Morgunblaðið - 15.03.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
29
Démis Roussos □ Forever
and ever □ LP, Stereo □
Fálkinn
Þetta er ein af þessum örfáu
plötum, sem koma reglulega á
óvart, enda hefur hún slegið f
gegn svo um munar í mörgum
löndum Evrópu og víðar. Virðist
flest benda til þess, að griski
söngvarinn Démis Roussos, sé
næsta stórstjarna í tónlistinni og
verði innan tíðar skipað á bekk
með Tom Jones og Presley. Það
hjálpast allt við að gera þessa
plötu sérstaklega ánægjulega.
Söngstíll Démis Roussos er sér-
kennilegur og parsónulegur, þessi
háa og titrandi rödd, sem hæfir
hvort heldur í rólegum, eða hröð-
um lögum. Þá er fortið og nútím-
anum blandað saman á óvenju-
lega smekklegan hátt. Lögin eru i
nútímastil og takturinn er krefj-
andi en þó eru þau undir sterkum
áhrifum griskrar tónlistar. Má
mikið vera ef þessi Vlavianos,
sem samið hefur flest lögin, eigi
ekki eftir að gera svipaða hluti og
landi hans Theodorakis. 1 undir-
leiknum ' er- í senn notað raf-
magnshljóðfærið synthesizer og
hið þjóðlega gríska hljóðfæri
bazuki, auk gítara og annarra
venjulegra hljóðfæra, en alls eru
níu manns i hljómsveitinni. Tvö
laganna a plötunni hafa komist i
efsta sæti islenska vinsældalista á
s.l. mánuðum. Það eru When I am
a kid og Good-bye my love good-
bye en lögin Forever and ever og
Velvet mornings standa þeim
ekki að baki. Þetta er sem sagt
plata, sem óhætt er að mæla með
og á það við um flesta aldurshópa.
SLADE □ Oid, new, borr-
owed and blue □ Stereo,
LP □ Fálkinn
Þrátt fyrir að ætla megi, að
Slade og Sweed séu vinsælastir
allra enskra hljómsveita (a.m.k.
ef miðað er við vinsældalista) er
ails ekki hægt að segja, að þessi
nýja plata SLADE sé áhugaverð.
Slade komust á toppinn með
ýmiss konar sérkennum í textum,
Hljómpiötur
EFTIR HAUK
INGIBERGSSON
stafsetningu og framburði auk
þess, sem tónlist þeirra var ein-
föld; hrá og gróf rokktónlist. Og
þeir hafa ekki breyst neitt þessi
tvö ár, sem þeir hafa verið á
toppnum. Þannig eru plöturnar
svipaðar og eitt lag líkist öðru. Á
þessari plötu er að vísu að finna
smátilraunir til nýjunga eins og
t.d. i My friend Stan, en það er
ekkert, sem heitir né skiptir
neinu afgerandi máli. Plötur
Slade renna út eins og heitar
lummur þannig að stórum hópi
fólks finnst þessi tónlist ágæt og
að sjálfsögðu eiga allir heimtingu
á að fá tónlist við sitt hæfi. En
tónlistarlega séð standa Slade
verulega höllum fæti.
Haukur Ingibergsson.
gam
- HUSID
uglýsir
KomiÓ og veljió úr mesta
húsgagnaúrvali
landsins.
5000 ferm. — fimm hæ6ir —
byggingavörur, gjafavörur,
teppi, raftæki og húsgögn
í geysilegu úrvali
og allt á
a — góÓa verðinu.
«lh.:
Vegna hinna nýju kjarasamninga verða allar deildir JL-hússins
framvegis lokaðar á laugardögum. Á föstudögum verður eftir sem
áður opið til kl. 1 0
VERZLIÐ ÞAR SEM
ÚRVALIÐ ER MEST
OG KJÖRIN BEZT
OP Ð TIL KL. 10
-HÚSID HRINGBRAUT 121
Datsun lOOACherry
litrar á 100 km
Ódýrasti
ÍATSÚ*1
tr/99^2.
20-000
Tllkynnlng
FRÁ Siglfirðingafélaginu í Reykjavlk og nágrenni
Aðalfundur félagsins (sem frestað var vegna þjónaverk-
fallsins), verður haldinn, mánudaginn 18. þ.m. kl. 8.30
síðdegis að Hótel Sögu, (Blái salur), aðaldyr.
Dagskrá:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Önnur mál.
III. Spiluð félagsvist. Kaffi.
Stjórnin.
JRorgMirt&IotíÍb
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar í síma 35408.
AUSTURBÆR
Bergstaðastræti, Ingólfsstræti,
Laugavegur frá 34—80, Skipholt I.
Meðalholt.
VESTURBÆR:
Garðastræti, Miðbær, Nýlendugötu
ÚTHVERFI
Smálönd, Laugarásvegur I og II
Álfheimarfrá 43, Efstasund
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Upplýsing-
ar hjá afgreiðslunni í síma 1 0100.
SENDLAR ÓSKAST
á ritstjórn blaðsins.
frá kl. 9—5,