Morgunblaðið - 19.03.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
Halldór Blöndal um skattafrumvarp:
„Alþingi setur úrslitakosti
en ekki ríkisstjórnin”
FRUMVARP til laga um skatt-
kerfisbreytingu var til umræðu í
efri deild Alþingis sl. föstudag.
Fóru þann dag fram 2. ug 3. um-
ræða um frumvarpið og stóðu um-
ræður í deildinni þar til u.þ.b.
11.30 um kvöldið. Þegar málið
kom til atkvæðagreiðslu við 2.
uinræðu bre.vtti stjórnarmeiri-
hlutinn því 1 sama horf og það var
f, þegar það var upphaflega lagt
fram f neðri deild, en eins og
kunnugt er hafði stjórnarandstað-
an í neðri deild gert á frumvarp-
inu breytingar með stuðningi
Björns Pálssonar (F) og forsætis-
ráðherra Olafs Jóhannessonar.
Þega>' málið kom ti 13. umræðu í
efri deíld var klukkan orðin 8 og
virtist vera uin það samkomulag
að hefja ekki umræður um það að
nýju. og hafði veríð boðaður fund-
ur í neðri deild kl. 9, þar sem
frumvarpiðskyldi koma til einnar
umræðu. en slíkt er nauðs.vnlegt,
þar sem brevtingar hafa verið
gerðar á því í hinni deildinni. Þá
kvaddi Ragnar Arnalds (Ab) sér
hljóðs og mælti fyrir tillögu frá
meirihluta fjárhags- og viðskipta-
nefndar um að frumvarpið gílti
aðeins til næstu áramóta. Var
þessi tillaga borin fram að sögn
Ragnars til að fá Alþýðuflokkinn
til að samþykkja frumvarpið. Hóf
hann upp miklar heitingar á AI-
þýðuflokkinn um að styðja nú
málið og varð það til þess, að
umræður upphófust aftur og
stóðu til kl. 11.30 eins og áður
segir. Varð að fresta fundinum í
neðri deild. Stóð til að hann yrði
haldinn í gær, en ekki varð af því
(sjá frétt á baksíðu).
Við atkvæðagreiðslu í efri deild
i gær var breytingartillaga þeirra
Ragnars samþykkt með 11 sam-
hljóða atkvæðum stjórnarþing-
manna, og frumvarpið síðan sam-
þykkt með 11 atkvæðum gegn 9.
Ekki er unnt að rekja allar um-
ræðurnar, sem urðu í efri deild sl.
föstudag um þetta mál. Hér verða
einungis rakin helztu atriðin úr
ræðu Halldórs Blöndal (S), er
hann mælti fyrir áliti minnihluta
sjálfstæðismanna í nefndinni, en
auk hans á Geir Hallgrimsson
sæti i fjárhags- og viðskiptanefnd
af hálfu Sjálfstæðisflokksins.
1 upphafi ræðu sinnar vék Hall-
dór að meginstefnu Sjálfstæðis-
flokksins um, að almennar launa-
tekjur skuli vera skattfrjálsar.
Þessa stefnu hefði viðreisnar-
stjórnin framkvæmt árið 1960.
Það væri eðlilegt að skattleggja
fremur eyðsluna en verðmæta-
sköpunina, þar sem slíkt stuðlaði
fremur að heilbrigðu frumkvæði
og vinnuvilja manna.
Þessi ríkisstjórn hefði tekið við
góðu búi 1971, þegar hún tók við.
Þrátt fyrir það hefði þenslustefna
hennar verið svo mikil, að hún
hefði séð sig knúna til að ger-
breyta skattalögum þegar í árslok
1971, til að afla meiri tekna. Við
þessa skattalagabreytingu hefði
ekkert samráð verið haft við Sam-
band íslenzkra sveitarfélaga né
aðila vinnumarkaðarins, eins og
ríkisstjórnin hrósaði sér svo mjög
af nú.
Þegar frá leið hefði þessi
skattalagabreyting vakið mikla
óánægju hjá launþegum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði haldið
uppi mikilli gagnrýni á þessar
breytingar og aðvarað rikisstjórn-
ina. M.a. hefði verið af hálfu
flokksins bent á, hversu mjög
hefði verið farið illa með ellilíf-
eyrisþega og öryrkja. Staðfesting
á réttmæti þessarar gagnrýni
sjálfstæðismanná hefði komið f
Ijós strax næsta vor, þegar þessir
aðilar hefðu fengið skattseðla
sina i hendur. Fram hefði komið
mikil óánægja hjá þeim í blöðum.
Hefði ríkisstjórnin neyðzt til að
setja bráðabirgðalög til að laga
þetta, þó þar hefði alls ekki verið
nóg að gert.
Innan launþegahreyfingarinn-
ar hefðu stöðugt heyrzt háværari
raddir um nauðsynina á lækkun
tekjuskattanna. Hefðu á sl. ári
verið gerðar af hálfu launþega-
samtakanna ákveðnar hröfur um
lagfæringar. Þó hefðu forystu-
menn B.S.R.B. gengið til samn-
inga við rikisvaldið án þess að rtl
nokkra leiðréttingu í skatta-
málunum eða húsnæðismálum.
Að gerðum þeim samningum
hefði verið skapaður grundvöllur
fyrir ríkisstjórnina að Iáta til sin
taka í samningsgerðinni á hinum
almenna vinnumarkaði. Hún
hefði þó ekki hafizt handa fyrr en
í febrúar sl., eftir að verkföll
höfðu verið boðuð og hvorki hafði
gengið né rekið í samningunum.
Halldór rakti nú i ítarlegu máli,
hvernig verðlagsþróunin hefði
verið á landinu í tíð þessarar
rikisstjórnar og þau áhrif sem ný-
gerðir kjarasamningar hefðu i
verðbólguátt. Gat hann m.a. um
ákvæði málefnasamningsins um
að hér skyldi verðbölga ekki vera
meiri en f helztu nágranna- og
viðskiptalöndum. í raun og veru
væri hún þrisvar sinnum meiri
og einungis 1/5 hluti hennar inn-
fluttur.
Halldór vék nú að útreikning-
um á tekjutapi ríkissjóðs, ef
frumvarpið næði fram að ganga.
Skv. nýjum upplýsingum frá sér-
fræðingum rikisstjórnarinnar
myndu tekjuskattar verða 4,1
milljarður á yfirstandandi ári. í
fjárlögunum, sem afgreidd hefðu
verið fyrir jól hefði verið gert ráð
fyrir 5,8 mi lljörðum i tekjuskatt á
árinu. Tekjutapið væri því 1,7
milljarður, og þó 550 milljónum
vegna skattaafsláttarkerfis væri
bætt við, fengizt með engu móti
meira en 2,3 milljarðar. Síðan
ætti að afla, það sem eftir væri
ársins, 3,4 milljarða í hækkuðum
söluskatti. Augljóst væri, að rikis-
stjórnin ætlaði sér að afla aukreit-
is tekna með þessu. Slíkt væri að
sjálfsögðu algerlega óaðgengilegt
fyrirþingmenn aðsamþykkja.
Þá gerði þingmaðurinn grein
fyrir tillögum sjálfstæðismanna í
málinu, en frá þvi hefur verið
greint hér í blaðinu áður.
Undir lok ræðu sinnar sagði
Halldór Blöndal, að það væru sér
vonbrigði, að meiri hluti fjárhags-
og viðskiptanefndar vildi ekki
standa að baki forsætisráðherra
um niðurskurð á fjárlögum.
Þegar hann sýndi þannig viðleitni
til að draga úr þenslunni í þjóð-
félaginu, nyti hann ekki stuðn-
ings stjórnarmeirihlutans.
Stjórnarþingmenn segðu það
komið undir stjórnarandstöðunni,
hvort við samninga við launþega
yrði staðið. í fyrsta lagi hlyti
ríkisstjórnin að verða að tryggja
stefnu sinni fylgi meirihluta á
Alþingi, áður en hún gerði samn-
inga. I annan stað hefði hún vitað,
að stjórnandstaðan vildi ekki
styðja auknar álögur á þjóðina og
því hefði hún við sjálfa sig að
sakast, ef frumvarp hennar yrði
ekki samþykkt. Eina ástæðan
fyrir því, að A.S.l. hefði sætt sig
við 5% söluskattshækkunina,
hefði verið sú, að sambandið
hefði ekki getað komið meiru
fram.
Loks sagði þingmaðurinn, að
útilokað væri, að ríkisstjórnin
gæti setið áfram, eftir að slíkt
frumvarp hefði verið fellt á Al-
þingi. Slíkar væru þær þingræðis-
reglur, sem við byggjum við. Skv.
þeim væri það einnig svo, að það
væri Alþingi, sem setti rikis-
stjórninni úrslitakosti en ekki
öf ugt.
Ellert B. Schram um grunnskólafrumvarp:
Sveitarfélögin sjálf annist
skyldunámsstigið
FRAM hefur verið lagt I neðri
deild Alþingis nefndarálit
menntamálanefndar. deildarinn-
ar um frumvarp til laga um
grunnskóla. Ellert B. Schram (S)
gerði f nefndinni sérstaka bókun
um, að sveitarfélögum og samtök-
Frumvarp um samein-
ingu banka lagt fram
FRAM hefur verið lagt á Alþingi
frumvarp til laga frá ríkisstjórn-
inni um viðskiptabanka f eigu
ríkisins. Er í frumvgrpinu lagt
til, að Búnaðarbanki íslands og
Útvegsbanki tslands verði sam-
einaðir i einn hanka, Búnaðar- og
Útvegsbanka tslands.
I athugasemdum, sem fylgja
frumvarpinu, er sagt, að 29. maí
1972 hafi viðskiptaráðuneytið
skipað nefnd til að undirbúa
framkvæmd á því atriði í stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, er
varði endurskoðun bankakerfis-
ins. í nefndina hafi verið
skipaðir: Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri, formaður, Annann
Jakobsson bankastjöri, Björgvin
Vilmundarson bankastjóri, Guð-
inundur Hjartarson seðlabanka-
stjóri, Jóhannes Elíasson banka-
stjóri og Magnús Jónsson banka-
stjóri. Ritari nefndarinnar hafi
verið ráðinn Sveinn Jónsson for-
stöðumaður bankaeftirlits Seðla-
bankans.
Þá segir f athugasemdunum:
„Nefndin skilaði áliti, dagsettu
hinn 19. jantíar 1973. Er þar rakin
i’róun bankamála hér á landi,
gerð grein fyrir núverandi skipu-
lagi tíí starfsháttuin bankakerfis-
itis og rætt mn ýmis almenn
sjtinarmið. sem nefndin telur
nauðsynlegt að hafa i huga við
inótun opinberrar stefnu í þess-
ttin málutn. Setur nefndin síðan á
þessum grundvelli fram marg-
háttaðar tillögur og hugmyndir
um breytingar á bankakerfinu og
einstökum þáttum þess.
Meginniðurstöður nefndar-
innar eru þær, að peninga- og
lánastofnanir hérlendis séu miklu
fleiri en hagkvæmt getur talizt,
auk þess sem margar þeirra séu
of smáar til að geta uppfyllt
nútímakröfur um alhliöa þjón-
ustu við víðskiptaaðila sína og
öryggi fyrir innstæðueigendur og
aðra kröfuhafa. Leggur nefndin
jafnframt áherzlu á nauðsyn þess,
að löggjöf, sem varðar starfsemi
þessara stofnana, sé endurskoðuð
og færð í nútímalegt horf. Telur
nefndin allt benda til víðtæks
samkomulags um meginmark-
miðin, sem stefna beri að f þess-
um efnum, þ.e.a.s. samruna pen-
inga- og lánastofnana í stærri og
virkari heildir, og einföldun
bankakerfisins innan ramma heil-
steyptrar löggjafar.
Umfangsmesti kaflinn 1 tillögu-
gerð nefndarinnar fjallar um við-
skiptabanka f eigu ríkisins, enda
er þáttur rikisviðskiptabankanna
þriggja, Landsbanka. Utvegs-
banka og Búnaðarbanka, mjög
stór i heildarstarfsemi banka-
kerfisins. Til viðmiðunar um
þetta má nefna, að starfsmanna
fjöldi þessari þriggja banka er um
65% af heildarstarfsmannafjölda
þeirra peninga- og lánastofnana,
sem tillögugerð nefndarinnar
nær til. Einnig ber i þessu sam-
bandi að hafa í huga þá stað-
reynd, sem minnzt er á i nefndar-
álitinu, að endurskipulagning
rikisvíðskiptabankakerfisins
getur eðli málsins samkvæmt
komið fyrr til framkvæmda og
með einfaldari hætti en endur-
skipulagning ýmissa annarra
þátta bankakerfisins.
Tillögur nefndarinnar um
breytingar á ríkisviðskiptabanka-
kerfinu eru settar fram í nánu
samhengi við hliðstæðar tillögur
varðandi hlutafélagsbankana.
Meginniðurstaðan um viðskipta-
bankana er þessi: „Nefndin telur
rétt að stefna að þvf, að viðskipta
bönkum hér á landi fækki f þrjá
eða fjóra. Miðað við núverandi
aðstæður f bankamálum virðist
eðlilegast að ná því markmiði með
fækkun hlutafélagsbankanna í
einn eða tvo, og ríkisbankanna í
tvo." Eftir að fjallað hefur verið
um ýmsar leiðir, sem til greina
koma til að ná fram þessari fækk-
un ríkisviðskiptabankanna, kemst
nefndin að þeirri niðurstöðu, að
lfklegasta leiðin til að skapa hag-
kvæmt ríkisviðskiptabankakerfi
sé að sameina Búnaðarbankann
og Utvegsbankann, ef jafnframt
eru gerðar ráðstafanir til að
styrkja eiginfjárstöðu og lausa-
fjárstöðu hins sameinaða banka."
um þeirra verði falið að annast
fræðslumálin á skólaskyIdustigi,
að öðru leyti en þvf, er varðaði
ákvörðun námsefnis og námseft-
irlit. Taldi meiri hluti nefndar-
innar vonlaust, að hægt yrði að
afgreiða frumvarpið á þessu
þingi ef breytingar f þessa átt
væru á því gerðar.
Hér er á eftir álit nefndarinnar:
„Nefndin hefur rætt frumvarp-
ið á 20 fundum og kynnt sér
fjöldamargar umsagnir, sem bor-
ist höfðu frá ýmsum aðilum. Þá
kvaddi nefndin á sinn fund fram-
kvæmdastjóra Sambands fs-
lenskra sveitarfélaga, Magnús E.
Guðjónsson, og ræddi við hann
um þá hlið málsins, sem einkum
snýr að sveitarfélögunum. Einnig
kvaddi nefndin á sinn fund
Indriða Þorláksson deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu og
ræddi við hann um kostnaðarhlið-
ina við framkvæmd grunnskóla-
frumvarpsins. Og loks ræddi
nefndin hina kennslufræðilegu
hlið málsins við Andra Isaksson
prófessor á tveimur fundum.
í upphafi nefndarstarfs óskaði
Ellert B. Schram að bóka eftirfar-
andi: „Undirritaður hefur gert að
tillögu sinni, að við meðferð
menntamálanefndar á frumvarpi
til laga um grunnskóla verði
gengið út frá þeirri forsendu, að
sveitarfélögin og samtök þeirra
annist fræðslumálin á skóla-
skyldustigi að öðru leyti en því, er
varðar ákvörðun námsefnis og
námseftirlit. Sveitarfélögin
standi undir stofnkostnaði og
rekstri skóla á grunnskólastiginu,
en rfkissjóður greiði kennara-
laun.
Frumvarpinu verði breytt í
samræmi við ofannefnt grund-
vallarsjónarmið.
Að sjálfsögðu er þó gert ráð
fyrir, að tekjustofnalögum
sveitarfélaga verði breytt í fram-
haldi hér af, svo og að landshluta-
samtök sveitarfélaga verði viður-
kennd að lögum. Verði hvort
tveggja liður í þeirri tillögugerð
um breytta verkefnaskiptingu
rikis og sveitarfélaga, sem boðuð
hefur verið af stjórnvöldum á
þessu þingi.
Nú er ljóst, að þetta sjónarmið
nýtur ekki stuðnings annarra
nefndarmanna.
Um leið og ég undirritaður
harma þá niðurstöðu, mun ég að
sjálfsögðu taka þátt f störfum
nefndarinnar um frv, en bera
fram tillögur með þeim fyrirvara,
sem að ofan er getið.“
Meiri hluti nefndarmanna taldi
vonlaust, að hægt yrði að afgreiða
grunnskólamálið á þessu þingi, ef
bylta ætti því um skv, framan-
skráðu og m.a. bfða eftir breyt-
ingu á tekjustofnalögum sveitar-
félaga og lagasetningu um lands-
hlutasamtök sveitarfélaga.
Nefndin leggur til, að frum-
varpið verði samþykkt. En breyt-
ingartillögur eru fluttar á sér-
stöku þingskjali. Þó hafa nefndar-
menn fyrirvara um einstakar til-
lögur á þingskjalinu og áskilja sér
enn fremur rétt til að flytja breyt-
ingartillögur eða fylgja öðrum,
sem fram kunna að koma.“
Erlent lán
vegna lín-
unnar norður
GEIR Hallgrfmsson (S) og Hall-
dór Blöndal (S) hafa lagt fram í
efri deiid breytingartillögu við
stjórnarfrumvarp um lántöku-
heimildir erlendis. 1 frumvarp-
inu er ákvæði um, að fjármálaráð-
herra verði heimilað að taka er-
lent lán að upphæð 100 milljónir
kr. til flutningslfnu raforku um
Suður-, Vestur- og Norðurland.
Geir og Halldór leggja til að
þessi heimild verði bundin því
skilyrði, að lögð verði fram á
Alþingi greinargerð um fram-
kvæmda- og kostnaðaráætlun um
byggingu flutningslfnu raforku
um framangreind landssvæði, svo
og hagkvæmnissamanburður mis-
munandi valkosta til að leysa
orkuþörf Norðurlands.