Morgunblaðið - 19.03.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
15
Stórorrusta
fjarar út á
miðhálendinu
Saigon, 18. marz. NTB. A.P.
BLÓÐUG tveggja sólarhringa
orrusta fjaraði út I dag á miðhá-
lendi Suður-Vfetnams. Mannfall-
ið er hið mesta, sem báðir aðiljar
hafa orðið fyrir f 14 mánuði.
Suður-Víetnamar segjast hafa
misst 75 menn fallna ög 105
FRÁ strfðinu f Kambódíu.
Öbreyttum borgurum bjarg-
að I togara, sem flytur flótta-
menn frá fylkishöfuðborg-
inni Kampot, um 125 km
suðaustur af Phnom Penh.
Fóikið flýr til hafnarborg-
arinnar Kompong Tom
vegna harðnandi eldflauga-
og sprengjuárása uppreisn-
armanna.
Bratteli býður Rússum
skiptingu Barentshafs
Moskvu, 18. marz, NTB.
SKIPTING landgrunnsins á
Barentshafi f norskt og sovézkt
hafsvæði er eitt mikilvægasta um-
ræðuefnið í viðræðum Trygve
Brattelis forsætisráðherra og
sovézkra ráðamanna, er hófust f
dag, þegar norski forsætisráð-
herrann kom til Moskvu f opin-
bera heimsókn.
Mikilvægi Barentshafs getur
aukizt vegna þess, að þar getur
fundizt gas og olia. Samkomulag
er um að hefja samningaviðræður
um markalínu og forsætisráðherr-
arnir Bratteli og Alexei Kosygin
eiga að ákveða, hvenær þær við-
ræður hefjast.
Hins vegar er ekki talið, að þeir
taki fyrir efnahagsleg, pólitfsk og
hernaðarleg mál, sem lína, er
skiptir landgrunninu, hefur áhrif
á. Samninganefndirnar verða að
taka afstöðu til þessara stórmikil-
vægu og erfiðu mála.
Fulltrúar vestrænna rfkja í
Moskvu gera sér litla grein fyrir
þeim vandamálum, sem marka-
línan veldur I sambúð Noregs og
Sovétrfkjanna. Af sovézkri hálfu
er málið ekki nefnt og um það
hefur heldur ekki verið fjallað í
sovézkum blöðum.
En samkvæmt norskum heim-
ildum hefur áhugi Rússa á fram-
tíð Norðurheimskautssvæðanna
aukizt verulega. Sama máli gegnir
með Svalbarða.
Rússar hafa áhuga á að bægja
burtu erlendum olíufélögum ef
mikið magn olíu og gass finnst i
Barentshafi eins og líkur eru til
og segja, að í skjóli þeirra yrði
hægt að njósna um ferðir sovézka
norðurflotans til og frá Mur-
mansk.
Stefna Norðmanna er sú, að
olíuvinnsla á þessu svæði verði að
vera undir stjórn og eftirliti Norð-
manna og þeir segjast engan
áhuga hafa á starfsemi, sem geti
skaðað lögmæta sovézka öryggis-
hagsmuni.
Framhald á bls. 31
særða. Þeir segja að 440 Norður-
Víetnamar hafi fallið.
Þeir segja, að bardagarnir hafi
byrjað á laugardagsmorgun, þeg-
ar herlið Norður-Víetnams og
Viet Cong hafi ráðizt með stór-
skotaliði og eldflaugum á stöðvar
stjórnarhermanna um 16 km
norðaustur af Kontum. Hvorugur
aðilinn hefur vegarkaflann alger-
lega á valdi sínu að sögn þeirra.
Vígstöðvarnar eru rétt við ána
Dak Bla og í Saigon er sagt, að
Norður-Víetnamar reyni að
tryggja sér aðflutningsleið yfir
hana áður en monsúnrigningarn-
ar byrja í maí.
I Kambódiu hafa uppreisnar-
menn náð konungsborginni Ou-
dong, 38 km norðaustur af Phnom
Penh, algerlega á'sitt vald að sögn
yfirherstjórnarinnar. Uppreisn-
armenn hafa þar með tekið stóran
bæ á sitt vald í fyrsta skipti í þrjú
ár og réttum fjórum árum eftir
fall Sihanouks fursta.
Stjórnarhermenn hafa jafn-
framt ráðizt á og tekið bæinn
Siem Reapkandal suður af Phnom
Penh f fyrsta skipti í eitt ár.
Bærinn var miðstöð uppreisnar-
manna, sem réðust á Phnom Penh
í febrúar.
Harðir bardagar geisa við
fylkishöfuðborgina Kapot við Sí-
amsflóa. Um 10.000 hermenn taka
þátt i bardögunum.
3 tíma stórskotabardagi:
r
Israelar neita að hörfa
frá gömlu Golan-línunni
Tel Aviv, Damaskus,
18. marz. AP. NTB.
SVRLENZKT og fsraelskt stór-
skotalið börðust í rúma þrjá tíma
í Golanhæðum f dag og fsraelsk
blöð sögðu frá þvf, að Bandarfkja-
stjórn legðist gegn kröfu tsraels
um að halda Golan-hæðum ef
samið yrði við Sýrlendinga um
brottflutning.
Bretar leita
að kolmunna
London, 18. marz, AP.
BREZKIR vfsindamenn lögðu f
dag af stað i leiðangur í því skyni
að leita að kolmunna, sem talið er
að veiða megi eina milljön lesta af
á ári til manneldis.
Frystitogarinn St. Benedict frá
Hull leitar að kolmunnanum og
nýtur við það aðstoðar rannsókna-
skipanna Cirolana og Scotia að
sögn landbúnaðar- og sjávarút-
vegsráðuneytisins.
Kolmunni er likur þorski, ýsu
og lýsu, en verður aldrei lengri en
35 sentimetrar og sérstök verkun
á honum er nauðsynleg. Ráðu-
neytið sagði, að verkunaraðferðir
hefðu nú verið fundnar upp og
fiskverkunarfyrirtæki hefðu
.áhuga á leiðangrinum.
Ráðuneytið sagði, að rannsókn-
ir fiskrannsóknastofnunar þess í
Aberdeen ,hefðu leítt í ljós, að
stórar torfur af kolmunna væru á
vorin umhverfis Rockall og
Porcupine-miðin á Atlantshafi og
a' landgrunninu vestur af Suður
eyjum.
Ráðuneytið gerir ráð fyrir, að
ársaflinn geti orðið éin milfjón
lesta, álíka mikill og heildarárs-
afli af öllum öðrum fisktegund-
Sýrlendingar sögðu, að barizt
hefði verið á tveimur þriðju hlut-
um vfgstöðvanna og að Israels-
menn hefðu orðið fyrir miklu
tjóni. Þeir sögðu, að átökih hefðu
byrjað þegar tsraelsmenn hefðu
hafið stórskotahrfð til að bæta
stöðu sfna á Damaskus-Kunaitra-
veginum.
Israelsmenn sögðu, að Sýr-
lendingar hefðu átt upptökin og
sjálfir aðeins misst tvo menn
fallna.
Israelska blaðið Maariv sagði í
dag, að Henry Kissinger, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
féllist ekki á þá afstöðu Israels að
neita að láta af hendi nokkurt
land vestan hinnar svokölluðu
purpurarauðu lfnu, þ.e. vopna-
hléslínuna frá 1967 f Golanhæð-
Blaðið kvað ráðherra stjórn-
arinnar algerlega mótfallna brott-
flutningi frá purpurarauðu lín-
unni og sagði að allar umræður í
stjórninni fjölluðu um svæðið,
sem ísrael tók i októberstríðinu.
ísraelsmenn hafa komið upp 17
landbúnaðar- og iðnaðarbyggðum
Framhald á bls. 31
Hænur í
fjallgöngu
Katmandu, Nepal, 18. marz,
Ap.
FLOGIÐ var með fimmtán
sprelllifandi hænur í þvrlum
frá Katmandu til fjallgöngu-
búða í Himalayafjöllum ! gær.
I fylgd með hænunum voru
fjallgöngukonur frá Japan.
sem hafa f hyggju að leggja á
Mount Everest. Fyrirliði hóps-
ins, 35 ára gömul kona, Kvodo
Sato að nafni, sagði, að fjall-
göngukonurnar hefðu komizt
að þeirri niðurstöðu, að eggja-
snæðingur I fjal Igöngunni
mvndi geta létt ferðina til
muna. Engum sögum fer af,
hvernig búizt er við, að hæn-
urnar þoli loftslagið þarna
uppi-
Jafnaðarmenn tapa
í V-Þýzkalandi
Mainz, V-Þýzkalandi 18. marz
NTB.AP.
VESTUR-þýzki Jafnaðarmanna-
LITVINOV ORÐINN VTLAGI
— KOM TIL VÍNAR í GÆRMORGVN
Vínarborg 18. marz AP.
PAVEL Litvinov, einn af
þekktari andófsmönnum í
Sovétrikjunum, kom í dag til
Vínarborgar frá Moskvu, en
honum var vfsað úr landi fyrir
nokkru. Blaðamenn fengu ekki
færi á að ræða viðLitvinov, þar
sem fulltrúar Gyðingasamtaka í
Austurriki tóku á móti honum
og flýttu sér að aka honum frá
flugvellinum.
Litvinov er 33ja ára að aldri
og vinur Alexanders Solzhenit-
syns. Með honum mun hafa
verið Maja eiginkona hans og
tvö börn þeirra. Litvinov hefur
á ýmsan hátt látið í ljós andúð
sina á þeirri kúgun, sem
sovézkir borgarar hafa verið
Pavel Litvinov
beittir. Hann mótmælti innrás-
inni í Tékkóslóvakíu árið 1968 á
Rauða torgi og var dæmdur til
fimm ára Síberíuvistar fyrir
vikið. Um eitt hundrað vinir
hans og konu hans fylgdu
honum til Moskvuflugvallar, að
sögn APfréttastofunnar.
Litvinov er næstur á eftir
Solzhenitsyn, sem stjórnvöld
reka úr landi. Hann fékk vega-
bréfsáritun til Parísar og er
með öllu óvíst, að hann fái
nokkru sinni að snúa til Sovét-
rikjanna. Búizt er við, að
Litvinov dvelji fyrst um sinn í
sérstökum btiðum, sem Rauði
kroSsinn rekur við Wöllersdorf,
en ekki er vitað, hvért för
hans verður síðan heitið.
flokkurinn beið í dag annan ósig-
ur á tveimur vikum við bæjar-
stjórnarkosningar í Rheinland
Pfalz, en aftur á móti styrktu
kristilegir demókratar stöðu sina
að mun. Samkvæmt tölum, sem
hafa verið birtar, fengu kristileg-
ir demókratar 51.7% atkvæða, en
höfðu 43.9 þegar slfkar kosningar
fóru þar fram siðast fyrir fimm
árum. Aftur á móti hrapaði fylgi
jafnaðarmanna frá 41.2% niður í
35.5%. FrjálSir demókratar unnu
eilítið á, fengu nú 8,8%, en slétt
8% síðast.
Við bæjarstjórnarkosningar f
Hamborg fyrir tveimur vikum
misstu jafnaðarmenn um 10.4%,
en þar i borg hefur staða flokks-
ins jafnan verið sterk.
Helmut Kohl, stjórnandi fylkis-
stjórnarinnar í Rheinland Pfalz,
og framrhámaður kristilegra
demókrata sagði, að úrslitin
mætti túlka sem persónulegan
ósigur Willy Brandts, kanzlara.
Sagði Kohl úrslitir^ vera trausts
yfirlýsingu á þá stefnu, sem
kristilegir demókratar hafa fylgt
á sambandsþinginu i Bonn, svo og
i bæjar^ og sveitarstjórnarmálefn-
um.