Morgunblaðið - 15.03.1974, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
1. deild kvenna:
Fram nálg-
ast titilinn
r
Vann Armann 18:13 í fyrrakvöld
FRAMSTÚLKURNAR hafa nú
svo gott sem tryggt sér sigurinn í
1. deild kvenna og þá um leið
sjöunda Islandsmeistarartitil
Fram innanhúss í meistaraflokki
kvenna. Á miðvikudagskvöldið
lék Fram gegn Ármanni og lauk
leiknum með 18:13 sigri Fram.
Liðið á eftir að leika tvo leiki í
deildinni, gegn Víking á sunnu-
daginn og svo gegn aðalkeppi-
nautunum Val. Nægir Fram að fá
eitt stig úr þessum leikjum, en
mikið má vera ef stigin verða
ekki fleiri, reyndar finnst manni
meiri spurning vera hvort Fram
sigrar í mótinu með fullu húsi
stiga.
Víkingsliðið stendur Framlið-
inu t.d. langt að baki og Valur
hefur ekki átt góða leiki að und-
anförnu.
Leikur Fram og Ármanns var í
járnum allan fyrri hálfleikinn og
Framstúlkurnar virtust ekki eiga
svar við því herbragði Armanns
að taka Oddnýju Sigsteinsdóttur
úr umferð. 1 leikhléi var staðan
7:6 fyrir Fram, en í síðari hálfleik
átti eftir að draga sundur með
liðunum. Sylvía Hallsteinsdóttir
var atkvæðamikil í leiknum og
sendi hvert skotið á eftir öðru í
netið. 1 lokin munaði fimm mörk-
um á liðunum, 18:13 eins og áður
sagði.
Að þessu sinni var Sylvía í al-
gerum sérflokki í Framliðinu og á
hún hvern leikinn öðrum betri,
þar var vissulega mikill fengur
fyrir Fram að fá þessa reyndu
handknattleikskonu aftur til að
hefja æfingar. Jóhanna stóð sig
einnig mjög vel, Halldóra var sem
fyrr klettur í vörninni og Arn-
þrúður stendur alltaf fyrir sínu.
Af. Ármannsstúlkunum voru þær
Guðrún og Sigríður Rafnsdóttir
beztar og sú siðarnefnda lék nú
einn sinn bezta leik. Erla naut sín
ekki í leiknum, enda var hennar
vel gætt.
Mörk Fram: Sylvía 8, Arnþrúð-
ur 4, Bergþóra 2, Jóhanna, Oddný
Helga og Halldóra 1 hver.
Mörk Ármanns: Guðrún 6, Erla
3, Sigriður 3, Anna 1.
—áij
Jóhanna Halldórsdóttir sýnir framfarir með hverjum ieik og var
mjögdrjúg f leiknum gegn Armanni.
UMFB heldur forystunni
Urslitin í blakinu um helgina
UMFB vann Víking 3—1 í Voga-
skólanum á miðvikudagskvöldið.
Leikur Tungnamanna var sam-
stilltur og er liðið nú með örugga
forustu í íslandsmótinu. Víking-
ur hefur hins vegar misst mögu-
leika á því að vinna mótið í ár.
Eftir glæsilega frammistöðu
Biskupstungnamanna í tveimur
Moore seldur
Osgood frá Chelsea til Southampton
BOBBV MOORE var 1 gær seld-
ur frá West Ham til annarrar
deildar félagsins Fulham og
nam söluupphæðin 25 þúsund
pundum. Astæðan fyrir hinu
lága söluverði er sú að með því
sýnir West Ham honum þakk-
lætisvott og tryggir honum um
leið aukin frfðindi hjá Fuiham,
en þó Moore sé orðin 33 ára
gamall er hann mörgum
þúsundum punda meira virði.
Moore var sem kunnugt er
fyrirliði enska landsliðsins
1966, er liðið varð heims-
meistari á Wembley. Alls hefur
Moore leikið 108 landsleiki
fyrir England og hefur enginn
leikmaður náð svo mörgum
leikjum fyrirland sitt.
Undanfarna daga hefur
mikið verið um sölur á knatt-
spyrnumönnum í Englandi,
enda var síðasti frestur til að
taka fram ávísanaheftið í gær-
morgun. Peter Osgood var í vik-
unni seldur frá Chelsea tíl
Southampton og máttu Dýrl-
ingarnir borga stórfé fyrir
þennan snjalla en óstýrláta
leikmann. Áhöld eru um
hversu mikið Southampton
greiddi, fréttamenn hafa gizkað
á 275 þúsund pund, en heldur
þykir mörgum það ótrúleg upp-
hæð þar sem Southampton er
ekki sérlega fjársterkt félag.
Tveir leikmenn Sunderlands-
liðsins sem kom svo á óvart
með því að sigra í bikarkeppn-
inni i fyrravetur hafa verið
seldir til Manchester City. Það
voru þeir Dennis Tuert og Mick
Horsvill og voru greidd 375
þúsund pund fyrir þá til
samans. Fleiri 1. deildarlið
munu hafa verið á eftir þeim
köppum, en City boðið bezt.
fyrstu hrinunum 15:5, 15:8. náðu
Víkingar sér skemmtilega á strik
og unnu hrinuna öllum á óvart
15:6. Kom nú mikil spenna í leik-
inn og tók hvatningarkór Tungna-
manna, sem kom í rútu frá Laug-
arvatni til að fylgjast með leikn-
um, að syngja eggjunarsöngva liði
sínu til trausts og halds. Var þá
ekki að sökum að spyrja og eftir
jafna keppni framan af hrinunni
tryggðu Tungnamenn sér sigur-
inn, 15:10.
Þó UMFB ætti góðan leik hafa
þeir oft í vetur verið mun betri.
Liðið vinnur sérlega vel saman og
bætir hver leikmaður annan í
samstilltum leik. Guðmundur
Pálsson og Ásgeir Elíasson komu
einna best frá leiknum, en Pálmi,
Valdimar og Snorri áttu sem fyrr-
um mistakalítinn leik með liði
sínu. Þór Albertsson, sem lék í
stað Gunnars Árnasonar, sem var
meiddur kom vel frá leiknum, var
sívakandi og skoraði oft með
skemmtilegum laumum, en
nokkrar þeirra lentu þó utan vall-
ar. Leikur Víkines eiörbrevttist
KR marði
sigur gegn
Víkingum
ENN standa Víkingsstúlkurnar 1
fallbaráttu í 1. deild kvenna, liðið
hefur aðeins hlotið 3 stig til
þessa, en á miðvikudagskvöldið
hefði liðið með smáheppni átt að
geta náð að minnsta kosti öðru
stiginu af KR. Það gekk þó ekki,
KR-liðið lék skynsamlega síðustu
mínúturnar, Víkingsliðið koðnaði
niður og KR náði tveggja marka
sigri í leiknum með tveim síðustu
mörkum leiksins, 12:10.
Víkingsliðið hafði forystu allan
fyrri hálfleikinn og í leikhléi var
staðan 7:6. í upphafi síðari hálf-
leiksins gekk Víkingsstúlkunum
nokkuð vel og héldu þær forskoti
sinu. En þegar um 10 mínútur
voru eftir voru Víkingsstúlkurnar
greinilega orðnar þreyttar og áttu
ekkert svar við breyttum varnar-
leik KR-Iiðsins, sem nú kom
lengra fram á völlinn. Örvænting
greip um sig i Víkingsliðinu og
KR sigldi fram úr eins og áður
sagði, lokatölur urðu 12.10.
KR-stúlkurnar geta fyrst og
fremst þakkað Hansínu Melsted
sigur í þessum leik, en hún lék
mjög vel og skoraði 7 mörk í
leiknum. Einnig komst nýliðinn,
Ellý, vel frá leiknum og skoraði 2
þýðingarmikil mörk í siðari hálf-
leiknum. Sigrún, Emilía og Hjör-
dís skoruðu önnur mörk KR í
leiknum.
Guðrún Hauksdóttir var afger-
andi bezt í Vikingsliðinu að þessu
sinni og átti nú sinn langbezta
leik á keppnistímabilinu, en einn-
ig komst Sigrún vel frá leiknum.
Guðrún Hauksdóttir (3), Sigrún
(3), Agnes (2), Guðbjörg og Guð-
rún Helgadóttir skoruðu mörk
Víkings í leiknum.
Urslitakeppninni lýkur um
næstu helgi með fimm leikjum.
Laugardaginn kl. 13,30 leika í
Höllinni IMA — Laugdælir og kl.
15,30 í Vogaskólanum UMSE —
UMFB.
Á sunnudagskvöldið verða sið-
an þrír leikir í Höllinni Laugdæl-
ir — UMSE, ÍS — Vikingur og
UMFB — ÍMA. Leikirnir hefjast
kl. 19,00 og lýkur um 23,00 með
verðlaunaveitingu og mótsslitum.
Verður vissulega mikið um að
vera hjá blakunnendum um helg-
ina.
Staðan i mótinu er nú þessi:
1. UMFBisk. 3 9-3 162:135 6
2. UMF Laugd. 3 7-5 169:144 4
3. IS 4 8-8 199:200 '4
4. Víkingur 4 8-9 201:206 4
5. ÍMA 3 7-7 177:181 2
6. UMSE 3 2-9 116:158 0
Yngsta
dómara
parið
NORÐURLANDAMÓT
kvenna, 23ja ára og yngri, fer
fram 1 Noregi í lok þessa mán-
aðar með þátttöku liða frá öll-
um Norðurlöndunum. Einnig
munu dómarar frá iillum þátt-
tökuþjóðunum dæma ámótinu
og hefur nú verið ákveðið að
Víkingarnir Gunnar Gunnars-
son og Sigurður Hannesson
verði íslenzku dómararnir á
þessu móti. Hafa þeir félagar
vakið mikla athygli fyrir dóm-
gæzlu sína á leikjum vetrarins
og eru án efa með þeim betri i
íslenzkri dómarastétt þó ekki
séu þeir aldnir að árum. Þeir
eru yngsta dómaraparið, sem
fengið hefur verkefni sem
þetta, Sigurður er 22ja ára, en
Gunnar nokkrum árum eldri.
Leikið í kvöld í 1. deild
Sjá einnig
íþróttir
á bls. 33
í KVÖLD fara fram tveir leikir í
1. deildar keppni Islandsmótsins
í handknattleik.
Eru það leikir FH og Armanns
og Víkings og Hauka og hefjast
þeir í iþróttahúsinu í Hafnarfirði
kl. 20.15.
Leikir þessir áttu að vera á
sunnudagskviildið, samkvæmt
mótabók, en þann dag verður hins
vegar iþróttahátíð skólanna f
Hafnarfirði og forráðamenn
keppninnar treysta ekki á að
komast nægjanlega snemma inn f
húsið.
Fram
Aðalfundur Handknattleiks-
deildar Fram verður haldinn í
Glæsibæ, uppi, á morgun og hefst
fundurinn klukkan 14.30.