Morgunblaðið - 19.03.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
5
Frá aðalfundi Félags islenzkra stórkaupmanna. Árni Gestsson for-
maður samtakanna er f ræðustól. Ljósmynd Mbl. Öl. K.M.
„Geigvænleg hækkun
rekstrarkostnaðar
innanlands”
Stórkaupmenn vilja afnema
úrelt verðlagskerfi
Aðalfundur Félags stórkaup-
manna var haldinn að Hótel Loft-
leiðum fimmtudaginn 14. marz og
var mjög fjölsóttur. Cr stjórn
áttu að ganga Aðalsteinn Eggerts-
son, Ingimundur Sigfússon og
Sverrir Norland og þar sem allir
skoruðust undan endurkosningu
voru kjörnir I stjórnina Jón
Magnússon, Ölafur Kjartansson
og Rafn Johnson. Fyrir í stjórn
voru Árni Gestsson formaður,
Gunnar Kvaran, Jóhann J. Ölafs-
son og Kristján Þorvaldsson.
Fundurinn samþykkti nokkrar
ályktanir og eru þær birtar hér á
eftir.
t upphafi aðalfundarins
minntist Árni Gestsson látinna
félagsmanna, þeirra Egils Árna-
sonar, Jóns Bergssonar og Jóns
Heikbergs. Fundarstjórí var kjör-
inn Björgvin Schram stórkaup-
maður og fundarritari Jónas Þór
Steinarsson viðskiptafræðingur.
Þá flutti Árni Gestsson formaður
félagsins ítarlega skýrslu um
störf félagsins á sl. ári. Júlfus S.
Ölafsson framkvæmdastjóri birti
skýrslu um störf skrifstofu
félagsins, Sverrir Norland og
Guðmundur S. Guðmundsson
skýrslu um störf nefnda, Kristján
Þorvaldsson gjaldkeri gerði grein
fyrir reikningum félagsins, Jón
Jóhannesson flutti skýrslu um
starfsemi Iffeyrissjóðs verzlunar-
manna.
Ályktanir aðalfundar
F.Í.S. 1974:
Lánsfjármál.
Aðalfundur F.Í.S. 1974 vekur
athygli stjórnvalda og lánastofn-
ana á sífellt vaxandi rekstrarf jár-
skorti, sem orsakast af miklum
verðhækkunum erlendis og geig-
vænlegum reksturskostnaði
innanlands.
Aðalfundur F.Í.S. 1974, skorar
á viðkomandi yfirvöld að tryggja,
að þessi þýðingarmikla atvinnu-
grein geti annazt hlutverk sitt
framvegis sem hingað til með því
að rýmka um reglur vegna
erlends greiðslufrests og auka
innlenda lánsfjárfyrirgreiðslu
bankakerfisins.
Verðlagsmál.
Aðalfundur F.Í.S. 1974 beinir
þeirri eindregnu áskorun til ríkis-
stjórnarinnar, að hún afnemi hið
fyrsta hið úrelta verðlagskerfi,
sem þjóðin hefur búið við um
áraraðir og leyfi frjálsa verð-
myndun, eins og tíðkast i öðrum
me nni ngarlönd um.
Samstarfsmál.
Aðalfundur F.Í.S. 1974 lýsir
yfir ánægju sinni með það sam-
starf, sem skapazt hefur innan
verzlunarinnar, svo sem með
stofnun kjararáðs verzlunarinnar
og væntir þess, að framhald verði
á þessu samstarfi, ekki sizt með
tilliti til útbreiðslu- og hag-
ræðingarmáia.
Þá hvetur fundurinn til þess, að
undirbúningsstarfi vegna bygg
ingar húss verzlunarinnar verði
hraðað, svo sem kostur er.
Greiðslufrestur á
aðflutningsgjöldum
Aðalfundur F.Í.S. 1974 skorar á
fjármálaráðherra að heimila, að
veittur verði greiðslufrestur á
tollum innfluttra vara.
Fundurinn vekur athygli á þeirri
staðreynd, að ef greiðslufrestur
yrði veittur á tollum, yrði hægt að
flytja vörur beint frá skipshlið til
Framhald á bls. 29
Fyrirtækið Nýform í Hafnarfirði fluttist i nýtt verzlunarhúsnæði að
Strandgötu 4 nýlega.
Fyrirtækið Nýform er eign Sigurðar Guðjónssonar húsgagnasmíða-
meistara og framleiðir ýmsar gerðir húsgagna, svo sem svefnbekki,
skápa og stöðluð húsgögn eins og pirahillur og skáþa.
Á myndinni er Sigurður Guðjónsson i hinu nýja húsnæði að
Strandgötu 4
FERÐA-
FREISTIN GAR
m mm æm úrvalsferðir til
1974MaDorca .
Þægilegt þotuflug með þotu frá Flugfélagi
r •
Islands, beint til Palma.
í ferðum þessum eru á boðstólnum
hótel og íbúðir auk venjulegra ferða um eyjuna
t.d. Drekahellana, Valdemosa, Næturklúbbaferð
og Grísaveizla.
Hótel Bahamas Mjög gott 1 stjömu hótel, austast
Arenal ® Arenal (ca. 12 km. frá Palma.
Öll herbergi eru með sturtu og
svölum. Sundlaug er við hótelið.
— Fullt fæ8i.
Hotel Aya 3 stjörnu hótel (10 km. fyrir aust-
Arenal an Palma). Hótelið er viðurkennt
sem gott 3 stjömu hótel. DansaS
er þrisvar í viku ð hótelinu. Öll
herbergi hafa bað og svalir. Sund-
laug er við hóteliS. — Fullt fnði.
Hotel
Playa Marina
llletas
3 stjörnu hótel (5 km. fyrir vestan
Palma). Hótelið er staðsett i hinu
mjög svo rómaða þorpi llletas,
sem þekkt er fyrir fegurð og kyrrð.
Gestir hótelsins dvelja aðallega á
veröndum umhverfis sundlaug
hótelsins. Dansað er á hótelinu
þrisvar I viku. Svalir og bað með
hverju herbergi. í hótelinu em
mjög skemmtilegar setustofur.
Úrvalsfarþegar hafa dvalið á
hótelinu frá opnun þess 1971. —
Fullt fæði.
Las Palomas Nýtt stórt ibúðahús, staðsett fyrir
Palma Nova rniðju hinnar vinsælu strandar
Palma Nova (16 km. fyrir vestan
Palma). Litlar ibúðir með eldhúsi,
baði auk sameiginlegs svefn-
herbergis með setukrók (20 fm ).
Svalir visa allar út að ströndinni.
Sundlaug og veitingastaður eru
við húsið. Niður að ströndinni eru
aðeins 50 metrar. — Án fæðis.
Maria Elena
I & II
Magaluf
Hús þessi eru bæði staðsett rétt
við ströndina i Magaluf (18 km.
fyrir vestan Palma). Ibúðirnar eru
mjög vistlegar. Þær hafa tvö
svefnherbergi, setustofu, eldhús.
bað og svalir. Sundlaug fyrir gesti
er við húsin. Án fæðis.
5/4—15—4 11 dagar
15/4— 3/519 —
3/5—17/515 —
17/5— 7/6 22 —
7/6—21/615 —
21/6—12/722 —
12/7— 2/822 —
26/7— 9/8 15 —
2/8—16/8 15 —
9/8—30/8 22 dagar
16/8— 6/9 22 —
30/8—13/915 —
6/9—20/915 —
13/9—4/1022 —
20/9—11/1022 —
4/10—18/1015 —
11/10—31/1021 —
VERÐLISTI FYRIR MALLORCA 1974
5/4 — 15/4 15/4—3/5 3/5 — 17/5 17/5—7/6 7/6 — 21/6 21/6 — 12/7 26/7— 9/8 9/8—30/8 1/10—31/1
4/10—18/10 20/9 — 11/10 12/7— 2/8 2/8—6/8 16/8— 6/9
30/8 — 13/9 13/9—4/10
6/9—20/9
1 1 dagar 1 9 dagar 1 5 dagar 22 dagar 1 5 dagar 22 dagar 1 5 dagar 22 dagar 21 dagur
HOTEL BAHAMAS 22.500.— 23.500.— 23 100.— 29 380,— 24 560 — 30 680 — 26.860.—' 31 680 — 24 950 —
HOTEL AYA 26 050,— 28 200,— 26.700.— 37.550,— 30 600 — 39 050 — 33 400 — 40 250,— 31 500—
HOTEL PLAYA MARINA 29 050,— 32.980.— 30 450,— 43 280,— 34.450.— 44 880 — 37 200 — 46 100 — 36 800,—
ÍBUÐ LAS PALOMAS 24.150,— 23 000,— 25.000.— 29.400.— 25.200,— 32 200 — 30 360 — 35.300.— 25 800 —
ÍBÚÐ 24 150,— 23.000.— 25.000.— 29.400,— 25 200 — 32 200 — 30.360.— 35 300 — 25 800 —
MARIA ELENAi ,M-r> 24 100,— 21.100.— 22 000,— 27.100.— 23.950.— 29 550 — 28 550 — 32 750 — 23 950,—
Leitið upplýsinga á skrifstofunni um sérstakan barnaafslátt í íbúðum.
Öll verð eru háð gengisbreytingum og hækkun eða lækkun olíuverðs.
5/4 —15/4 11 dagar verð frá kr. 22.500.—
15/4 — 3/5 19 dagar verð frá kr. 20.10Ö,—
3/5 —17/5 1 5 dagar verð frá kr. 20.700,—
17/5 — 7/6 22 dagarverðfrákr. 27.100.—
7/6 —21/6 15 dagar verðfrá kr. 23.950,—
21 /6 —12/7 22 dagar verð frá kr. 29.550,—
12/7 — 2/8 22 dagar verð frá kr. 29.550.—
26/7 — 9/8 15 dagar verðfrá kr. 28.550,—
2/8 —16/8 15 dagar verðfrá kr. 28.550,—
, (Pðskar)
9/8 —30/8
16/8 — 6/9
30/8 —13/9
6/9 — 20/9
13/9 — 4/10
20/9 —11/10
4/10—18/10
11/10—31/10
22 dagar
22 dagar
1 5 dagar
15 dagar
22 dagar
22 dagar
1 5 dagar
21 dagur
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
verð frá kr.
32.750,—
32.750,—
28.550,—
28.550,—
32.750,—
27.100,—
20.700,—
23.950,—
FERÐASKRIFSTOFAN