Morgunblaðið - 19.03.1974, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
25
fclk f
fréttum
Sammy
utan
sviðsins
SAMMY Davis jr., banda-
ríski skemmtikrafturinn,
sem birtist mönnum oft-
ast sem gríðarlega
atorkumikill og úthalds-
göður listamaður með
eilíft risabros á þeldökku
andlitinu, er raunar í
einkalífi sínu rólegur og
hugsandi maður og legg-
ur mikla vinnu í að við-
halda vinsældum sínum.
— Ég er nefbrotinn, með
glerauga, er Gyðingur og
meira að segja negri, svo-
leiðis að ég er einfaldlega
tilneyddur að vinna
meira en aðrir, hefur
hann sjálfur sagt. Og
hann hefur unnið af
krafti í skemmtikrafta-
starfinu frá tveggja ára
aldri, er hann byrjaði
sem hjálparkokkur hjá
karli föður sínum. En
hann hefur aldrei iðrazt
þess að hafa valið sér
þetta starf, þrátt fyrir
alla vinnuna.
„KYNBOMBAN" er nafn á nýrri sjónvarpskvikmynd, sem verið er
að gera með leikkonunni Connie Stevens f aðalhiutverki. Myndin
fjallar um Ijóshærða, kynþokkafulla kvikmyndadrottningu sjötta
áratugarins, sem fyrst giftist frægum íþróttamanni, en fær síðan ást
á þekktum rithöfundi — en heldur allan tímann við einn af
kunnustu stjórnmálamönnum þess tíma. Myndin endar á því, að
stjarnan deyr af völdum og stórs skammts af áfengi og lyfjum.
Hvergi f myndinni er Marilyn Monroe nefnd á nafn, en hún var
sem kunnugt er fyrst gift íþróttastjörnunni Joe DiMaggio og síðan
rithöfundinum Arthur Miller og er sögð hafa haldið við John F.
Kennedy, Bandaríkjaforseta. En það vita allir við hverja er átt.
— Ég geri allt, sem ég get, til að líkjast Marilyn Monroe, segir
Connie, sem eitt sinn var eiginkona Eddie Fisher. — En ég þekkti
hana aðeins af litlu atviki. Marlyn átti að afhendai kvikmyndaverð-
laun. en þegar hún kom, var hún svo ölvuð. að hún datt. Eg hjálpaði
henni á fætur, en hún hefur örugglega ekki skynjað neitt hvað var
að gerast.
Útvarp Reykjavík #
ÞRIÐJUDAGUR
19. ma rz
7.00 Morgunú I varp
Veðurfrof’nir kl. 7.00, 8.15 oj* 10.10.
Morj'unléikf imi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7. .‘10, 8.15 (og forustuj»r. da«-
bl.). 9.00o« 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45: Þor-
loifur Hauksson heldur áf ram að lesa
söguna „Klsku Mió minn“ eftir Astrid
Lindgren (16).
Morgunleikf imi kl. 9.20. Ti Ikynmngar
kl. 9.30.
Þingfréttirkl. 9.45. Létt lög á milli liða.
Fg man þá tíð kl. 10.25: Tryggvi
Tryggvason sér um þátt með frásögum
og tónlist frá liðnum árum.
Tónleikar kl. 11.25: Walter Klien leik-
ur á pfanó verk eftir Mozart.
12.00 Dagskráin Tónleikar. Tilkynning*
ar.
12.25 LYéttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Efti r hádegið
Jón B. (lunnlaugsson leikur lét? lög og
spjallarvið hlustendur.
14.30 Flokkað eftiraldri
k\rsti þáttur um málefni aldraðra:
Umsjón: Sigrún Júlíusdóttir og Sig-
mundur Örn Arngrimsson.
15.00 Miðdegistónleikar Islenzk tónlist
a. Lög eftir Sigvalda Kaldak'ms. Þórar-
in Guðmundsson. Arna Thorsteinson
og Jóhann Ó. Haraldsson
Sigurveig Hjaltested syngur; Guðrún
Kristinsdóttir leikur á pían<).
b. Sónata fyrir klarinettu <)g píanó eftir
Jón Þórarinsson.
Egill Jónsson og Gutknundur Jónsson
leika.
c. Sónata fvrir fiðluog pfanc) eftir Jón
Nordal.
Björn Ölafsson og höfundur leika.
d. „Ymur", hljómsveitarverk eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson.
Si nfóníuhljómsveit íslands leikur; Páll
P. Pálsson.
16.00 LYéttir. Tilkynningar. 16. lSVeður-
fregnir.
16.25 Popphornið
17.10 Tónlistarti'mi harnanna
Ólafur Þtirðarson sér um ti'mann
17.30 FYamburðarkennsla I frönsku
17.40 Tónleikar.
18.00 Á vett vangi dómsmálanna
Björn Helgason hæstari'ttarntan talar.
18.20 Tónleikar.TiIkynningar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins
19.00 Fréttir. Tilkynnirigar.
19.25 Fréttaspegill
19.40 Tónleikakynning
Gunnar Guðmundsson framkvæmda-
stjöri segir frá tijnleikum Sinfóníu-
hlj<)msveitar ísland í nkunni.
19.50 Ljíið eftir sænska skáldið Harry
Martinsson; — annar lestur
Jón skáld úr Vörleseigin þýðingar.
20.00 Lög unga fólksins
Hagnheiður Drifa Steinþorsdóttir
kynnir.
21.00 Hæf ilegur skammt ur
Gfsli Rúnar Jónsson og Júlíus Brjáns-
son sjá um þátt meðléttblönduðu efni.
21.30 Áhvitum reitum og svörtum
Ingvar Asmundsson sér um skákþátt
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Lestur Passiusálma ( 32)
22.25 Kvöldsagan: „\’öggu\ ísa" eftir F]li-
as Mar
Höfundur les (10)
22.45 Harmonikulög
Dick Contino leikurásamt hljómsveit
23.00 Áhljóðbergi
Peter Ustinov les „Einhyminginn f
garðinum"og aðrargrátiegardæmisög-
ur fyrir nútímamenn eftir James Thu r-
lx*r.
23.35 Fréttirí stuttu máli. Dagskrárlok.
*
A skjánum
*
Þriðjudagur
19. mars 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lítið skákmót isjónvarpssal
Fimmta skák.
Hvitt: Friðrik Ólafsson.
Svart: Forintos.
Skýringar flytur Guðmundur Arn-
laugsson.
21.00 Mósambikk
Þáttur úr flokki sænskra fréttamynda
um ungu kynslóðina i Mósambikk og
starfsemi frelsishreyfingarinnar. F're-
limo.
Þýðandi og þulur Gylfi Gröndal.
(Nordvision — Sænska sjónvarpið)
21.30 Va Idatafl
Bresk framhaldsmynd.
6. þáttur. Útsýnið
Þýðandi Jón O. Edwald.
Efni 5. þáttar:
B1 igh-fyrirtækið hefur gert samninga
við hollenska og italska aðila um sam-
vinnu við stórfelldar vega- og bygg-
ingaframkvæmdirá ítalíu.
í ljós kemur, að einhverjir hafa komist
á snoðir um fyrirhugaðar framkvæmd-
ir. þvi lóðir eru þar keyptar i stórum
stíl af aðvifandi kaupahéðnum.
Grunur fellur á Wilder. en honum
tekst að sanna, að háttsettir italskir
aðilar eigi þar mestan hlut að máli. og
þannig lx*inist athyglin frá Pamelu
Wilder og Don Henderson. sem einnig
höfðu verið viðriðinlóðabraskið.
22.20 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um erlend mál-
efni.
Umsjónarmaður Jón Hákon Magnús-
son.
Dagskrárlok
rvv
fclk 1
[ fjclmiélum
jj
Valdatafl
KL. 21.30er6 þáttur Valda-
tafls á dagskrá, og er óhætt
að segja, að atburðarásin sé
nú tekin að gerast allflókin
og ekki tekið út með sitjandi
sældinni að vera umsvifa-
mikill- kaupsýslumaður með
áhrif í opinberum stofnunum
í Bretlandi. Atburðirnir, sem
greint er frá, eru ein samfelld
svikamylla, og má mikið vera
ef Wilder og hyski hans á
ekki eftir að fá makleg mála-
gjöld.
En spyrjum að leikslokum
— margt á eftir að gerast,
og meira að segja gæti
hugsazt, að blessað fólkið
ætti eftir að sjá að sér og
verða siðprúðarog heiðvirðar
manneskjur, en nú hefur ver-
ið sýndur tæpur helmingur
þessa framhaldsmynda-
flokks.
Portúgal — Kúrd-
ar — Gullæðið
AÐ loknu Valdatafli verður
Heimshorn á dagskrá, og er
stjórnandinn að þessu sinni
Jón Hákon Magnússon. Við
höfðum samband við hann
til að forvitnast um efni þátt-
arins.
Haraldur Ólafsson mun
ræða um stjórnmálaástand !
Portúgal, en nýlega er komið
upp missætti hersins og
stjórnarinnar þar í landi
vegna stefnunnar í málefn-
um nýlendna.
Þá segir Árni Bergmann
frá Kúrdum í landamæra-
héruðum íraks, írans og
Tyrklands, og loks ætlar Jón
Hákon að fjalla um ,,gull-
æðið'', ástæður þess og
afleiðingar, en gullverð í
heiminum hefur hækkað
gífurlega undanfarna mán-
uði.
PETER USTIN0V
LES ÚR VERKUM
JAMES THURBER
KL 23.00 les Peter Ustinov
úr verkum eftir James
Thurber. James Thurber var
uppi á árunum
1894—1961. Hann hóf
feril sinn sem blaðamaður og
starfaði lengst af við The
New Yorker. Hann var kunn-
ur húmoristi og gerði góðlát-
legt gríh að samborgurum
sínum með frásögnum og
teikningum. Sú saga varð
fræg af Thurber, þegar hann
átti að fara að horfa á bruha,
sem hann átti síðan að skrifa
um i blað sitt. Hann fann
aldrei eldinn, en skrifaði þess
í stað sprenghlægilega lýs-
ingu af leit sinni að bruna-
staðnum