Morgunblaðið - 15.03.1974, Qupperneq 27
Fréttabréf
úr
Stykkis-
hólmi
Stykkishólmi 12-3-’74.
0 Rækjuvinnsla er nú hafin á
ný í Stykkishólmi og hefirRækju-
nes h.f. hafið vinnslu í húsnæði
sem það hefir leigt af Kaupfélagi
Stykkishólms. Þar var áður salt-
fiskverkun af hálfu Kaupfélags-
ins, en þeim rekstri hefur verið
hætt. Nú þegar hefir Rækjunes
fest sér 4 báta til rækjuveiða, og
eru tveir þeirra þegar byrjaðir en
hinir senn að hefja veiðar.
0 Nýlega var haldinn fundur í
Verkalýðsfélagi Stykkishólms og
þar ræddir kjarasamningar A.S.Í.
og atvinnurekenda og einnig sér-
samningar Verklýðsfélagsins við
atvinnurekendur á Snæfellsnesi.
Voru þeir samþykktir. Þá kom
fram á fundinum eftirfarandi til-
laga sem var samþykkt einróma.
0 Fundur i Verklýðsfélagi
Stykkishólms haldinn sunnudag-
inn 10. mars 1974, lýsir óánægju
yfir aðgerðarleysi ríkisstjórnar til
að sporna við verðhækkunar-
skriðu þeirri sem rennur nú yfir
þjóðina og bitnar ekki hvað síst á
því fólki sem var að fá tímabærar
kjarabætur, en gerir þær kjara-
bætur að engu innan stutts tíma
ef heldur sem horfir.
0 Mjög hefir nú hlýnað í veðri
hér um Breiðafjörð og sér það
fljótt á hversu snjó hefir leyst og
er nú lítill nema i fjöllum. Fljótt
sér á vegum og hafa þegar mynd-
ast hvörf í vegina sem liggja út
frá kauptúnunum svo erfitt er
fyrir litla bíla að komast áfram,
þó hefir áætlunarbifreiðin frá
Reykjavík á Snæfellsnes haldið
áætlun og eins mjólkurbílar sem
nú flytja kauptúnunum mjólkur-
afurðir frá Búðardal og sækja um
allt Nes mjólk á sveitabæina til
vinnslu í Búðardal, en mjólkur-
stöðin í Grundarfirði er hætt
störfum og lauk starfsemi um s.l.
mánaðamót. Ekki er enn ákveðið
hvort mjólkurafurðir verða
seldar hér í almennum sölubúð-
um og enn um sinn mun mjólkur-
samsalan hafa opnar búðir eins og
áður í hverju kauptúni, eða þar til
öðru visi verður ákveðið.
— Fréttaritari.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974 27
VERZLUNAR- OG SKRIFSTOFU-
HÚSNÆÐI í NÝJA MIÐBÆNUM,
KÓPAVOGI
Sala á hinu margeftirspurða húsnæði hefst í dag. Þeir sem hafa lagt inn pantanir hafi vinsamlegast samband strax.
Eignamiðlunin Vonarstræti 12, Símar 24534 og 11 928.
RAUDUR
Vel með farinn „konubill" tegund Sunbeam Alpine GT
sjálfskiptur, árgerð 1970. Ekinn 25.400 km., er til sölu
vegna endurnýjunar.
Bíllinn er ætíð geymdur í bílskúr og eingöngu ekið
innanbæjar.
Verð 425.000 —
Upplýsingarveittar að Haðalandi 2 og í síma 37930.
Félagsstarf elflrl borgara
Leikfélag Reykjavíkur býður eldri borgurum að koma
á Síðdegisstund um Þjóðtrú í Iðnó laugardaginn 16.
marz kl. 5 e.h.
Leikarar félagsins fara þar með gamlar sagnir og söngva í
þjóðareign.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku i síma 18800 fimmtu-
dag og föstudag kl. 9—1 2 f.h. Félagsstarf eldri borgara.
Vortízkan 1974
FRÁ HOLLANDI, BELGÍU, BRETLANDI
OG DANMÖRKU:
Ullarkápur Leðurjakkar
Tweedfrakkar Terylenejakkar
Terylenekápur nenimjakkar
Regnkápur Regnjakkar
Ruxnadragtir Síðbuxur
Pilsdragtir piis og blússur
Bemharó Laxdal
Kjörgarði
LOKAÐ ÁLAUGARDÖGUM
Frá 1 - marz eru verzlanir okkar loka&ar á laugardögum
— Opi6 frá kl. 9-6 mánudaga til föstudaga
Áklæðl 09 gluggatiöld. Gluggatiöld.
Skipholti 1 7a, Laugavegi 66,
Giuggaval.
Grensásvegi 1 2,
Vogue.
SkólavörSustíg 12,
vefnaðarvöruDúÖ VBK.
Vesturgötu 4,
Zela.
Skúlagötu 61.