Morgunblaðið - 19.03.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
VilíB liía
Stódentaráð
helga sig
íagsmnnnm
liskólans?
A -Listi
Listi VÖKU
SKIPIN FYI.I.A SIG
vm ÖNDVERÐARNES
Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Islands og I sæti stúdenta f Háskólaráði fara fram á morgun
og verður kosið í anddyri Félagsstofnunar stúdenta kl. 09—18. Nú er sú breyting gerð á tilhögun
kosninganna, að ekki eru kosnir fulltrúar fyrir deildirnar, heldur er kosið milli tveggja lista
hlutfallskosningu. Listarnir eru A-listi Vöku, lýðræðissinnaðra stúdenta, og B-Iisti vinstri manna.
— Myndin er af tveimur auglýsingaspjöldum Vöku. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
MJÖG mikil loðnuveiði hefur ver-
ið úti af Öndverðarnesi undan-
farna sólarhringa. Frá miðnætti
fram til kl. 21 í gær tilkynntu alls
32 skip um afla, yfirleitt full-
fermi, samtals 8.840 lestir. Héldu
þau langflest með hann til Vest-
mannaeyja, en þar var nóg þróar-
rými. Hins vegar var þróarrými
þrotið í Faxaflóahöfnum. Mestan
afla I gær hafði Faxaborg, 570
lestir. Mikið af loðnunni var til-
valið til frystingar.
A laugardag var tilkynnt um
12.100 lesta afla og á sunnudag
um 11.885 lestir. Með stærstu
farma á sunnudag voru Sigurður,
með 910 lestir, og Börkur, með
850 lestir. Börkur hélt með af lann
til Bolungarvíkur, en tók niðri
þar í innsiglingunni i gær, þar
sem hann risti svo djúpt með
farminn. Skipið losnaði þó fljót-
lega aftur og hélt þá út aftur,
áleiðis til hafnar á SV-landi. Ekki
var vitað hversu miklar skemmd-
ir höfðu orðið, en að lfkindum
þarf Börkur að fara i slipp, þegar
Samnínganefnd launþega hjá
ISAL var trú stefnu ASI...
HERMANN Guðmundsson, for-
maður Verkamannafélagsins
Hiífar í Hafnarfirði, er formaður
samninganefndar verkalýðsfélag-
anna, sem samið hefur við Is-
lenzka álfélagið. t viðtali við Mbl.
fyrir nokkrum dögum sagði
Eðvarð Sigurðsson, að m.a. samn-
ingarnir við tSAL hefðu haft það
í för með sér, að ekki var unnt að
setja þak f vfsitöluna. Mbl. spurði
Hermann hvað hann vildi segja f
tilefni þessara ummæla Eðvarðs.
Hermann sagði, að hann sæi
ekki hvaða tilgangi það þjónaði,
að tengja samningana í Straums-
vfk við orsakir þess, að fallið var
frá yfirlýstri stefnu Alþýðusam-
Prófkjör
á Eskifirði
A LAUGARDAG fór fram á
Eskifirði prófkjör um skipan
framboðslista sjálfstæðismanna
við komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar. 62 greiddu atkvæði 1 próf-
kjörinu, eða um 50% miðað við
kjörfylgi lista sjálfstæðismanna 1
sfðustu kosningum, en þá fékk
listinn 122 atkvæði.
í fimm efstu sætunum urðu:
atkvæði.
1. Guðmundur A. Auðbjörnsson
málarameistari 53.
2. Gísli Einarsson fulltrúi 49.
3. Georg Halldórsson
tollvörður 37.
4. H iörvar Ó. Jensson
bankamaður 26.
5. Herdís Hermóðsdóttir
húsmóðir 25.
bandsins, sem mörkuð var á
kjaramálaráðstefnu ASt 1 Reyk-
holti. Hermann sagði það vera
Ijóst, að vfsitalan hefði valdið
misrétti f launum. Þá vissu
það allir, að ekki var möguleiki
á samstöðu innan 30—manna-
nefndar ASt um þak á vfsi-
töluna. Hins vegar kvað hann
öllum Ijóst, að eftir að 30 manna
nefnd ASt hafði samþykkt
tilboðið 8% + 1.200 krónurn-
ar, hafi komið afturkippur f
samningagerðina, sem m.a. olli
því, að undirskrift samninganna
tafðist í 12 klukkustundir. Var þá
samið við iðnaðarmenn um auka-
kröfur og fengu þeir þá sérstakt
álag, sem misjafnt var eftir félög-
um, en þó hvergi minna en 10%.
Hermann Guðmundsson benti
á, að hvergi á íslandi væri jafnlít-
ill launamismunur milli verka-
manna og iðnaðarmanna og ein-
mitt hjá ISAL, enda hefði mark-
visst verið unnið að því, að jafna
þau kjör, sem þar væru hjá starfs-
fólki álversins. Þegar samningar
við álfélagið voru fyrst gerðir, var
bilið milli þeirra hæstlaunuðustu
og þeirra lægstlaunuðustu um
100%. í næstu samningum, sem
gerðir voru, varbilþetta minnkað
í 73% og við samningana 1972 fór
þessi mismunur f 53%. Sagði
Hermann, að samninganefnd
verkalýðsfélaganna, sem samið
hefði við ISAL, hefði verið eina
samninganefndin, sem hefði á
Framhald á bls. 31
Úrslitin voru ekki bindandi. 1
síðustu kosningum fengu sjálf-
stæðismenn tvo menn kjörna af
sjö, Guðmund Auðbjörnsson og
Herdísi Hermóðsdóttur.
Bindandi úrslit próf-
kjörs 1 Hveragerði
Engin ný raforku
ver í þrjú ár
A SUNNUDAG fór fram 1 Hvera-
gerði prófkjör um skipan fram-
boðslista sjálfstæðismanna við
komandi sveitarstjórnarkosning-
ar og urðu úrslit prófkjörsins
bindandi varðandi fimm efstu
sæti iistans. Hafði verið ákveðið,
að þau yrðu bindandi, ef atkvæði
greiddu fleiri en sem næmi 30%
af kjörfylgi sjálfstæðismanna í
sfðustu sveitarstjórnarkosning-
um í Hveragerði. Þá fékk listinn
164 atkvæði, en f prófkjörinu
greiddu atkvæði 79 manns, eða
48,1%.
Ellefu efstu menn í prófkjörinu
urðu.
stig.
1. Hafsteinn Kristinsson, 207
2. Hans Christiansen 129.
3. Friðgei r Kristjánsson 126.
4. Svavar Hauksson 95.
5. Sveinbjörg Steinþórsdóttir 65.
6. Oddgei r Ottesen 54.
7. Sigurður Pálsson 50.
8. Hallgrímur Egilsson 49.
9. Ingólfur Pálsson 46.
10-11. Bragi Einarsson og
Jóna Einarsdóttir 45.
Sjálfstæðismenn fengu í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum
þrjá menn kjörna af fimm, en
enginn þeirra þriggja gaf kost á
sér að þessu sinní. Ólafur Steins-
son, oddviti, hafði setið í sveitar-
stjórn í 12 ár, þar af sem oddviti í
átta ár, og Stefán Magnússon og
Georg Miehelsen höfðu setið I
sveitarstjórn í átta ár.
1 SKVRSLU rafmagnseftirlits
rfkisins, sem er nýkomin út, segir
Jón A. Bjarnason, f formála:
Skýrsla sú, sem hér birtist um
rafveitur á íslandi og miðast við
árslok 1972, er í sama formi og
síðasta skýrsla, sem miðaðist við
1969. Engin ný raforkuver hafa
bætzt við á þessu þriggja ára
tímabili, og ef undan er skilin
Búrfellsvirkjun, eru breytingar á
vélaafli f orkuverum naumast
teljandi.
I undirbúningi eru tvær meiri
Allmörg tilboð 1
Viðlagasjóðshús
KLUKKAN 17 á föstudaginn
rann út frestur til að skila tilboð-
um í þau 48 timburhús, sem Við-
lagasjóður hafði auglýst til sölu á
ýmsum stöðum sunnan- og suð-
vestanlands. Að sögn Hallgríms
Sigurðssonar, skrifstofustjóra
sjóðsins, voru komin þó nokkuð
mörg tilboð í gær, en ákveðið
hafði verið að taka gild þau tilboð,
sem póstlögð hefðu verið fyrir kl.
17 á föstudag, þótt þau væru enn
ekki komin til sjóðsins í gær. Var
heildarfjöldi tilboðanna því enn
óljós. Kvaðst Hallgrímur ekki
telja rétt að skýra frá tilboðafjöld
anum fyrr en stjórn Viðlagasjóðs
hefði fjallað um þau, en næsti
stjórnarfundur verður væntan-
lega haldinn í þessari viku eða í
síðasta lagi þriðjudaginn 26. marz
nk. Helgi Bergs, formaður
stjórnarinnar, hefur verið
erlendis að undanförnu.
háttar vatnsvirkjanir, Sigöldu-
virkjun 150 mw og Lagarfoss-
virkjun 7,5 mw. Áætlað er, að
Sigölduvirkjun verði tekin i notk-
un síðari hluta árs 1976 og Lagar-
fossvirkjun 1975.
Veigamestu breytingar á að-
flutningslínum (háspennulínum)
hafa orðið þær, að ný 220 kw lfna
var lögð frá Búrfellsvirkjun að
Hvolsvelli og 30 kw lína var lögð
frá Laxárvatnsvirkjun í Húna-
vatnssýslu að nýjum greinivirkj-
um f Vatnsdal og 19 kw línur
þaðan um Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu. En meiri og
minni breytingar hafa orðið á
háspennudreifikerfum ýmissa
rafveitna.
Aframhaldandi rafvæðing
dreifbýlisins frá almenningsveit-
um hefur haft i för með sér veru-
lega fækkun einkarafstöðva fyrir
sveitabýli og er sá kafli skýrsl-
unnar því töluvert fyrirferðar-
minni en áður.
Myndavél stolið
UM helgina var brotizt inn í
ibúðarherbergi við Brautarholt
og stolið svartri og krómlitaðri
Konica-myndavél og einnig rak-
vél og fleira. A myndavélina vant-
aði neðri hluta af leðurhulstrinu.
landað hefur verið úr honum. —
Heildarloðnuaflinn er nú yfir 423
þús. lestir.
ísfirðingar
samþykktu
FÉLAGSFUNDUR í Verka-
lýðsfélaginu Baldri á ísa-
firði á laugardag samþykkti
samningana, sem gerðir voru
fyrir þremur vikum milli ASI
og vinnuveitenda. Var þar með
afboðað verkfall það, sem
hafði staðið í tvo daga í
febrúar, en síðan verið frestað
um óákveðinn tíma.
Opnar Sigtún
um helgina?
„ÉG hafði ætlað mér að opna
nú um næstu helgi, en hins
vegar eiga ýmsar nefndir enn-
þá eftir að gefa samþykki sitt
fyrir opnun skemmtistaðarins,
þannig að ég veit ekki hvort af
þessu getur orðið,“ sagði Sig-
mar Pétursson veitingamaður,
er Mbl. spurði hann ( gær,
hvenær hann hyggðist opna
hinn nýja skemmtistað sinn
við Suðurlandsbraut. Staður-
inn, sem heita mun Sigtún
eins og sá skemmtistaður, sem
Sigmar rak lengi við Austur-
völl, hefur þó verið notaður að
undanförnu fyrir árshátfðir
ýmiss konar og félagsskemmt-
anir.
8 SLASAST
NOKKUR umferðarslys urðu I
borginni um helgina og þurftu
alls 8 manns að fara á slysa-
deild Borgarspítalans til að
láta gera að sárum sínum. Eng-
inn mun þó hafa slasazt alvar-
lega. Þrír meiddust, er bifreið
stórskemmdist í veltu á Norð-
urfelli í Breiðholti aðfararnótt
laugardags. Þrír meiddust, er
strætisvagn lenti aftan á bil-
aðri bifreið á Suðurlandsbraut
við Kringlumýrarbraut eftir
hádegi á laugardag. Stúlka
meiddist, er bifreið hennar
lenti á annarri á mótum Bú-
staðavegar og Grensásvegar á
sunnudagskvöldið og unglings-
stúlka meiddist, er hún varð
fyrir bifreið á Kleppsvegi, neð-
an Laugarásbíós, seint á
sunnudagskvöldið.
Varðarfundur
landsmAlafélagið
Vörður heldur fund í Súlnasal
Hótel Sögu I kvöld kl. 20:30.
Jónas Haralz bankastjóri flyt-
ur þar ræðu um horfurnar í
efnahagsmálunum.
RÆÐISMAÐUR
í HIRTSHALS
SKIPAÐUR hefur verið kjör-
ræðismaður fyrir Island í bæn-
um Hirtshals á Jótlandi. Hann
er Niels Jensen og ber stig
vararæðismanns.
Þrjú innbrot
á sama stað
BROTIZT var inn í hús Globus
h.f. við Lágmúla aðfararnótt
mánudags og stolið einhverju
af vindlingum. Nóttina á
undan hafði verið brotin rúða í
húsinu, sem bendir til þess, að
gerð hafi verið tilraun til inn-
brots f húsið. Helgina á undan
hafði einnig verið brotizt inn I
húsið.
M* l,
*.»•