Morgunblaðið - 12.06.1974, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1974
15
Innlendar fréttir í stuttu máli
Hollenzkur tjaldvagn
á íslenzkan markað
NÝTT fyrirtæki, Búsport h/f
hefur nú hafið innflutning á
hollenzkri gerð tjaldvagna, svo-
kölluðum Paradisotjaldvagni.
Paradiso er þeim kostum bú-
inn, að hann má leggja saman
og er því einkar hentugur á
vegum úti. Tjaldvagninn er
borinn uppi af rafsoðinni stál-
grind og vegur alls 320 kg, en
leyfilegur aukaþungi er 110 kg.
Frammi í vagninum er tvf-
breytt rúm en aftur f er rúm-
stæði og pláss fyrir 1—2 hengi-
rúm fyrir börn. Þannig getur
allt að 5 manna fjölskylda sofið
f vagninum.
Sjálfvirkur búnaður til
aksturs afturábak er nýjung,
sem veidur því, að útilokað er,
að vagninn leggist þvert í borð,
þegar honum er ekið afturá-
bak. Vagninn er ailur mótaður
úr tvöföldu styrktu trefjaplasti
og eru veggir úr þéttum tjald-
dúk með fjórum plastgluggum
og tveimur loftræstigluggum
með neti fyrir. A framhliðinni
eru 3 traustir plastrennilásar,
þannig að hægt er að nota tjald-
dúkinn fyrir þeirri hlið sem
skyggni. Verð vagnsins er um
260 þúsund krónur.
Aðalfundur SÍP
AÐALFUNDUR Sambands
fslenzkra sparisjóða var hald-
inn f félagsheimili Glæsibæjar-
hrepps laugardaginn 8. júnf s.I.
Mættir voru milli 30 og 40 full-
trúar frá sparisjóðunum, en nú
eru alls starfandi 46 sparisjóðir
f landinu.
Friðjón Sveinbjörnsson for-
maður sambandsins flutti
skýrslu stjórnar. Kom þar m.a.
fram, að innlög í sparisjóðina
höfðu aukist um 29.6% á sl. ári
og voru heiidarinnlán í spari-
sjóðunum 4.873 milljónir f árs-
lok 1973.
Stjórn Samhands fsl. spari-
sjóða skipa nú, Friðjón Svein-
björnsson, Borgarnesi, for-
maður, Sólberg Jónsson,
Bolungarvfk, Ingi Tryggvason,
Kárhóli, Hörður Þórðarson,
Reykjavfk og Guðmundur Guð-
mundsson, Hafnarfirði.
Lýðræðisflokk-
urinn ánægður
LÝÐRÆÐISFLOKKURINN f
Norðurlandskjördæmi eystra
hefur tekið fram að gefnu til-
efni, að hann telji tfma þann
sem nýju stjórnmálaflokkarnir
fá f útvarpi og sjónvarpi eðli-
legan og sanngjarnan. Segir í
tilkynningu að aukin útsending
auki jafnframt skattbyrði
borgaranna.
Skólaslit
ÞINGHOLSSKOLA f Kópavogi
var slitið föstudaginn 31. maf
s.l. í skólanum voru í vetur 428
nem. í 17 bekkjardeildum.
Undir gagnfræðapróf gengu
56 nem. Hæstu einkunn á gagn-
fræðaprófinu hlaut Elín
Ragnarsdóttir 7,9, en Helga
Gfsladóttir fékk hæstu einkunn
í samræmdum greinum 7,4.
Landspróf miðskóla þreyttu
52 nem. 33 náðu framhalds-
einkunn eða endurtökurétti.
Hæstu einkunn hlaut Þórdfs
Kristleifsdóttir 8,7.
Undir unglingapróf gengu
128 nem. Helga Sigurðardóttir
hlaut hæstu aðaleinkunn 8,9.
Undir árspróf úr alm. 3. bekk
gengu 67 nem. og úr 1. bekk
125. nem.
ÁÆTLUNARFERÐIR
MILLÍ AKUREYRAR
OG ÍSAFJARÐAR
SÍÐASTLIÐINN föstudag hóf
Flugfélag islands áætlunar-
ferðir milli Akureyrar og Isa-
fjarðar. Þessar ferðir verða
framvegis tvisvar f viku með
Frienship skrúfuþotum, á
mánudögum og föstudögum.
Flugáætlun er þannig, að frá
Reykjavfk er farið kl. 8.00 að
morgni og flogið til Akureyrar.
Eftir stutta viðdvöl þar er
flogið til Isafjarðar. Þaðan er
farið aftur til Akure.vrar og
síðan til Reykjavfkur. Gert er
ráð fyrir að flug milli þessara
staða haldi áfram allt árið, en
næsta sumar verði ferðum
fjölgað. Auk farþegaflutninga
er gert ráð fyrir verulegum
vöruflutningum á flugleiöinni
milli Ísafjarðar og Akureyrar.
Fyrst um sinn munu því flug-
vélar á þessari flugleið verða
með 32 sætum og geta flug-
vélarnar þá tekið allt að 3000
kg. af vörum í ferð.
Vilja breytingu
á lærdómstitli
AÐALFUNDUR Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
var haldinn 30. maí s.l. Fráfar-
andi formaður félagsins, Þórir
Einarsson, flutti skýrslu stjórn-
ar um starfsemina á s.l. ári.l
ræðu hans kom m.a. fram, að
hafinn væri undirbúningur að
Norræna sagnfræöingamótinu,
sem haldið verður hér á landi
sumarið 1975. Slfk mót hafa
verið haldin á Norðurlönd-
unum á 3—5 ára fresti f rúm
100 ár.
Á aðalfundinum voru sam-
þykktar breytingar á lögum fé-
lagsins og einnig tilmæii til
Viðskiptadeildar háskólans um
breytingu á lærdómstitli við-
skiptafræðinga.
Á fundinum fór fram stjórn-
arkjör og var Valur Valsson
kjörinn formaður. Aðrir f
stjórn eru: Helgi Bachmann,
Ólafur Davfðsson, Arni B. Birg-
isson, Árni Ó. Lárusson, Þráinn
Eggertsson og Eggert Hauks-
son.
Þjóðhátiðarsýningin „Þróun
’74” verður opnuð 25. júlí
ÞJÓÐHÁTÍÐARSÝNINGIN
„Þróun ’74“ verður opnuð f
Laugardalshöllinni þann 25. júlf,
n.k. og stendur hún fram til 11.
ágúst. A sýningunni er sýnd
þróun atvinnuvega landsmanna,
þáttur rfkisins, Reykjavikur-
borgar, menntun landsmanna og
fl. Það er þjóðhátfðarnefnd, sem
upphaflega átti hugmyndina að
þessari sýningu, en henni er skipt
niður í átta deildir.
í anddyri Laugardaishall-
arinnar sýnir stjórnarráðið, í
kjallara er kynning á mennta-
kerfinu og skólum landsins. I
aðalsal er svo sýning Reykja-
víkurborgar, en þar verða einnig
deildir atvinnuveganna.
Formaður sýningarnefndar er
Jónas Jónsson aðstoðarmaður
fjármálaráðherra. Sagði hann á
fundi með blaðamönnum i vik-
unni, að þungmiðja sýningar-
innar yrði gamli sveitabærinn, en
segja má, að þangað megi rekja
alla þróunarsögu landsins í
gegnum aldirnar. Þá verður á
sýningarsvæði iðnaðarins litil
smiðja og sömuleiðis leirkera-
smiði. Á sýningarsvæði sjávarút-
vegsins verður komið fyrir nausti
og á svæði landbúnaðarins mun
standa nýtizku fjós.
Á meðan á sýningunni stendur
verður alltaf eitthvað um að vera
á kvöldin. Fjöldinn allur af heim-
ildarkvikmyndum verður sýndur,
meðal annars alveg ný mynd um
hringveginn, sem verið er að
ljúka við þessa dagana. Einnig
verða einhver skemmtiatriði á
hverju kvöldi. Stendur til, að
framlag komi frá hverjum lands-
fjórðungi og verður hverju héraði
helgað sérstakt kvöld á sýning-
unni, „héraðsvaka”.
Sagði Jónas, að áætlaður sam-
eiginlegur kostnaður við sýning-
una yrði um 11 millj. kr., en síðan
bættist við kostnaður hverrar
deildar, sem væri misjafnlega
mikill. Þetta væri ekki sölusýning
og því riði á, að sem flestir kæmu
á sýninguna, en undirbúnings-
ORKA MED OVOOO FIEJSÍ BÆl OQ SVGOO
ÞRÖUINI
BT74-'l9rJ4
Merki þjóðhátfðarsýningarinnar
„Þróun ’74“, en það gerði Rósa
Ingólfsdóttir á teiknistofu
Myndamóta.
nefndin gerir sér vonir um, að
a.m.k. 60 þús. manns komi á hana.
Kjörorð sýningarinnar er sótt í
Aldamótaljóð Einars Benedikts-
sonar og hljóðar svo: „Orka með
dyggð reisi bæi og byggð.”
Listaverk í minningu
Nínu Tryggvadóttur
A1 Cople.v ásamt dóttur sinni Unu Dóru við afhendingu minnismerkis-
ins. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.).
Dr. A. Copley, eftirlif-
andi eiginmadur Nínu
Tryggvadóttur, afhenti á
mánudaginn sl. Reykja-
víkurborg listaverk til
minningar um konu sína.
Minnisvarðinn er gjöf
hans og Sigurjóns Ólafs-
sonar myndhöggvara, sem
gerði varðann. Athöfnin
fór fram við Kjarvaisstaði,
þar sem listaverkinu hefur
verið valinn staður, aó við-
stöddum forseta íslands og
forsetafrú, borgarstjór-
anum og embættismönn-
um borgarinnar auk fjöl-
margra gesta.
Forseti borgarstjórnar, Ólafur
B. Thors flutti ávarpsorð og fór
hann nokkrum orðum um Dr.
Copley, sem er vel þekktur bæði
sem visindamaður og listamaður.
Dr. Copley ávarpaði síðan við-
stadda, og í ræðu sinni sagði hann
frá aðdragandanum að því, að
hann og Sigurjón ákváðu að ráð-
ast í þetta verk til minningar um
Nínu. Varð að samkomulagi milli
þeirra, að Dr. Copley greiddi öll
útgjöld sem verkinu fylgdu og
hlutur Sigurjóns yrði hin listræna
sköpun og vinna. Dr. Cople.v
kvaðst hafa fallist á tillögu Sigur-
jóns um að gefa Reykjavikurborg
minnisvarðann með því skilyrði
Stórstúkuþing hald-
ið 1 Reykjavík
i SÍÐUSTU viku var haldið f andi stúkur á landinu- eru rétt
Reykjavfk stórstúkuþing góð-
templarareglunnar. Við setn-
inguna var tekinn í notkun nýr
samkomusalur í Templarahöll-
inni við Eirfksgötu.
Þingið stóð frá 6. til 9. júní, en í
tengslum við það var haldið ungl-
ingaregluþing fyrir hádegi 6.
júnf, en einnig var haldinn há-
stúkufundur á sunnudagsmorg-
un.
Þann 10. janúar sl. varð reglan
á Islandi 90 ára, en fyrsta stúkan
á landinu er ísafold nr. 1 á Akur-
eyri, sem enn er starfandi.
Vorið 1884 var stúkan Verðandi
svo stofnuð í Reykjavík og er hún
einnig starfandi enn.
Nú eru félagar í góðtemplara-
reglunni á 12. þúsund, en starf-
innan við 30 talsins, auk þess sem
um 50 barnastúkur starfa.
Innan góðtemplarareglunnar
hefur frá upphafi verið haldið
uppi margvfslegu félagsstarfi og
er svo enn. Lengi vel fór mest ailt
félagsstarf meðal almennings
fram í tengslum við regluna, og
voru mörg félög stofnuð í fram-
haldi af þessu starfi.
Má þar til nefna Leikfélag
Reykjavíkur, Glímufélagið Ar-
mann, Dýraverndunarfélagið og
Samverjann, en það félag lagði
grundvöllinn að stofnun Elli-
heimilisins Grundar.
Margvísleg félagsstarfsemi fer
enn fram á vegum reglunnar, svo
Framhald á bls. 18
að honum yrði valinn hentugur
staður við aifaraleið, þar sem
mörgu fólki væri greiður að-
gangur til þess að sjá það og njóta
þess, og borgin tæki á sig þá kvöð
að tryggja viðhald þess. í lok
ræðu sinnar kvaðst Dr. Copley
fagna þvi að listaverkinu hafi ver-
ið valinn hinn veglegasti staður i
nánu sambýli við myndlistahús
borgarinnar og að afhendingin
skyldi fara fram á sama tíma og
miklir atburðir ættu sér stað, þ.e.'
1100 ára afmæli íslandsbyggðar,
sýningin islenzk myndlist í 1100
ár og samtimis því að Listasafn
islands hyllir Ninu með stórri
yfirlitssýningu á verkum hennar.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur
þýddi ræðu Dr. Copleys á islenzku
og þvi næst afhjúpaði Una Dóra,
dóttir þeirra Copleys og Nínu
verkið. Borgarstjórinn, Birgir isl.
Gunnarsson, veitti listaverkinu
viðtöku og þakkaði fyrir hönd
borgarbúa hina veglegu gjöf.