Morgunblaðið - 15.03.1974, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1974
39
— Kosið
Jónas og Hrafn við nokkrar teikningar sfnar.
Sýning á teikningum
í Breiðfirðingabúð
TVEIR sjálflærðir myndlistar-
menn hafa nú opnað málverka-
sýningu 1 vistarverum sínum í
Breiðfirðingabúð. Þeir eru Jónas
E. Svafár og Hrafn Helgi og er
sýning þeirra opin frá kl. 14—16
alla daga.
Jónas er öllu kunnari sem ljóð-
skáld en teiknari, en þó hefur
hann gefið út þrjár bækur með
eigin myndskreytingum. Fimm
mynda hans verða á myndlistar-
sýningu, sem hefst í Kaupmanna-
höfn 29. marz. Á sýningunni í
Breiðfirðingabúð eru hins vegar
15 endurprentanir og þar af sex.
sem ekki hafa áður birzt í bók.
Myndirnar eru áritaðar af höf-
undi, verð hverrar er frá 1300
upp í 2000 krónur, og upplag
hverra myndar er að meðaltali
um 20 eintök.
Hrafn Helgi hefur aldrei sýnt
áður. Hann mun eiga fjórar
myndir á myndlistarsýningu
þeirri, sem hefst nú i Kaup-
mannahöfn í lok þessa mánaðar
og fara mun um öll Norðurlönd.
Hrafn Helgí selur engar frum-
myndir, en eftirprentanir eru til
sölu á sýningunni. Verð mynd-
anna er frá kr. 800—1300.
Þotan slapp við
tafir á Kastrup
SKYNDIVERKFALL var gert á
Kastrupflugvel li í gærmorgun og
lá öll starfsemi þar niðri fram
eftir degi. Morgunblaðið hafði í
— Dýralæknar
Framhald af bls. 2
herbergi Hótel Esju verið tekin á
leigu, 100 herbergi á Hótel Loft-
leiðum, 40 herbergi á Hötel Garði,
15 til 20 herbergi á Hótel Sögu, 15
herbergi á Hótel Holti og 15 á
Hótel Borg. Þá hefur Ferðaskrif-
stofa Zoéga Gity Hótel á leigu
þennan tíma. Þá sitja og dýra-
læknar í fyrirrúmi með herbergi
á vegum flugfélaganna úti í borg-
Mótið verður sett í Háskólabíói
og munu forsetahjónin verða þar
viðstödd. Þar mun formaður
Dýralæknafélags Islands, Brynj
ólfur Sandholt, flytja ávarp og
landbúnaðarráðherra opnar mót-
ið. Á meðan á mótinu stendur
munu þátttakendur fara i tvær
ferðir, til Bessastaða og Krísu-
víkur og aðra ferð til Þingvalla,
Gullfoss og Geysis með viðkomu i
Hveragerði i bakaleið.
Fýrir utan fræðileg erindi um
starf dýralækna, dýrasjúkdóma
og annað, verður og fluttur er-
mdaflokkur um framhaldsmennt-
un dýralækna og hvað er til úr-
bóta í þeim efnum á Norðurlönd-
um. Er þetta fyrsta sinn, sem
þeim málum er hreyft á þessum
vettvangi og hvað unnt sé að gera
með samstilltu átaki allra dýra-
lækna á Norðurlöndum. Þá verð-
ur í mótslok ailsherjarfundur um
ýmsar skipulagsbreytingar, er
varða dýralækna.
Guðbrandur Hlíðar dýralæknir
sagði i gær, að ekki væri enn ljóst,
hve margir kæmu til íslands
vegna mótsins, og ef til vill yrðu
einhver forföll, vegna þess hve
miklu dýrara er nú og verður i
sumar að sækja ísland heim en
það var á síðastliðnu sumri, er
könnunin á þátttöku var gerð. Þó
sagði hann, að hann teldi víst, að
700 til 800 manns myndu koma
hingað vegna mótsins.
gær samband við Svein Sæmunds-
son blaðafulltrúa Flugfélags ís-
lands h.f. til þess að spyrjast fyrir
um, hvort einhverjar tafir hefðu
orðið á áætlunarflugi félagsins til
Kaupmannahafnar af þessum
sökum.
Sveinn sagði, að verkfallið
hefði komið eins og þruma úr
heiðskýru lofti og allt starf i flug-
stöðinni hefði lamazt. Hins vegar
hafði deila sú, er verkfallinu olli,
leystst, er þota Flugfélagsins lenti
þar og var hún með fyrstu þotun-
um, sem lentu, er verkfallinu var
aflýst. Varð þotan því ekki fyrir
neinum töfum af þessum sökum.
Víkingur
AÐALFUNDUR Handknattleiks-
deildar Víkings verður haldinn
föstudaginn 22. marz nk. og hefst
klukkan 20.30 í Vikingsheimilinu
við Hæðargarð.
Framhald af bls. 2
Listi vinstri manna við kosning-
ar til Stúdentaráðs er:
1. Sigurður Tómasson islenzku-
nemi
2. Arnlín Óladóttir læknanemi
3. Jón Sigurjónsson liffræðinemi
4. Gylfi Kristinsson laganemi
5. Elisabet Berta Bjarnardóttir
norsku- og þýzkunemi
6. Lára Júlíusdóttir laganemi
7. Atli Arnason læknanemi
8. Ævar Kjartansson þjóðfélags-
fræðinemi
9. Knútur Árnason eðlisfræði-
nemi
10. Sigurjón Benediktsson tann-
læknanemi
11. Halldór Árnason verkfræði-
nemi
12. Mörður Árnason islenzkunemi
13. Örn Gústafsson viðskipta-
fræðinemi
14. Gestur Guðmundsson þjóð-
félagsfræðinemi
15. Páll Stefánsson líffræðinemi
16. Þorsteinn Gunnarsson sál-
fræðinemi
17. Einar Már Sigurðsson guð-
fræðinemi
18. Sveinn Rúnar Hauksson
læknanemi
19. Áskell Kárason sálfræðinemi
20. Ingimar Ingimarsson heim-
spekinemi
21. Gunnlaugur Stefánsson þjóð-
félagsfræðinemi
22. Guðlaugur Ellertsson við-
skiptafræðinemi.
23. Gestur Jónsson laganemi
24. Garðar Mýrdal eðlisfræðinemi
25. Jóhann Tómasson læknanemi
26. Halldór Ármann Sigurðsson
íslenzkunemi.
— Útseld vinna
Framhald af bls. 40
10,7%, en í smásölu 22% og
kostar hluturinn núna 135,05
krónur, hækkunin nemur þá 3,05
krónum eða2,3%.
Framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtaka Islands, Magnús
E. Finnsson, sagði í viðtali við
Mbl. í gær, að þessi hækkun á
álagningu hefði hvergi bætt úr
þeim vanda, sem verzlunin stæði
frammi fyrir. Þessi hækkun bætti
ekki einu sinni það tveggja ára
tímabil, sem stjórnvöld hefðu
daufheyrzt við óskum um úrbæt-
ur, hvað þá að hún bætti kaup-
mönnum þá byrði, sem kjara-
samningarnir legðu á þá. Sagði
Magnús, að augljóst væri, að
kaupmenn þyrftu að draga úr
þjónustu við neytendur tilþess að
geta staðið undir auknum
reksturskostnaði. Veltuaukning
þessi 2 ár hefði ekki orðið það
mikil, að hún gæti staðið undir
auknum reksturskostnaði
verzlunarfyrirtækja.
Stórkaupmenn og smásölukaup-
menn voru með félagsfundi i gær
í sitt hvoru félaginu, þar sem m.a.
var fjallað urn þessi viðbrögð
stjórnvalda — en eins og kunnugt
er höfðu þau lofað kaupmönnum
við undirritun kjarasamning-
anna, að sjá kostnaðarauki, sem
af þeim stafaði, fengi að fara út í
verðlagið.
ATHUGASEMD FRA
VEGAMÁLASTJÓRA
VEGNA fréttar i Morgunblaðinu
þriðjudaginn 12. marz, sem höfð
er eftir Davíð Péturssyni bónda á
Grund í Skorradal um bilun brúar
á Andakílsá, óskar Vegagerð
ríkisins að koma á framfæri eftir-
farandi athugasemdum.
Þær dagsetningar, sem til-
greindar eru í fréttinni, hafa af
einhverjum orsökum skolazt mik-
ið til. Þannig er fyrst gert aðvart
til Vegagerðarinnar í Borgarnesi
um, að brúin sé að bila í lok
febrúar, en ekki í janúar eins og í
fréttinni segir, að síðara
timburokið undir brúnni bilaði 7.
marz, en ekki 7. febrúar.
Frá því að fyrst bárust fréttir af
skemmdum á brúnni leið því rúm
1 vika, unz áin tók hana. Á þeim
tíma komu starfsmenn Vegagerð-
arinnar í Borgarnesi 3svar á vett-
vang, og var það mat þeirra i öll
skiptin, að viðgerð á timburokun-
um undir brúnni væri ófram-
kvæmanleg vegna vatnavaxta.
Vatnsdýpi undir brúnni mun
hafa verið 2—3 m, straumur
þungur og mikils ísreks gætti á
köflum. Við aðstæður sem þessar
verður að telja, að það mat starfs-
manna Vegagerðarinnar, að ekki
væru möguleikar til viðgerðar sé
fyllilega raunhæft, þrátt fyrir
fullyrðingar Davíðs Péturssonar
um hið gagnstæða.
Gamla brúin verður lagfærð
strax og aðstæður leyfa, en nýja
brú á að byggja á Andaþílsá á
næsta ári samkvæmt vegaáætlun.
Sigurður Jóhannsson.
— Forsætisráð-
herra
Framhald af bls. 40
atkvæði gegn skattafsláttarkerf-
inu, þeir Björn Pálsson og Pálmi
Jónsson. Þá voru samþykktar ein-
róma breytingartillögur frá Vil-
hjálmi Hjálmarssyni, sem í aðal-
atriðum fólu í sér lagfæringar á
orðalagi frumvarpsins, og breyt-
ingartillaga frá Karvel Pálmasyni
o.fl. um að tryggja skuli eftir
föngum í reglugerð, að skattaf-
sláttar njóti ekki þeir, sem skatt-
lausir eru vegna afskrifta og ann-
arra hliðstæðra ástæðna. Voru 5
þingmenn andvígir þessari síðast-
greindu tillögu.
Þá var komið að þvf að greiða
atkvæði - um 5%-stiga sölu-
skattshækkunina. Fyrst kom til
atkvæða breytingartillaga Sjálf-
stæðisflokksins um, að söluskatt-
urinn yrði einungis hækkaður um
2%-stig. Sú tillaga var felld með
20:20. Þá var viðhaft nafnakall
um tillögu Alþýðuflokksins um
3‘A-stig. Var sú breytingartillaga
einnig felld 20:20. Var þá tillaga
ríkisstjórnarinnar um 5%-stiga,
söluskattshækkun borin upp. Bað
forseti þá, sem samþykkir væru,
að gefa merki. Björn Pálsson sat
með hendur í skauti. Vakti forseti
þá nánari athygli þingmanna á
því, hvaða tillögu væri verið að
greiða atkvæði um og bað menn
aftur um að gefa merki. Enn
hreyfðist ekki hönd Björns. „Nú
það er þá bezt að fá nafnakall,"
kallaði þá Lúðvík Þ. Jósepsson
sjávarútvegsráðherra. Forseti
varð við því og gaf Björn sig þá og
greiddi atkvæði með tillögu ríkis-
stjórnarinnar. Það dugði þó ekki
til og var söluskattshækkunin
felld á jöfnum atkvæðum, 20:20.
Næst var beðið um nafnakall
um tillögu sjálfstæðismanna um,
að l'/í% launaskattur í ríkissjóð
yrði felldur niður. Var sú tillaga
samþykkt með 21 atkvæði gegn 19
og greiddi Björn Pálsson þar at-
kvæði með stjórnarandstöðunni.
Að lokum kom til atkvæða-
greiðslu tillaga sjálfstæðismanna
um, að ríkisstjórninni yrði heimil-
að að lækka fjárveitingar á fjár-
lögum um allt að 1500 milljónir
kr. Skyldi þetta einnig taka til
fjárlagaliða, sem jafnframt eru
ákveðnir í öðrum lögum en fjár-
lögum. Var beðið um nafnakall
við þessa atkvæðagreiðslu. Þegar
kom að forsætisráðherra óskaði
hann eftir að fá að gera grein
fyrir atkvæði sínu. Sagðist hann
lfta á tillöguna sem svo einstæða
traustsyfirlýsingu við ríkisstjórn-
ina, að sjálfsagt væri að efri deild
fengi að fjalla um hana. Segði
hann þvi já.
Eysteinn Jónsson forseti sam-
einaðs þings óskaði einnig eftir að
fá að gera grein fyrir atkvæði
sínu. Kvað hann ríkisstjórninni
veitta hér víðtæka heimild til að
skera niður hvaða útgjöld, sem
væri. Einstætt væri, að þingið af-
salaði sér slíkum völdum í hendur
framkvæmdavalds og kynni að
leika á því vafi, hvort slíkt stæð-
ist. Segði hann því nei.
Gunnar Thoroddsen gerði einn-
ig grein fyrir atkvæði sínu og
sagði, að þessi tillaga væri eins
orðuð ug ákvæði í bráðabirgðar-
lögum núverandi ríkisstjórnar frá
sumrinu 1972, sem um haustið
hefðu verið lögð fyrir þingið.
Þetta væri því ekki einsdæmi, því
að fyrirmyndina mætti finna hjá
núverandi ríkisstjórn. Hins vegar
væri I nefndaráliti sjálfstæðis-
manna tekið fram, að gert væri
ráð fyrir, að fjárveitinganefnd
sameinaðs þings getði tillögur til
ríkisstjórnarinnar um niður-
skurðinn. Sagði Gunnar já.
Tillaga þessi var því samþykkt
með 22 atkvæðum gegn 18.
Þegar upp var staðið úr þessum
darraðardansi kom I ljós, að mis-
tök höfðu orðið, þegar 19. grein
frumvarpsins var samþykkt, því
að þar var gert ráð fyrir, að allar
fyrri breytingar á söluskattslög-
um væru úr gildi fallnar og sölu-
skatturinn orðinn eins og hann
var 1960. Til að leiðrétta þetta
flutti fjármálaráðherra breyting-
artillögu við 3. umræðu, sem fram
fór eftir að hlé hafði verið gefið I
15 mínútur. Var breytingartillaga
ráðherra samþykkt samhljóða.
Þá urðu forseta einnig á mistök
við atkvæðagreiðsluna, þegar
hann lét koma til atkvæða bráða-
birgðaákvæði, sem byggðust á
því, að söluskattshækkunin yrði
samþykkt. Gerðu þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins athugasemdir við
þetta, en forseti úrskurðaði, að
þær athugasemdir væru of sent
fram komnar og viðkomandi
bráðabirgðaákvæði því enn inni I
frumvarpinu.
Að lokum lýsti forseti þvi yfir,
að frumvarpið væri sent hæstvirt-
um forseta efri deildar til góðrar
fyrirgreiðslu, en eins og kunnugt
er hefur ríkisstjórnin meiri hluta
I þeirri deild og getur því breytt
frumvarpinu þar í fyrra horf. Ef
svo fer kemur frumvarpið aftur
til neðri deildar til einnar um-
ræðu, þar sem það verður borið
upp I heild til atkvæða I stað þess
að greidd séu sérstaklega atkvæði
um einstakar greinar þess eins og
var I gær. Þá verður stjórnarand-
staðan að fella frumvarpið I heild
til að koma I veg fyrir 5%-stiga
hækkun söluskattsins. Fari svo
halda núgildandi skattalög gildi
sínu I óbreyttri mynd.
— Golanhæðir
Framhald af bls.l
hafa sjálfir haldið því fram, að
Sýrlendingar hyggist reyna að
hertaka Golanhæðir á nýjan leik
og að þeir haf i rétt til að gera þær
ráðstafanir, sem þeir telji nauð-
synlegar til að hindra það.
Hernaðarsérfræðingar benda á,
að Israelar beiti gjarnan leiftur-
árásum að fyrra bragði til að
liindra fyrirætlanir and-
stæðinganna.
Það rennir stoðum undir þá
kenningu, að Israelar hugsi sér til
hreyfings, að þeir hafa nú í fyrsta
skipti viðurkennt að hafa orðið
fyrir mannfalli I Golanhæðum
siðan síðustu bardagar hófust.
Þeir sögðu, að þrír hermenn
hefðu særzt. Hins vegar vildu þeir
ekkert segja um fullyrðingar
Sýrlendinga um, að þeir hefðu
eytt þrem ísraelskum skriðdrek-
um og sprengt vopnabúr í loft
upp.
Israelskir talsmenn hafa líka
haft á orði, að aðgerðir
Sýrlendinga kunm að vera upp-
háfið á nýju þreytustriði. Þess er
þá að minnast, að bundinn var
endi á þreytustríðið, sem Nasser
hugðist heyja á sínum tima, með
stórfelldum og áhrifamiklum
leiftursóknum langt inn í Egypta-
— Leikir unga...
Framhald af bls. 33
C-riðill. KR 3 3 0 0 32—22 6
ÍBK 3 2 1 0 20—16 5
HK 4 12 1 29—29 4
Grótta 3 0 1 2 19—27 1
Selfoss 3 0 0 3 25—31 0
2. flokkur kvenna
A-riðiil. Fram 7 6 0 1 57—11 12
Ármann 7 6 0 1 40—23 12
Valur 7 5 1 1 36—15 11
Þróttur 7 4 1 2 34—25 9
Grótta 7 2 1 4 28—33 5
IR 7 1 1 5 22—43 3
UMFN 7 1 1 5 22—47 3
IA 7 0 1 6 30—50 1
B-riðill. FH 7 7 0 0 57—11 14
Fylkir 7 4 2 1 33—22 10
Haukar 7 3 2 2 34—32 8
IBK 7 3 2 2 25—29 8
KR 7 3 0 4 27—30 6
Stjarnan 7 2 1 4 28—43 5
Breiðablik 7 1 1 5 19—38 3
Víkingur 7 1 0 6 17—26 1
3. flokkur kvenna.
A-riðill Ármann 5 5 0 0 23— 5 10
Fram 5 3 0 2 30—21 6
Víkingur 5 2 1 2 24—14 5
KR 6 2 1 3 23—17 5
FH 5 2 1 2 19—17 5
Grótta 5 2 1 2 20—19 5
Breiðablik 5 0 0 5 9—50 0
B-riðill. Þróttur 4 4 0 0 28— 8 8
Valur 5 3 2 0 26—14 8
Haukar 5 3 1 1 19— 9 7
IBK 4 2 0 2 20—27 4
ÍR 5 0 2 3 16—27 2
UMFN 4 0 2 2 5—17 2
Fylkir 5 0 1 4 8—20 1
— PG 1 .