Morgunblaðið - 19.03.1974, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
Iðunn Eylands Reyk-
dal — Minninyarorð
ARIÐ 1938 útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reykjavík stú-
denlahópur, sem var að því leyti
óvenjulegur, að þar voru 19 stúlk-
ur. en slíkt hafði ekki gerzt áður í
sögu skólans. A síðustu fimm ár-
um hafa fjórar þeirra horfið úr
þessu lífi. Allar áttu þær við
hörmulegan sjúkdóm að stríða.en
hiirðust með hetjulund þar til yfir
lauk.
Nú stöldrum við bekkjarsyst-
urnar víð og kveðjum Iðunni Ey-
lands Reykdal, sem andaðist f
Hafnarfirði þann 9. þ.m. Iðunn
fasldist í Noregi þann 22. janúar
il'19, dóttir hjónanna Margit og
Arria Evlands. Var hún einkadótt-
ir þeirra. en bróðir hennar, Erik.
i‘t' húsettur hér i Re.vkjavík. Hún
lók ínntökupróf í menntaskólann
árið 1932 og eins og áður segir
stúdentspróf þaðan 1938. Síðan
fór hún til Noregs og hugðist
stunda þar nám f lyfjafræði, en
vegna heimsstyrjaldarinnar síð-
ari kom llún heim aftur, en fór
seinna til náms í sama fagi til
Bandaríkjanna. Þar giftist hún
eftirlifandi manni sínum, Þórarni
Reykdal, sem einnig var þar við
nám. Þau komu svo hingað til
lands og settust að í Garðahreppi.
Síðar reistu þau sitt heimili að
Móbergi við Hafnarfjörð. Börn
þeirra eru Jóhannes, Margrét,
Þórunn, Iðunn og Árni. Iðunn og
Þórarinn voru mjög samhent og
sást það bezt, er þau unnu að
byggingu húss síns. Iðunn var
mjög listræn og fór það ekki al-
faraleiðir. í skóla minnumst við
teikninga hennar og handavinnu.
Hún stundaði ferðalög alla tíð.
Við munum eftir henni í göngu-
og skíðaferðalögum, sem farin
voru hvenær, sem færi gafst. Við
eigum ljúfar minningar um
sunnudagsferðirnar með Pálma
Hannessyni, Einari Magnússyni,
og Valdemar Sveinbjörnssyni,
sem alltaf voru reiðubúnir að fara
með hópinn i ferðalög i gamla
Grána. Þá var gaman að Iifa. Þeg-
t
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Kverngrjóti,
andaðist að Hrafnistu 1 7 þ.m.
Vandamenn.
Maðurinn minn t SIGUROUR J. THORODDSEN
Jökulgrunni 1
andaðist 1 8. þm. Emma Guðjónsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
SVERRIR ÓLAFSSON,
Hæðargarði 22,
lézt á Landakotsspítala laugardaginn 1 6. marz.
Sofffa Kristjánsdóttir,
Björg Sverrisdóttir, Guðmundur Hervinsson,
Björn Sverrisson, Sólveig Indriðadóttir.
Eiginkona mín t
lézt þann 1 1. ÞÓRHALLA EINARSDÓTTIR LUND, þ.m. Jarðarför hefur farið fram. Þökkum auðsýnda
samúð. Grímur Lund, börn og tengdabörn.
Eiginkona mín,
GUÐFINNA MAGNÚSDÓTTIR,
Skjólbraut 7, Kópavogi,
er lést í Landspítalanum 1 3. marz, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. marz kl. 1 5
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda,
Kristmundur Arnason.
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
ÁRMANN BJARNASON,
Vallartúni 1,
Keflavlk,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn 20. marz kl. 2.
Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hins látna er
bent á líknarstofnanir.
Gunnhildur Oddsdóttir,
Guðrún Ármannsdóttir, Ásgeir Sigurðsson.
Minning:
t
Bróðir minn,
MARKÚS KARLSSON,
lézt í Landakotsspítala að
morgni 1 8 marz.
Bertha Karlsdóttir.
Ma tth ías Lýðsson
ar prófunum úr fimmta bekk var
lokið, var farið í vikuferðalag
norður í Skagafjörð. Pálmi rektor
og Valdimar voru fararstjórar.
Meðal annars fórum við þá í
Drangey. Drífa Viðar skrifaði
ferðasöguna, en Iðunn gerði káp-
una á bókinni. Síðan eru mörg
vötn til sjávar runnin. Hópurinn
frá 1938 hefur alla tíð haldið vel
saman og við höfum fylgzt hvert
með öðru, og margar eru gleði-
stundirnar, sem við höfum átt
saman. En sorgin og gleðin eru
systur og nú munum við hittast á
sorgarstund er við kveðjum eina
úr hópnum, eina þá kjarkmestu
og duglegustu, sem nú er horfin
fyrir aldur fram.
Við þökkum samveruna og
sendum eiginmanni, börnum, for-
eldrum og bróður samúðarkveðj-
ur og biðjum guð að styrkja þau í
sorg þeírra.
Bekkjarsystur.
Fæddur 23. apríl 1891.
Dáinn 11. marz 1974.
Um síðustu aldamót bjuggu að
Hjallanesi f Landsveit hjónin
Sigríður Sigurðardóttir og Lýður
Arnason. Bæði voru þau af
traustu bergi brotin, Lýður af
Keldnaætt, Sigríður af ætt séra
Jóns Steingrímssonar, sem oft er
nefndur eldprestur. Svo sem löng-
um hefir verið með íslenskt
bændafólk, voru þau hjónin ekki
auðug í veraldlegum skilningi,
höfðu sjaldnast nokkuð fram yfir
brýnustu nauðsynjar. En annan
og verðmætari auð áttu þau þó
þar sem var stór og myndarlegur
barnahópur þeirra og fádæma
styrk trú þeirra á Guð og lífið.
Þau eignuðust tólf börn, tvær
dætur og tíu syni, sem öll komust
til fullorðinsára og hefir farnast
vel. Gott vegnesti fengu þau líka
úr föðurhúsum, lífsviðhorf þess
er treystir Guði og sjálfum sér og
trúir þvf að það sem öðrum er gott
gert, skili sér margfalt til baka.
Síðastliðinn mánudagsmorgun
lést í Landspítalanum einn sona
þeirra Sigríðar og Lýðs, Matthías,
eftir langa og erfiða baráttu við
illvígan sjúkdóm. Hann var
fimmti í röð þeirra systkina,
fæddur á sumardaginn fyrsta,
23ja apríl 1891. Eftir standa nú
fimm af öllum hópnum, þrír
bræðranna og systurnar báðar.
Fyrstu ár ævinnar naut
Matthías handleiðslu foreldra
sinna og félagsskapar systkina.
Þröngur kostur sveitaheimilisins
skikkaði hann þó ungan, svo sem
og bræður hans, til að sjá sér
sjálfur farborða. Innan
fermingaraldurs lá leið hans að
Fellsmúla f Landsveit til þeirra
prófastshjóna séra Ófeigs Vigfús-
sonar og frú Ólafiu Ölafsdóttur.
Hjá þeim átti hann heimili fram
um tvítugt og minntist æ síðar
þeirra og Fellsmúlaheimilisins
með mikilli hlýju. Ur heimasveit
sinni hélt hann svo krókalítið til
Reykjavíkur, laust fyrir 1920. Þar
stofnaði hann heimili ásamt eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Kristinu
II. Stefánsdóttur, ættaðri úr
Mývatnssveit. Þau hjónin voru
alla tíð mjög samhent og bjuggu
börnum sínum þremur, Elínu.
Huldu og Gunnari, svo og móður
Kristínar, Elínu Þorsteinsdóttur,
frábært heimili. Síðustu tuttugu
og átta árin hafa þau búið að
t
Eiginmaður minn
dr. phil. ÞÓRÐUR ÞORBJARNARSON
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 20 marz kl.
10.30
Sigríður Cl. Þorbjarnarson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
JÓHANNS GUNNARS KRISTJÁNSSONAR.
Vandamenn
Grenimel 26 og þar hafa börn
þeirra, tengdabörn, og barnabörn
og barna-barnabarn lifað margar
góðar stundir, sem þau nú minn-
ast með þakklæti.
Vmis tímabundin störf vann
Matthías fyrst eftir komuna til
Reykjavíkur. Fljótlega gekk hann
þó i raðir starfsmanna Lýsis-
samlagsins og vann þar meðan hon
um entist heilsa, lengst af sem
verkstjóri. Árið 1956 veiktist
hann og mátti þar eftir ekki
stunda reglubundna vinnu. Ekki
féll honum það vel, hafði alla tíð
verið starfssamur og litið á vinn-
una sem eina af meginstoðum lífs
hvers manns, þá bjargaði stilling-
in og sálarþrekið sem hann bjó
yfir.
Matthfas Lýðsson var einstak-
lega dagfarsprúður maður. Hvort
heldur hann var staddur á manna-
mótum, við glens og gaman, eða á
alvörustundum lífsins, fylgdi hon-
um alltaf stök rósemi og stilling.
Jafnt þegar hann gerði að gamni
sínu, sem þegar hann ræddi þau
málefni sem honum voru helgust,
var það alla tfð með sömu hægð-
inni gert, hávaðalaust, en komst
þó allt til skila. Æðrulaust gekk
hann líka gegnum öll sin veikindi
og lét aldrei heyra frá sér kvart-
anir um hlutskipti sitt, hvað sem
yfir kom. Honum fylgdi traust og
öryggi sem vandamenn hans
koma lengi enn til með að njóta
góðs af.
Matthfas var heimilisrækinn
maður og lét sér ákaflega annt um
að treysta öll bönd innan
fjölskyldunnar. Hann var einnig
vinfastur og góður heim að sækja.
Reglumaður var hann, byrjaði þö
að reykja upp úr áttræðu og
skemmti séroft prýðilega yfir við-
brögðum sinna nánustu við þvf.
Annars hafði hann óbeit ó mikilli
neyslu tóbaks og áfengis, einkum
hjá ungu fólki, sem hann taldi
taka mestan skaða af slíku.
Þótt skoðanir Matthíasar læg.ju
t
Eiginmaður minn, faðir og
tengdafaðir
GUÐMUNDUR HANNESSON
frá Móhúsum, Stokkseyri
andaðist á Hrafnistu
sunnudaginn 1 7. marz.
Stefania Sigurðardóttir
börn og barnabörn.
t
Faðirokkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN INGVARSSON,
bakarameistari,
Dalbraut 1,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 19. marz kl.
13.30
Ingvar Þorsteinsson, Steinunn Geirsdóttir,
Viðar Þorsteinsson, Lilja Eiríksdóttir,
Kristinn B. Þorsteinsson, Hulda Eiríksdóttir,
Þorsteinn Þorsteinsson, Edda Guðmundsdóttir,
Jóhanna Norðfjörð, barnabörn og barnabarnabörn.
S. Helgason hf. STEINIÐJA
llnholti 4 Slmar 24677 og 14254