Morgunblaðið - 19.03.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
Fa
jj níi.t t v
'A lAlt"
22022-
RAUDARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
Tt 21190 21188
LOFTLEIÐIR
BiLALEIGA CAR RENTAlI
CM.KKHTM..
Hverfisgötu 18
86060
/p BÍLALEIGAN
V^IEYSIR
CAR RENTAL
***24460
í HVERJUM BÍL
PIOMŒŒR
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
HÓPFERÐABILAR
Til leiiju í )ei!«)ii oij skonmi
/erðir 8- 90 fiirþerjii bH.ii
KJARTAN
INGIMARSSON
Simi 86155 og 32716
Afgreiðsla B.S.I sími 22300.
FERÐABÍLAR HF.
Bilaleiga. -— Simi81260.
Fimm manna Citroen G
S station Fimm manna
Citroen G.S. 8 — 22
manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bilstjór-
um)
VELDUR,HVER
| SAMVINNUBANKINN
m
HELDUR
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodh
10CM
AUÐBREKKU 44- 46.
SlMI 42600.
RUGLVSincnR
#^-»22480
Rökin dæma
málstaðinn
t forystugrein Þjóðviljans á
sunnudaginn er því haldið
fram, að stjórnarandstaðan
beri á því ábyrgð, að frumvarp
ríkisst jórnarinnar um skatt-
kerfisbreytingu nær ekki fram
að ganga á Alþingi. Er talað um
málið í þeim tóni, að stjórnar-
andstaðan sé að ganga á gerða
samninga við verkalýðshreyf-
inguna og vilji ekki unna henni
þess, að tekjuskattar lækki.
Hér er um slikan endemis
þvætting að ræða, að hann er
varla svaraverður. Stjórnarand-
stóðuf lokkarnir hafa báðir
flutt tillögur á Alþingi um stðr-
fellda lækkun tekjuskatts. Þeir
hafa einnig lýst yfir ánægju
sinni með þá stefnubreytingu,
sem fram kemur hjá ríkis-
stjórninni með þessu frum-
varpi, þ.e.a.s. þeirri stefnu-
breytingu að skattleggja frem-
ur eyðsluna en verðmætasköp-
unina. Hins vegar hefur stjórn-
arandstaðan ekki viljað fallast
á, að ríkissjóði verði aflað stór-
aukinna tekna með auknum
skattaálögum um leið og þessi
breytingin er gerð.
t upplýsingum, sem sérfræð-
ingar ríkisstjórnarinnar hafa
lagt fram, segir, að innheimtur
tekjuskattur á árinu 1974 verði
4,1 milljarður ef frumvarp rfk-
isstjórnarinnar verður að lög-
um. í fjárlögunum er gert ráð
fyrir 5,8 milljörðum f tekju-
skatti. Tekjutapið er að sjálf-
sögðu munurinn á þessum töl-
um, 1,7 milljarður, og þar við
bætast svo 500 milljónir vegna
skattafsláttarkerfisins. Nú er
eðlilegt, að menn velti fyrir
sér, f hverju ágreiningurinn
um tölurnar er fólginn, en eins
og kunnugt er telur ríkisstjórn-
in ríkissjóð tapa 3,4 milljörð-
um.
1 forsendum fjárlaganna er
gert ráð fyrir 25—6% hækkun
á meðaltekjum milli áranna
1972 og 1973, en á þessum for-
sendum byggist áætlunin um,
hve mikill tekjuskattur muni
innheimtast á yfirstandandi
ári. I Ijós er komið, að þessi
forsenda var röng. Tekjurnar
hækkuðu milli ára um u.þ.b.
30%. Það er því komið í Ijós, að
tekjutapið vegna kerfisbreyt-
ingarinnar, þ.e. munurinn á
áætlun fjárlaganna og þvf, sem
fyrirsjáanlega mun innheimt-
ast ef frumvarpið verður að lög-
um, er mun minna en gera
mátti ráð fyrir, ef forsendur
fjárlaganna hefðu ekki verið
leiðréttar. Það hvarlar ckki að
ríkisstjórn hinna vinnandi
stétta að láta launþega njóta
góðs af þessu. Það er ríkissjóð-
ur, sem skal hirða kúfinn.
Það er svo eftir öðru hjá tals-
mönnum ríkisstjórnarinnar að
halda þvf fram, að stjórnarand-
staðan ráðist á launþega, þegar
hún neitað að fallast á, að enn
verði lagðar störfelldar álögur
á þessa sömu iaunþega. Slík
rök dæma málstaðinn.
Falsanir
I þessari sömu forystugrein
er þeirri beinu fölsun haldið
blákalt fram, að stjórnarand-
staðan hafi í neðri deild fellt
innheimtu launaskatts, sem
renna skvldi til húsnæðismála.
Það er furðulegt, að enn skuli
vera til menn hér á landi, sem
Ijúga svo hlákalt, þegar stjórn-
mál eru annars vegar. Hið
sanna í málinu er, að allir þing-
menn, e.t.v. að Birni Pálssyni
undanskildum, voru sammála
um að hækka framlag af launa-
skatti til Húsnæðismálastjórn-
ar úr 1% f 2%. Á hinn bóginn
hefur á undanförnum árum
verið innheimtur l‘/í% launa-
skattur beint í rfkissjóð. Þessi
skattur var lagður á í sambandi
við sérstakar ráðstafanir vegna
verðstöðvunar 1970. Honum var
hins vegar ekki létt af, þegar
verðstöðvun lauk haustið 1971,
en þá var vinstri stjórnin setzt
að völdum. Sjálfstæðisflokkur-
inn flutti breytingartillögu við
frumvarpið nú um, að þessi
tekjustofn rfkissjóðs yrði felld-
ur niður. Þessi tillaga var sam-
þykkt í neðri deild með 21 at-
kvæði gegn 19. Og nú falsar
Þjóðviljinn staðreyndir máls-
ins og segir, að stjórnarand-
staðan hafi ekki viljað auka
tekjur Byggingarsjóðs. Mikill
er málefnaskorturinn að þurfa
að grfpa til slíkra ráða.
spurt og svarað ! Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS1 Hringið í síma 10100 kl 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Les- endaþjónustu Morgunblaðs- ms
□ Hverjir fá
staðaruppbót?
Hjálmar Helgason, Hofs-
vallagötu 17, Reykjavfk spyr:
Hverjir fá staðaruppbót í
Vestmannaeyjum?
Hallgrfmur Sigurðsson skrif-
stofustjóri Viðlagasjóðs svarar:
Á fundi stjórnar Viðlagasjóðs
30. sept. 1973 var gerð sam-
þykkt um þessa staðaruppbót
og skyldi hún greidd öllum,
sem uppfylltu eftirtalin skil-
yrði:
1. Væru fullra 18 ára.
2. Hefðu verið búsettir i Vest-
mannaeyjum 22. jan. 1973 og
væru fluttir þangað búferlum
aftur, samkvæmt vottorði bæj-
aryfirvalda.
3. Gegndu ekki störfum utan
Vestmannaeyja.
Staðaruppbótin var frá 1. okt.
til 8. des. 2000 kr. á viku, frá 9.
des. til 2. febr. 1200 kr. á viku
óg frá 3. febr. til 16. marz 600
kr. á viku.
Q Ráðningar
í embætti
Þórður S. Gunnarsson, Berg-
staðastræti 80, Reykjavík, spyr:
„1. Ég hef veitt því athygli, að
nýr fulltrúi er tekinn til starfa
hjá borgarfógetaembættinu í
Reykjavík, þ.e. Jónas Thorodd-
sen, fyrrv. bæjarfógeti á Akra-
nesi. Ég spyr: Hvenær var um-
rætt fulltrúastarf auglýst laust
til umsóknar?
2. Auglýst hefur verið, að Jón
G. Kristjánsson, lögfræðingur,
hafi tekið við starfi skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings.
Hvenær var sú staða auglýst
laus til umsóknar?
3. Ásgeir Friðjónsson, fyrrv.
aðalfulltrúi lögreglustjórans f
Reykjavík hefur nú tekið við
starfi dómara f fíkniefnamál-
um. Hefur starf aðalfulltrúa við
embætti iögreglustjórans í
Reykjavík verið auglýst laust
til umsóknar?“
Baldur Möller ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu
veitti svör við liðum 1. og 3:
Jónas Thoroddsen vinnur
eingöngu lausastörf fyrir borg-
arfógetaembættið og því hefur
staðan ekki verið auglýst.
Starf aðalfulltrúans við emb-
ætti lögreglustjórans í Reykja-
vík var auglýst laust til um-
sóknar á sínum tíma, eftir að
Ásgeir Friðjónsson var skipað-
ur í embætti dómara í ávana- og
fíkniefnamálum. Hins vegar
hafði Asgeir um nokkurt skeið
verið settur í dómaraembættið,
en á meðan fengið lausn frá
aðalfulltrúastarfinu um óá-
kveðinn tíma og á þeim tíma
var það ekki auglýst laust til
umsóknar.
Samkvæmt upplýsingum
Jóns G. Tómassonar skrifstofu-
stjóra hjá Reykjavfkurborg var
starf skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings auglýst í dagblöð-
unum í byrjun nóvember sl.
Olympíuhlauparinn frá
Borgarnesi gerir víðreist
UNDANFARIÐ hefur leik-
flokkur á vegum U.M.F.S. sýnt
gamanleikinn Ólympluhlaupar-
ann eftir Derek Ber.field,
Leikstjóri er Kristján Jóns-
son og aðstoðarleikstjóri Freyja
Bjarnadóttir.
Níu bráðefnilegir áhugaleik-
arar fara með hlmverk í leikn-
um.
Leikurinn hefur þegar verið
sýndu fimm sinnum í borgar-
nesi og einu sinni í Búðardal, ^
við ágæta aðsókn og mikla
kátínu áhorfenda.
Ætlunin er að sýna leikinn á
Akranesi þriðjudaginn 19. þ.m.,
og tvær sýningar eru enn fyrir-
hugaðar í Borgarnesi. Enn-
fremur er ætlunin að sýna leik-
inn á Snæfellsnesi, og verður
það væntanlega um helgina 23.
og 24. þ.m. að Röst á Hellisandi
og að Lýsuhóli í Staðarsveit.
mmn gjjq-
TÍU vinsælustu lögin á Islandi samkvæmt útreikningum þáttarins
„Tíu á toppnum “:
1 (1) Kansas City ..................Les Humphries Singers
2 (2) How can it be.................................Slade
3 (3) Peacemaker .........................Albert Hammond
4 (5) Dark lady .....................................Cher
5 (8) Unborn child ..........................Seals&Crofts
6 (6) Eres tu ..................................Mocedades
7(4) Goodbye my love goodbye................Demis Roussos
8 (10) Star ................................Stealers Wheel
9 (—) Life goes on .................................Donovan
10 (—) Love’s theme..................Love Unlimited Orchestra
Af listanum féllu fimm lög: .
Ballroom blitz — Sweet (6)) Burn — Deep Purple (7), Tiger Feet
— Mud (9), Mockingbird — Carly Simon & James Taylor ( —) og
Stone County —Johnny Winter (—).
Nýju lögin fimm eru:
11 Boogie down ..............................Eddie Kendricks
12 Mighty love .....................................Spinners
13 Slamat djalan mas ...............................Hljómar
14 Livin'foryou ....................................A1 Green
15 Rock and roll hoochie koo .................Deeringer
Nokkur orð um lögin:
Lag Seals & Crofts er ádeila á fóstureyðingar. Hljóma-lagið er af
nýrri stórri plötu, „Hljómar ’74“, sem er að koma á markað. Nafn
þess er hebreska og þýðir víst „Megi ferð þín blessast, vinur”.
Höfundur lagsins er Rúnar Júlíusson. Hin nýju 1 ögin fjögur eru öl 1
af bandaríska listanum og gefa þeim fslenzka soul-keim. Rick
Derringer er greinilega í miklu áliti meðal tónlistarblaðamanna
erlendis, hann er raunar kunnur sem upptökustjórnandi hjá
Johnny Winter.