Morgunblaðið - 19.03.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1SI74
3
Popphátíð í
Háskólabíói
NOKKRIR þekktustu popp-
hljómlistarmenn landsins
ásamt tólf aðstðarhljómlistar-
mönnum á biásturshijóðfæri og
slagverk munu koma fram á
hljómleikum, sem hefjast f Há-
skólabíói f kvöld klukkan 22.00.
Undirbúningsvinna vegna þess-
ara hljómleika hefur nú staðið
á þriðja mánuð og er þegar
ljóst, að tónleikarnir verða með
þeim umfangsmestu, er hér
hafa verið haldnir á þessu
sviði.
A hljómleikunum koma fram
hljómsveitirnar Brimkló,
Change og Hljómar og og svo
Jóhann G. Jóhannsson, sem sett
hefur á laggirnar sérstaka
hljómsveit fyrir þessa einu
hljómleika. Þessir aðilar munu
flytja nær eingöngu frumsamið
Jóhann G. Jóhannsson og Sigurður Rúnar ganga úr skugga um, að
hver nóta sé á réttum stað.
Hluti af hljómlistarmönnunum, sem koma fram á tónleikunum f kvöld. Mvndin er tekin á æfingu fyrir
tónleikana.
efni og fær hver um sig til
umráða um 40 mínútur. Þeim
til aðstoðar verða Magnús
Ingimarsson pfanóleikari,
Reynir Sigurðsson, sem leikur
á víbrafón, Elín Guðmundsdótt-
ir hörpuleikari, Arni Scheving,
sem leikur á enskt horn, vfbra-
fón og barintonsaxofón, Rúnar
Georgsson og Halldór Pálsson á
flautu og saxófón, og örn
Öskarsson og Sven Arve Hov-
land, sem leika á trompet. I
hljómsveit Jóhanns G. Jóhanns-
sonar verða tveir gamlir félag-
ar hans úr Öðmönnum, þeir
Finnur Stefánsson og Ólafur
Garðarson og auk þeirra
Sigurður Rúnar Jónsson, sem
annazt hefur útsetningar ásamt
Jóhanni á Iögum hans. Þá má
geta þess, að Hljómar mæta til
leiks með tvo trommuleikara og
mun Rafn Haraldsson lemja
húðirnar með hljómsveitinni
auk Engilberts Jensens.
Að sögn Edwards Sverrisson-
ar framkvæmdastjóra tónleik-
anna hefur mikil áherzla verið
lögð á alla skipulagningu og
verða hljómflutningstæki hin
fullkomnustu, sem völ er á hér-
lendis. Sagði Edward, að mikill
áhugi væri meðal hljómlistar-
mannanna sjálfra á að gera
þessa hljómleika sem bezt úr
garði og er það samróma álit
þeirra, að grundvöllur fyrir
áframhaldandi tónleikahaldi á
þessu sviði standi og falli með
því hversu til tekst í kvöld. Að
lokum gat Edward þess, að lita
mætti á þennan viðburð sem
þjóðhátíð þeirra popptónlistar-
manna, sem þarna koma fram,
framlag þeirra til hátíðarhalda
vegna 1100 ára afmælis Islands-
byggðar.
Ráðnir framkvæmdastjórar sam-
vinnutryggingafélaganna
STJÓRN Samvinnutrygginga,
Lfftryggingafélagsins Andvöku
og Endurtryggingafélags Sam-
vinnutrygginga hf. ákvað á fundi
sfnum f gær að ráða tvo fram-
kvæmdastjóra til félaganna, þá
Óskar H. Gunnarsson og Jón Rafn
Guðmundsson, en núverandi
framkvæmdastjóri, Asgeir
Magnússon, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavfkur. Um þetta
segir f fréttatilkynningu frá
félögunum:
Ásgeir Magnússon, lögfræð-
ingur, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga, Lfftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga hf. frá 1.
ágúst 1958 lætur af því starfi að
eigin ósk hinn 15. maf n.k. Eins og
komið hefur fram í fréttum,
hefur hann frá sama tíma verið
Óskar H. Gunnarsson
Jón Rafn Guðmundsson
ráðinn framkvæmdastjóri við
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Um leið og stjórnin þakkar
Ásgeiri vel unnin störf f þágu
félaganna, óskar hún honum vel-
farnaðar f nýju starfi.
Með tilliti til síaukinna umsvifa
i rekstri Samvinnutryggingafélag
anna þykir stjórn félaganna nú
eðlilegt, að framkvæmdastjórnin
verði framvegisí höndum tveggja
framkvæmdastjóra f stað eins
áður. Hefur stjórnin á fundi
sinum f dag ráðið eftirtalda menn
til þess að hafa á hendi fram-
kvæmdastjórn félaganna frá og
með 15. maí n.k. með verkaskipt-
ingu sem að neðangreinir:
Oskar H. Gunnarsson verður
framkvæmdastjóri Samvinnu-
Framhald á bls. 31