Morgunblaðið - 19.03.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
13
Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri:
Tengingu Breiðholts
I og III lokið í haust
I svari Birgis ísleifs Gunnars-
sonar borgarstjóra við fyrirspurn
Alfreðs Þorsteinssonar (F) um
gatnagerð í Breiðholti kom m.a.
fram, að á framkvæmdaáætlun
ársins i ár eru miklar gatnagerð-
arframkvæmdir i Breiðholts-
hverfum og er áætlað að ljúka
ýmsum þeirra fyrir haustið.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri:
Alfreð Þorsteinsson hefur borið
upp fyrirspurn í þrem liðum. i
fyrsta lagi er spurt: Hvenær hefst
breikkun Reykjanesbrautar frá
Miklubraut að Breiðholtsbraut og
hvenær er áætlað að Ijúka þvi
verki? Því er til að svara, að fram-
kvæmdir eru hafnar og þeim
verður væntanlega lokið i október
á þessu ári.
i öðru lagi er spurt, hvort var-
anlegt slitlag verði sett á syðri
akgrein Breiðholtsbrautar í vor.
Svarið við því er, að það verður
gert í sumar jafnskjótt og lokið
verður við að leggja hitaveitulögn
undirgötuna.
i þriðja lagi er spurt, hvenær
hefja eigi tengingu Breiðholts-
hverfa I og III um Vesturhóla.
Höfðabakka og Stekkjarbakka.
Þessar framkvæmdir munu hefj-
ast síðla sumars 1974 og lokið við
þær í haust.
Alfréð Þorsteinsson (F) þakk-
aði borgarstjóra svör hans og
sagði, að í Breiðholti ríkti mikill
áhugi á því, að vel yrði að þessum
framkvæmdum staðið.
r
Askorun borgarstjórnar á Alþingi:
Heildarstefna mörk-
uð í skólamálum
Sveinn Björnsson.
Á fundi borgarstjórnar Reykja-
vikur í siðustu viku var samþykkt
með 15 samhljóða atkvæðum til-
laga frá borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins um skólamál. Til-
lagan var svohljóðandi:
„Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkir að skora á Alþingi og
rikisstjórn að hraða mörkun
heildarstefnu I málefnum barna-,
unglinga- og framhaldsskóla, svo
unnt sé að hefja markvissa skipu-
lagningu og framkvæmdir við fyr-
irhugaða endurmótun skólakerfis
borgarinnar.
Við mörkun slíkrar heildar-
stefnu verði lögð sérstök áherzla á
að samræma námsbrautaval ung-
menna qg þekkingarþarfir í at-
vinnulffinu betur en nú á sér stað
og sömuleiðis að skipa verk-
menntun verðskuldaðan sess inn-
an skólakerfisins."
Sveinn Björnsson (S): Eins og
kunnugt er hefur endurskipu-
lagning fslenzka skólakerfisins
verið ofarlega á baugi siðustu
misseri. Nægir i því sambandi að
minna á grunnskólafrumvarpið,
lög um fjölbrautaskóla og endur-
skoðun löggjafar um iðnfræðslu.
Út af fyrir sig er það ekkert
undrunarefni, þótt breytingar á
skólakerfi séu tímafrekar og sein-
virkar, svo afdrifaríkar sem þær
jafnan verða fyrir þjóðfélagið og
þjóðarhag.
Skólakerfið og heildarskipulag
þess er verkefni ríkisvaldsins, en
í framkvæmd skiptast hlutverk
milli rikisvalds og sveitarfélaga.
Eins og við er að búast eiga
Reykvíkingar mikið í húfi, að
fyllstu framsýni sé jafnan gætt í
ákvarðanatöku og ráðstöfun fjár
varðandi allt, er lýtur að skóla-
byggingum, skipulagningu skóla-
hverfa og starfstilhögun skól-
anna. Skv. fjárhagsáætlun ársins
í ár munu um 15.7% rekstrarút-
gjalda borgarsjóðs fara til
fræðslumála (427.4 millj. kr.),
auk þess sem 375 millj. kr. mun
verða varið til skólabygginga að
meðtöldu framlagi ríkissjóðs.
Þetta eru miklir fjármunir og
ekkert útlit fyrir, að þeir fari
minnkandi á komandi árum nema
síður sé.
Það liggur í hlutarins eðli, að
nýjungar í skólamálum komi fyrst
til framkvæmda á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem skólakerfið er
að finna í sinni fjölbreyttustu
mynd og aðstaða öl 1 er hagstæðust
til að útfæra breytingar, vegna
FRÁ
BORGAR-
STJÓRN
fjölda nemenda, kennara og skóla
og hvers konar sérhæfingar.
Staða þessara mála nú er í
stuttu máli, að í náinni, en ótiltek-
inni framtíð verði gerðar víðtæk-
ar breytingar á skólakerfinu, að
því er tekur til barna-, unglinga-
og framhaldsskóla, breytingar,
sem liggja meira og minna í loft-
inu.
Fræðsluyfirvöld Reykjavíkur
gætu nú þegar hafið nauðsynleg-
an undirbúning að fyrirhugaðri
endurmótun á skólakerfi borgar-
innar og þar með unnið mikinn
tíma og umfram allt sparað borg-
arbúum stóra fjármuni ákomandi
árum, ef stefnumörkun ríkis-
valdsins Iægi ljós fyrir.
Því miður er því ekki að heilsa,
að svo sé, og er tillögu þeirri, sem
hér er flutt, ætlað annars vegar að
vekja athygli Alþingis og ríkis-
stjórnar á þessu brýna hagsmuna-
máli Reykvfkinga, og hins vegar
að stuðla að því, eins og segir í
tillögunni, að hraðað verði mörk-
un heildarstefnu f þessum mál-
um.
Varðandi einstök atriði má
benda á, að verulegur ávinningur
væri fólginn í ákvörðun um lengd
(fjölda skólaára) barna- og
unglingaskóla.
Þá er einnig aðkallandi að fá
lög um skipan framhaldsnámsins,
þ.e. mennta-, eða verzlunar-, iðn-
og gagnfræðanáms. i þessu sam-
bandi er e.t.v. óþarft að benda á,
að fjölbrautaskólinn verður
væntanlega það skipulagsform,
sem koma skal. Standa vonir til,
að fjölbrautaskólinn fyrirhugaði í
Breiðholú geti tekið til starfa
innan tíðar. Þeirrar gagnrýni hef-
ur löngum gætt, að ónóg tengsl
væru milli skóla og atvinnulífs.
Þótt ekki megi sniðganga þann
megintilgang menntunar að gefa
einstaklingnum tækifæri til að
þroska hæfileika sína að eigin
löngun og geðþótta, má ekki
missa sjónar á nauðsyn þess, að
skólagangan búi einstaklinginn
undir þátttöku i atvinnulífinu. i
reynd fara hagsmunir atvinnu-
Iffsins og einstaklinganna saman
að þessu leyti. Því betra sam-
ræmi, sem er á milli námsbrauta í
skólakerfinu og þekkingarþarfa í
atvinnulifinu, þvi betri verða af-
komumöguleikar einstaklingsins
og þjóðarbúsins. Er sérstaklega
vikið að nauðsyn þessarar sam-
ræmingar í tillögunni, sem hér er
flutt. Loks er drepið á hlut verk-
menntunar í skólakerfinu. Svo
undarlegt sem það er, virðast ís-
lendingar leggja allt aðra og
minni áherzlu á verkmenntun i
skólakerfinu en grannþjóðirnar.
Skýtur hér vissulega skökku við á
öld iðnþróunar og aðlögunar að
alþjóðlegum markaði, að verk-
menntun skuli falla meira og
minna i skugga bdknáms. Nægir í
þessu sambandi að minna á, að
mannflesta atvinnugreinin, verk-
smiðjuiðnaðurinn, skuli nánast i
engu fá notið skólakerfisins, þeg-
ar um er að ræða verkmenntun
iðnverkafólks.
Virðist fyllilega tímabært, að
verkmenntun verði hafin til meiri
vegs og virðingar í skólakerfinu
en tíðkazt hefur.
Ég sé ekki ástæðu til að orð-
lengja frekar rökstuðning fyrir
tillögunni, sem hér liggur fyrir,
en vænti þess, að allir borgarfull-
trúar veiti henni samþykki sitt.
Innrömmun
Glæsilegt úrval af erlendum rammalistum. Límum upp
myndir og auglýsingaspjöld. Eftirprentanir matt og glært
gler. Myndamarkaðurinn við Fischerssund. Opið mánu-
daga til föstudaga kl. 1 —6. Sími 27850.
Sjúkrali&ar
Aðalfundur verður haldinn í Sjúkraliðafélagi fslands þann
2. apríl kl 20 I Tjarnarbúð.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur málefni.
Stjórnin.
PHILIPS
HEIMURINN
INN A
HEIMILIN
PHILIPS
HEIMILISTÆKIf
HAFNARSTRÆTI 3. SlMI 20455