Morgunblaðið - 15.03.1974, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
t
Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir
ÁRMANN BJARNASON,
frá Neskaupstað,
Vallartúni 1,
Keflavtk,
lézt í Landakotsspítala 1 3. þ.m Gunnhildur Oddsdóttir,
Guðrún Ármannsdóttir,
Ásgeir Sigurðsson
t
Systir mín,
GEIRLAUG SKYTTE
fædd INGVARSDÓTTIR,
andaðist í Kaupmannahöfn 11. marz. Útförin fer fram laugardaginn
1 6. marz Fyrir hönd systkina og annarra ættingja
Guðrún Ingvarsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
JENS SVEINSSON
skósmiður,
Háteigsvegi 22,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi 13. marz. Fyrir hönd aðstandenda,
Laufey Líndal.
Eiginmaður minn t
ALEXANDER KÁRASON,
húsasmiður,
Bugðulæk 13,
andaðist miðvikudag nn 1 3. marz.
Ingveldur Jónatansdóttir.
t
FRIÐJÓN JÓNSSON,
frá Þórshöfn,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju, Mosfellssveit, laugardaginn 1 6
marz kl. 2 e h Fyrir hönd aðstandenda,
Una Guðjónsdóttir.
t
ÞÓRARINN JÓNSSON.
tónskáld,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 1 6. marz kl. 1 0.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Minningarsjóð
tónskálda
Ingibjörg Stefánsdóttir
og vandamenn
t
Útför
JÓNÍNU SVEINSDÓTTUR,
Austurbyggð 4. Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 16. marz n.k. kl. 13:30.
Þeim, sem vildu minnast hínnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Bergur Pálsson og börnin.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi
GÍSLI GUÐMUNDSSON.
Hellu.
Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 15. marz kl.
14
Þeir, sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag íslands.
Anna Hannesdóttir,
Hanna Gísladóttir, Ólafur Óskarsson,
Geir Gíslason. Erna Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurður E. Stein-
dórsson — Minning
ar- og kveðjuorð
Fæddur 7. maí 1910.
Dáinn 4. marz 1974.
Síðastliðinn laugardag þann 9.
marz, var til moldar lagður frá
Dómkirkjunni í Reykjavík Sig-
urður Einar Steindórsson, fram-
kvæmdarstjóri Bifreiðastöðvar-
innar Steindór s/f., hér í borg,
eftir langvarandi veikindi. Menn-
irnir hverfa einn og einn, en
minningin um þá lifir í huga sam-
ferðamanna þeirra, minningar
sem ekki munu gleymast heldur
geymast í hugum okkar, sem
störfum á Bifreiðastöð Steindórs
s/f í dag, sem Sigurður rak um
árabil með Kristjáni bróður sín-'
um. Minningar um mann sem
ekki var aðeins húsbóndi okkar,
heldur líka vinur og félagi, hús-
bóndi sem var mildur i agaveldi
sínu, ráðhollur og skilningsríkur
ef við leituðum til hans í erfið-
leikum okkar. Sigurður var ávallt
reiðubúinn að leysa vandamál
okkar á þann hátt að gefa okkur
trúna á lífið og gildi þess aftur, þó
oft væri dimmt framundan, um
leið og hann taldi i okkur kjark til
að berjast áfram í lífsbaráttunni
og gefast ekki upp, þvi uppgjöf
þekkti Sigurður ekki. Sigurður
var maður atorku og dugnaðar,
maður sem bjó yfir nægri lifs-
reynslu og umburðarlyndi fyrir
breyskleika hins mannlega lífs.
Þú varst og ert drengur í leik og
starfi. Því vaknar sú spurning í
huga okkar: hví ertu kallaður á
braut aðeins 63 ára að aldri,
drengurinn sem við dáðum svo
mikið og treystum svo mikið á?
Hví er hinn hávaxni og glæsilegi
drengur sem kom svo oft niður
stigann frá skrifstofu sinni, er við
vorum nokkrir saman komnir inn
á stöð, kom niður með æskufjör í
augum og glettnisbrosið lék um
leið og hann sagði: „Hvað er þetta
strákar? Er síminn bilaður eða
hvað?“ Um leið fékk einhver okk-
ar úr hópnum kannski smá
stríðnisorð, svo afgreiðslusal-
urinn ómaði af léttum hlátri, því
öll okkar axarsköft vissi
Sigurður og leit á þau mild-
um og skilningsríkum
augum. Og starfsdagurinn varð
bjartur sem um hásumar væri, og
þótt kólgubakkar sigldu um vetr-
arþrunginn himininn þá ríkti
birta og glaðværð inni á stöð. Um
leið og við starfsfólkið í af-
greiðslu, á skrifstofu og svo öku-
menn sendum konu þinni, frú
Petrínu, börnum þínum og barna-
börnum, systkinum þínum ogfjöl-
skyldum þeirra okkar dýpstu
samúðarkveðjur, þá spyrjum við:
Hví varstu kallaður á braut? En
því einu getur sá svarað, sem al-
valdur er, sá sem veit allt og skit
ur leyndardóma lifsins. Sá alvaldi
og réttláti sem dómsvaldið hefur,
en dæmir þó ekki sem blindur um
liti. Hann einn veit svarið. En þótt
þú sért farinn úr veröld okkar
hér, þá vitum við að þú bíður
þinnar, í höfn friðar og kærleika,
að loknum starfsdegi. Og í huga
okkar eru myndir og minningar
um gimstein þann er þú hafðir að
geyma og við kynntumst á sam-
leið með þér; glit hans og kraftur
skal verða okkur leiðarstjarna um
ókomin æviár.
Starfsfólk Bifreiðastöðvar
Steindórs s/f.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
VIÐ höfum lifað svo um efni fram, að lífið er orðið okkur
óbærilegt. Við fáum okkur allt, sem við sjáum, að okkur
vantar, því að við njótum mikils lánstrausts. En þetta kaup-
æði verður að taka enda áður en ég missi vitið. Hvað á ég að
taka til bragðs?
VANDAMÁL yðar er bæði andlegt og fjárhagslegt,
og ég er ekki hagfræðingur. Konan mín sér að mestu
um innkaup okkar, því að hún samþykkti fyrir
mörgum árum að losa mig við þá byrði.
Mörgum fjölskyldum nú á dögum er íþyngt sakir
skulda og skuldbindinga vegna afborgana — svo
mjög, að þetta er að verða andlegt vandamál. Hvað
kemur fólki til að lifa um efni fram? Ég held, að
svarið sé fólgið í litla orðinu „öfund“. Nágrannar
okkar eignast nýjan bíl. Við megum ekki hrapa í
þjóðfélagsstiganum, og þess vegna finnst okkur, að
við verðum að fá nýjan bíl. Nágrannarnir fá sér
ýmiss konar ný tæki. Þeir vita, hve okkar tæki eru
orðin gömul, svo að við hlaupum upp til handa og
fóta og birgjum okkur upp. Grannarnir eignast
nýjan bát, og við sjáum, að við verðum að eignast
bát. Nú er unnt að fá þetta allt skrifað á reikning, og
því er auðvelt að eignast þetta. Þarna eru rætur
fjárhagsörðugleikanna á heimilum okkar. Hagfræð-
ingur nokkur telur, að fjórar af hverjum fimm
fjölskyldum hafi bundið sig slíkum böggum skulda
og afborgana, að kallast megi drápsklyfjar. Jafnvel
stjórnarvöldin taka lán til þess að halda öllu gang-
andi.
Þetta tekur aldrei enda fyrr en við hættum að
ágirnast alla mögulega hluti og förum að lifa skyn-
samlega. Jesús sagði, að líf mannsins væri ekki
tryggt með eigum hans. Sumt hamingjusamasta
fólkið, sem ég þekki, er í hópi þeirra, sem minnst
eiga. Kannski er rót hamingju þeirra sú, að þau eru
skuldlaus.
t
Eiginmaður minn
KRISTJÁN ÁSGRÍMSSON
skipstjóri
Suðurgötu 49, SiglufirSi
sem lézt að heimili sínu 7. marz, verður jarðsunginn frá Siglufjarðar-
kirkju laugardaginn 1 6. marz kl 2 e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Fyrir hönd vandamanna
Guðrún Sigurðardóttir.
t
Ástkær eiginmaður minn
AÐALSTEINN LÁRUSSON,
Gnoðarvogi 30,
lézt á Borgarsjúkrahúsinu, fimmtudaginn 1 4 marz.Fyrir hönd barna og
systkina,
Kristfn Magnúsdóttir.
t
Þökkum öllum, sem sýndu okkur og fjölskyldum
andlát og jarðarför,
ÓLAFS R. HJARTAR
okkar samúð við
járnsmiðs frá Þingeyri.
Sigrfður E. Hjartar,
Hjörtur Hjartar, Guðrún Hjartar,
Magrét Hjartar, Eiríkur P. Ólafsson.
t
Elskulegur faðir okkar, sonur og
bróðir,
JÓN ÞORBERG
STEINDÓRSSON,
Karfavogi 31, Reykjavík,
lézt þriðjudaginn 1 2. marz.
Bryndís Jónsdóttir,
Smári Jónsson,
Anna Guðjónsdóttir,
Steindór Steindórsson,
Ellert Steindórsson,
Steindór Steindórsson.
t
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim, er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför,
EINARS ÖGMUNDSSONAR,
vélstjóra.
Sigrfður Hafliðadóttir, börn,
tengdabörn og barnabörn.