Morgunblaðið - 12.06.1974, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12, JUNÍ 1974
Bílvelta
í Kjós
Á laugardaginn varð
bílvelta, að Vesturlands-
vegi í Kjós. Ökumaður
Fiatbflsins úr Reykjavík
missti stjórn á bíl sín-
um, svo hann hafnaði
utan vegar. Bíllinn er
töluvert skemmdur, en
alvarleg meiðsli urðu
ekki á mönnum. Ljósm.
Ólafur Baldursson.
Neðansjávarjarðhitasvæði
finnst við Kolbeinsey
— Kissinger
Framhald af bls. 1
símahleranirnar og því hefði
hann sagt ósatt á fundi slnum
með utanríkismálanefndinni.
Þetta várð til þess, að Kissinger
kallaði saman blaðamannafund-
inn I Salzburg.
Kissinger lýsti því yfir, að hann
myndi þegar hverfa heim til
Washington til að svara spurning-
um utanríkismálanefndarinnar,
ef hún færi fram á það. Sem
kunnugt er, er Kissinger á för
með Nixon forseta á leið hans til
heimsókn til Israels og 4
Arabalanda. Ekki var ljóst í
kvöld hvort Kissinger myndi
yfirgefa föruneyti forset-
ans. Ronald Ziegler, blaðafull-
trúi Nixons forseta, sagði,
að forsetínn myndí þráast
við að samþykkja lausnarbeiðni
Kissingers undir slíkum kringum-
stæðum. Ziegler sagði, að forset-
inn teldi ekki, að Kissinger þyrfti
að verja heiður sinn.
I bréfi sínu til Williams
Fulbright formanns utanríkis-
málanefndarinnar, þar sem hann
fer fram á, að málið verði tekið
fyrir upp á nýtt, sagði Kissinger,
að „aðdróttanir um að ný
sönnunargögn, er sanni, að ég
hafi ekki farið með rétt mál fyrir
utanríkismálanefndinni í septem-
ber sl„ hafa ekki víð nein rök að
styðjast, en aðdróttanirnar koma
á svo viðkvæmum tíma, að ég tel
óhjákvæmilegt, að utanríkismála-
nefndin fari yfir vitnisburð minn
á ný.“
Kissinger hefur margoft sagt,
að hann hafi aldrei átt neinn þátt
í því að fyrirskipa símahleranir
hjá ráðgjöfunum og fréttamönn-
um, hann hafi aðeins rætt vanda-
málið vegna leka ríkisleyndar-
mála til fjölmiðla og afhent Nixon
forseta nöfn yfir þá aðila, sem
höfðu aðgang að þeim leyndar-
málum.
Viðbrögð bandarískra þing-
manna við hótun Kissingers um
að segja af sér voru mjög á þá
leið, aðslíktmætti hann alls ekki
gera. Hann hefði reynzt landi
sínu frábær þjónn, og að Banda-
ríkin mættu alls ekki missa hann
á þessum viðkvæmu tímum. Eru
þingmennirnir sammála um, að
nauðsynlegt sé að afgreiða mál
þetta í eitt skipti fyrir öll sem
allra fyrst. Einn öldungadeildar-
þingmaður, George Aiken frá
Vermont, sem á sæti I utanríkis-
málanefndinni, sagði: „Bölvaður
kjáni er hann, getur hann ekki
tekið gagnrýni, sem er beinlínis
bundin starfinu.“ Edmund
Muskie sagði: „Ég styð Kissinger
af einlægni og er algerlega and-
vígur þvi, að hann segi af sér.“ í
sama dúr voru svör flestra þing-
mannanna.
Á morgun verður ljóst hvort
Kissinger þarf að snúa heim til að
svara spurningum utanríkismála-
nefndarinnar, eða hvort þess ger-
ist ekki þörf.
— Rústa niður
Framhald af bls. 32
óseldar hér heima eða erlendis
fram á næsta vor.
„Við í Bílgreinasambandinu
teljum ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar í efnahagsmálunum ekkert
pólitískar, og okkur er sama þó
svo að t.d. innflutningur á hljóm-
flutningstækjum og öórum þeim
vörum, sem fólk getur verið án
I VORLEIÐANGRI rannsókna-
skipsins Bjarna Sæmundssonar,
sem stóð frá 21. maf til 9. júnf,
urðu leiðangursmenn varir við
einkennilegt fyrirbæri neðan-
sjávar f námunda við Kolbeinsey.
Við frekari rannsóknir kom í ljós,
að þarna var um að ræða neðan-
sjávarjarðhitasvæði.
I tilkynningu frá Hafrann-
sóknastofnuninni segir orðrétt
um rannsóknir á þessu fyrirbæri:
I fyrri leiðangri hafði orðið vart
við einkennilegt fyrirbæri í um
það bil 5.7 sjómílna fjarlægð suð-
ur af Kolbeinsey, þar sem sam-
felldar lóðningar komu fram á
dýptarmæli á örlitlu svæði og
dragist saman,“ sagði Gunnar og
bætti við: „Hinsvegar er það
óverjandi, að innborgunarskyld-
an skuli sett á atvinnutæki eins
og vörubíla, sendi- og langferða-
bifreiðar."
Almennt eru bifreiðar ákaflega
ódýrar í kaupum frá verksmiðjun-
um og þrátt fyrir hinn gífurlega
innflutning á bifreiðum á þessu
ári, en nú mun vera búið að flytja
inn um 5000 bíla á árinu, hafa
ekki farið nema um 300 milljónir
kr. af gjaldeyrí til þeirra kaupa.
Það, sem ofan á bætist, eru inn-
flutningsgjöld, tollar, söluskattur,
flutningsgjald, vátryggingar,
bankakostnaður, álagning og fl.
Sagði Gunnar, að um þessar
mundir væri cif. verð fólksbíla
um 34% af útsöluverði, en um
52% af meðal vörubíl, og um 42%
af jeppa- og sendibifreiðum.
Hlutur ríkisins væri um 54% af
fólksbílum, 40% af vörubílum og
46% af jeppa- og sendibílum. I
marz s.l. hefði söluskattur hækk-
að og í maí innflutningsgjald svo
nú væri hlutur ríkisins meiri en
áður og cif. verðið því lægri pró-
sentutala.
Verðmæti innflutnings fólks-
bíla, fyrstu fjóra mánuði ársins
var um 642 millj. kr. á cif.-verði,
og ef miðað er við, að það hafi
verið um 36% af útsöluverði, þá
hefur hlutur ríkisins verið um
51% og tekjur rlkissjóðs því verið
um 909 millj. kr. af þessum sök-
um.
Söluverð jeppa- og sendibifreiða
var um 257 m. kr. á þessu
tímabili og tekjur ríkisins um 257
millj. kr. Verðmæti innflutnings
vörubifreiða, almenningsbifreiða
og annarra bifreióa, nam um 302
millj. kr. á þessu tímabili og
tekjur rfkissjóðs um 209 millj. kr.
— Heildarinnflutningur fyrstu 4
mánuðina af bifreiðum var kr.
1.201 millj. kr. á cif.-verði og sam-
kvæmt því ættu tekjur ríkisins
hafa numið um 1.369 millj. kr.
Þá má geta þess, að af fólksbif-
reið, sem kostar I útsölu 613 þús.
kr. renna rúm 313 þús. kr. til
ríkisins, og af vörubíl, sem kostar
2.4 millj. kr. fara 925 þús. kr. til
ríkisins.
Gunnar sagði I lok fundarins, að
ef vörubilar og langferðabifreiðar
yrðu ekki leystar undan inrt-
borgunarskyldunni, þá myndu
þessar bifreiðar standa I geymslu-
portum og rústa niður I stað þess
að vera I notkun, þar sem gagn
væri fyrir þær.
mynduðu mjóa súlu, er náði upp
undir yfirborð. Þetta var á 194 m
dýpi, utan I kvos á sjávarbotn-
inum. Ákveðið var að kanna þetta
fyrirbæri nánar I þessum leið-
angri. Nú fannst þessi staður
ekki, en hins vegar kom I ljós
sams konar fyrirbæri nokkru
norðar á 89 metra dýpi I 3.6 sjó-
mílna fjarlægð frá Kolbeinsey I
stefnu rétt vestan við suður.
Þarna kom fram sams konar súla
eða ský sem teygðist upp að yfir-
borði frá 50—100 metra háum
neðansjávarhól. Yfir þessu svæði,
sem reyndist vera aðeins um 50
metrar I þvermál, sat stór fugla-
hópur. Dregnir voru háfar gegn-
um „skýið“, en ekkert óvenjulegt
fékkst I þá. Við nánari athugun
reyndist vera um loftbólur að
ræða, sem stiga þarna upp og
voru mjög þéttar I kjarna súl-
unnar. Þær stærstu sýndust vera
nokkrir sentimetrar I þvermál.
Frá gúmbát tókst að safna sýnum
af gasinu og verður það tekið til
rannsókna. Þrjú botnsýni voru
tekin, en I botngreipina kom lítið
eitt af hraunsteinum og möl, sem
auðsjáanlega var gömul. Þar sem
svæðið var svo iítið I þvermál, eða
um það bil skipslengdin, var
erfitt að ná sýnum úr kjarna þess.
Ekki varð vart við neina hækkun
á sjávarhita nálægt botni, en
þegar sjálfritandi tæki voru höfð
úti miðdýpis og skipið látið reka
yfir svæðið, komu fram örlitlar
breytingar á gegnskini og hita-
stigi.
1 40 metra dýpi fékkst eitt sýni
úr miðri súlunni og var af því
megn brennisteinslykt. Bendir
það til þess, að hér sé um neðan-
sjávarjarðhitasvæði að ræða, og
frekari staðfesting á því fékkst
með kísilmælingu, sem sýndi, að
kísilmagn þessa sýnis var um það
bil helmingi meira en annars
staðar á sama dýpi. Þá bentu súr-
efnismælingar til þess, að hér
ætti sér stað uppstreymi af sjó
samfara gasuppstreyminu. Að
lokum var þetta svæði kortlagt
nákvæmlega. Við teljum mjög
áhugavert, að gerðar verði frekari
rannsóknir á þessum slóðum.
í vorleiðangri Bjarna Sæ-
mundssonar voru að þessu sinni
gerðar óvenju fjölþættar rann-
sóknir víða við landið, eða á sam-
tals 140 stöðum. í þeim rannsókn-
um kom m.a. fram, að sjávarhiti
er tiltölulega hár miðað við árs-
tíma á öllu svæðinu umhverfis
island. Leiðangursstjóri var dr.
Unnsteinn Stefánsson haffræð-
ingur.
— Sjónvarps-
kynning
Framhald af bls. 32
högun kynningarinnar, en fram-
bjóðendurnir eru þrlr.
Utsendingin I kvöld hefst
klukkan 21, og kynna þá eftirtald-
ir flokkar stefnumál sín; Sjálf-
stæðisflokkur, Marx-Leninistar,
Alþýðubandalagið, Samtök
Frjálslyndra og vinstrimanna og
Lýðræðisflokkurinn I Reykjavík.
Á föstudaginn klukkan 21,25
kynna Framsóknarflokkur, Al-
þýðuflokkur, Lýðræðisflokkurinn
á Akureyri og Fylkingin stefnu-
mál sín. Hver flokkur hefur 30
mínútur til umráða, nema nýju
flokkarnir, sem hafa 15 mínútur.
Flokkarnir ráða sjálfir tilhögun
kynningarinnar.
í gærkvöldi lauk tveggja kvölda
kynningu flokkanna I útvarpi. Á
miðvikudaginn sitja forystumenn
flokkanna fyrir svörum I sjón-
varpi, og 26. júní verða hring-
borðsumræður I sjónvarpssal, og
þeim verður síðan útvarpað
seinna um kvöldið.
— Akureyri
Framhald af bls. 32
forseti Soffía Guðmundsdóttir
(G). Þá var Bjarni Einarsson
endurkjörinn bæjarstjóri með
öllum greiddum atkvæðum, 11 að
tölu. í bæjarráð hlutu kosningu
Sigurður Öli Brynjófsson (B),
Ingólfur Árnason (J), Soffía Guð-
mundsdóttir (G), Gísli Jónsson
(D) og Jón G. Sólnes (D). Auk
þess var kosið I um 40 nefndir á
vegum bæjarins. — Sv. P.
— Sigalda
Framhald af bls. 32
engar óyggjandi sannanir lægju
fyrir um, að þeir fengju greitt
lægra kaup en íslendingar, en þó
benti ýmislegt til þess. Sagði
Sigurður, að verkalýðsfélögin
myndu ekki líða það, að Júgó-
slavar yrðu ráðnir til Sigöldu á
meðan íslenzkir verkamenn væru
á biðlista. Þá sagði hann, að júgó-
slavneska verktakafyrirtækið
virtist leggja sig fram um að fæla
Islendinga frá staðnum, til að
geta ráðið Júgóslava I þeirra stað.
Væri ákaflega margt við SigöldUj
sem verkalýðsfélögin teldu, að
betur mætti fara.
Þá ræddi Mbl. einnig við Pál
Ólafsson verkfræðing hjá Energo-
projekt I gærkvöldi. Hann sagði,
að allt hefði verið með kyrrum
kjörum I gær og Júgóslavarnir við
vinnu, enda verkalýðsfélögin
veitt vikufrest. Sagði hann, að af
38 Júgóslövum hefðu 22 atvinnu-
leyfi frá ráðuneytinu og umsóknir
10 annarra lægju fyrir ráðuneyt-
inu. Hafði Páll þessar upplýsing-
ar eftir yfirverkfræðingi fyrir-
tækisins.
r
— Ovissa
Framhald af bls. 32
gefið 37 milljónir króna á þessu
ári. Þarna var því um að ræða
fyrirætlanir um fjáröflun upp á
nær 1000 milljónir króna, sem
ekki hlutu afgreiðslu og verður
ekki séð, hvernig rfkisstjórnin
ætlar að útvega þetta fjármagn.
Við þennan mikla fjárskort Vega-
gerðarinnar bætist, að halli henn-
ar frá fyrri árum nemur 267 millj-
ónum króna og var ráðgert I vega-
áætlun þeirri, sem lögð var fyrir
Alþingi I vor, að dreifa honum á
3. ár, þar af 67 milljónir króna I
ár, þannig að I raun og veru er
fjárskortur Vegasjóðs miðað við
samþykkta vegaáætlun 1974 um
2100 milljónir króna.
HVAR KEMUR
FRESTUNIN NIÐUR?
I samþykktri vegaáætlun fyrir
árið 1974 var ráðgert að verja 806
milljónum til hraðbrauta. Ríkis-
stjórnin lagði til, að af þeirri upp-
hæð yrði frestað framkvæmdum,
er næmu um 336 milljónum
króna, en nú ríkir óvissa jafnvel
um það, sem eftir átti að standa. 1
Austurlandsáætlun átti að leggja
214 millj. kr. samkvæmt sam-
þykktri vegaáætlun. Ríkisstjórnin
lagði til frestun að upphæð 93
millj. kr. Nú ríkir óvissa um það,
sem eftir stendur. I Norðurlands-
áætlun átti að leggja I ár 325
milljónir. Ríkisstjórnin vildi
fresta 140 milljónum, nú ríkir
óvissa um það, sem þar stendur
eftir. 1 þjóðbrautir átti að leggja
246 milljónir. Lagt var til að
fresta 106 milljónum. í lands-
brautir átti að leggja 295 millj.
Lagt var til að fresta 127 millj. en
sem fyrr segir er nú allt I óvissu
um þessar framkvæmdir vegna
hins gífurlega fjárskorts Vega-
sjóðs.
— Skammtur
Framhald af bls. 19
einast jafnmörgum öðrum
sameiningarmönnum I jafn-
mörgum sameiningarflokkum.
Að vísu sýnist einstaka sér-
vitringi sem hið eina, sem
þessir flokkar eigi sameigin-
legt sé, að vera á einum og
sama kjörseðlinum, hver I bar-
áttu við annan.
DAVÍÐ ODDSSON.
---------------
r
— Ahorfendur
Framhald af bls. 12
Eigendur og knapar kappreiðahrossa
eru sérstaklega velkomnir á þessar af-
mæliskappreiðar Sindra með hross
sin.
Lokaskráning sýningar- og kapp-
reiðahrossa fer fram á Sindravelli
föstudaginn 28. júní að kveldi en
tilkynnist annars fyrir þann tíma sr.
Halldóri Gunnarssyni, Holti, eða Einari
Þorsteinssyni, Sólheimahjáleigu.
Á laugardagskvöld 29. júní verður
haldinn dansleikur á vegum félagsins i
Leikskálum í Vik, þar sem undurleik
annast hljómsveit Guðmars Ragnar-
sonar.
— Stórstúkuþing
Framhald á bls. 15
sem I barnastúkunum og á meðal
ungtemplara.
Reglan hefur nú I 75 ár gefið út
barnablaðið Æskuna, sem er
stærsta og fjölbreyttasta barna-
blað, sem hér er gefið út, og þótt
viðar væri leitað, auk þess sem
hún mun vera útbreiddasta tíma-
ritið hérlendis. Æskan rekur
bókaverzlun I Reykjavik og ann-
ast einnig umfangsmikla bókaút-
gáfu.
Þá má nefna, að unglingareglan
hefur sl. 12 árigefið út Vorblómið,
sem er ársrit.
íslenzkir góðtemplarar eru aðil-
ar að Norræna góðtemplararáð-
inu og alþjóðasamtökum templ-
ara, I.O.G.T.
Alþjóðasamtökin halda þing I
Helsinki I júlimánuði n.k. og er
gert ráð fyrir, að það þing sæki 63
fulltrúar frá íslandi.
— Um að vera til
Framhald af bls. 3 -
Mozarts og fékk frábæra dóma, I Carmen eftir Bizet
og Falstaff eftir Verdi. Einnig I „Turn of the
Schrew" eftir Benjamin Britten, sem sjálfur kom
til Danmerkur til að taka við Sonningverðlaunun-
um og vera við sýningar. En Bonna Söndberg er
ekki síður fræg fyrir söng á hljómleikum og kirkju-
tónlist. Hún og Lone Hertz hafa áður komið fram
saman I kirkju I dagskrá, sem maður Bonnu
Söndberg, Stein Ulldalle, setti upp. Lone
Hertz stóð þá við altarið og flutti textann, en
Bonna Söndberg söng á söngpalli. Þær báð-
ar og Torben Petersen settu líka saman I
fyrrasumar, I samvinnu við Stein Ulldalle,
blandaða dagskrá I Grassteinhöll, en Tor-
beri Petersen er tónskáld, píanóleikari og óperu-
stjóri við Konunglega leikhúsið og viðurkenndur
sem fremsti túlkandi nútimatónlistar I Danmörku.
Hann svaf enn vært uppi á Hótel Sögu, þegar
fréttamaður blaðsins hitti konurnar I morgunverði
I Norræna húsinu.
En tilefni þess að þau komu hingað var það, að
þegar þau voru beðin um það, þá langaði þau til að
setja saman dagskrá með blönduðu efni, sem nær
allt frá gullaldarhöfundum og fram til nútímans
með upplestri, söng og tónlist. Og Torben Petersen
hefur samið nýja tónlist fyrir sumt af þessu. Þessi
dagskrá er frumsamin fyrir listahátíð, en verður
væntanlega flutt síðar og víðar. Þetta er létt og
leikandi sambland af efni, sem flutt verður i
Norræna húsinu I kvöld. Það verður danskt kvöld
með samfelldri dagskrá, þar sem þessar tvær frægu
listakonur á sviði leiklistar og sönglistar flytja ljóð
og lag með þátttöku tónskáldsins og píanóleikarans
Torben Petersen. Þær ræða saman um samband
sitt við áhorfendur og hlustendur um listina og
lífið — um það „að vera til.“