Morgunblaðið - 19.03.1974, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
HEILSUVERND
AlþjóSlegt dreifingarfyrirtæki með sambönd í mörgum löndum
hyggst opna markað á íslandi. Óska eftir að komast í samband við
einstakling eða fyrirtæki, sem vill taka að sér að koma á markað
stórkostlegum nýjum vörutegundum, sem nú þegar hafa selst
fyrir hundruð milljóna sænskra króna.
Viðkomandi íslenzkt fyrirtæki þarf að geta lagt fram $. 8000
Vlð bjóðum:
0 Einu vörutegundina af þessari gerð, sem er á markaðnum.
0 Alhliða þjálfun hjá sænsku skrifstofunni.
Innifalið: Flugmiði, hótelkostnaður o.s.fr.v., greitt af okkur.
0 Einkaréttur.
41 Útvegum notkun á kvikmyndum, auglýsingum, bæklingum
ofl.
Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum vinsamlega hafi samband við:
DIR.GUY HANNERFALK. HÖTEL SÖ6U, SÍMI 20600
— Stríðshetjan
Framhald af bls. 17
landamæri eru ógreinileg og erf-
itt að verja þau. Þannig sé Portú-
gölum um megn að uppræta þá og
loka aðflutningsleiðum. Hann tel-
ur, að Portúgalar geti í mesta lagi
haldið í horfinu, en óttazt, að
þjóðinni blæði út, hefur þungar
áhyggjur af því, að iðnaður Portú-
gals er skammt á veg kominn og
lffskjörin svo bág, að fjöldi fólks
neyðist til að flytjast úr landi, og
er uggandi um, aðPortúgalar ein-
angrist, að þeir geti ekki bjargað
sér oe naumast séð sér farborða.
Samkvæmt hugmyndum Spin-
ola um sambandsríki eiga nýlend-
urnar að fá sjálfsákvörðunarrétt.
Portúgal, Mozambique, Angola og
Guinea eiga að vera jafnréttháir
aðilar, hver með sitt eigið þing og
þjóðkjörinn landstjóra, sem yrði
ábyrgur gagnvart sambandsþingi
og sambandsstjórn, sennilega
með aðsetri í Lissabon. Sam-
bandsstjórnin, færi með fjármál,
varnarmál og utanrikismál, en
sérstakur ráðherra hefði það
verkefni að samræma aðgerðir
ríkjanna í menntamálum, þróun-
armálum og á fleiri sviðum. Sam-
bandsstjórnin gæti einnig beitt
neitunarvaldi gegn ríkisfjárlög-
um. Spinola gerir ráð fyrir fullri
þátttöku blökkumanna í stjórn
mála og óttazt, að stuðningsmenn
hvítrar aðskilnaðarstefnu nái
völdunum í Mozambique og Ang-
ola.
Nú hefur Spinola verið settur
af og skoðanir hans bannfærðar.
Harðari stefna er framundan í
nýlendunum og heima fyrir. Dr.
Caetano hefur orðið að láta undan
þrýstingi manna, setn standa
lengst til hægri, og tilraun hans
til að vega salt milli hægri manna
og frjálslyndra hefur farið út um
þúfur. Brottvikning Spinola er
greinilega mikið áfall fyrir Cae-
tano. Fljött á litið eru auknar
líkur á byltingu en hlutverk bylt-
ingarforingja virðist ekki eiga við
Spinola og bylting gæti alveg eins
komið frá hægri.
Bifvélavirkjar
vélvirkjar eða menn vanir bifreiða-
viðgerðum óskast.
Uppl. í skrifstofunni Reykjanes-
braut 12 og í síma 20720.
ísarn h.f.
STYRIMANN 0G
VÉLSTJÓRA
vantar á bát, sem er að hefja netaveiðar frá Þorláks-
höfn. Vanur skipstjóri verður með bátinn. Upplýsing-
ar i síma 99-3662 og 25741.
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar er laus til um-
sóknar. Gert er ráð fyrir, að ráðning
taki gildi 1. maí n.k. eða síðar eftir
nánara samkomulagi. Upplýsingar
um starfsskilyrði og kjör veittar á
Biskupsstofu Klapparstíg 27,
Reykjavík.
Framkvæmdanefndin
Afgreiðslumaður
í byggingarvöru- og búsáhaldaverzl-
un, getur fengið trausta atvinnu.
Tilboð óskast send afgr. Mbl. fyrir
23. þ.m. markt: „TRAUSTUR —
4916“.
Stórt bifreiða
verkstæði
óskar að ráða verkstæðisformann.
Uppl. sendist Mbl. merkt: 5163.
Óskum að ráða stúlku
til afgreiðslustarfa í veitingasal.
Vaktavinna. Upplýsingar í símum
25640 og 20490.
Brauðbær Veitingahús,
Þórsgötu 1.
Heimilisstörf
Dveljið í Danmörku í vor og lærið
heimilisstörf. 10 vikna námskeið frá
1. apríl og 18 vikna frá 16. apríl. Frá
ágúst 12 eða 20 vikna. Bæklingur
sendur.
Hedsten Husholdningsskole,
8370 Hedsten, Danmark
sími 06 980145.
Járnamenn
Okkur vantar járnamenn nú þegar
eða menn sem vilja læra járnlagnir.
Uppl. í símum 82340 og 82380.
Breiðholt h.f.
JÁRNIÐNAÐARMENN
ÓSKAST
LANDSSMIÐJAN