verið frá
þessu skýrt og hafa þeir fyrir-
skipað rannsókn málsins, en
þar til niðurstöður hennar
liggja fyrir, er af þeirra hálfu
litið á v-þýzku upplýsingarnar
sem óstaðfestar fréttir, að því
er Berlingske Tidende segir.
Ofangreindar heimildir
herma.að* falihlífa- og foringja-
sveitum í Póllandi og Austur-
Þýzkalandi séu menn þjálfaðir
með það fyrir augum, að hægt
sé að senda þá á vettvang í
Danmörku eða V-Þýzkalandi,
skapist þar tiitekið spennu- eða
stríðshættuástand. Sveitirnar
eru þjálfaðar í að tala tungumál
þessara landa og þeim er einnig
kennt, hvernig fylgja ber
dönskum og v-þýzkum herregl-
um og hvernig nota ber ein-
kennisbúninga herjanna i þess-
um löndum.
Fræðslan miðast að því, að
þeir geti leyst ýmis sérverkefni
i aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins áður en til styrj-
aldar kemur. Meðal annars er
þeim ætlað að ráðast á her-
stöðvar, styðja skæruliðahreyf-
ingar, ræna einstökum forystu-
mönnum á sviði stjórnmála eða
hermála — eða drepa þá, — ná
fótfestu á vissum herfræðilega
mikilvægum stöðum og koma á
ringulreið í stærri bæjum og
öðrum lykilstöðum með undir-
róðursstarfsemi og storkunar-
aðgerðum.
Samkvæmt þessum upplýs-
inguin er sovézk fallhlífasveit
með a-þýzku sveitunum, sem
þessa uppfræðsiu fá, í
Neuruppin í Austur-Þýzkalandi
og tékknesk sveit tekur þátt i
þjálfuninní við Holsejev. Það
fylgir sögunni, að verði sveitum
þessum beitt í ofangreindum
markmiðum, gerist það eftir
sérstakri tilskipan frá Moskvu.
Stjórn þessa starfs er sögð í
höndum nýstofnaðrar deildar,
er gengur undir nafninu Deild
W og heyrir undir KGB, sov-
ézku leyniþjónustuna. Sú deild
mun sérstaklega fjalla um und-
irróðursstarfsemi í aðildarríkj-
um Atlantshafsbandalagsins.