Morgunblaðið - 19.03.1974, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
Þar á kímnin
erfítt uppdráttar
Oskarsverðlaununum úthlutað í dag
AP —17. marz.
ÖSKARSVERÐLAUNUNUM
verður úthlutað í Hollywood á
morgun. Það eitt liggur fyrir
um verðlaunaveitinguna, að
Groucho Marx, einn Marx-
bræðra, hlýtur sérstök heiðurs-
verðiaun fyrir framlag sitt til
grínmyndarinnar og með þessu
virðist kvikmyndaakademían
vera að friða samvizkuna eftir
að hafa vanrækt þessa grein
kvikmyndanna um áraraðir.
Akademían hefur jafnan á
fjörutíu-og-sex ára ferli sínum
haft tilhneigingu til að verð-
' launa fyrst og síðast dramatfsk
tilþrif á hvfta tjaldinu, en
gleymt öllum þeim fjölmörgu,
er fengið hafá kvikmyndahús-
gesti til að hlæja ærlega. Fyrir
bragðið hafa sígildir grín- og
gamanleikarar, svo sem Chap-
lin, Horold Lloyd, W.C. Fields,
Laurel og Hardy (Gög og
Gokke), Buster Keaton og
Marx-bræður, aldrei hlotið
þessi eftirsóttustu verðlaun
kvikmyndaiðnaðarins banda-
rfska. Ymsir síðari tíma grín-
leikarar eins og Bob Hope, Red
■ Skelton, Jerry Lewis, Danny
Kaye og Woody Allen hafa
einnig goldíð fyrir gamansemi
sína.
Venjan hef ur hins vegar ver-
ið sú, að stjórn Akademíunnar
hefur um síðir reynt að bæta
fyrir yfirsjónir stofnunarinnar
með sérstökum heiðursverð-
launum og þannig fékk Edgar
Bergen slíkan „heiðursóskar"
árið 1937, Lloyd og Hope árið
1952, Kaye 1954, Eddie Cantor
1956, Keaton árið 1959, Stan
Laurel árið 1960 og Chaplin
árið 1971. Og í ár er það
Groucho. Hann er nú 83ja ára
að aldri og honum varð að orði,
þegar hann fékk fréttir af verð-
launaveitingunni: „Bræður
mínir og ég hefðum átt að vera
búnir að fá þau fyrir löngu.“
Hann kvaðst ekki skilja afstöðu
Jack Lemmon — sigurstrang-
legastur f ár fyrir leik sinn f
Save the Tiger.
Akademíunnar til grínmynd-
anna en spáði því, að einhvern
tfma myndi Woody Allen hljóta
Óskarinn.
Það verður þó ekki f ár, enda
þótt síðasta gamanmynd Allen
— Sleeper — hafi fengið mjög
lofsamlega dóma og sé talin
bezta mynd hans til þessa.
Myndin fékk enga útnefningu í
ár, og vakti það töluverða at-
hygli í röðum kvikmyndaunn-
enda. Þannig birtist til dæmis
heilsíðu auglýsing í kvikmynda-
blaðinu Variety án þess*að aug-
lýsandinn væri auðkenndur:
„Hamingjuóskir til Akademí-
unnar fyrir að hafa enn einu
sinni snúið bakinu við hæfileik-
um og listfengi með því að loka
augunum fyrir Woody Allen og
frábæry mynd hans — Sleeper
— við verðlaunaútnefninguna.
Charlie Chaplin og Marxbræð-
ur fengu heldur aldrei Óskar
fyrir framlag sitt. Hafa engir af
ykkur þarna gaman af því að
hlæja?“
Hverjir eru svo þessir aka-
demísku kjósendur? Þeir eru
samtals , 3.200, fulltrúar allra
skapandi greina kvikmynda-
iðnaðarins og komast á félags-
skrá fyrir „merkt framlag til
iðnaðarins", eins og það heitir.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til að yngja akademfuna upp, er
meirihluti félaganna kominn af
léttasta skeiði og fhaldssamur í
viðhorfum. Viðkvæmnin,
væmnin á upp á pallborðið hjá
þessu fólki en nekt, frumleiki
og skop virðist eitur í þeirra
beinum.
Eina leiðin fyrir gamanleik-
ara til að hljóta náð fyrir aug-
um Akademíunnar er að taka
að sér alvarlegt, dramatískt
hlutverk. Þannig hlaut t.d.
æðsti prestur hinna*léttu gam-
anmynda. Cary Grant einu út-
nefningar sínar — fyrir Penny
Serenade árið 1941 og None but
Barbra Streisand — er n einu
sinni hlýtur hún útnefningu.
the Lonly Hearts þremur árum
síðar.
í ár er það Jack Lemmon,
sem líta má á sem arftaka
Grants innan gamanmyndanna.
Hann hlaut útnefningu fyrir
leik sinn í háalvarlegu hlut-
verki í myndinni Save the
Tiger. Lemmon hlaut Óskarinn
árið 1955 fyrir aukahlutverk
í gamanmyndinni Mister
Roberts — eitt af fáum skipt-
um, sem gamanhlutverk hefur
hlotið verðlaun.
Brando — lfklegur Óskarsverðlaunahafi aftur f ár, svo og myndin
Sfðasti tangó f Parfs.
sannferðuga lýsingu á lífsbar-
áttu miðaldra konu í „Summer
wishes, winter dreams", hlut-
- verk, sem ætji, að falla vel að
smekk hinna akademísku kjós-
enda um verðlaunaveitinguna.
Bezta kvikmyndin: Aka-
demísku kjósendurnir eru van-
ir að horfa framhjá ýmsum.yan-
köntum á kvikmynd, ef hún
sýnir og sannar, að hún eigi
eftir að gera það gott fjárhags-
lega. Þar af leiðir, að The
Exorcist er líklegastur sigur-
vegarinn og 'um leið bendir
flest til þess, að William Fried-
kin, leikstjóri fyrrnefndrar
myndar, hljóti Óskarinn sem
bezti leikstjórinn.
I keppninni um að hreppa
Óskarinn fyrir beztan leik f
aukahlutverki meðal leik-
kvenna stendur baráttan m.a.
milli tveggja ungstirna —
þeirra Lindu Blair, er lék stúlk-
una sem haldin var djöflinum í
Excorist, og Tatum O’Neal
(dóttur Ryan O’Neal úr Love
Story), sem unnið hefur hug og
hjörtu áhorfenda í The Paper
Moon. Líklegasti sigurvegarinn
þar er þó leikkona af eldri kyn-
slóðinni — Silvia Sidney fyrir
leik sinn f Summer dreams,
winter wishes. I sama flokki
meðal karlleikara berast öll
bönd að John nokkrum Hous-
man, virtum kvikmyndafram-
leiðenda en nýliða innan vé-
banda Þalíu, fyrir túlkun sína á
kaldranalegum lagaprófessor í
„Paper Chase“.
Bezti leikstjórinn: Á undan
er getið hversu sigurvænlegur
William Friedkin verður að
teljast í þessum flokki, en auk
hans eru útnefndir: George
Lucas fyrir American Graffiti,
Ingmar Bergman fyrir Hvfsl og
hróp, Bartolucci fyrir Síðasta
tangóinn og George Roy Hill
fyrir The Sting — sá siðast-
nefndi gerði á sínum tfma
myndina Bud Cassidy and the
Sundance Kid og voru þeir Red-
ford og Paul Newmann þar
einnig í aðalhlutverkum.
Glenda Jackson f myndinni A Touch of Class — hún og myndin
hlutu útnefningu.
„Serpico” og Robert Redford
fyrir „Sting“. Allt eru þetta
virtir og vinsælir leikarar en
túlkun þeirra skortir dýpt
Lemmons og Brando. Lemmon
er því líklegasti sigurvegarinn í
flokknum Bezti karlleikarinn
1974.
Keppnin 'um titilinn Bezta
leikkonan er hins vegar öllu
tvfsýnni, þvf að þar er engin,
sem sker sig sérstaklega úr.
Glenda Jackson sýndi að vísu
nýja hlið á sér sem gamanleik-
kona í „Touch of Class” en eins
og rækilega hefur verið undir-
strikað hér á uridan, þá eiga
gamanhlutverkin erfitt upp-
dráttar innan Akademíunnar.
Barbra Streisand var einnig
sannfærandi sem byltingar-
sinnuð hugsjónakona i „The
Way We Were“ og Marsha
Mason birti áhorfendum nýja
gerð vændiskonu í „Cinderella
Liberty". Nú, og ef myndin
„The Exorcist" spjarar sig
bærilega innan Akademíunnar,
þá hefur Ellen Burstyn góða
von um Óskar, þó að brellur
leikstjórans skyggi á stundum á
leik hennar. Að öllu athuguðu
virðist þó Joanne Woodward
líklegasti sigurvegarinn fyrir
Jack Lemmon á þó í harðri
samkeppni. Fyrstan keppi-
nautanna má telja Marlon.
Brando, sem væri væntanlega
líklegasti verðlaunahafinn nú
fyrir leik sinn í Síðasta tangó-
inum í París, hefði hann ekki
móðgað Akademíuna í fyrra
með svo eftirminnilegum hætti.
Þrír yngri leikarar koma einnig
sterklega til greina: Þeír Jack-
Nicholson fyrir „The Uast
Detail", A1 Pacino fyrir
Ungstirnið Tatum O’Neal, 10
ára, þykir lfkleg fyrir leik sinn
f Paper Moon.
44 stúdentar ljúka
prófum frá H.í.
í LOK haustmisseris hafa eftir-
taldir 44 stúdentar lokíð prófum
frá Háskóla íslands:
Embættispróf í læknisfræði: (13)
Brynjólfur Á. Mogensen
Friðrik Páll Jónsson
Geir Friðgeirsson
Gylfi Haraldsson
Hafsteinn Sæmundsson
Karl Haraldsson
Kristján Arinbjarnarson
Niels Chr. Nielsen
Ólafur Eyjólfsson
Páll Ammendrup
Stefán Jóh. Hreiðarsson
Sturla Stefánsson
Þorsteinn Gíslason
Embættispróf ílögfræði: (5)
Atli Vagnsson
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Jón Magnússon
Kristján Sigvaldason
Steindór Gunnarsson -i’
Kandfdatspróf f viðskiptafræð-
um:(13)
Árdís Þorðardóttir
Guðjón Smári Agnarsson
Guðmundur R. Ingvason
Gunnar Rafn Einarsson
Gunnar Kjartansson
Gunnar Ólafsson
Hilmar Sigurðsson
Hinrik Greipsson
Hjálmur S. Sigurðsson
Ragnar Árnason
Sigurður Haraldsson
Sveinn G. Helgason
Tómas Óli Jónsson
Kandídatspróf í fslenzku: (1)
Gunnlaugur Ingólfsson
Kandfdatspróf Isagnfræði: (1)
Kristján Sigvaldason
B.A. -próf I heimspekideild: (6)
Bjarney Kristjánsdóttir
Bryndís Schram
Brynjar Viborg
Kristinn Jóhann Sigurðsson
Sigrún Helga Árnadóttir
Þórdfs Þorvaldsdóttir
B.S. -próf f verkfræði- & raun-
vfsindadeild
Lfffræði sem aðalgrein: (3)
Karl Gunnarsson
Sigríður Guðmundsdóttir
Tómas ísleifsson
Jarðfræði sem aðalgrein: (2)
Bessi Aðalsteinsson
Þórunn Skaftadóttir
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu f blaðinu sl.
sunnudag, að með afmælisgrein
um Ólaf Jóhannsson, Reykja-
lundi, birtist mynd af föður hans,
Jóhanni Gunnarssyni. Eru við-
komendur beðnir velvirðingar á
þessu.
r
I landnýt-
ingarnefnd
í GREIN um landgræðsluáætlun
1974—1978 féll niður nafn
nefndarmanns i landnýtingar- og
landgræðslunefndinni. Það var
nafn Ingva Þorsteinssonar
magisters, sem er einn 7 nefndar-
manna.
Rangt
föðurnafn
HÖFUNDUR athugasemdar á síð-
unni „Krossgötum” í blaðinu sl.
sunnudag er Jóhannes Tómasson,
en ekki Frímannsson, eins og mis-
ritaðist i blaðinu.