Morgunblaðið - 15.03.1974, Qupperneq 40
Söguleg at-
kvæðagreiðsla:
Forsætisráðherra með
st j órnar andstö ðunni!
Eins og skýrt var frá í MbL í fyrradag
hefur sovézkum flugvélum enn á ný ver-
ift veitl lendingarleyfi vegna flutninga
milli Kúbu og Sovétríkjanna.
Sóttu sovézk yfirvöld um lendingar-
leyfi eins og fyrr og fengu leyfL Myndin
er tekin f gær og sý'nir hinar sovézku
risavélar á Kef lavíkurf lugvelll
□ Tillaga ríkisstjórnarinnar um 5% hækkun á söluskatti var felld á
fundi neðri deildar aðfararnótt fimmtudags. Féll tillagan á jöfnum
atkvæðum, 20:20. Þá voru tvær af breytingartillögum sjálfstæðis-
manna við frumvarpið samþykktar. 1 fyrsta lagi var tillaga um, að
1!4% launaskattur, sem lagður hefur verið á frá verðstöðvun 1970 og
runnið hefur f ríkissjóð, verði felldur niður. Greiddi Björn Pálsson
þingmaður Framsóknarflokksins tillögu þessari atkvæði auk stjórnar-
andstöðunnar, og var hún þvf samþykkt með 21 atkvæði gegn 19.
t öðru lagi var tillaga sjálfstæðismanna um niðurskurð útgjalda
f járlaganna um 1500 milljónir samþykkt með 22 atkvæðum gegn 18 og
voru það Björn Pálsson og forsætisráðherra Ólafur Jóhannesson, sem
þar komu til liðs við stjórnarandstöðuna.
Óhætt er að segja, að fundur
neðri deildar aðfararnótt fimmtu-
dagsins sé einhver sögulegasti
þingfundur, sem sögur fara af.
Var svo að sjá sem stjórnarand-
staðan hefði heldur meiri þing-
styrk í deildinni en ríkisstjórnin,
þar sem Björn Pálsson reyndist
rfkisstjórninni en óþægur ljár í
þúfu. Þá vakti mikla athygli að
forsætisráðherrann greiddi at-
kvæði með stjórnarandstöðunni
Hækkar
pylsan í
65 krónur?
PVLSUR með tómat og
sinnepi í söluturnum borgar-
innar hafa verið seldar á 50
krónur undanfarið. Nú hefur
verið auglýst hækkun á unn-
um kjötvörum og hafa
pylsurnar hækkað um 22%.
Mbl. spurði í gær einn af
pylsusölueigendum borgarinn-
ar, Jón Hjaltason, að því, hve
mikið ein pylsa myndi kosta
eftir hækkunina og sagðist
hann telja, að hún yrði á bil-
inu frá 60 til 65 krónur. Þó
munu pylsusölueigendur ekki
ætla að hækka fyrr en Ijóst er,
hver söluskatturinn verður og
hækka þá í einu lagi — í stað
þess að hafa tvær hækkanir
með fárra daga millibili. Jón
sagði, að verð veitingahúsanna
væri nú einnig allt að hækka
um 20%, eða þar um bil.
Nefndi hann sem dæmi, að
hamhorgari, sem kostað hefði
130 krónur, kostaði nú um 160
krónur.
um þá tillögu, sem að framan get-
ur. Verður hér rakinn gangur at-
kvæðagreiðslna.
Fyrst var borin undir atkvæði
tillaga sjáfstæðismanna um sér-
sköttun hjóna. Var hún felld með
jöfnum atkvæðum, 20:20. Svo fór
einnig, um ýmsar aðrar tillögur
sjálfstæðismanna, svo sem tillög-
ur um aukinn frádrátt vegna
heimilisstofnunar og hækkanir á
öðrum frádráttarliðum. Eins fór
um tillögur flokksins um hækkun
persónufrádráttar, lækkun álagn-
ingarprósentu og hækkun skatt-
stiga, svo og tillaga um, að skatt-
vísitala skuli ákveðin af kauplags-
nefnd ár hvert í samræmi við
breytingar á almennum launa-
tekjum.
Að felldum þessum breytingar-
tillögum voru tillögur ríkisstjórn-
arinnar um lækkun tekjuskatts-
ins og skattaafsláttarkerfi sam-
þykktar. Greiddu tveir þingmenn
Framhald á bls. 39
Skipaður
umboðs-
dómari
Dómsmálaráðuneytið skipaði i
gær Harald Henrysson sakadóm-
ara í Reykjavík til að vera
umboðsdómari í máli fjögurra
manna, sem voru útgefendur
og/eða framseljendur að inn-
stæðulausum ávisunum að upp-
hæð 10 milljónir króna, sem fram
komu við skyndikönnun Seðla-
bankans á innstæðulausum ávís-
unum í síðustu viku.
' v.
' ° ~~ yp jjv .
ö "A" - : ' o
• ..... . . —
Útflutningsuppbætur
teknar upp að nýiu
RlKISSTJÓRNIN mun verðbæta
útflutning á lagmeti og ullar- og
prjónavörum til Sovétríkjanna
samkvæmt nýgerðum sölusamn-
ingum Sölustofnunar lagmetis-
iðnaðarins og Sambandsins við
Sovétríkin. Nema þessar útflutn-
ingsbætur tugum milljóna króna,
eða milli 15 og 20% af samnings-
upphæðinni.
Samningurinn milli lagmetis-
iðnaðarins og Sovétmanna hijóðar
upp á 110 milljónir króna, miðað
við núverandi gengi. Hins vegar
hafa verkmiðjur lagmetisiðnaðar-
ins talið 128 milljón króna samn-
ingsupphæð lágmarksforsendu
þess, að þær sjái sér fært að fram-
leiða upp í þessa samninga. Ríkis-
stjórnin mun nú hafa gefið fyrir-
heit um að greiða það, sem á
vantar, til að þessari lágmarks-
upphæð verði náð, eða samtals
um 18 milljónir króna.
Rikisstjórnin mun hafa gefið
Sambandi Isl. samvinnufélaga
áþekk fyrirheit vegna sölusamn-
inga þess við Sovétríkin á ullar-
og prjónavörum. Eins og greint
var frá í blaðinu í gær var f fyrra-
dag undirritaður hér samningur
um sölu á 140 þúsund Heklupeys-
um og 60 þúsund Gefjunartepp-
um til Rússlands og er verðmæti
samninganna rúmar 160 milljónir
króna. HinS vegar tókst Morgun-
blaðinu ekki að afla upplýsinga
um, hversu miklar verðbætur iðn-
aðardeild SÍS telur sig þufa til að
geta framleitt upp i þessa samn-
inga, en þær munu þó vera sízt
lægri en innan lagmetísiðnaðar-
ins.
Eftirvmnubann
Útseld vinna bílaverk-
stæða hækkar um 42%
EINS OG fram hefur komið í
fréttum er nú hafin mikil verð-
hækkunarskriða, sem enginn sér
fyrir endann á. I gær var þess
getið, að verðlagsnefnd hefði I
fyrradag samþykkt hækkanir til
hinna ýmsu smiðja og verkstæða.
Lætur nærri, að þessi hækkun sé
um 42% á útseldri vinnu flestra
smiðja og verkstæða, t.d. bifreiða-
verkstæða, og verður hver vinnu-
stund nú hátt á áttunda hundrað
krónur.
Hækkunin er þó minni eða tæp-
lega 30% í þeim járnsmiðjum, þar
sem eingöngu er unnið við ný-
smíði. Stafar þetta af því, að járn-
iðnaðarmenn fengu 10% álag
fyrir viðgerða- og þungavinnu, en
talíð er, að um 80% járniðnaðar-
manna séu í þeim hópi sem þetta
álag fær. Þá má og gera ráð fyrir
því, að hlutfallið 80% hækki, er
fram líða stundir.
Verðlagsstjóri, Kristján Gísla-
son, gat ekki gefið Mbl. upp i gær
einstakar hækkanir útseldrar
vínnu meðal hinna ýmsu smiðja
og verkstæða, þar sem útreikning-
um var enn ekki að fullu lokið. Þó
sagði Kristján, að 42% hækkun
væri mjög nærri lagi hjá þeim
flestum. Þá ber og að geta þess, að
nokkur hluti þessara hækkana
stafar af hækkun visitölu kaup-
gjalds, en meginhækkunin er þó
vegna kjarasamninganna, sem ný-
lega voru undirritaðir, en þar
fengu iðnaðarmenn að meðaltali
um 38% kauphækkun eins og áð-
ur hefur komið fram.
0 Ekki nægileg hækkun
fyrir kaupmenn
Þá hefur álagningarhækkun
heildsala og smásala, sem var
einnig heimiluð í fyrradag, áhrif
á allt verðlag í landinu, þótt það
sé raunar ekki eins verulegt
Taka má dæmi um hlut.sem kost
ar í innkaupi 100 krónur, í heild
sölu var álagning 10%, en í
smásölu 20%, og kostaði
hluturinn 132 krónur áður en
hækkunin fékkst fram. Verðlags-
nefnd leyfði 7% hækkun i heild-
sölu og 10% hækkun í smásölu.
Er álagningin þá í heildsölu
Framhald á bls. 39
GRAFlSKA sveinafélagið, félag
offsetprentara og prentmynda-
smiða, hefur boðað eftirvinnu-
bann frá og með deginum í dag.
Jafnframt fer nú fram allsherjar-
atkvæðagreiðsla innan félagsins
um boðun vinnustöðvunar og
stendur hún yfir til klukkan 16 í
dag.
Grafíska sveinafélagið hefur
haft lausa samninga frá 1. nóvem-
ber síðastliðnum og hafa síðan þá
verið haldnir allmargir samninga-
fundir, en án árangurs. Síðasti
samningafundur deiluaðila var
haldinn á þriðjudag. Grafiska
sveinafélagið hafnaði boði Félags
islenzka prentiðnaðarins á siðasta
samningafundi.
Þá má geta þess að Hið íslenzka
prentarafélag hefur boðað til
félagsfundar í dag, þar sem rætt
verður um tilboð Félags prent-
smiðjueigenda um kauphækkuri.
Þessi tvö félög bokagerðarmanna
voru ekki með í heildarkjara-
samningunum, sem undirritaðir
voru hinn 26. febrúar síðastlið-
inn, enda er Grafiska sveinafélag-
ið ekki aðili að Alþýðusambandi
íslands.
Samþykktu
samningana
SMASÖLUKAUPMENN og
heildsalar samþykktu í gær-
kvöldi kjarasmaningana, en
áður höfðu þeir frestað
ákvörðun um samþykkt þeirra
á grundvelli þess, að þeir vildu
fyrst sjá, hvað efnt yrði af lof-
orðum stjórnvalda um að velta
kostnaðarhækkunum af kjara-
bótunum út f verðlagið. Á
fundi Kaupmannasamtakanna
urðu miklar umræður um að
draga úr reksturskostnaði
verzlana, t.d. með þvi að loka
þeim á laugardögum. Stór-
kaupmenn samþykktu
samningana á fundi sinum
með 32 atkvæðum gegn 6. Á
eftir var haldinn aðalfundur
Félags íslenzkra stórkaup-
manna, en af þeim fundi tókst
Mbl. ekki að afla frótta í gær-
kvöldi.