Morgunblaðið - 12.06.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.06.1974, Blaðsíða 12
12 MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12.JUNI 1974 LISTAHÁTÍÐ 1974 Sílestur á Kjarvalsstöðum GETA Ijóðskáld dregið að sér áhe.vrendur? Svo sannarlega. Salurinn á Kjarvalsstöðum (ekki stór að vísu) var troðfullur allan þann tíma sem undirritaður sat þar undir sílestrinum á sunnu- daginn. Og nokkur hópur áhevr- enda stóð jafnan frammi á gangi og f.vlgdist með þaðan. Sá hópur fór þó minnkandi (»g stækkandi og hlýddi misvel eftir þvf hvernig hevrðist til skáldsins sem var að lesa þá og þá stundina. Að vísu get ég ekki dæmt um þessa non-stop dagskrá sem heild því ég hlýddi ekki á nema röskan helming hennar — þótti það líka ærið nógur skammtur, svona í einu — en sá hlutinn tókst að mfnum dómi mjög vel ef undan er skilinn sá tæknilegi galli að hátalarakerfið átti til að blanda ískri og ýlfri saman við raddir og hljóma, rétt eins og maður væri kominn á héraðsmót eða þjóð- hátíð 17. júní á einhverjum „hól" eða „velli" eða „vang" undir beru lofti. Það er ræfilskapur að geta ekki haft slíkt í lagi á lista- hátíð, hversem ábvrgðina ber. Sem betur fer létu hvorki stjórnandinn. Asi í Bæ. skáldin sem lásu né áhevrendur það á sig fá, en skemmtu.sér konunglega. Hvert skálð notaði þarna sjálf- valda aðferð: sumir létu rödd sfna berast með hjálp segulbands, eins og Jón frá Pálmholti sem kom bæði með eigin Ijóð og vfsttr. eftir Æra-Tobba, aðrir útdeildu Boðnar miði með lestri sínum einum saman og milliliðalaust og enn aðrir höfðu mé sér hljóðfæra-“ leikara. Fyrstan skal þá frægan telja Ingimar Erlend Sigurðsson. Hann. kom þarna með ný Ijóð úr óprent- aðri bók sem væntanleg er i haust og mun heita Fi.skar á fjalli! Ljóðin sem hann las báru heiti eins og Spor. Krossfbrð. Við tunglgluggann. Hungurvaka. Vor. og svo framvegis. Ingiinar Er- lendur er ekki aðeins Ijóðskáld sem kann sitt fag heldur líka kjör- inn upplesari á eigin Ijóð: skap- mikill og áhersluþungur og ómyrkur í máli; og kannski lika kraftaskáld. Hann er líka fundvís á grunntón andartaksins, og kunna ljóð þau sem hann las þarna því að vera dæmigerð fvrir Hversdagsljóðum (Mörg eru dags augu) sem eru opin og persónuleg og lifði sig svo inn í hlutverkið að engu var líkara en hann væri að lesa fyrir vini og kunningja heima í stofu; hafði hlé á lestrin- um þegar svo bar undir og lét alla jakkafataviðhöfn lönd og leið. Gerði lestur hans í fáum orðum sagt hvinandi lukku. Aðstoðar- menn hans gerðu lika sitt til að koma mannskapnum i stemm- ingu, því hvort tveggja var að þeir voru vel æfðir og vissu líka livað þeir voru að gera: ný stef og gami- ir tónar í bland; gitar f.vrir líðandi stund; harmonikan til að endur- vekja minning um veröld sem var; hvort tveggja eins og hvert ljóð gaf tilefni til. Asi í Bæ stjórnaði dagskránni ,,af skörungskap og festu" eins og stundum er sagt við hátíðleg tæki- færi, en þoldi önn fyrir þau tæknilegu vandamál sem ekki var á hans valdi að leysa. Nokkrum sinnum kallaði hann nafn Gunn- ars Dal. En allt kom f.vrir ekki: Gunnar Dal varð að vera „heiðursgesturinn sem ekki er viðstaddur,” en vera má að hann hafi heimst til fundar eftir að undirritaður hvarf á braut. Megi svo draga einhverja víð- tækari ályktun af dagskrá þessari vil ég aðeins segja að gengi íslenskrar Ijóðlistar hafi að minnsta kosti ekki sigið þarna á Kjarvalsstöðum svo ekki sé dýpra i árinni tekið. Var bæði fróðlegt og uppörvandi á að hlýða og eins að virða fyrir sér hvers konar hópar fólks sækja slika samkomu á því herrans og þjóðhátiðarári 1974; þarna var engin ein mann- gerð annarri fremur; fólk á öllum aldri, flest kannski ungt. Þó ein- hver hafi kannski komið þarna til að vera „menntaðri" eftir en áður gæti ég trúað að flestir hafi lagt leið sína á þennan ljöðlestur af þeirri ástæðu einni að þá hafi í hjarta sinu langað til þess og fundist að þarna færi fram nokkuð sem þeir mættu ekki missa af, mættu ekki án vera. það sem er að gerast i ljóðlistinni, yfirleitt, um þessar mundir. En muni einhver betur eftir skáldinu sjálfu en ljóðum hans frá þessari stund held ég það sé ekki beint ljóðanna sök. Unga k.vnslóðin átti þarna sina fulltrúa. Steinunni Sigurðar- dóttur heyrði ég hvorki né sá, því miður. Kristinn Einarsson las nokkur ljóð, áhevrilega. Engu að síður hvgg ég að um þau megi segja líkt og maðurinn sagði um býflugurnar, að auðveldara væri að skoða þær ef þær væru dálítið stærri. Sum Ijöð Kristins skorti ef til vill ekki nema herslumuninn til að vera sæmilegur skáld- skapur. En sá herslumunur — hversu litill sem hann virðist vera — er þö sá þröskuldur sem suinir komast aldrei vfir þrátt f.vrir ærna viðleítni. Vonandi verður Kristinn búinn að finna sinn hreina tón fvrir næstu listahátíð. Olafur Haukur Sfmonarsori er hins vegar að verða þjöðskáld. vesalings pilturinn. guð hjálpí honum, það hlýtur að vera ógaman á svo ungum aldri. Ekki sópar að honum í líkingu við t.d. ingimar Erlend. Samt nær hann öðrum betur evrum áhevrenda. Hvernig þá? F.vrir það f.vrsta hefur hann eitthvað að segja. I öðru lagi ef texti hans vel saininn og nýstárlegur. I þriðja lagi — og það hefðu ungu skáidin þurft að vita í.vrir tuttugu, þrjátíu árum — hefur hann húmor, skemmtir áhevrendum án þess nokkru sinni að leggjast svo lágt að sprella fvrir þá. Þess vegna er hann tískuskáldið í dag. Hitt er svo annað mál að hann hefði getað valið betur úr ljóðum sínum fyrir þessa dagskrá, miklu betur. Kristinn Revr skemmti líka 'áhevrendum. en á annan hátt: með gríni fremur en húmor. Kristinn Keyr kann þá aðferð gamalla og góðra hagvrðinga aö fella alþýðulega lífspeki i bundið mál og kr.vdda Ijóð sín með hn.vttnum athugasemdum sem bera fremur vott um orðheppni en djúpa hugsun og er slík rödd einnig goðra gjalda verð í sinfón dagsiris. Jón frá Pálmholti sýndi sig áhorfendum meðan hann var að Áhevrendur að Ijóðalestri koma tæknimálum sínum i lag, en hann og Æri-Tobbi fólu sig síðan vondu segulbandi á vald og sá ég ekki framan í skáldið eftir það. Vona ég að segulbandið verði orðið alveg ónýtt á næsta ljóða- lestri svo Jón verði að standa fyrir máli sínu og Æra-Tobba í eigin persönu; hann getur það ekki síður en aðrir. Jón úr Vör og Jón Oskar máttu heita þarna fulltrúar eldri k.vn- slóðarinnar sem forðum kenndi sig við formbyltingu og þar fram eftir götunum. Jón úr Vör byrjaði á Ættjarðar- ljóði (úr Stund milli stríða, ef ég man rétt) og endaði á Land vort. Sem sagt: minnugur þess að nú er Bðkmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON þjóðhátíðarár. Enda þó Jón lesi ekki nema miðlungi líflega inundi ég ekki kjósa ljóð hans lesin af öðrum; persónan þarf að vera með. Jón Óskar kom með gömul ætt- jarðarljóð sem fluttu mánn tuttugu ár aftur í timann, endur- vöktu hugblæ frá göngum her- námsandstæðinga á sjötta ára- tugnum og færðu manni heim sanninn um að ljóðlistin hefur raunar mikið breyst síðan þá! Skáldkynslóð Jóns Oskars var oft sökuð um innhverfu og sam- bandsleysi við alþýðu manna. Og sjá: með hliðsjón af framlagi hans og fleiri slíkra annars vegar þarna á Kjarvalsstöðum, en yngri skálda hins vegar og viðtökum áheyrenda við hvoru tveggja rann það upp fyrir manni hvernig á þvi mun hafa staðið. Atómskáldin ortu hvorki fyrir alþýðu manna né til hennar, heldur fyrir sinn þrönga hóp sem var að vlsu jafn- tryggur og skáldín sjálf töldu mál- stað sinn hreinan og flekklausan. Sú stund kann að renna upp að púrítönsk alvara nefndra skálda andspænis heimi sem þau töldu vera að farast þyki brosleg, rétt eins og nú er hent gaman að hrolli miðaldamanna undir geigvæn- legum halastjörnum sem þeir skyggndu með skjálfandi hönd fyrir auga. Samt væri fráleitt að segja að hlutur þeirra í íslenskri Ijóðlist væri smár. Ahrif þeirra geta reynst varanlegri en ljóðin sem þeir ortu. En um Jón Óskar er það annars að segja að hann er alltaf skemmtilegt sambland af ágætu skáldi og kostulegum klúðrara; stirður i listrænu tilburöunum; allt um það mannlegur. Jóhann Hjálmarsson las mest úr síðustu bók sinni, Athvarf í himingeimnum og hafði til undirleiks Guðmund Steingríms- son með trommur. Jóhann les eigin ljóð svo aðrir gera ekki betur. Undirleikarinn fór vægt i sakirnar, varaðist greinilega að draga athyglina frá ljóðunum, hugsanlega einum um of. En sam- ræmið var í góðu lagi. enda er Jóhann skálda vanastur ljöðlestri við undirleik, bæði hér heima og erlendis. Ljóðin voru líka vel valin og heildarsvipur pró- grammsins því harla sléttur og felldur. Nokkurt hlé og tilfæringar urðu þegar von var á Matthíasi Johannessen, og tilkynnti Asi í Bæ að að hann væri „kominn hér með fjörutíu manna hljómsveit." Þegar hver og einn var kominn á sinn stað byrjaði skáldið með að svipta af sér jakkanum, hann fauk út í horn, og re.vndist sú athöfn síðan táknræn fyrir efni og flutning ljóðanna. Matthias leiðrétti að „fjörutíu manna hljómsveitin" væri raunar fjórir ungir samstarfsmenn sínir af Morgunblaðinu (Þeirvoru: Björn Vignir og Arni Jörgensen með gitar, Sveinn Guðjónsson ineð gítar og harmoniku og Stefán Halldórsson með rafmagnsbassa). Matthías las meðal annars úr Sinfóníutónleikar Kappreiðar Sindra: r Ahorfendur velja bezta gæðinginn ÞAÐ er alltaf sérlega forvítnilegt að fylgjast með Sinfóníuhljóm- sveitinni á Listahátíðum. Þá hef- ur hún alltaf tekið stórum breyt- ingum, kastað af sér vetrarhamn- um, bætt við sig mannskap. I fyrstu var það innflutt fólk. en nú eru það ungir Islendingar í leyfi frá námi, svo að skyndilega lækk- ar meðalald.ur hljómsveitar- manna um nokkra áratugi — og risið á hljómsveitinni lækkar ekki að sama skapi heldur öllu fremur hækkar það. Á tónleikunum, sem hljómsveit- in hélt á mándudagskvöld stjórn- aði franski hljómsveitarstjórinn Alain Lombard, en einleikari var Jean-Bernard Pommier, sem lék einleik i tveimur píanókonsert- um, A-dúr konsert Mozarts K.V. 488 og Píanökonsert Raveis. Tónleikarnir hófust á „ófull- gerðu sinfóníu" Schuberts. Það var mjög áhrifamikill og vandað- ur leikur. I sterkum samhl.jómum hætti blásurunum við að „óbreinka" hljómana dálítið, en þegar á heildina er litið bar flutn- ingur allur vott um einlægni og djúpa innlifun. Klarínett og óbó- einleikurinn í öðruin þætti var verður sérstaks hróss. Hurðabar- smíð prakkara á lokahljömum sin- fóníunnar kippti mönnum all óþyrmilega ínn á svið hversdags- leikans og raunveruleikans í Há- skólabíói. I'rá því að húsið var opnað hafa slík tiltæki verið vin- sæl prakkarastrik vestur á Melum og oft veriö öskað eftir því, að svo verði frá þessum d.vrum gengið, að þau komi ekki að sök. Á að bíða í önnur 14 ár eftir því? Jean-Bernard Pommier er frá- bær píanisti. Verkin tvö sem hann lék, eru gerólík, en hann var jafn sannfærandi í þeim báðum. Leik- ur hans einkennist af milduin og syngjandi áslætti, og í Iipurð og snerpu er honum ekkert ábóta- vant. Pommier var alveg óþekkt Tónllst eftir ÞORKEL SIGURBJÖRNSSON nafn hér um slóðir, en hann þolir vel nánari viðk.vnningu. Veri hann velkominn hingað sem oft- ast. Tvö atriði úr Utskúfun Fásts eftir Berlioz hnýttu lokahnútinn á þessa tönleika. Þó að hljómsveit- inni tækist vel upp yfirleitt, var svo auðfundiðað stjórnandinn var eitthvað vansæll, enda hef ég ald- rei séð fýluiegri frainkomu á sviði. Islenzkir tönleikagestir gefa ekki frá sér fruinskógahljóð, þegar þeir sýna fagnaðrlæti, en það þarf ekki mikið næini til að finna einiægnina í okkar þung- lamalega klappi. Þetta næmi hafði stjórnandinn ekki og kunni ekki einu sinní þá mannsyði að þvkjast skilja undirtektirnar. Svona höfðingjr þurfa ekkert að vera að leggj á sig hingaö komur. Þorkell Sigurbjörnsson HESTAMANNAFÉLAGIÐ Sindri í Mýrdal og undir Eyjafjöllum heldur sínar árlegu kappreiðar laugardaginn 29. júnl á sinum skjólsæla og fallega kappreiðavelli við Pétursey. Hesta- mannafélagið er 25 ára á þessu ári og þvi verða þetta í senn afmælis- kappreiðar á þjóðhátiðarári, sem þess vegna verður reynt að vanda til eins og kostur er. Kappreiðarnar hefjast með hópreið kl. 2. Að loknum ávörpum verður gæðingakeppni fram haldið, en hún er fjórskipt. I fyrsta lagi eru valdir beztu gæðingar Sindra í A og B flokki og hefst sá dómur föstudagskvöld 28. júni Þar er fyrst og fremst höfðað til gæða hestsins og vilja, en til að dæma um viljann fer dómari á bak hestunum. I öðru lagi verður á kappreiðardaginn valinn „bezti töltarinn" með spjalda- dómum og höfðað þar til sýningar á klárhestum með tölti. í þriðja lagi velja áhorfendur „fegursta gæðinginn” með kosningu á atkvæðaseðli, sem fylgir hverri sýningarskrá og með þvi höfðað til sýningar á alhliða gæðingum. Með þessu móti er reynt að tviskipta gæðingadómum, annars vegar að dæma beztu hestana og hins vegar beztu sýningarhestana, en þetta tvennt þarf ekki alltaf að fara saman. í fjórða lagi fer fram gæðingakeppni unglinga innan 17 ára aldurs og fellur inn í ramma framansagðrar gæðingakeppni Að gæðingadómum loknum hefjast kappreiðar, þar sem keppt verður í 250 m skeiði, 1. verðlaun kr. 5.000.—, 250 m folahlaupi, 1. verð- laun kr. 2.000. —, 300 m stökki, 1 verðlaun kr. 3.000,—, 800 m stökki, t. verðlaun kr 5 000 — og 800 m brokki 1 verðlaun verðlaunapeningur. Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.