Morgunblaðið - 19.03.1974, Síða 32
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1974
TROPICANA®
sólargeislinn
frá Florida
Loðnuveiðin hefur verið góð undanfarna daga og mikill afii borizt á land. Þessi mynd var
tekin, er verið var að landa úr Vfði frá Neskaupstað f Reykjavfkurhöfn, en um leið var
loðnunótin tekin f land til viðgerðar, þvf að hún hafði rifnað tvfvegis, er skipið fékk of stór
köst. — Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Ráðuneytið kærir Sam-
einuðu efnasmiðjurnar
heilbrigðisraðuneytið
kærði í gær Sameinuðu efna-
smiðjurnar hf. til sýslumannsins
f Arnessýslu fyrir brot á 4. grein
reglugerðar nr. 164 frá 1972 um
varnir gegn mengun af völdum
eiturefna og hættulegra efna.
Fjórða greinin hljóðar svo: „Ef
reisa á verksmiðju eða iðjuver,
sem ætla má að falli undir ákvæði
1. greinar, má eigi ákveða stað-
setningu hennar, gerð né búnað
fyrr en að fengnu leyfi heil-
brigðismálaráðuneytisins.“ Telur
ráðuneytið, að kfttisverksmiðja
sú, sem Sameinuðu efnasmiðj-
urnar hyggjast reisa f Hvera-
gerði, falli undir 1. grein reglu-
gerðarinnar. Ingimar Sigurðsson,
lögfræðingur ráðuneytisins, sagði
f samtali við Mbl. f gær, að þessu
yrði fylgt eftir með lögbanni, ef
þurfa þætti.
Ölafur Þorgrímsson hrl.,
stjórnarformaður Sameinuðu
efnasmiðjanna hf., sagði í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, að þessi
kæra hlyti að vera fyrir hug-
renningarsyndir, því að stjórn
S.E. hefði lýst þvi yfir, að engar
framkvæmdir yrðu hafnar fyrr en
úr því hefði verið skorið, hvort
um mengunarhættu væri að ræða
frá kíttisverksmiðjunni. Ölafur
bætti því við, að úr því að ráðu-
neytið hefði kært til sýslumanns-
ins, yrði það að sanna fyrir dómi,
að kíttisframleiðsla væri hættu-
legur atvinnuvegur.
Prentarar
boða verkfall
Trúnaðarmannaráðsfundur f
Hinu fslenzka prentarafélagi
samþykkti f gær, að verkfall
prentara skuli hef jast aðfararnótt
miðvikudagsins 27. marz nk, hafi
samningar ekki náðst fyrir þann
tfma við Félag fslenzka prentiðn-
aðarins og rfkisprentsmiðjuna
Gutenberg.
Nú er vika sfðan sfðasti samn-
ingafundur þessara aðila undir
stjórn sáttasemjara var haldinn
og nýr fundur hafði í gærkvöldi
ekki verið boðaður.
Ríkisstjórnin lætur undan síga:
Leitar samninga við
stjórnarandstöðuna
• RÍ KISSTJÓRNIN hefur nú
látið undan sfga f átökum þeim,
sem staðið hafa síðustu daga um
skattafrumvarp hennar og í gær
leitaði forsætisráðherra eftir
samningum við stjórnarandstöðu-
flokkana um málið. Hreyfði for-
sætisráðherra þeirri hugmynd, að
sú breyting ein yrði gerð á skatta-
frumvarpinu, að söluskatts-
hækkunin yrði 4%, en ekki 5%.
Eftir því sem næst verður komizt
60—70 þús.
kr. þjófnað-
ur upplýstur
RANNSÖKNARLÖGREGLAN
upplýsti um helgina þjófnað á um
60—70 þús. kr. í peningum úr
verzlun menntaskólanema í ný-
byggingu M.R., sem Casa Nova
nefnist. Voru þar að verki þrír
12—14 ára piltar. Tveir þeirra
hafa komið oft áður við sögu hjá
lögreglunni. Fénu höfðu piltarnir
þrír skipt á milli sín og einnig
lofað einum kunningja sínum að
njóta góðs af. Voru þeir búnir að
eyða öllu nema um átta þús. krón-
um.
Bessi með
yfir 800 tonn
Súðavfk, 18. marz.
SKUTTOGARINN Bessi landaði
tvivegis í sl. viku, fyrst 115 tonn-
um og sl. laugardag 130 tonnum.
Togarinn hefur aflað yfir 800
tonn, það sem af er vertíðinni,
miðað við slægðan fisk.
Hér er nóg atvinna, enda er
allur afli af Bessa unninn hér.
— Sp. Þ.
hefur þó ekki náðst full samstaða
innan rfkisstjórnarinnar sjálfrar
um slfka breytingu, þar sem
Alþýðubandalagið gerir tilraun
til að tengja saman hugsanlegar
breytingar á skattafrumvarpinu,
væntanlegar ráðstafanir f efna-
hagsmálum og afgreiðslu varnar-
málanna.
# Stjórnarandstöðuflokkarnir
hafa ekki tekið afstöðu til
þessarar hugmyndar forsætisráð-
herra. Mikil fundahöld voru f
öllum þingflokkunum f gærdag
og gera má ráð fyrir frekari
fundum og viðræðum f dag.
Söluskattsfrumvarp ríkisstjórn-
arinnar var tekið til endanlegrar
atkvæðagreiðslu við þriðju um-
ræðu í efri deild í gær. Þar var
fyrst borin upp breytingartillaga
við frumvarpið frá meirihluta-
fjárhags- og viðskiptanefndar um
að frumvarpið gilti aðeins til ára-
móta. Var hún samþykkt með 11
samhljóða atkvæðum, þar eð
þingmenn stjórnar-
andstöðunnar sátu hjá. Þá
var frumvarpið borið upp
i heild og var samþykkt með
11 atkvæðum stjórnarþingmanna
gegn 9 atkvæðum stjórnarand-
stöðu. Ekki hefur verið boðaður
fundur um málið í neðri deild i
dag. Morgunblaðið sneri sér í gær
til leiðtoga stjórnmálaflokkanna
að þessu tilefni.
Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, kvað for-
sætisráðherra hafa átt fund með
sér og Gunnari Thoroddsen um
málið i gær um hugsanlega sam-
komulagsleið til lausnar málinu.
Hann kvað þingflokk Sjálfstæðis-
flokksins síðan hafa komið saman
til fundar og er ákveðið að ræða
málið aftur við forsætisráðherra i
Framhald á bls. 31
Strætisvagna-
miðum stolið
BROTIZT var inn f Höfðaskóla
aðfararnótt sunnudags, brotnar
rúður og skemmdar hurðir, og
stolið gftar og miklu magni af
strætisvagnamiðum, að verðmæti
allt að 60 þús. kr. Rannsóknarlög-
reglan handtók á sunnudag tvo 14
ára pilta, sem grunaðir voru um
verknaðinn, og hjá öðrum þeirra
fannst mikið magn af strætis-
vagnamiðum, sem hann gat enga
viðhlftandi grein gert fyrir. Pilt-
arnir hafa ekki viðurkennt þjófn-
aðinn.
Egilsstaðasamkomulag-
ið fellt á Seyðisfirði
SAMKOMULAG náðist milli
Alþýðusambands Austurlands og
vinnuveitenda á Austurlandi um
helgina og var það undirritað með
fyrirvara um samþykki félags-
funda. Var samkomulagið algjör-
lega hliðstætt samkomulaginu,
sem gert var I Reykjavík á milli
Kauphækkun iðnaðar-
er allt að 54%
manna
IÐNAÐARMANNAFÉLÖG eru
nú sem óðast að auglýsa taxta
slna eftir heildarkjarasamning-
ana. Morgunblaðið kannaði í gær,
hve mikil hækkun væri á töxtum
hinna ýmsu félaga og kom I ljós
að laun iðnaðarmanna hækka um
allt að 54% og er þá vísitala kaup-
gjalds, 6,18 talin með. Samkvæmt
könnun Mbl. eru það húsgagna-
smiðir, sem mesta prósentutölu
fengu 1 kauphækkun við hina ný-
gerðu kjarasamninga.
Meðal þeirra, sem Mbl. ræddi
við í gær var Kristbjörn Arnason,
húsgangasmiður. Kristbjörn sagði
að grunnkaup húsgagnasmiða
hefði hækkað um 44 ti!45% og er
ASl og VSÍ. Var verkfalli, sem
átti að hefjast á miðnætti á
laugardagskvöld, því frestað,
nema á Eskifirði. En síðar sam-
þykkti félagsfundur á Eskifirði
samkomulagið og var verkfalli þá
aflýst. Félagsfundur á Seyðisfirði
felldi hins vegar samkomulagið
og kom því til verkfalls þar. I
gærkvöldi mun hafa átt að halda
þar félagsfund að nýju til að
fjalla um þetta mál, en fyrri
fundurinn mun ekki hafa verið
fjölsóttur. Vegna slæmra sam-
gangna gekk erfiðlega að koma
samkomulagsskjölunum á alla
staði á Austurlandi, frá Horna-
firði og norður úr, en samninga-
fundirnir höfðu farið fram á
Egilsstöðum.
sú hækkun án vísitölu. Sé hins
vegar reiknað með vísitölu verður
hækkunin 53,96% eða sem næst
54%. Inn í þetta dæmi er þá ekki
reiknað með orlofslengingu, sem
húsgagnasmiðir fengu, en einnig
fengu þeir veikindadögum
fjölgað f 33 úr 28 dögum. Þessa
lengingu fengu smiðirnir með því
að afsala sér fyrsta veikindadeg-
inum, ef viðkomandi yrði veikur
skemur en 5 daga. Sagðist Krist-
björn ekki vita, hve mikið þessar
breytingar vægju í breytingu á
taxta húsgagnasmiða. Utborgað
kaup í hinum almenna taxta hús-
gagnasmiða er nú á viku 12.720
krónur og er það hæsta kaup, en
10% álag kemur á þetta kaup, ef
um vélavinnu er að ræða. Þá skal
þess getið að meistarar í hús-
gagnaiðn eru ekki aðilar að
Vinnuveitendasambandi íslands.
Fyrir vélavinnu fær því sveinn i
húsgagnaiðn 13.992 krónur á
viku.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. aflaði sér í gær er hækkunin
hjá trésmiðum á almennu kaupi
34%. Dagvinna hjá múrurum á
fyrsta ári hækkar um 27%, en sé
um viðgerða- og breytingavinnu
eru hækkunin um 28% og er hér
miðað við mánaðarkaup, en Mbl.
er ekki kunnugt um hve mikið
Framhald á bls. 31
Auglýsend-
ur athugið!
Vegna hugsanlegs verkfalls
Grafíska sveinafélagsins n.k.
föstudag, verða auglýsingar,
sem birtast eiga í sunnudags-
blaði 24. marz, að berast aug-
lýsingadeildinni fyrir kl. 18.00
fimmtudaginn 21. marz.
JítoruwnFIa&ifc