Morgunblaðið - 19.03.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
7
A& THE OBSERVER
Eftir
Roland
Huntford
Karl
Gustav
Svíakonungur
Karl Gustav
er vinsœll
Eftir margra ára undirbúning og umræður, staSfesti
sænska þingið um síðustu mánaðamót nýja stjórnarskrá
fyrir landið. Ekki var stjórnarskráin samþykkt mótatkvæða-
laust, því nokkrir þingmenn töldu, að hún fæli í sér
minnkandi tryggingu fyrir einstaklingsfrelsi. En helzta og
umdeildasta breytingin varðaði stöðu konungs.
Samkvæmt fyrri stjórnarskrá, sem var frá árinu 1809,
hafði konungur ákveðin völd. Þannig skipaði hann til
dæmis ríkisstjórnir og rauf þing. í nýju stjórnarskránni er
konungur gerður alveg valdalaus. Hann er leiðtogi aðeins
að nafninu til, og starf hans fólgið í því að koma fram fyrir
ríkisins hönd við hátíðleg tækifæri. „Svíþjóð er nú lýðveldi,
þar sem svo vill til, að forsetinn er konungur," sagði einn
þingmanna jafnaðarmanna eftir að stjórnarskráin hafði
verið samþykkt.
„Við getum afnumið konungdóminn með einu penna-
striki," sagði Olof Palme forsætisráðherra við sama tæki-
færi.
Ólíklegt er, að Palme gripi til
pennastriksins i næstu framtiS.
Það er ekkert leyndarmál, að nýja
stjórnarskráin var samin með lýð-
veldi i huga. Breytingin á stöðu
konungs var gerð til að geta siðar
lagt konungdóminn niður átaka-
laust. Það hefur verið stefna
jafnaðarmanna (sem undanfarin
42 ár hafa farið með stjórn i Svi-
þjóð) að koma á lýðveldi i landinu.
Meðan Gústav heitinn Adolf var
enn konungur. var öllum breyting-
um skotið á frest. f augum þjóðar-
innar hafði hann tekið á sig
nokkurs konar föðurmynd; hann
var svo vinsæll. að þjóðin hefði
ekki liðið neina árás á stöðu hans.
Breyting á stöðu konungs hefði
verið túlkuð sem árás á manninn.
Stjórnmálamennirnir hefðu átt
erfitt með að verja það gagnvart
kjósendum sínum.
Hugmyndin var sú (að minnsta
kosti hjá lýðveldissinnum meðal
jafnaðarmanna), að þegar Gustav
Adolf sæti ekki lengur i hásæti,
færi áhuginn á konungdóminum
minnkandi. Var litið svo á — og
ekki að ástæðulausu — að al-
menningur i Sviþjóð mæti mann-
inn frekar en embættið. Karl
Gustav prins, þáverandi ríkisarfi,
var talinn of ungur og ekki nógu
vinsæll til að viðhalda þeirri virð-
ingu fyrir konungsembættinu.
sem Gustav konungur Adolf afi
hans hafði áunnið þvi.
í raun hafa þessar tilgátur ekki
staðizt. Þegar Gustav konungur
Adolf lézt í september i fyrra, 91
árs gamall, kom i Ijós, að Karl
Gustav naut meiri samúðar meðal
almennings. en gert hafði verið
ráð fyrir. Ef til vill hefur hugmynd-
in um að hann skorti vinsældir
aðeins verið órar sænskra fjöl-
miðla, sem kusu að lýsa honum
sem fávisum glaumgosa. Þegar
hann svo settist i hásæti öðlaðist
hann almenna virðingu fyrir það
hvernig hann axlaði ábyrgðina.
Siðan hafa vinsældir hans farið
vaxandi.
Talið hafði verið, að aldur nýja
konungsins yrði honum fjötur um
fót eftir föðurlega imynd fyrir-
rennara hans i hásæti, en sú hefur
siður en svo orðið raunin. Eldri
borgurum finnst ánægjulegt að sjá
æskuna á toppnum; fyrir yngri
kynslóðina hefur það einnig sína
kosti. Karl Gustav hefur reynzt
sérstaklega vinsæll hjá þeim yngri
— sem annars ættu venju sam-
kvæmt að vera uppspretta lýð-
veldishugsjónarinnar.
Konungurinn hefur vaxið ört i
áliti hjá almenningi. Hann stundar
vel embætti sitt. f blaðaviðtölum
hefur hann lýst þvi yfir, að sem
konungur hafi hann verk að vinna
— og hann vilji vinna það vel.
Fellur þetta i góðan jarðveg hjá
þjóð, sem virðir vinnuna og metur
jafnrétti.
Við fyrstu sýn er erfitt að hugsa
sér, að unnt sé að samrýma
stuðning við konungsembættið og
eindregna jafnréttishugsjón þjóð-
arinnar. En þrátt fyrir jafnréttis-
trúna rikir í Sviþjóð stéttaþjóð-
félag. Það má alls staðar sjá: i
viðskiptalífinu. i verkalýðs-
félögunum, i einkalifinu. Ef til vill
er nauðsynlegt að hafa einhvern
efst uppi á pýramidanum. Og
konunginum fylgir þægileg til-
finning um stöðugleika. Þar sem
konungsembættið er arfgengt.
virðist það á vissan hátt vega á
móti nefnda- og skriff innsku-
valdinu, sem er mjög öflugt i
Svíþjóð.
Karl Gustav konungur nýtur
þess nú að hann settist i hásæti á
sama tíma og fylgi miðflokkanna
var að aukast á kostnað þeirra
vinstri. Skoðanakönnun sýndi, að
76% þjóðarinnar vildu halda völd-
um konungs óskertum, sem er
nokkurn veginn stefna stjórnar-
andstöðunnar. Þetta notuðu þing-
menn hægriflokkanna sér og mót-
mæitu nýju stjórnarskránni. en án
árangurs. Áf ramhaldandi seta
konungs virðist þó tryggð enn um
skeið.
VANIR FLAKARAR óskast í frystihús. Faxavik h.f., Súðarvogi 1. simi 35450. STÝRIMANN OG HASETA vantar strax á 75 lesta bát, sem rær með þorskanet frá Grindavík Vanir menn, hærra kaup. Simi 35450 og 86758.
PÍANÓ Óska að kaupa litið og vel með farið pianó. Upplýsingar í síma 17011 til kl 16 i dag og á morgun CHEVROLET VEGA GT. Nýinnfluttur/ rauður. Ekinn 26 þús/ mil. Árgerð 1972 Upplýs- ingar 13285, 34376.
LANDROVERÓSKAST árg '73 til '74 Simi 92-7474 <4> |8or0unþlö!>il> í^mBRCfBLDnR 1 mBRKBfl V0BR
RammagerÖ
Höfum opnað innrömmunarverkstæði í Stór-
holti 1, (áður Næturafgreiðsla apóteka). Vönd-
uð og góð vinna. Gjörið svo vel að reyna
viðskiptin.
Söluþjónustan s.f.
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
j
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGOTU 4, HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919.
er úrvals stækkari fyrir 6x6cm og 35 mm. Afgreiddur
með 75mm og 50 mm linsum, auka safngleri fyrir
35mm, litfilteraskúffu, glerlausum möskum fyrir 6x6cm.
og 35 mm, rykhettu og straumbreyti.
Athugið verðlækkun vegna tollabreytinga úr 50% í 7%.
Verður til sýnis þessa viku.
Komið og skoðið.